Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1986, Blaðsíða 4
22
DV. FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1986.
DV. FÖSTUDAGUR 23. MAt 1986.
27
Messur
Guðsþjónustur í
Reykja víkurpróf astsdæm i
sunnudaginn 25. maí 1986
Árbæjarkirkja
Messa í safnaðarheimili Árbæjar-
sóknar kl. 11. Organisti Jón Mýrdal.
Sr. Guðmundur Öm Ragnarsson.
Áskirkja
Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Árni Bergur
Sigurbjömsson.
Breiðholtsprestakall
Sameiginleg guðsþjónusta Breið-
holts- og Bústaðasafnaða í Bústaða-
kirkju ki. 11. Organisti Daníel
Jónasson. Sr. Lárus Halldórsson.
Bústaðakirkja
Sameiginleg guðsþjónusta Breið-
holts- og Bústaðasafnaða kl. 11
(vinsamlegast ath. breyttan messu-
tíma). Organisti Daniel Jónasson.
Prestur sr. Lárus Halldórsson. Sókn-
arnefndin.
Félagsstarf aldraðra miðvikudags-
eftirmiðdag. Lagt verður af stað í
vorferðina kl. 14.00 fró kirkjunni.
Dómkirkjan
Trinitatis. Messa kl. 11. Dómkórinn
syngur. Organleikari Marteinn H.
Friðriksson. Sr. Þórir Stephensen.
Elliheimilið Grund
Messa kl. 10. Sr. Árelíus Níelsson.
Fella- og Hólakirkja
Guðsþjónusta kl. 11. Organisti
Guðný Margrét Magnúsdóttir. Sr.
Hreinn Hjartarson.
Grensáskirkja
Safnaðarferð um Suðurnes. Lagt af
stað frá Grensáskirkju kl. 9.30.
Messa í Grindavikurkirkju kl. 11
með sr. Erni B. Jónssyni. Skoðunar-
ferð um Reykjanesið. Góðir leiðsögu-
menn verða með í ferðinni. Komið
aftur kl. 17. Þriðjudagur 27. maí:
Biblíulestur kl. 20.30. Sr. Halldór S.
Gröndal.
Hallgrímskirkja
Messa kl. 11. Sr. Karl Sigurbjörns-
son. Kaffisala kvenfélagsins í Domus
Medica kl. 3. Þriðjudagur: Fyrir-
bænaguðsþjónusta kl. 10.30.
Landspítalinn
Guðsþjónusta kl. 10. Sr. Ragnar Fjal-
ar Lárusson.
Háteigskirkja
Messa kl. 11. Organleikari Orthulf
Pmnner. Sr. Amgrímur Jónsson.
Kópa vogskirkj a
Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl.
11 árdegis. Sr. Árni Pálsson.
Langholtskirkja
Guðsþjónusta kl. 11. (Athugið
breyttan messutíma.) Hestamenn
koma á gæðingum sínum til kirkju
og úr röðum þeirra munu aðstoða
við messuflutninginn hljóðfæraleik-
aramir Ásgeir Steingrímsson,
Sveinn Birgisson og Þorkell Jóels-
son; leikararnir Gunnar Eyjólfsson
og Klemens Jónsson og söngvarinn
Guðmundur Þ. Gíslason. Kór Lang-
holtskirkju syngur og organisti er
Jón Stefánsson. Prestur sr. Sigurður
Haukur Guðjónsson. Sóknamefndin.
Laugarnesprestakall
Laugardagur 24. maí: Guðsþjónusta
í Hátúni 10B, 9. hæð, kl. 11. Hr. Pét-
ur Sigurgeirsson biskup prédikar.
Sunnudagur 25. maí: Messa kl. 11 í
Laugarneskirkju. Altarisganga.
Þriðjudagur 27. maí: Bænaguðsþjón-
usta kl. 18. Sóknarprestur.
Neskirkja
Guðsþjónusta kl. 11 árdegis. Sr.
Frank M. Halldórsson.
Þriðjudagur og fimmtudagur: Opið
hús fyrir aldraða kl. 13-17.
Miðvikudagur: Fyrirbænamessa kl.
18.20. Sr. Guðmundur Óskar Ólafs-
son.
Seljasókn
Guðsþjónusta í Ölduselsskólanum
kl. 11. Altarisganga. Skaftfellinga-
kórinn í Reykjavík syngur við
guðsþjónustuna. Þriðjudagur 27.
maí: Fyrirbænasamvera kl. 18.30 í
Tindaseli 3. Sóknarprestur.
Fríkirkjan í Reykjavík
Guðsþjónusta kl. 14. Ræðuefni: Er
trúmaðurinn vangefinn? Fríkirkju-
kórinn syngur. Söngstjóri og organ-
isti Pavel Smid. Sr. Gunnar
Bjömsson._______________
Fundir
Aðalfundur Húnvetningafé-
lagsins
verður haldinn sunnudaginn 25. maí
kl. 14 í Skeifunni 17 (Ford húsinu).
Venjuleg aðalfundarstörf. Laga-
breytingar.
Tolli
síðasta
sýningarhelgi
Málverkasýning Tolla í Lista-
safni ASI lýkur sunnudaginn 25.
maí. Tolli hefur haldið sex einka-
sýningar og tekið þátt í íjölda
samsýninga. Á sýningunni í Lista-
safni ASf eru 49 málverk. Sýningin
er opin virka daga kl.16-20 og um
helgar kl. 14-22.
Jeffrey
VaUance
í Nýlistasafninu
Sýningu bandaríska listamanns-
ins Jeffrey Vallance í Nýlistasafn-
inu á Vatnsstíg lýkur sunnudaginn
25. maí.
í Nýlistasafninu sýnir Jeffrey
teikningar frá íslandi og Suður-
Kyrrahafi. Syrpan fjallar um þjóð-
félagslegar táknmyndir, allt frá
táknum fomaldar til nútímans, frá
frumstæðri skurðlist til útsmog-
innar auglýsingatækni. Myndirnar
eru eins konar minnisvarðar um
helga dóma sem aldrei verða end-
urheimtir. Tækni verkanna er af
ásettu ráði barnsleg og gróf.
Jeffrey Vallance er fæddur í Kali-
forníu árið 1955 og hefur hann
listrænar bækistöðvar sínar í Los
Angeles. Árið 1981 útskrifaðist
hann frá Otis Art Institute í Los
Angeles og síðan hefur hann haldið
fjölda sýninga vítt og breitt um
Bandaríkin.
Sýningin í Nýlistasafninu er opin
á vikum dögum frá kl. 16-20 en um
helgar frá kl. 14-20. -BTH
Vorsýning Myndlistar-
skólans á Akureyri
Vorsýning Myndlistarskólans á Akureyri verður opnuð í íþróttaskem-
munni, Oddeyri, kl. 14.00 á morgun, 24. maí. Á sýningunni verða sýnd
verk nemenda úr hinum ýmsu deildum skólans.
Starfsemi myndlistarskólans er einkum tvíþætt, annars vegar eru það
síðdegis- og kvöldnámskeið fyrir böm og fullorðna í margs konar sjón-
menntum og hins vegar fullur dagskóli, þ.e. fornámsdeild sem er 1. ár
reglulegs listnáms og málunardeild sem er þriggja ára sérnám. Til að
hefja nám í fonámsdeild þurfa umsækjendur að standast inntökupróf sem
haldið er fyrstu viku júnímánaðar ár hvert.
Rétt til inngöngu í málunardeild hafa þeir semn lokið hafa námi í for-
námsdeild, forskóla MHÍ eða stúdentsprofi af myndlistarbraut.
Nemendur Myndlistarskólans á Akureyri voru rúmlega 200 á hverri
önn í vetur og kennarar 11.
Aðalkennari í málunardeild er Nini Tang, hollensk listakona. Skóla-
stjóri er Helgi Vilberg. Vorsýningin er á morgun, laugardaginn 24. maí,
kl. 14-18 og á sunnudaginn kl. 14-22. -BTH
Schubert-tónleikar
í Norræna húsinu
Laugardaginn 24. maí kl. 16.00 halda Martin Berkofsky og Anna Mál-
fríður Sigurðardóttir sjöttu og síðustu tónleika sína í heildarflutningi á
íjórhentum píanóverkum Franz Schuberts.
Allur ágóði af tónleikunum rennur til styrktar flygilkaupum fyrir Nor-
ræna húsið.
á öllum aldri til þess að taka þátt í
þessari léttu gönguferð á sunnudag-
inn og taka börn sín með. Brott-
farartímar eru kl. 10.30 og kl. 13 frá
Umferðarmiðstöðinni, austanmegin.
Ekið verður að Kaldárseli og er fólk
á eigin bílum velkomið með í
gönguna. Skólahljómsveit Mosfells-
sveitar leikur við Kaldársel milli kl.
13 og 14.
Útivistarferðir
Helgarferðir 23.-25. maí
1. Þórsmörk. Gist í skála Útivistar,
Básum, gönguferðir við allra hæfi.
2. Tindfjöll-Tindfjallajökull. Gist í
húsi. Hægt að hafa gönguskíði.
Gengið á Ymi og Ýmu. 3. Purkey-
Breiðafiarðareyjar. Náttúruparadís
á Breiðafirði. Orfá sæti laus. Tjaldað
í eyjunni. Sigling um Breiðafiarðar-
eyjar, m.a. að Klakkeyjum. Einstök
ferð. Uppl. og farmiðar á skrifst.
Grófinni 1, símar 14606 og 23732.
Sjáumst.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga frístunda-
hópsins Hana nú í Kópavogi verður
á morgun, laugardaginn 24. maí.
Lagt af stað frá Digranesvegi 12 kl.
10. Allir Kópavogsbúar velkomnir.
Takmark göngunnar er samvera,
súrefni og hreyfing í vorþeynum.
Fjöruferð með Hinu íslenska
náttúrufræðifélagi
Veist þú að fyrir aðeins 400 kr. kemst
þú í fiöruferð með Hinu íslenska
náttúrufræðifélagi, getur fræðst
heilmikið um lífið í fiörunni, gengið
um Kjalarnesið í góða veðrinu og,
síðast en ekki síst, safnað þínum eig-
in kræklingi í forrétt handa fiöl-
skyldunni á sunnudagskvöldið.
Sunnudaginn 25. maí verður fiöru-
Tónleikar
Baltasar
í Gallerí Gangskör
Dagana 22. maí til 3. júní opnar Baltasar sýningu á
teikningum í Gallerí Gangskör undir heitinu Fimm
þema.
Þemun fimm eru brennidepill þessarar sýningar -
sprek, amboð, fákar, lauf og ecce homo, hafa öll mikla
persónulega þýðingu fyrir Baltasar. í þeim er skráð
leit hans að formi og merkingu og eru þau ekki að-
eins heimild um þróun listamanns; með því að kalla
fram tilfinningar allt frá léttlyndi til önugleika eru
þau líka safn breytilegra geðhrifa. Teikningar Baltas-
ars eru staðhæfingar um tilfinningar hans, ferðalög,
fjölskyldu og heimili og - og það skiptir meira máli -
stöðug sjálfskönnun með aðstoð teikningar.
í vor eru liðin 25 ár síðan Baltasar hélt sína fyrstu
sýningu á íslandi, þá 23 ára að aldri. En þá var einn-
ig sýning á teikningum.
Flauta og gítar í Dalvíkurkirkju
Kolbeinn Bjarnason flautuleikari og
Páll Eyjólfsson gítarleikari munu
halda tónleika í Dalvíkurkirkju
mánudagskvöldið 26. maí kl. 21. Á
efnisskránni er alls konar tónlist,
gömul og ný, innlend (eftir Eyþór
Þorláksson og Atla Heimi Sveinsson)
og erlend, auðmelt og tormelt. Elsta
verkið er frá öndverðri 18. öld, það
yngsta er samið vorið 1986. Þeir fé-
lagar hafa spilað mikið saman síðan
þeir komu úr námi fyrir tveimur
árum en þetta eru fyrstu sameigin-
legu tónleikar þeirra utan Reykja-
víkur.
Tónleikar Tónlistarskólans í
Reykjavík
Tónlistarskólinn í Reykjavík heldur
þrenna tónleika dagana 25., 26. og
28. maí nk. Sunnudaginn 25. maí
verða burtfararprófstónleikar
Hrafnhildar Hagalín
Guðmundsdóttur gítarleikara í sal
skólans, Skipholti 33, og hefjast þeir
kl. 17. Á efnisskrá eru verk eftir L.
Roncalli, J.S. Bach, M. Giuiliani,
Boccherini og Brouwer. Kvintett
með Hrafnhildi skipa: Hildigunnur
Halldórsdóttir, fiðla, Kristján Matt-
híasson, fiðla, Eyjólfur Alfreðsson,
víóla, og Sigurður Halldórsson, selló.
Mánudaginn 26. maí verða burtfar-
arprófstónleikar Ólafar Þorvarðs-
dóttur fiðlúleikara í sal skólans, þeir
hefjast kl. 20.30. Ólöf leikur verk eft-
ir Brahms, J.S. Bach, E. Blodh, Áskel
Másson og Beethoven. Lárá Rafns-
dóttir leikur með á píanó. Miðviku-
daginn 28. maí verða síðustu
tónleikar skólans á þessum vetri.
Hljómsveit skólans frumflytur verk
eftir Finn Torfa Stefánsson. Þetta er
lokaverkefni Finns frá tónfræðadeild
Skólans. Stjórnandi er Atli Heimir
Sveinsson. Þá mun hljómsveitin
einnig flytja konsert fyrir lágfiðlu
eftir Hoffmeister. Einleikari með
hljómsveitinni í því verki er Guð-
mundur Kristmundsson víóluleikari
og er þetta síðari hluti einleikara-
prófs hans. Stjórnandi er Mark
Reedman. Þessir tónleikar verða í
Menntaskólanum við Hamrahlíð og
hefjast kl. 20.30. Aðgangur á tónleik-
ana er ókeypis og öllum heimill.
Kópavogskórar í tónleikaferð
til Austfjarða
90 ungmenni úr Skólahljómsveit
Kópavogs og Kór Kársnes- og Þing-
hólsskóla halda á morgun í tónleika-
fferð austur á firði þar sem þau munu
syngja og spila fyrir Austfirðinga.
Efnisskrá tónleikanna rr mjög fjöl-
breytt og skemmtileg, ísl msk þjóðlög
og sönglög, marsar og dansar, svo
fátt eitt sé nefnt. Bl; sararnir og
söngvararnir munu einnig flytja
saman nokkur lög.
Fyrstu tónleikarnir verða haldnir
á Höfn í Hornafirði sunnudaginn 25.
maí kl. 16.00, mánudagskvöld kl.
20.30verður sungið og blásið fyrir
Norðfirðinga í Egilsbúð, þá verður
haldið til Eskifjarðar og verða tón-
leikar í Valhöll kl. 20.30 þriðjudags-
kvöld. Á Seyðisfirði verða tónleikar
í Herðubreið miðvikudagskvöld kl.
20.30 og í Egilsstaðakirkju fimmtu-
dag kl. 20.30. Auk þess mega Reyð-
firðingar, Fáskrúðsfirðingar og fleiri
eiga von á að heyra í tónlistarfólkinu
á götum úti ef veður leyfir. Stjórn-
andi Skólahljómsveitar Kópavogs er
Björn Guðjónsson og Þórunn
Björnsdóttir stjórnar kórnum. Að-
gangur á tónleikana er ókeypis.
Það er vaskur hópur ungmenna sem
syngur fyrir Austfirðinga næstu vik-
una.
Ferðalög
ársel og er stefnan tekin á Búrfell.
Gengið er yíir greiðfært hraun. Kald-
árhnúkar og Helgafell eru okkur á
hægri hönd. Farið er yfir hlaðinn
grjótgarð, sem er minnismerki um
vatnsveituframkvæmdir Hafnfirð-
inga fyrr á öldinni.
Þ>egar komið er að Búrfelli er um
tvennt að velja, annars vegar að
ganga á fellið og njóta útsýnis áður
en göngunni er haldið áfram niður
Búrfellsgjá. Hins vegar er að ganga
beint ofan í gjána við fellið. Gjáin
er þröng upp við Búrfell, en hún
víkkar og barmar lækka er neðar
dregur. Neðst í gjánni er komið að
gamalli rétt. f>etta er Gjárrétt sem
forðum daga var lögrétt Garðhrepp-
inga, Bessastaðahreppsbúa og
Hafnfirðinga en var aflögð eftir 1920.
Til baka í Kaldársel er fylgt girð-
ingunni sem girðir Heiðmerkur-
svæðið af. Ferðafélagið hvetur fólk
Ferðafélag íslands
Dagur ljóðsins
á þremur stöðum á landinu
Sunnudaginn 25. maí stendur Rithöfundasamband Islands fyrir degi ljóðsins. Þetta er
í annað skipti sem það er gert en í fyrra tókst hann með eindæmum vel og vakti athygli
á ljóðinu sem lifandi þætti í íslensku samfélagi. I ár verður þráðurinn tekinn upp að
nýju og fólki gefinn kostur ú að safnast saman til að njóta ljóðaupplestra. Upplestrarn-
ir yerða á þremur stöðum á landinu að þessu sinni; á Selfossi, Akranesi og í Reykjavík.
Á Akranesi verður lesið upp í Bókasafni Akraness og hefst upplesturinn kl. 14.30.
Þar lesa upp Vilborg Dagbjartsdóttir, Pjetur Hafstein Lárusson og Matthías Magnússon.
Á Selfossi verður lesið upp í Tryggvaskála og hefst dagskráin þar einnig kl. 14.30.
Skáldin á Selfossi verða Ingibjörg Haraldsdóttir, Gunnar Harðarson, Bergþóra Ing-
ólfsdóttir og Þorsteinn frá Hamri.
Upplesturinn í Reykjavík fer fram í Iðnó og hefst kl. 14.00. Þar koma fram eftirtalin
10 skáld: Thor Vilhjálmsson, Jón úr Vör, Þorgeir Þorgeirsson, Þóra Jónsdóttir, Ólafur
Haukur Símonarson, Einar Már Guðmundsson, Geirlaugur Magnússon, Jóhamar,
Gyrðir Elíasson og ísak Harðarson. Auk þess verður lesið úr verkum Vigdísar Gríms-
dóttur og Þuríðar Guðmundsdóttur.
I tilefni af degi ljóðsins hefur RSÍ látið prenta veggspjald með ljóðinu „Ljóð jarðar“
eftir Snorra Hjartarson.
LJÓÐ JARÐAR
GæO' ég lesið Ijóð jarðar
þessum augum
þessum stóru skæru augum
í vagninum litla á stígnum
vorljóð sólar og jarðar
eitt andartak
myndu Ijóð Ijóða
Ojúga mér af vörum.
ferð á vegum Hins íslenska náttúru-
fræðifélags. Haldið verður upp á
Kjalarnes, en þar eru skemmtilegar
og lífríkar fjörur sem verða skoðaðar
undir leiðsögn Karls Gunnarssonar
þörungafræðings. Hann mun einnig
leiðbeina fólki um tínslu á kræklingi
og öðru ætilegu sem í fjörunni er að
finna. Lagt verður af stað frá Um-
ferðarmiðstöðinni í Reykjavík kl. 11.
Allir velkomnir. Mætið í stígvélum,
með fötur eða önnur ílát.
Sýningar
m
Óskar Pálsson sýnir í Pítubæ
Sunnudaginn 25. maí opnar Óskar
Pálsson málverkasýningu í Pítubæ,
Hafnargötu 37, Keflavík. Þetta er
fyrsta einkasýning Óskars en á henni
sýnir hann um 50 olíumálverk. Sýn-
ingin er opin frá kl. 11.30-23.30 og
stendur í mánuð.
verður opnuð í Norræna húsinu 24.
maí og stendur til 8. júní. Kortzau
er arkitekt að mennt en hefur hlo-
tið frægð og viðurkenningu fyrir
grafíklist sína, textílmynstur,
postulín og húsgögn.
Ole Kortzau er mjög frumlegur
listamaður. Þá nýsköpun sem átt
hefur sér stað í dönskum listiðnaði
að undanförnu má ekki síst rekja
til verka hans. Hann er fjölhæfur
með ólíkindum, en dönsk náttúra
er kveikjan að allri listsköpun
hans.
Frá því að Kortzau sýndi verk sín
fyrst á sýningu í Marienborg 1973
hefur hróður hans farið sívaxandi,
ekki aðeins heima fyrir í Dan-
mörku heldur um heim allan.
Sýningar á verkum hans eru nú
orðnar 25 - í Danmörku, Svíþjóð,
Bretlandi, Frakklandi, Bandaríkj-
unum og Japan. Á þessu ári verða
verk hans sýnd á tveimur stöðum
- í Frakklandi og í Norræna húsinu
í Reykjavík.
Það er verslunin Epal sem gengst
fyrir sýningunni hér, enda hefur
hún gert mikið af því að kynna
danska listhönnun hér á landi.
Á sýningunni í Norræna húsinu
verður sýnt úrval grafíkverka og
plakata eftir Kortzau, margs konar
textílmyndir, postulínsmunir, silf-
urgripir og húsgögn. Listamaður-
inn kemur hingað sjálfur vegna
sýningarinnar og verður við opnun
hennar.
Tilkynningar
Síðasta vísnakvöld fyrir
sumarið
Næstkomandi mánudagskvöld, þann
26. mai, halda Vísnavinir síðasta
vísnakvöldið fyrir sumarleyfíð. Það
verður að vanda haldið á Hótel Borg.
Þetta kvöld verður með allsérstæðu
sniði, þar sem fram fer hæfileika-
keppni og verður valinn vísnasöngv-
ari kvöldsins. Til keppninnar er efnt
í tilefni tíu ára afmælis félagsins
Vísnavina síðar á þessu ári. Að auki
verður boðið upp á önnur dagskrár-
atriði. Vísnakvöldið hefst kl. 20.30.
Friðarhreyfing íslenskra
kvenna
Kvikmyndin Konur, talsmenn friðar
verður sýnd í Norræna húsinu
sunnudaginn 25. maí kl. 16 á vegum
Friðarhreyfingar íslenskra kvenna.
Bonnie Sherr Klein frá Kanada, ann-
ar höfundur myndarinnar, mun
rabba við gesti að lokinni sýningu.
Komið og fræðist um friðarstarf
kvenna hér heima og erlendis.
Vorfundur Vélprjónasam-
bands íslands
verður haldinn laugardaginn 24. maí
kl. 14 á Hótel Loftleiðum.
Útimarkaður leikfélags Sel-
foss
Leikfélag Selfoss hefur tvö undan-
farin vor haldið útimarkað með
ýmsum uppákomum við miklar vin-
sældir meðal bæjarbúa og nágranna.
Fyrsti markaðurinn var haldinn vor-
ið 1984 til fjáröflunar vegna leik-
ferðar félagsins til Irlands, en þar
sem fólki fannst að slíkt tiltæki
auðgaði bæjarlífið mjög var ákveðið
Þórsmörk helgarferð 23.-25. maí.
Kl. 20 x kvöld verður farið til Þórs-
merkur. Gist í Skagfiörðsskála.
Gönguferðir um mörkina. Farmiða-
sala og upplýsingar á skrifstofunni,
Öldugötu 3.
8. göngudagur
Ferðafélags íslands
Á sunnudaginn, 25. maí nk., efnir
Ferðafélag íslands í áttunda skiptið
til sérstaks göngudags og sem fyrr
er leitast við að fara leið sem er við
allra hæfi og um leið forvitnileg.
Gangan hefst við eyðibýlið Kald-
Ole Kortzau
Danskur listamaður sýnir í Norræna húsinu
Á næstunni eiga íslendingar kost fjölhæfasta listamanns Dana, Ole
á að skoða verk eins kunnasta og Kortzau. Sýning á verkum hans
Pastelmyndir til sýnis í Eden
Magnús Gunnarsson -opnaði í vik-
unni sýningu á um 40 pastelmyndum
í nýjum sýningarskála í Eden,
Hveragerði. Sýningin stendur til
sunnudagsins 1. júni.
Kvenfélag Hallgrímskirkju
Kaffisala og skyndihappdrætti fé-
lagsins verður í Domus Medica
sunnudaginn 25. maí kl. 15. Tekið
verður á móti kökum og brauði í
Domus Medica milli kl. 13 og 15 á
sunnudaginn. Styrkið byggingu
Hallgrímskirkju með þvi að koma
og fá ykkur kaffisopa.
Sigifirðingafélagið í Reykjavík
og nágrenni
Fjölskyldudagurinn verður sunnu-
daginn 25. mai í félagsheimilinu
Kirkjuhvoli í Garðabæ og hefst kl.
15. Fjölmennið og takið með ykkur
gesti.
Hljómlistarsamkoma í Fíla-
delfíu
1 tilefni af 50 ára afmæli Filadelfiu-
safnaðarins í Reykjavík um þessar
mundir verður efnt til sérstakrar
söng- og hljómlistarsamkomu i
kirkju Fíladelfíusafnaðarins að Há-
túni 2 sunnudagskvöldið 25. maí kl.
20. Á dagskrá verður fjölbreytt tón-
list, bæði í hljóðfæraleik og söng.
Fíladelfíukórinn syngur undir stjórn
Árna Arinbjarnarsonar. Unglinga-
kór syngur undir stjórn Hafliða
Kristinssonar. Þá verður einsöngur
og tvísöngur og hljóðfæraleikur í
umsjá ungs fólks. AUir eru hjartan-
lega velkomnir.
Alfreð Flóki sýnir í Vest-
mannaeyjum.
í dag, 23. maí, kl. 17 opnar Alfreð
Flóki myndlistarsýningu í AKÓG-
ES-húsinu í Vestmannaeyjum. Þessi
sýning Flóka er í samvinnu við Gall-
erí Borg og stendur aðeins í nokkra
daga. Á sýningunni verða í kringum
30 myndir unnar með svartkrít og
rauðkrít. Sýningin verður opin á
laugardag, sunnudag og múnudag
frá kl. 14-22. Henni lýkur á mánu-
dagskvöld.
að halda útimarkað árlega fram-
vegis. Á morgun, laugardaginn 24.
maí, verður því útimarkaður félags-
ins við Tryggvaskála og hefst kl. 10
árdegis. Að venju verður ílest milli
himins og jarðar til sölu og auk þess
skemmtiefni af ýmsu tagi. Hljóm-
sveit leikur fyrir dansi inni í skálan-
um og ýmsar veitingar verða á
boðstólum. Þar sem veðurguðii-nir
hafa jafnan verið þessu framtaki
leikfélagsins hliðhollir verður án efa
glatt á hjalla á hlaði Tryggvaskála
og margir gera reyfarakaup.