Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1986, Qupperneq 2
20
DV. FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1986.
Ef þú VÍIt Út
að borða
VEITINGAHÚS
- MEÐ VÍNI
A. Hansen.,
Vesturgötu 4, Hf„ sími 651693
Alex.,
Laugavegi 126, sími 24631.
Arnarhóll,
Hverfisgötu 8-10, sími 18833.
Broadway,
Álfabakka 8, sími 77500.
Café Gestur,
Laugavegi 28b, sími 18385.
Duus hús,
v/Fischersund, sími 14446.
El Sombrero,
Laugavegi 73, sími 23433.
Eldvagninn,
Laugavegi 73, sími 622631
Fógetinn,
Aðalstræti 10, sími 16323.
Gaukur á Stöng,
Tryggvagötu 22, sími 11556.
Glæsibær/Ölver,
v/Álfheima, sími 685660.
Greifinn af Monte Christo,
Laugavegi 11, sími 24630.
Grillið,
Hótel Sögu v/Hagat, s. 25033.
Gullni haninn,
Laugavegi 178, sími 34780.
Hallargarðurinn,
Húsi verslunarinnar, sími 30400.
Haukur í horni,
Hagamel 67, sími 26070.
Hollywood,
Ármúla 5, sími 81585.
Hornið,
Hafnarstræti 15, sími 13340.
Hótel Borg,
Pósthússtræti 11, sími 11440.
Hótel Esja/Esjuberg,
Suðurlandsbraut 2, sími 82200.
Hótel Hof,
Rauðarárstíg 18, sími 28866.
Hótel Holt,
Bergstaðastræti 37, sími 25700.
Hótel Loftleiðir,
Reykjavíkurflugvelli, sími 22322.
Hótel Óðinsvé (Brauðbær),
v/Óðinstorg, sími 25224.
Hótel Saga,
v/Hagatorg, sími 29900.
Hrafninn,
Skipholti 37, sími 685670.
í Kvosinni,
Austurstræti 22, sími 11340.
Kaffivagninn,
Grandagarði, sími 15932.
Kínahúsið,
Nýbýlavegi 20, sími 44003.
Klúbburinn,
Borgartúni 32, sími 35355.
Kópurinn,
Auðbrekku 12, sími 46244.
Krákan,
Laugavegi 22, sími 13628.
Kreml,
v/Austurvöll, sími 11630.
Leikhúskjallarinn,
Hverfisgötu, sími 19636.
Lækjarbrekka,
Bankastræti 2, sími 14430.
Naust,
Vesturgötu 6-8, sími 17759.
Riddarinn,
Vesturgötu 8, Hf.
Ríó,
Smiðjuvegi 1, sími 46500.
Ríta,
Nýbýlavegi 26, sími 42541.
Skálkaskjól 2,
v/Hringbraut, sími 14789.
Sjanghæ,
Laugavegi 28, sími 16513.
Sælkerinn,
Austurstræti 22, sími 11633.
Torfan,
Amtmannsstíg 1, sími 13303.
„Uppi & niðri“
Laugavegi 116, sími 10312.
Við Sjávarsíðuna,
Hamarshúsinu v/Tryggvagötu,
sími 15520.
Ypsilon,
Smiðjuvegi 14d, sími 72177.
Réttur helgarinnar:
Veitingahús vikunnar:
Matreitt á eldvögnum
Enn spretta upp veitingahús í
borginni, nú síðast var veitinga-
húsið Eldvagninn opnað á Lauga-
veginum þann 11. apríl síðastlið-
inn. Eigendur Eldvagnsins eru þau
Bryndís Þráinsdóttir og Gils Harð-
arson en um reksturinn sér Valur
Magnússon.
Veitingahúsið er í nýuppgerðum
og endurbyggðum kjallara hússins
að Laugavegi 73. Ein hliðin á hús-
næðinu hefur verið færð út og er
aðallega úr gleri. Þar hefur margs
konar pottablómum verið komið
fyrir. Þessi stóri gluggi gerir stað-
inn bjartan en þar hjálpa líka til
veggir og gólf sem klædd eru ljósri
furu og borð og stólar í björtum
litum. Eldvagninn tekur 35 manns
í sæti.
Morgun-, hádegis-
og kaffihlaðborð
„Hér er ætlunin fyrst og fremst
að reka gott steikhús," sagði Valur
þegar blaðamaður rak nefið inn í
Eldvagninn um daginn. „Annars
miðast það auðvitað að mestu við
kvöldréttina en við opnum kl. 7
alla morgna á virkum dögum. Þá
bjóðum við gestum upp á glóðvolgt
brauð, sem bakað er á staðnum,
álegg, kaffi og svaladrykki. Morg-
unverðurinn kostar 150 krónur en
hann miðast ekki við neinn ákveð-
inn skammt, fólk getur borðað þar
til það hefur fengið fylli sína. Eins
er í hádeginu en þá bætum við sal-
atbar á borðið og einnig bjóðum
við upp á súpu. Hádegisverðurinn
kostar 280 krónur.
Nú erum við einnig að setja upp
kaffihlaðborð þar sem velja má úr
bökum og kökum af öllum gerðum
og er ætlunin að hafa fast verð á
þeim i stað þess að selja kökurnar
allar á mismunandi verði.“
Gestir fylgjast með
matreiðslunni
í Eldvagninum fer öll matreiðsla
fram fyrir framan gestina sjálfa en
staðurinn dregur einmitt nafn sitt
af eldvögnum tveimur sem standa
miðsvæðis í veitingastaðnum þar
sem kokkarnir matreiða rétti fyrir
gestina, taka jafnvel við ábending-
um eða óskum um hvernig gestir
vilja hafa réttinn.
Á matseðlinum er hægt að velja
um a.m.k. 3 forrétti, 3 kjötrétti og
2 fiskrétti og í sumar verður einnig
hægt að velja um nýjan lax eða
silung. Vínseðillinn er uppbyggður
af léttum vínum með mat. „Gestirn-
ir ákveða svo sjálfir hvaða sósur
eða annað meðlæti þeir hafa með
réttinum - með ráðleggingum og
tillögum frá okkur þó,“ sagði Val-
ur. „Þannig verður íjölbreytnin
rneiri."
Áður en skilið er við Eldvagninn
má geta einkar óvenjulegrar og
skemmtilegrar myndraðar sem
þekur veggina. Hún er gerð af
Önnu Ólafsdóttur Björnsson og ber
nafnið Skýjaborgin. Var hún sér-
staklega gerð íyrir staðinn. „Það
bregst ekki að myndirnar vekja
umtal þegar nýir gestir heimsækja
okkur,“ sagði Valur. „Við viljum
líka reka veitingastað með nýstár-
legum svip þar sem gestir geta
notið matarins eftir að hafa séð
hvemig hann er búinn til.“
-BTH
Grillaöur lambavöðvi
með rjómasoðnum kartöflum
Matreiðslumaðurinn sem við
fáum til liðs við okkur að þessu
sinni er Völundur Þorgilsson, mat-
reiðslumeistari á Esjubergi.
Völundur útskrifaðist frá Hótel
Borg árið 1968 og starfaði á veit-
ingastaðnum Grill-inn í Austurveri
til ársins ’70. Eftir að hafa síðan
starfað á Brauðbæ í þrjú ár sá hann
um að matreiða fyrir starfsmenn
álversins í Straumsvík fram til
1984. Þá tók við rúmt ár á Fógetan-
um í Aðalstræti en á Esjubergi
hefur Völundur starfað frá því í
janúar sl.
Með hlýnandi veðráttu gefast nú
æ fleiri tækifæri til að nota útigrill-
ið í matreiðslu og ætlar Völundur
að gefa dæmi um einn slíkan rétt,
grillaðan lambalærisvöðva.
í réttinn þarf:
lambainnanlærisvöðva, 3 innan-
læri ættu að duga fyrir íjóra
1 tsk. sítrónupipar
1 tsk. timian
1 tsk. sellerí
safi úr hálfri sítrónu
Kjötið er látið liggja í kryddblönd-
unni í hálfan sólarhring og síðan
grillað eftir smekk á útigrilli, eink-
um er hentugt að grilla það í þar
til gerðum álbökkum.
Rjómasoðnu kartöflurnar eru
matreiddar á eftirfarandi hátt:
Hráar kartöflur eru skafnar og
skornar f sneiðar, síðan er þeim
raðað í pott í einfalda röð og lauk-
ur settur ofan á eftir smekk. Loks
er annað lag af kartöflum lagt ofan
á það og annað lag af lauk. Ofan
á hvert lag er stráð pipar, salti og
season-all. Að endingu er rjóma
hellt yfir og þetta látið sjóða við
lágan hita i 15 mínútur. Sem sósu
með réttinum er tilvalið að blanda
saman soðinu af kartöflunum og
safanum úr kjötinu.
-BTH
Ef þú vilt út
að borða
Þórscafé
Brautarholti 20, sími 23333.
Þrír Frakkar,
Baldursgötu 14, sími 23939.
Ölkeldan,
Laugavegi 22, sími 621036.
AKUREYRI:
Bautinn,
Hafnarstræti 92, sími 21818.
H 100,
Hafnarstræti 100, sími 25500.
Hótel KEA,
Hafnarstræti 87-89, sími 22200.
Sjallinn,
Geislagötu 14, sími22970.
Smiðjan,
Kaupvangsstræti 3, sími 21818.
Restaurant Laut,
Hótel Akureyri.
Hafnarstræti 98, sími 22525.
VESTMANNAEYJAR:
Hallarlundur/Mylluhóll
v/Vestmannabraut, sími 2233.
Skansinn/Gestcjjafinn,
Heiðarvegi 1, sími 2577.
Skútinn,
Kirkjuvegi 21, sími 1420.
KEFLAVÍK:
Glóðin,
Hafnargötu 62, sími 4777.
Glaumberg/Sjjávargull,
Vesturbraut 1 /, sími 4Ö40.
AKRANES:
Hótel Akranes/Báran,
Bárugötu, sími 2020.
Stiliholt,
Stillholti 2, simi 2778.
SELFOSS:
Gjáin,
Austurvegi 2, sími 2555.
Inghóll,
Austurvegi 46, sími 1356.
Skíðaskálinn, Hveradölum
v/Suðurlandsveg, sími 99-4414.
VEITINGAHÚS
- ÁN VÍNS
American Style,
Skipholti 70, sími 686838.
Askur
Suðurlandsbraut 14, sími 81344,
Árberg,
Ármúla 21, sími 686022.
Bangkok,
Síðumúla 3-5, sími 35708.
Gafl-inn,
Dalshrauni 13, sími 51857.
Hér-lnn,
Laugavegi 72, sími 19144.
Hressingarskálinn,
Austurstræti 18, sími 15292,
Kabarett,
Austurstræti 4, sími 10292.
Kokkhúsið,
Lækjargötu 8, sími 10340.
Lauga-ás,
Laugarársvegi 1, sími 31620.
Matargatið,
Dalshrauni 11, sími 651577.
Matstofa NLFÍ,
Laugavegi 26, sími 28410.
Múlakaffi,
v/Hallarmúla, sími 37737.
Næturgrillið,
heimsendingarþj., sími 25200.
Pizzahúsið,
Grensásvegi 7, sími 39933.
Pítan,
Bergþórugötu 21, sími 13730.
Potturinn og pannan,
Brautarholti 22, sími 11690.
Smiðjukaffi,
Smiðjuvegi 14d, sími 72177.
Sprengisandur,
Bústaðarveg 153, sími 33679
Sundakaffi,
Sundahöfn, sími 36320.
Svarta pannan,
Hafnarstræti 17, sími 16480.
Trillan,
Ármúla 34, sími 31381.
Úlfar og Ljón,
Grensásvegi 7, sími 688311.
Veitingahöllin,
Húsi verslunarinnar, sími 30400.
Western Fried,
Mosfsv. v/Vesturlandsveg, sími
667373.
Winny's,
Laugavegi 116, sími 25171.