Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1986, Page 12
12
DV. FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR1986
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Helgargóðgætið:
Tandoorí-kjúklingur
1TESKEIÐ GER
VEGUR10 G
Þeir sem sjaldan baka úr geri eru þurrgeri samsvarar 10 g. Þá er átt
kannski ekki alveg vissir um við amerískar mæliskeiðar og það
hvernig á að mæla það. Því þykir sléttfullar.
rétt að taka fram að ein teskeið af -A.Bj.
I framhaldi af ^tórútsölu á kjúkl
ingum verður helgargóðgætið vö
kryddaður Tandoori-kjúklingur. E
reglunum væri fylgt út í ystu æsar
ætti að baka kjúklinginn í þar til
gerðum ofni, sem Indverj^ar kalla
tandoor og rétturinn dregur nafri sitt
af, en við svindlum svolítið og látum
venjulegan eldhúsofn nægja. Það eru
til nokkrar aðferðir við að matreiða
Tandoori-kjúkling en í þessu tilfelli
framreiðum við hann eins og hann
kemur úr ofninum, bætum með sítr-
ónusneiðum og berum fram með
hrísgrjónum og blómkáli.
1.125 g hamflettur kjúklingur (hægt
er að nota læri eða bringur, eða
sambland beggja)
1 tsk. salt
1 sítróna
425 ml. hrein jógúrt
1/2 meðalstór laukur,flysjaður og
saxaður
1 hvítlaukslauf
2 cm af ferskum engifer,flysjað og
saxað
1/2 grænt chilli, grófskorið
2 tsk. garam masala
3 tsk. af gulum matarlit sem blandað
FEBRÚARheftiö er komið
Á blaðsölustöðum NUN A.
2.
Tímarit fyrir alla
5Q'
2. HEFTI-45.ÁR-FEBRÚAR 1986-VERÐ KR.160
Til afnota í heimahúsum
og partíum:
LESIÐ í LÓFA
Bls. 3
OFRJOSEMI
- af hverju stafar hún og hvað er til
úrbóta?
Bls. 63
Skop ................................. 2
l.csið í lóta ....................... 3
Bandarísk auigu yfir So\ ét ......... to
konan scm kunni aó myrða ............ u
Þumlungar milli lífs og dauóa ....... 23
llclstu miarbrögð hcims: Islam ...... 29
komiö, hákarl! ...................... 47
Id Tigrillo: Svipmynd
af andspvrnumanni .................
Ofrjóscmi .......................... f>3
L'r hcirni læk-navísinclanna......... 48
Otrúlcgt cn satt: l'yrsta fcrðin
á nvja bílnum ...................... to
KONAN SEM KUNNIAÐ MYEÐA
- hún var ekkert venjuleg, hún Agatha Christie
Bls. 17
Tilþessaðskiljaheimsmálinverðum úrvalsljóð ......... 74
viö að vita um trúarbrögðin: Mallorka: Sólarparadís íslcndinga
HELSTU TRÚAR- Smáatriðin scm konan scr ............ 8K
TQT> rt UrTTVTQ Margrct á Stcttum ............ 9'
DRUUl/ nriXiYia þorstcinn í Simbakoti ............. 94
I. íslam
Bls. 29
et*
er út í 11/2 tsk. af rauðum matarlit
niðursneidd sítróna
1) Skerið lærin í tvennt og bringurn-
ar í fernt. Skerið tvo skurði á
hvora hlið heggja lærahluta og
skulu þeir ná inn að beini. Skerið
sams konar skurði í kjötmeiri
hluta bringnanna.
2) Leggið kjúklingahlutana á bretti
og saltið og kreistið sítrónuna á
báðar hliðar bitanna. Nuddið
varlega inn í. Látið bíða í 20
mínútur.
3) Blandið jógúrt, lauk, hvítlauk,
engifer, chiili og garam masala
saman í hrærivél og hrærið þar
til blandan er orðin maukkennd.
Síið yfir skál eða móti.
4) Berið matarlitinn á kjúklingabit-
ana og færið yfir í mótið með
kryddblöndunni. Blandið vel
saman og sjáið til þess að krydd-
lögurinn nái að síast vel inn í
kjötið. Breiðið yfir skálina og
geymið í ísskáp í 6-24 tíma.
5) Forhitið ofninn á mesta hita og
takið kjúklingabitana úr krydd-
leginum og setjið í grunnt mót.
Bakið í 20-25 mín. og berið fram
með sítrónusneiðum, hrísgrjónum
og blómkáli.
Athugið að þið getið endurnotað
kryddlöginn einu sinni með því að
frysta hann strax. Það er nokkur
fyrirhöfn við þennan rétt þvi kjötið
verður að fá að marinerast í nokkra
tíma, því lengur því betra verður
bragðið. -S.Konn.
DYR KLIPPING
Á900KR.
Ekki hægt að sleppa við þurrkun
fyrir nærri400 kr.
„Ég get ekki orða bundist yfir hve
dýrt það er orðið að fara á hár-
greiðslustofu, eins og t.d. í klipp-
ingu. Ég fór á dögunum og það
kostaði 919 kr. Ef ég hefði hringt
á undan mér og spurt um verð hefði
ég áreiðanlega fengið það svar að
kiipping kostaði 448 kr. Hitt var
nefnilega aukakostnaður eins og
þurrkun sem seld er á 391 kr. og
lakk og gel á 80 kr. Viðskiptavinir
á hárgreiðslustofum eru látnir
greiða hátt í lakkbrúsaverð fyrir
eina lökkun."
Þetta sagði viðmælandi okkar
sem bar sig upp undan dýrseldri
þjónustu hárgreiðslustofa.
Á þeirri stofu sem hún fór á var
ekki hægt að fá 448 kr. klippingúna
nema hárþurrkunin fylgdi með upp
á nærri 400 kr. Sömuleiðis var hún
ekki spurð hvort hún vildi lakk og
gel í hárið.
Hún sagði einnig frá því að sonur
hennar hefði farið á sömu stofu í
klippingu og strípur. Það kostaði
1700 kr.
„Mér fannst það óeðlilega dýrt
því hárið sem eftir var á höfðinu
eftir klippinguna og sem strípurnar
voru settar í var mjög lítið, aðeins
nokkur hár ofan á höfðinu.
Það er merkilegt að fólk virðist
spá mjög lítið í hvað hlutirnir kosta
og gerir ekki veður út af því. Hér
virðist allt vera leyfilegt hvað
varðar hækkun á verðlagi. Ég trúi
bara ekki að þetta sé eins og það
á að vera,“ sagði konan. -A.Bj.
Verðlag frjálst en
veröskrár eiga
að hanga uppi
„Verðlag hefur verið gefið frjálst
þannig að heimilt er að hafa það
verð sem hverjum og einum sýnist
og við getum ekki gert neitt í þess-
um málum. Ég veit að það er
óhemjumikill verðmunur á þjón-
ustu hárgreiðslu- og rakarastof-
anna, sérstaklega hvað varðar
krakka,“ sagði Hermann Sigurðs-
son, fulltrúi hjá Verðlagsstofnun,
er DV spurði hvort verðlag á hár-
greiðslu- og rakarastofum mætti
vera „upp úr öllu valdi“, eins og
það er gjarnan kallað. „Það eina
’sem við höfum afskipti af varðandi
þessar þjónustustofnanir er að
fylgjast með því að þar hangi uppi
greinilegur verðlisti yfir þá þjón-
ustu sem á boðstólum er. Af og til
eru gerðar skyndiskoðanir á því
hvort þetta ákvæði er haldið og
mönnum gefinn frestur til að kippa
því í lag,“ sagði Hermann.
„Annars hef ég tekið eftir því að
óvenjumikið hefur verið hringt og
kvartað yfir verðlagi á ýmsum
vörutegundum nú undanfarnar
vikur. Það var lítið hringt í haust
en nú síðan um áramót hefur fólk
hringt unnvörpum. [
Það kvartar um verð á ýrtisum
nauðsynjavörum, kafifi, kartöflum
og öllu mögulegu. Því miður getum
við ekki svarað öðru til en því að
verðlagið sé frjálst og að við getum
ekkert gert,“ sagði Hermann Sig-
urðsson.
Það eina sem fólk getur gert
varðandi hátt verðlag er að beina
verslun sinni heldur þangað sem
verðlagið er í lægri kantinum. Og
ef það verður vart við að verðskrár
vanti á áberandi staði á hár-
greiðslu- og rakarastofum, að
kvarta þá yfir því.
-A.Bj.