Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1986, Síða 9
DV. MIÐVIKUDAGUR 2. JULÍ 1986.
9
£.
Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd
braelsstióm fær tveggja vikna frest
Hæstiréttur ísraels gaf í gær-
kvöldi ríkisstjórn landsins tvær
vikur til að útskýra þá ákvörðun
sína að fara ekki fram á opinbera
rannsókn á meintri aðild ísraelsku
öryggislögreglunnar að morðum á
tveim arabískum hryðjuverka-
mönnum er voru í haldi hjá
öryggislögreglunni.
Úrskurður hæstaréttar var til-
kynntur í ísraelska ríkisútvarpinu
seint í gærkvöldi og þykir mikill
áfangasigur fyrir þá er harðlega
hafa gagnrýnt þá ákvörðun ísra-
elskra yfirvalda að veita yfirmanni
öryggislögreglunnar, Avraham
Shalom, uppreisn æru fyrir aðild
sína að morðunum.
Engin ákæra á Shalom
Stjórnmálaflokkar á vinstri
vængnum og samtök lögfræðinga
hafa gagnrýnt yfirvöld fyrir að
sýkna Shalom af öllum morðásök-
unum og segja að ekki sé hægt að
veita mönnum slíka uppreisn æru
nema þeir hafi áður verið ákærðir
og sakfelldir en frarn að þessu hefur
engin opinber ákæra verið birt á
hendur Shalom.
Shalom sjálfur hefur sagt að
hann hafi tekið við fyrirskipunum
frá yfirmönnum sínum, þar á meðal
Shamir, forsætisráðherra ísraels,
um morðin á hryðjuverkamönnun-
um tveim og bæru þeir ábyrgð á
morðunum.
Shamir skiptir um skoðun
Shamir forsætisráðherra hefur
fram að þessu lýst sig alfarið á
móti hvers konar opinberri rann-
sókn á aðild öryggislögreglunnar
að morðunum og hefur sagt að slík
rannsókn myndi grafa undan ör-
yggi ríkisins.
í gær virtist sem Shamir hefði
breytt um afstöðu til opinberrar
rannsóknar og haft var eftir honum
að hann myndi ekki snúast gegn
slíkri rannsókn ef ósk um að hún
færi fram kæmi frá ríkisstjóminni.
Arabiskur hryðjuverkamaður í vörsiu ísraelsku öryggislögreglunnar eftir að hafa gert árás á israelskan al-
menningsvagn. Árásarmaðurinn lést skömmu siðar í vörslu öryggislögreglunnar og er talið fullvíst að hann
hafi verið myrtur
Ef marka má skoðanakannanir í Jap-
an að undanförnu ætti Frjálslyndi
fiokkur Nakasone forsætisráðherra
Japan að vinna öruggan sigur í jap-
önsku þingkosningunum á sunnudag.
Spá
Nakasone
sign a
sunnudag
Frjálslyndi flokkur Nakasone, for-
sætisráðherra Japan, ætti að vinna
ömggan sigur í þingkosningunum í
Japan sem boðað hefur verið til á
sunnudag næstkomandi.
Skoðanakönnun, er opinberuð var í
morgun, spáir flokki Nákasone öragg-
um meirihluta á japanska þinginu,
Diet, eða 271 þingsæti af 512 í neðri
deild þingsins.
Samkvæmt skoðanakönnuninni, er
framkvæmd var af Kyodo fréttaþjón-
ustunni og náði til 110 þúsund kjós-
enda, tapar helsti stjómarandstöðu-
flokkur landsins, flokkur sósíalista,
miklu í kosningunum, fær sennilegast
undir 100 þingsætum, en hefur nú 110
sæti.
IFGoodrich
Mest seldu JEPPADEKKIN á Islandi
Kynniö ykkur veró og greiðslukjör,
P175 75R13 31xl0.50R15LT 35x12 50R15U
LT235 75R15 32x11.50R1SLT 31xl0.50R16.5LT
LT255 85R16 33xl2.50R15LT 33xl2.50R16.5LT
30x9.50R15LT
/VMRTsf
Vatnagörbum 14 Reykjavik s. 8 3188
ÓTRÚLEGA
LÁGT VERÐ
kr. 17.800 staðgreiðsla
Afborgunarskilmálar
KÆLI- OG FRYSTISKÁPAR
Samt. stærö: 275 I.
Frystihólf: 45 I.
Hæö: 145 sm. Breidd 57 sm.
Dýpt: 60 sm.
Vinstri eöa hægri opnun
Fullkomin viögeröa-
og varahlutaþjónusta.
Heimilis- og raftækjadeild.
HEKLA HF
LAUGAVEG1170-172 SÍMAR 11687 • 21240