Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1986, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1986, Blaðsíða 3
DV. FÖSTUDAGUR11. APRÍL1986. Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir Einingahúsaeigandi í vandræðum: „200 þúsund krona vanskil vegna mistaka hjá Húsnæðisstofnun“ Guðni Þórarinsson, sem síðla árs 1984 festi kaup á einingahúsi, er ekki ánægður með þá lánafyrirgreiðslu sem hann hefur fengið hjá Húsnæðis- stofnun. Áður en hann réðst í þessi kaup hafði hann fengið þær upplýs- ingar að hann fengi fyrsta hluta byggingarláns frá Húsnæðisstofnun hálfum mánuði eftir fokheldisvottorð. Raunin varð hins vegar önnur. Lánið barst ekki fyrr en 8 mánuðum seinna. Þetta varð til þess að vanskilavextir að upphæð kr. 200 þúsund hlóðust upp hjá Guðna. Guðni segist hafa fengið þá skýr- ingu hjá Húsnæðisstofnun að í tölvunum þar stæði að hann hefði verið að byggja venjulegt steinhús en ekki einingahús og kaupsamningur hafi ekki borist stofnuninni fyrr en í ágúst 1985. „Mér finnst þetta vera helvíti hart og sætti mig ekki við að þurfa að borga fyrir þessi mistök. Mér hefur aðeins verið vísað á Ráðgjafarstöðina til að sækja um viðbótarlán,“ segir Guðni gramur í bragði. Guðni keypti húsið af Einingahús- um hf. á Siglufirði. Kaupsamningur var gerður 1. september. I honum ávísar hann á lán frá Húsnæðisstofn- un. Hann gerir ráð fyrir að fá fyrsta hluta lánsins hálfum mánuði eftir fokheldi, annan hluta 3 mánuðum seinna og síðasta hluta lánsins eftir 6 mánuði. „Ég hélt að þetta mundi standast því ég hafði fengið upplýs- ingar um þessar reglur bæði hjá einingahúsafyrirtækinu og hjá Hús- næðisstofnun," sagði Guðni. Hann skilaði inn fokheldisvottorði 27. desember 1984. En eins og fyrr segir, varð bið á því að Guðni fengi lán. Hjá Húseiningum hf. fékk DV staðfest að fyrirtækið hefði sent upp- lýsingar um að Guðni hefði ávísað þessum lánum á fyrirtækið vegna kaupa á einingahúsi. í desember voru síðan sendar aðrar upplýsingar um að Guðni hefði keypt hjá þeim ein- ingahús og bæri því að fá lán samkvæmt reglum um einingahús. í annarri hvorri þessara sendinga telja forráðamenn fyrirtækisins að afrit af kaupsamningi hafi verið sent stofn- uninni. Katrín Atladóttir, forstöðumaður Byggingarsjóðs ríkisins, segir að fyrsti hluti lánsins hafi verið af- greiddur í júní eins og um byggingu venjulegs steinhúss væri að ræða. Ástæðan fyrir því hafi verið sú að engin gögn hafi borist þeim um að hann hefði byggt einingahús. Guðni segir rétt vera að fyrsti hluti lánsins hafi verið tilbúinn í júní. En vegna vöntunar á gögnum hafi lánið ekki borist til Siglufjarðar fyrr en í ágúst. Katrín bendir á að Húsnæðisstofn- un hafi á seinnihluta ársins 1984 tilkynnt einingahúsaframleiðendum að fyrirsjáanlegt væri að dráttur yrði á útborgun lána. Upphaflega hafði verið stefnt að því að breyta lánaregl- um einingahúsa þá um áramótin. Það hafi hins vegar ekki verið gert fyrr en í maí 1985. Frá þeim tíma hafi ein- ingahúsaeigendur fengið sömu lána- fyrirgreiðslu og þeir sem eru að byggja venjuleg hús. Hún bendir einnig á að áður en reglunum hafi verið breytt hafi (járþröng verið mik- il hjá stofnuninni. Þeir sem gerðu folheld einingahús í janúar fengu lán sín ekki greidd fyrr en í mars 1985. Guðni hefði þá átt að fá sitt fyrsta lán. En vegna þess að gögn lágu ekki fyrir fékk hann lán sem um byggingu steinsteypuhúss væri að ræða. Þegar þetta kom í ljós var lánum til hans flýtt og fékk hann allt lánið greitt út á árinu 1985. Katrín bendir á að margir eininga- húsaeigendur hafi lent í vanskilum vegna þess að dráttur varð á útborgun lána. Þeir hafi flestir leitað til Ráð- gjafarstöðvarinnar og fengið við- bótarlán. Guðni Þórarinsson sættir sig hins vegar ekki við þau málalok og telur ekki rétt að hann eigi að borga fyrir mistök hjá Húsnæðis- stofnun. -APH Farþegamet á Kefla- víkurflugvelli Á síðasta ári fóru rúmlega 567 þús- und farþegar um Keflavíkurflugvöll og hafa þeir aldrei áður verið svo margir í sögu flugvallarins. Árið áður var tala farþega um 504 þúsund. Aukningin er 12,5%. Af þessum fjölda fóru til útlanda um 128,4 þúsund farþegar sem er aukning um 10,4% frá því á árinu áður. Til landsins komu um 183,5 þúsund farþegar og er það 8,9% aukn- ing frá 1984. Mest var aukningin á svokölluðum viðkomufarþegum. Þeir voru á síðasta ári rúmlega 201 þúsund og var það 18,9% aukning frá árinu áður. í skýrslu utanríkisráðherra, þar sem þessar tölur koma fram, segir að auk- ing farþega hafi verið mim meiri en gert var ráð fyrir. Nefna má að í spá, sem höfð hefúr verið til hliðsjónar við byggingu nýrrar flugstöðvar á Kefla- víkurflugvelli, er aðeins gert ráð fyrir 6% aukingu á ári. Þá kemur fram að tekjur Flug- málastjómar á Keflavíkurflugvelli voru tæpar 88 milljónir króna á síð- asta ári. Þegar búið var að draga frá rekstrarkostnað og launakostnað var 40 milljónum króna skilað í ríkissjóð. Heildarvelta Fríhafnarinnar á síð- asta ári var 382 milljónir króna. Rekstrarkostnaður var um 131 millj- ón króna og skil í ríkissjóð 115 milljónir króna. -APH alla rikuna Keramikhúsið Ný námskeið að hefjast. Innritun og upplýsingar í síma 26088 Keramikhúsið, Sigtúni 3. Guðni Þórarinsson fyrir utan Húsnæðisstofnun ríkisins. Hann segist hafa þurft að greiða 200 þúsund krónur í van- skilavexti vegna mistaka stofnunarinnar. DV-mynd PK KOTASEIA NEYSLUTILLÖGUR: Morgunverður: Borðið hana óblandaða beint úr dósinni. Hádegisverður: Setjið kúf af KOTASÆLU ofan á hrökkbrauðsneið eða annað gróft brauð og þar ofan á t.d. tómatsneið, papriku- sneið, blaðlauk, graslauk, karsa eða steinselju og kryddið t.a.m. með svörtum pipar. Kvöldverður: Saxið niður ferskt grænmeti og notið KOTASÆLU í stað salatsósu. Ef þið viljið meira bragð, getið þið bætt við sítrónusafa og kryddi. Athugið að: 1. í 1Ö0 g af KOTASÆLU eru aðeins 110 he (440 kj). 2. í KOTASÆLU eru öll helstu næringarefni mjólkurinnar. 3. KOTASÆLA er mjög rík af próteini og vítamínum. 4. KOTASÆLA er óvenju saðsöm miðað við aðrar fitulitlar fæðutegundir. 5. Notkunarmöguleikar KOTA- SÆLU eru nær óteljandi. 9.107 KOTASEIA fitulítil og fæistandi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.