Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1985, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1985, Qupperneq 10
54 DV. LAUGARDAGUR19. OKTÖBER1985. Fiskveiðilögsagan var fœrð út í 200 milur 15. október 1975 og eru nú liðin 10 ár frá þessum atburði. Með þessari ákvörðun hófst hið tiunda þorskastriða íslendinga og átti eftir að vera háð með meiri hörku en áður hafði gerst á miðunum. Níunda þorskastrið- inu var ekki lokið þegar það tíunda hófst. Niunda þorskastríðið er það strið nefnt sem upphófst þegar íslendingar færðu fiskveiðilögsöguna út i 50 milur 1. september 1972. Það var mikið sem gekk á þegar fiskveiðilögsagan var færð út í 200 milur. Bretar mótmæltu útfærslunni sem fyrr og urðu okkar hörðustu andstæðingar í þessu stríði. Bresk herskip sigldu 54 sinnum á íslensk varðskip og oft munaði litlu að stórslys hlyt- ust af. Bresku togararnir sóttu veiðar sinar lengst af undir vernd herskipa en samt tókst varðskipunum að klippa togvira aftan úr 46 togurum. Langir og strangir fundir voru haldnir á þessu tímabili milli íslendinga og andstæð- inga þeirra. Bretar voru erfiðir viðureignar og 19. febrúar 1976 sleit ísland stjórnmálasambandi við Bretland og kallaði sendiherrann heim og Norðmenn tóku að sér að annast þar af- greiðslu islenskra mála. Þessi ákvörðun var tekin eftir löng og ströng fundarhöld i London. Breska stjórnin lagði fram tillögu til lausnar sem islenska stjórnin hafnaði. Um miðjan mai hófust furtdir islenskra stjórnvalda með utanrikisráðherra Breta fyrir milligöngu norsku stjórnarinnar. Þeim viðræðum lyktaði með þvi að gert var samkomulag 1. júní 1976 og lauk þar með þessu tiunda þorskastriði. APH Geír Hallgrímsson var forsætisráðherra íþorskastríðinu: „Þetta var við- burðaríkur og hættulegur tími” Mikil og erfiö fundahöld stóöu yfir þann tíma sem Bretar og Þjóðverjar voru andvígir því aö fiskveiðilögsaga Islands væri 200 mílur. Geir Hallgrímsson var forsætisráöherra á þessum tíma. „Þegar ríkisstjórn sú, sem ég veitti forstöðu, tók þá ákvöröun aö færa efnahagslögsöguna út í 200 mílur og reglugerð var gefin út af þá- verandi sjávarútvegsráðherra, Matthíasi Bjamasyni, þar aö lútandi 15. október 1975, stóð deilan um út- færsluna í 50 mílur enn yfir. Mönnum þótti of mikið í fang færst með þessu. Sagt var aö það væri enginn fiskur á milli 50 og 200 mílna og það væri fá- sinna að gera neitt frekar í útfærslu þar til Hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna væri lokið. Við töldum hér vera um slíkt lífshagsmunamál aö ræða aö það þyldi enga bið. Erlend veiðiskip höfðu tekið nálægt helming aflans á Islandsmiöum um langt árabil og allir gátu nú séð hvernig unnt væri að lifa í þessu landi ef' við ættum að láta helming af afla okkar í hendur annarra,” sagöi Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra í viðtali við DV. „Eg minnist þess að við héldum því fram að þróunin á hafréttarráðstefn- unni hnigi í þá átt að 200 mílurnar yrðu regla eins og á daginn kom. Og þó þetta hafi verið harðvítugasta land- helgisbarátta okkar þá var hún eftir á að líta tiltölulega stutt því aö í raun lauk henni í maímánuði 1976. Það var guðs mildi að þessi barátta hafði ekki í för með sér manntjón eins og árekstrar á miðunum voru tíðir milli bresku freigáínanna og varðskipanna okkar,” sagði Geir Hallgrímsson. Hann sagðist minnast þeirra viðræðna sem hann átti viö Wilson og Callaghan í London. Einnig minnist hann fundar sem hann átti með Crosland, þáverandi utanríkis- ráðherra Breta, og sem hafði nýtekið við af Callaghan. Fundurinn fór fram í íslenska sendiráðinu í Osló. „Á þessum fundi voru lögð drög að því samkomulagi sem var um það bil mánuði síðar undirritað af Matthiasi Bjarnasyni sjávarútvegsráðherra og Einari Ágústssyni utanríkisráðherra. Eftir það samkomulag var sigurinn í höfn en baráttan var oft tvísýn. Þótti sumum á stundum vænlegast að segja sig úr lögum við vestræn ríki og segja sig úr NATO. En sannleikurinn er sá að málflutningur okkar á þeim vett- vangi og stuðningur annarra NATO- ríkja, en við áttum í höggi við, átti ekki síst þátt í farsælum málalokum. ’ ’ — Það hvarflaði aldrei að þér að Island ætti að segja sig úr NATO? „Nei, aldrei. Vegna þess aö ég gerði mér grein fyrir því aö þar hefðum við vettvang til að sannfæra aðra um stefnu okkar aðgerða, enda er þátttaka okkar í NATO forsenda öryggis og frelsis okkar.” — Voru Bretar ekki harðir í horn aö taka? „Jú, vissulega voru þeir það. En það hefur síðan vakið athygli að strax eftir að við höfðum fengiö okkar málum framgengt, með samningum, þá notuðu Bretar sér okkar rök í eigin deilum við önnur ríki sem veitt höfðu í þeirra lögsögu.” — Það er að sjálfsögðu margs að minnast frá þessum tíma? „Jú, það var til dæmis mjög harðvítugur fundur sem við héldum í London. Við héldum mjög langa fundi, bæði á sveitasetri forsætisráðherrans og í Downing Street 10 og ennfremur í þinghúsinu. Það er að sjálfsögðu margs aö minnast frá þessum fundi. Eg man eftir því að þegar Callaghan, sem varð skömmu síðar forsætisráðherra, kvaddi mig sagði hann viö mig. „Ur því aö það er svo erfitt fyrir okkur að komast að samkomulagi getum við ekki verið sammála um það að vera ósammála?” Þá svaraði ég því að það væri engin lausn og hvenær sem væri gæti slíkt leitt til manntjóns á miðunum, svo að ekki væri talað um þá fiskveiöihagsmuni sem í húfi væru fyrir okkur.” — Hvað er þér minnisstæðast af því sem gerðist á hafi úti? „Þetta var svo viðburðaríkur tími og svo hættulegur að ég óttaðist í hvert skipti sem síminn hringdi að voöa- fregnir væru á ferðinni. Sem betur fer varð ekki neitt manntjón þó oft væri mjótt á mununum. Það eru margir atburðir sem ég minnist frá þessum tíma. En ég vil að það komi fram hvílíkan kjark og fæmi íslenska landhelgisgæslan sýndi og verður það aldrei metið og þakkað sem skyldi,” sagði Geir Hallgrímsson utan- ríkisráðherra. -APH. Þröstur Sigtryggsson var skipherra i þorskastríðinu: „Klipptum tvo á fímm mínútum" Islensku varðskipin stóðu sig vel í þorskastríðinu. Bretum tókst ekki að hindra það að þau gætu truflað veiðar bresku togaranna þótt þeir sendu hing- að á miðin freigátur og dráttarbáta. Þröstur Sigtryggsson var skipherra á þessumtima. „Þetta var mjög viðburðaríkur tími á margan hátt og það var í mörg hom að líta í sambandi við öryggi skipanna. Mesta hættan stafaöi af dráttarbátun- um og freigátunum sem send voru hingað á miðin í þeim tilgangi að sigla á varðskipin og gera þau óvirk. Þá þurfti maöur sérstaklega að taka tillit til þeirra og gefa þeim ekki færi á sér,” sagði Þröstur Sigtryggsson skipherra í viðtali við DV. „Það var gaman að þessu stundum og svo komu sorglegir atburöir fyrir. Einn vélstjóri hjá mér, Halldór Hall- freðsson, lést um borð og var þaö óbein afleiðing af árekstrí við freigátu. Það sigldi freigáta að okkur og beygði svo frá með þeim afleiðingum að síður skipanna skullu saman. Viö þetta brotnaði lunningin af hjá okkur. Og það fór að leka niður í vélarrúmið þar sem stoðimar á lunningunni rifn- uðu upp. Þegar þetta gerðist vorum við að nálgast hóp togara og freigátan var að reyna að hindra okkur í því að kom- ast að þeim. Við stoppuðum og fórum að reyna að gera við lekann og tylla lunningunni á aftur. Þá kallaöi freigát- an dráttarbát á vettvang og við urðum að forða okkur undan honum. Við- gerðarmennimir voru ekki allir farnir af þilfarinu og það kom smáalda yfir skipið með þeim afleiöingum að Hall- dór datt á þilfarinu og missti meðvitund. Hann komst aldrei til meðvitundar aftur,” sagði Þröstur. Þetta var það hryggilegasta sem kom fyrir hjá Þresti á þessum tíma. „Það skemmtilegasta var þegar hægt var að leika á freigáturnar. Það kom einu sinni fyrir að við vorum einir á öllu austursvæðinu á Ægi. Þá hafði okkur tekist að plata freigáturnar og komumst úr þeirra gæslu. Þær voru víðsfjarri og voru að passa okkur inni í þremur fjörðum og héldu að við værum þrjú mismunandi varðskip. A meðan lékum við lausum hala á miðun- um og tókst að komast inn í togarahóp þar sem við klipptum aftan úr tveimur togurum á fimm mínútum,” sagði Þröstur Sigryggsson skipherra og hef- ur aðeins rifjað upp brot af því sem gerðist í hans skipherratíð í tíunda þorskastríðinu. -APH. nbandi vio nmianii— LEYNILEGUSTU VIÐRÆÐUR SÍÐARI TÍMA VISIR Bajorttjiromélié i ÍTjom: „Notaii söfnunarféð í eigin bógu", segir bœjarstjórn - Sjó bak i i london STJÓRNMÁLASLIT EF FREI- GÁTURNAR KOMA INNFYRIR segir Einar Ágóstsson, utonríkisróðhem ... . ^| Einar Agústsson. 1 _ Ef bresku Iret riu,ri6herr, vlö nktumar vrxfta aftur f..a,r Innfyri, m m«“, milna mörkin eru allar borfuráað stJómmáU sambandi við Bretlai verði slitið ra r**«* ' Veðdoust OO flMM _ No comm.nL nn „lUOnu, Kurí.Uírift- „mnr.nl .«»1 O.ir ‘«™““ riUh.rra, vih innl.mi, o. trl.nil, fr.ttam.nn I.IBinnum oR antulili lip- 2«„ h,nn k.m fri uH framhil ..IrilUr- London 4 miðnæUi sffr bálunum’’ sem að hon- WÆtlm' ósto Tilbúið -omrungs- h - uppkHnt liggur fvrir | Ekkprt 'T’*'•»*■••** •TPkast ÖrBíBBttBQd"" teq” ,WVi.«» \ |«l| I 1 sSítSS’"'_ f« Nokkrar úrklippur úr dagblaðinu Vísi frá þessum stormasama tími

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.