Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1986, Síða 30
42
DV. FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR1986
ÞÚSUNDKALL VIKUNNAR
ELVIS COSTELLO - DON’T LET
ME BE MISUNDERSTOOD
(F-BEAT)
Þaö má bréfa þaö að hvað sem
Elvis Costello gerir það gerir
hann vel. Hérna ræöst hann ekki
á garðinn þar sem hann er
lægstur, flutningur gömlu skepn-
anna (Animals) á þessu lagi er
enn í hávegum hafður. En Elvis
er snillingur, það er að segja
Costello.
FIMMHUNDRUÐKALL VIK-
UNNAR
PREFAB SPROUT - JOHNNY
JOHNNY (KITCHENWEAR REC-
ORDS)
Aöalpostular gáfumannarokks-
ins eru enn aö puöa við að gefa
út smáskifur sem enginn nennir
að kaupa, hversu góðar sem
þær eru. Þaö er kannski vegna
þess að þetta eru einu smáskíf-
urnar sem þarf virkilega að pæla
i. Og hver nennir að kaupa
smáskifu sem hann þarf að
hlusta tíu sinnum á áður en hann
nær melódiunni. En verður
maður ekki að þykjast vera gáf-
aður?
KLINKIÐ
BANGLES - MANIC MONDAY
(CBS)
Létt og þægilegt popp, skemmti-
legar raddanir, pinulítið gamal-
dags en góð tilbreyting frá öllu
tölvujukkinu. Venst vel.
STEVIE NICKS - I CANOT WAIT
(EMI)
Hún er iðin við kolann sú stutta,
hver smáskifan rekur aðra. Þetta
er svosum allt í lagi, ágætt lag
sem hægt er að ánetjast'en það
stendur ekki upp úr í lengdina.
SARA BRIGHTMAN & STEVE
HARLEY - PHANTOM OF THE
OPERA (POLYDOR)
Lag eftir Andrew Lloyd Webber
þiö vitið; klassiskur tónn og
kraftur til aö byrja með en þegar
söngurinn byrjar koma bólurnar.
Illa fariö meö gott lag en það
mætti kannski nota það í Evr-
ópukeppnina.
JELLYBEAN - SIDEWALK TALK
(EMI)
Madonna semur lagið, Madonna
syngur bakraddir, söngkonan
syngur eins og Madonna, Ma-
donna syngur eins og söng-
konan, Madonna Madonna
Madonna...
REAGINA - BABY LOVE (FUNK-
IN MARVELLOS)
...Madonna, Madonna, Ma-
donna, enn ein Madonnan, hvur-
slags er þetta eiginlega, þurfa
allar nýjar söngkonur að stæla
Madonnu. Hvilík fátækt.
-SþS
Sæl nú!... Simon ,,sjóhund-
ur" LeBon er ekki einn popp-
ara um það að fara illa út
úr viðskiptum sinum við
sjávarguðinn, en eins og
kunnugt er ýmist hvolfir
hann eða strandar snekkju
sínni Drum er hann lætur úr
höfn á annað borð. Nú hefur
Grace Jones gengið í sjó-
slysaklúbb Simma en hún
stakkst á höfuðið á sjóskíð-
um undan ströndum Jamaica
fyrir skemntstu og aðvifandi
hraðbátur gerði sér litið fyrir
og brunaði yfir hana! Rotað-
ist ungfrúin en var svo hepp-
in að góðvinur hennar, Dolph
Lundgren (sá er leikur
heimska Rússann í Rocky),
var nærstaddur og bjargaði
henni eins og hetju sæmir...
LEIKFELAG REYKJAVIKUR - LAND MINS FÖÐUR
Gotthráefni
Atli Heimir segir eitthvað í þá átt
að það sé þægileg tilbreyting að
semja öðru hvoru svona létta tónlist
eins og gefur að heyra á plötunni
Land míns föður. Bara að hann þyrfti
oftar á þægilegri tilbreytingu að
halda! Þá myndi góðum, íslenskum
dægurlögum fjölga. Og poppararnir
okkar mættu vara sig á tónskáldinu
sem hingað til hefur ekki verið í
samkeppni við þá um hlustendur.
Fyrst eftir að ég fékk plötuna Land
míns föður vildi ég helst ekkert
annað, bara spila hana aftur og aftur:
Krían með gargi er komin í bæinn,
kann einhver betri frétt? syngur
kórinn og það er ómögulegt annað
en taka undir. Mann nefnilega lang-
ar að vera með, þetta er allt svo
skemmtilegt. Dálítið mikið ærsla-
kennt á köflum en undurljúft á milli
og laglínurnar sumar hreinustu perl-
ur, yndislega fallegar. Og tónlistin
fellur eins og flís við skemmtilega
og vel.gerða texta Kjartans Ragnars-
sonar. Enda tekst þeim vel að vekja
upp stemmningu, sem mér eldra fólk
verður að dæma um hvort er stríðs-
árastemmning, ég efast reyndar um
að allt hafi verið svona gaman, en
allavega: í meðferð Leikfélagsins eru
stríðsárin svo hrífandi að það liggur
við að ég vildi vera þrjátíu árum eldri
en ég er.
En Land míns föður er ekki góð
plata nema að vissu marki, hún ristir
ekki nógu djúpt og er fyrir vikið
svolítið tæp. Tónlistin er skyld þeirri
sem var vinsæl í söngleikjum á
stríðsárunum, léttur jass og marsar
í fyrirrúmi en rómantiskar ballöður
inn á milli. Það er engin alvara á
ferð, eins og stríðið sé bara fiugelda-
AtliHeimirSveinsson.
sýning og flottir dátar. Það er
kannski allt í lagi að draga upp þá
mynd í söngleik en mér finnst platan
á köflum dálítið sápukúluleg, ærslin
og fjörið helst til mikið. Þetta er
eiginlega einum of léttvægt og stutt
í að vera leiðinlegt. Sápukúlan er á
mörkum þess að springa. Þó lögin
séu yfirleitt kaflaskipt og það virðist
sem Atli Heimir hafi úr nógu að
moða þá er samt of mikið um endur-
tekningar, tönnlast svo á sumum
laglínum að engu er líkara en nálin
hjakki í sama farinu. Eins og gama-
nið megi ekki fyrir nokkurn mun
taka enda.
Leikararnir eru upp til hópa ágætir
söngvarar, í það minnsta ráða þeir
vel við það sem fyrir þá er lagt í
Land míns föður. Það kemur þó fyrir
að fullmikið er lagt á einstaka radd-
bönd.
Jóhann G. Jóhannsson, auk þess
að spila á píanó, stjórnar hljómsveit-
inni, fimm góðum jassistum. Hjá
þeim er allt í góðu gengi, enginn
losarabragur á neinu: Sveiflunni •
haldið innan vissra marka. ^
Enda þótt sitthvað megi finna að
þessari plötu vega þó kostir hennar
þyngra. Það er fengur að henni.
JSÞ
MOTELS - SHOCK
Sjokkerandi gott
Vegir vinsældanna eru órannsak-
anlegir einsog þar stendur og marg-
oft hefur maður horft á með undrun
þegar undirmálsmenn slá í gegn
einsog ekkert sé á meðan hæfileika-
mennirnir lepja dauðann úr skel.
Ekki veit ég hvort Motels hafa
lapið dauðann úr skel en hitt er víst
að þessi hljómsveit hefði átt skilið
fyrir löngu að öðlast almennar vin-
sældir.
Einu sinni tókst þeim að vekja á
sér athygli, það var fyrir fjórum árum
með laginu Only The Lonely.
Síðan þá hafa komið út tvær plötur
með Motels og er það sú síðari, sem
kom út skömmu fyrir áramót, sem
hér ertil umfjöllunar.
Tónlist Motels er á engan hátt
þannig framúrskarandi að hún ætti
þess vegna að vera vinsæl. Þetta er
einfaldlega heiðarlegt rokk með
nútímalegu ívafi; vel gert og meló-
dískt og miklu betra en margt af því
sem verið er að hampa í tíma og
ótíma.
Og það sem gerir það enn óskiljan-
legra að Motels skuli ekki vera
almennt viðurkennd er að hún hefur
séreinkenni sem er meira en sagt
verður um margar vinsælar rokk-
hljómsveitir. Og þetta er söngkonan
Martha Davis. Rödd hennar, dálítið
í hásari kantinum, ljær tónlist Mot-
els það séreinkenni sem greinir hana
frá öllum þeim fjölda rokkhljóm-
sveita sem leika tónlist á svipuðum
nótum.
Þess má svo geta að Martha er
ekki bara söngkona Motels, hún er
Motels, semur bæði lög og texta og
leikur aukinheldur á gítar.
Þó svo að ég hafi í þessari umsögn i
leitast við að benda fólki á kosti
Motels er fjarri því að þessi plata
hljómsveitarinnar sé eitthvert snilld-
arverk, því fer fjarri, hún er misjöfn
að gæðum einsog flestar plötur. Hins '
vegar held ég að enginn rokkunn- i
andi verði svikinn af að kynnast'
Motels lítilsháttar. -SþS-
NOKKRIR VESTM ANN AEYINGAR - EG VILDIGETA SUNGID ÞER
Dyrmætlög í Jónasar Þóris-útsetningum
Er það ekki rétt að Vestmannaeyja-
lög séu dálítið öðruvísi en önnur lög?
Það vilja margir meina, í það
minnsta Vestmannaeyingar. Og ég
er ekki frá því að eitthvað sé til í
því. En hvort það eru eyjamar og
lífið þar sem blása listamönnum
ákveðna anda i brjóst er ég ekki viss
um, enda hef ég aldrei til Vest-
mannaeyja komið og trúi engu fyrr
en ég get snert með fmgrunum. Mér
finnst miklu nær að segja bara að
Oddgeir Kristjánsson og Asi í Bæ séu
svolítið sér á báti og svo þrælgóðir
að allir eyjaskeggjar, sem fást við
laga- og ljóðasmíðar, taki þá sér til
fyrirmyndar, reyni að gera eins og
þeir. Og þó, hitt er auðvitað mun
skemmtilegri og frjósaman skýring
að eyjamar búi yfir svo miklum og
dásamlegum töfrum að hver meðals-
kussi verði skáld og listamaður á því
einu að koma þangað, anda að sér
sjávarseltunni og hlusta á kríu-
gargið.
Reyndar er enginn kominn til að
leysa þá Oddgeir og Ása af hólmi,
það held ég verði seint. Lög eins og
Ég veit þú kemur í kvöld til mín,
Jónas Þórir.
Ágústnótt, Glóðir, Fyrir austan
mána og vestan sól (eða var það
öfugt) og fleiri eru slíkar perlur, eins
og allir vita, að það væri lofsvert ef
hægt væri að búa til eitt slíkt á ári
(og vinna allar Eurovision-keppnir
næstu fimmtíu árin). Já, góðir lands-
menn, þau eru öll á plötunni Ég vildi
geta sungið þér og Minning um mann
og Kvöldsigling líka. Auk þeirra tvö
O.K.-lög sem ég man ekki eftir að
hafa heyrt áður, titillagið og Góða
nótt frá því Oddgeir var ungur og
Loftur Guðmundsson, þá líka ungur,
samdi ljóðið. j
Ég ætla ekki að hafa mörg orð um '
lögin á plötunni, nemakannskisegja ‘
að þau tvö sem ég var að nefna eru
ekki í sama gæðaflokki og hin átta
sem eru öll gamlir og mjög traustir
slagarar. En Jónas ÞO! Þórir er
dálítið kaldur að hræra svona í þeim
með svuntuþeysara og alls kyns
gauragangi. Almáttugur minn, þetta
er hálfgert funk! Það er ekkert mjög
smekklegt og algjör óþarfi að vera
með þess háttar rósir. Það er líka
hæpið að segja að þær blómstri. Þó
venjast þær merkilega vel og brjóta |
allavega ekki þann sjarma sem lögin !
hafa. j
Söngvararnir eru allir Eyjamenn
og auðvitað með tilfinningu fyrir því'
sem þeir gera. Þetta eru mjúkmæltir
menn (ekki illa meint), svona hæfi-
lega vemmilegir og góðir, sætir karl-
ar.
Það er enginn sérstakur fengur að
þessari plötu, á henni eru lög sem
urðu til fyrir löngu og það er litlu
við þau bætt með því að klæða þau
í þennan búning.
Þær sögur ganga nú fjöllun-
um hærra i Bretlanrii aö
Frankie Goes to Hollywood
hafi lagt upp laupana. Tals-
menn hljómsveitarinnar og
hljómplötufyrirtæki þver-
neita þessum fréttum og
segja hljómsveitina vera
stadda á Ermarsundseyjum
við upptökur og æfingar
(ekki sundæfingar þó); enn-
fremur að ný plata sé vænt-
anleg frá Frankie i april...
Duranaðdáendur geta hlakk-
að til sumarsins þvi hljóm-
sveitin hyggst koma saman
að nýju í hljóðverinu í mai
og hefja upptökur á nýrri
plötu. Fram að þeim tima
verður Simmi ..sjóhundur"
að velkjast til sjós en Nick
Rhodes ætlar að setja upp
listsýningu í London. Paris
og New York sein saman-
stendur af myndum lista-
manna sem hver fyrir sig
hefurgrandhlustað á eitt lag
af Arcadiaplötunni og túlkað
áhrifin yfir á léreft (eymingja
mennirnir)... Dire Straits er
nokkuð örugg með að fá
einhver Grammy verðlaun
þegar þau verða afhent 25.
febrúar næstkomandi.
Hljómsveitin hefur nefnilega
verið útnefnd til átta verð-
launa hvorki meira né minna.
Þar á meðal má nefna verð-
laun fyrir plötu ársins, bæði
litla og stóra, lag ársins og
myndband ársins svo eitt-
hvað sé nefnt... Evrópska
innrásin á breska vinsælda-
listann heldur áfram; næsta
innrásarlið sem, spáð er
miklum frama, er svissnesk-
ur dúett, Double. sem nú
geysist upp breska vinsælda-
listann með lagið The Capta-
in of Her Heart. Einhverjir
hérlendis kannast kannski
viö meðlimi dúettsins, þá
Kurt Maloo og Felix Haug,
en þeir eru fyrrum liðsmenn
Yello... Búið i bili...
-SþS