Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1985, Qupperneq 17
DV. LAUGARDAGUR19. OKTOBER1985.
61
sakamál — Sérstæð sakamál — Sérstæð sakamál
Myndarlegur maður — í leit að móðurást.
kerlingu alvarlega? Kerlíngu, sem auk
þess aö vera gömul, er svo bjánaleg aö
segjast vera ástfangin af þessum unga
villimanni.
Enginn hlustaöi nokkru sinni á
„mæðurnar” í lífi Taddeusar.
Nóttina fyrir dramað uppi á svölum
hringdi María í hjúkrunarfræðinginn
sem haföi meö Tad að gera. María
fullyrti að Tad myndi myrða einhvern.
Hjúkrunarfræðingurinn sagöi bara:
„Þú getur ekkert gert! Snúöu þér ekki
til lögreglunnar, það getur orðiö hættu-
legt og getur komiö sjálfri þér í koll.”
Þegar Tad svo setti sitt síöasta
drama á sviö varð lögreglan til þess að
hjálpa honum með þvi að útvega alla
aukaleikarana: 30 lögreglumenn í
skotheldum vestum umkringdu fjöl-
býiishúsiö í níu klukkustundir. Nær-
liggjandi götum var lokað, strætis-
vögnum var beint á aðrar leiðir,
sjúkrabíll var hafður til taks og fjöl-
býlishúsið sjálft var tæmt af fólki.
Tad haföi komiö i heimsókn til Maríu
og hafði Mauser-riffilinn með sér.
Hann hrakti hana út úr íbúðinni.
„Hann var greinilega gersamlega á
valdi geðbilunarinnar,” sagði María.
„Hann var eins og villidýr, virtist ekki
þekkja mig, vissi ekki hvað hann gerði,
vissi ekki hvar hann var.” María
kallaði á lögregluna.
Þegar lögreglan kom með skotsveit
og bíla kom Tad út á svalir og sagðist
vera með sprengideig í fórum sínum.
En hefðu lögreglumennimir hiustað á
„mæðurnar” í lífi Taddeusar hefðu
þeir getað gengiö að því vísu að tal
hans um sprengideig væri ekki annað
eneinhótunintil.
María sagði lögreglunni að Tad hefði
margsinnis reynt að fremja sjálfs-
morð.
Tad hringdi úr íbúðinni og náöi þann-
ig sambandi við Maríu. Hann var þá
orðinn þreyttur, ráðvilltur og vissi ekki
hvernig lögreglan myndi bregöast við.
„Ef lögreglan hefði bara verið róleg
— ekki veriö á svæðinu með allan þenn-
an mannfjölda — þá hefði Tad bara
sofnað,” sagði María. „En í lok sam-
talsins réðst lögreglan til atlögu og
varpaði einum 40 táragassprengjum
inn í íbúöina.
Það síðasta sem heyrðist til hans var
að hann hrópaði gegnum táragasreyk-
inn: „Það illa sem maður gerir í lífinu
það sendir lífiö sjálft manni aftur! ”
Lfkast til átti móöir hans, langt í
burtu í Póllandi, að heyra þessa speki
— ekki lögreglan og ekki María.
Taddeus tók Mauserinn og skaut sig í
höfuðið.
Spurningar
Eftir á spyr fólk margs um Tad.
Hann starfaði lengstum sem farmiða-
sali við neðanjarðarlestina í Stokk-
hólmi. Kona ein, sem stendur afsíðis í
kirkjugarðinum við jarðarförina,
segist hafa vingast við Tad gegnum
son sinn sem hafði löngum leikið sér
við innganginn í lestina.
Konan var einstæð og einhverju sinni
haföi hún ekki ráö á að gefa syni sínum
reiðhjól í afmælisgjöf. Þá bauðst Tad
til aö lána henni peninga.
Því segist hún aldrei munu gleyma.
Þess vegna fylgir hún honum til
grafar. Spurningarnar um raunveru-
legt eðli Taddeusar hrannast upp þar í
kirkjugarðinum: Hefði lögreglan bara
tekið Tad alvarlega þegar hann var að
hóta sjálfsmorði. .. Hefði hann fengið
betri hjálp á taugadeildunum þegar
hann lenti þar.. . Ef það væri bara til
eitthvað í þessu neyslu- og vel-
megunarsamfélagi sem liti til með
veikumsálum. ..
Sektarkennd
„Mæðurnar” lifa eftir með sínar til-
finningar. Karen finnst lífið erfitt. Fólk
hefur dæmt hana fyrir það að hún gaf
sig ekki fram við Tad þegar hann
hrópaöi á hana af svölunum.
Margar hinna kvennanna sakna
hans — sakna hans sem spennandi
elskhuga. En með tímanum grær yfir
söknuðinn — kannski aðrir elskhugar
hjálpi þeim við aö gleyma.
„Mæðurnar” eru allar svo fullorðnar
að þær muna eftir gömlu heimilisfeðr-
unum, vinnuþjörkunum, sem komu
heim til eiginkvennanna og heimtuðu
atlæti, umönnun. Kannski eru þær
sjálfar núna að svipast um eftir þannig
karlmönnum — einhverjum til að ann-
ast. Og þær reyndu að „annast”
Taddeus. En það þurfti meira til en
velmeinandi ekkju á miöjum aldri til
að tjónka við Tad. Hann var sjúkur —
sjúkur af söknuöi.
„Ég held að kynlífið sé það mikil-
verðasta í lífi karlmanna,” segir
María. „Hvað konur snertir er það
áreiðanlega ást og umhyggja. Þetta er
rótgrónara í okkur en við höldum,”
ímyndar hún sér. „En við verðum að
láta ungum konum skiijast að þær eiga
ekki aö ganga mönnum sínum í móö-
urstað,” — segir „móðirin” María.
Sérstæð sakamál — Sérstæð sakamál — Sérst
Nauðungaruppboð
sem auglýst hefur verið í Lögbbl. á fasteigninni Suðurgötu 19 í Sand-
gerði, þingl. eign Sigurðar Guðjónssonar, fer fram á eigninni sjálfri að
kröfu Garöars Garðarssonar hrl. fimmtudaginn 24.10. 1985 kl. 10.30.
Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 109. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 og 3. og 17.
tbl. þess 1985 á eigninni Marargrund 4, Garöakaupstað, þingl. eign
Rúnars Daðasonar, fer fram eftir kröfu bæjarfógetans I Kópavogi og
Gjaldheimtunnar í Garðakaupstað á eigninni sjálfri miðvikudaginn 23.
október 1985 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn í Garöakaupstað.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 109. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 og 3. og 17.
tbl. þess 1985 á eigninni vélaverkstæöi, lóö úr landi Lyngholts,
Garðakaupstað, þingl. eign Sigurðar Sveinbjörnssonar, fer fram eftir
kröfu lönþróunarsjóös á eigninni sjálfri miðvikudaginn 23. október 1985
kl. 14.00.
Bæjarfógetinn í Garðakaupstað.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Grænavatni, lóð úr Krísuvík, Hafnarfirði,
þingl. eign Óskars Agústssonar, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn
22. október 1985 kl. 17.15.
Bæjarfógetinn i Hafnarfiröi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var I 109. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 og 3. og 17.
tbl. þess 1985 á eigninni Vesturbraut 18, Hafnarfiröi, þingl. eign Hjalta
Hjaltasonar, fer fram eftir kröfu Veödeildar Landsbanka islands,
Sigríðar Thorlacius hdl., Brunabótafélags Islands og Ólafs Gústafs-
sonar hdl. á eigninni sjálfri mánudaginn 21. október 1985 kl. 15.15.
Bæjarfógetinn I Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 109. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 og 3. og 17.
tbl. þess 1985 á eigninni Hjallabraut 92, Hafnarfirði, þingl. eign Braga
Brynjólfssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Hafnarfirði á
eigninni sjálfri mánudaginn 21. október 1985 kl. 15.00.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
annað og síöasta á eigninni Flugubakka 6, (1/6 hluti), merkt 6F, Mos-
fellshreppi, þingl. eign Kristins Sigurðssonar, fer fram á eigninni sjálfri
miövikudaginn 23. október 1985 kl. 17.30.
Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Dalatanga 11, Mosfellshreppi, tal. eign
Sveins Gíslasonar, fer fram á eigninni sjálfri miövikudaginn 23. október
1985 kl. 17.00.
Sýslumaöurinn I Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síöasta á eigninni Skólabraut 19, n.h., Seltjarnarnesi, þingl.
eign Lúöviks Jónssonar, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 23.
október 1985 kl. 16.15.
Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 109. tölublaði Lögbirtingablaösins 1984 og 3. og 17.
tbl. þess 1985 á eignini Noröurtúni 6, Bessastaöahreppi, þingl. eign
Andreasar Bergmann, fer fram eftir kröfu Útvegsbanka Islands og Þor-
valds Lúðvíkssonar hrl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 23. október 1985
kl. 15.30.
Sýslumaöurinn í Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 109. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 og 3. og 17.
tbl. þess 1985 á eigninni Smiösbúð 7, Garöakaupstaö, þingl. eign
Manus hf., c/o Ingimundur Árnason, fer fram eftir kröfu Gjaldheimt-
unnar i Reykjavík á eigninni sjálfri miðvikudaginn 23. október 1985 kl
15.00.
Bæjarfógetinn í Garöakaupstaö.