Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1986, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1986, Side 6
28 FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1986. Söfn - Söfn bjó þá fyrst í Vinaminni í Grjóta- þorpi. Á þessum tíma málaði hann mikið Kvosina og það sem hann sá út um gluggann sinn. Umhverfi Tjamarinnar og höfnin urðu hon- um einnig myndefni. Á sýningunni er meðal annars ókláruð mynd af mannlífinu við Tjörnina og fæst Ásgrímur þar við óvenjulegt við- fangsefni. Skemmtilegt er að koma í hús listamannsins sem er lítið og sýnir vel hversu fábrotnu lífi hann hefur lifað. Húsmunir hans em fáir og einfaldir og í eldhúsinu stendur örlítil kaffikanna á borðinu. Gam- all plötuspilari er í einu horninu og við einn vegginn stendur fall- egur viðarskápur sem Ásgrímur teiknaði sjálfur. Þarna eru einnig nokkrar gamlar ljósmyndir af mál- aranum við vinnu sína. Á efri hæðinni, þar sem var vinnustofa Ásgríms, hanga nú myndir hans á veggjum og njóta sín vel í birtunni frá norðurglugganum. Sýningin á Reykjavíkurmyndun- um mun standa til ágústloka en þá tekur við haustsýning á myndum Ásgríms. Safnið er opið alla daga nema laugardaga frá 13.30 til 16.00. Kvikmyndahús - Regnboginn Dagar stóru biblíumyndanna eru löngu liðnir. Það er því áræði hjú ástralska leikstjóranum að gera mynd um Davíð konung sem sigr- aði Golíat. Handritið er byggt á Gamla testamentinu. Eins og flestir vita sem einhvern tíma hafa gengið í skóla var Davíð fjárhirðir er varð elskaður konungur ísraelsmanna og er Davíð konungur ekki fyrsta kvikmyndin sém gerð er um þenn- an dýrling Biblíunnar. Af öðrum myndum í Regnboganum má nefna að í gær var frumsýnd Bomber, slagsmálamynd með þeim stóra og feita Bud Spencer. Austurbæjarbíó Þú ert sjúkdómur, ég er lækning- in, segir Sylvester Stallone um leið og hann drepur morðingja í nýjustu mynd sinni, Cobra, sem flestir eru sammála um að taki fram öllum ofbeldiskvikmyndum sem gerðar hafa verið. í þetta skiptið leikur Stallone hvorki fyrrverandi her- mann né boxara heldur lögreglu- mann í Kalifomíu sem á að gæta laga og réttar og það gerir hann með ofbeldinu. Þrátt fyrir að Cobra hafi fengið dágóða aðsókn í Banda- ríkjunum þá er það ekkert á við Hvað er á seyði um helgina — Hvað er á seyði um helgina — Hvað er á seyði um helgina — Hvað er á seyði um helgina — Kvikmyndahús þá aðsókn sem Rambo og Rocky IV fengu. Kenna menn því um að jafn- vel Bandaríkjamönnum, sem þó eru ýmsu vanir, ofbjóði ofbeldið í myndinni. Háskólabíó Martröð á þjóðveginum (Hitcher) fjallar um ungan mann sem tekur að sér að ferja bíl frá Chicago til vesturstrandarinnar. Þegar hann álpast til að veita ókunnum putta- ferðalangi far með bílnum hefst ógnþrungin atburðarás. Ókunni maðurinn reynist hið versta fól. Aðalhlutverkin leika C. Thomas Howell, ungur og efnilegur leikari sem Francis Ford Coppola kom á framfæri, og hollenski leikarinn Rutger Hauer sem við sáum síðast í Ladyhawke. Bíóhúsið Eflaust muna margir eftir því þegar byrjað var að kvikmynda Óvinanámuna (Enemy Mine) hér á landi, enda gekk ekki svo lítið á - leikstjórinn rekinn og allt sem kvikmyndað var hér eyðilagt. Við myndinni tók Þjóðverjinn Wolf- gang Petersen og nú er hægt að sjá árangurinn i Bíóhúsinu. Óvina- náman hefur yfirleitt fengið mjög Laugarásbíó: Villikettir Tvær gamanmyndir prýða stærstu sali Bíóhallarinnar þessa dagana. í aðalsalnum er sýnd nýj- asta kvikmynd Goldie Hawn, Villikettir (Wild Cats), þar sem hún leikur unga stúlku sem dreymir um stráka sem leika bandarískan fót- bolta. Goldie Hawn er kannski besta gamanleikkona Bandaríkj- anna í dag og svíkur sjaldan. Hin gamanmyndin er Lögregluskólinn 3 sem fjallar um hið óborganlega lið sem útskrifaðist í fyrstu mynd- inni, mynd sem fær ábyggilega marga til að hlæja. Þá má nefna 9 /i viku, mjög umtalaða mynd sem hefur vakið mikla athygli og þykir í djarfara lagi. Aðalhlutverkin í þeirri mynd leika Mickey Rourke, sem slegið hefur eftirminnilega í gegn að undanförnu, og Kim Bass- inger. vinsamlega dóma; þykir standa framarlega í röð mynda sem byggj- ast á vísindaskáldskap. En því miður fyrir framleiðendur hafa áhorfendur látið sig vanta á mynd- ina erlendis, hvað svo sem skeður hér. Stjörnubíó I aðalsal Stjörnubíós er sýnd mynd um unga og forherta menn. Nefnist hún Bræðralagið (Band of the Hand) og státar myndin af tón- list sem flutt er af nokkrum poppgoðum nútímans. Járnörninn (Iron Eagle) er mynd sem fjallar um tvo menn sem taka lögin í sínar hendur og fara á orrustuþotum til Austurlanda til að leita að föður annars þeirra. Járnörninn er spennumynd þar sem mikil áhersla er lögð á flugatriði. Af öðrum myndum í Stjömubiói er helst að nefna íslensku kvikmyndina Eins og skepnan deyr og eru nú að verða síðustu forvöð fyrir þá sem ekki hafa séð hana að sjá nýjustu ís- lensku kvikmyndina. Laugarásbíó 3:15 fjallar um ungan mann sem einu sinni var í glæpaklíku en hef- ur nú séð að sér og úkveðið að ganga menntaveginn. Fyrrverandi félagar em ekki alltof hrifnir af þessari ákvörðun og ákveða að gera upp við hann. Uppgjörið er svo kl. 3.15. -HK Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn Asgríms- safn Við Bergstaðastrætið stendur lá- reist steinhús sem lætur lítið yfir sér. í þessu húsi bjó fyrsti íslenski listmálarinn sem gerði myndlistina að ævistarfi sínu eingöngu, Ás- grímur Jónsson. Hann fæddist árið 1876 og innan við tvítugsaldur ákvað hann, þrútt fyrir fátækt og margskonar erfiðleika, að helga myndlistinni starf sitt og framtíð. Hann fór i listnám til Danmerkur og síðar til Italíu. Ásgrímur Jónsson var brautryðj- andi nútímamyndlistar á Islandi og viðfangsefni hans voru aðallega náttúra Islands. Hann andaðist árið 1958, ókvæntur og barnlaus. Síðustu æviárin bjó hann í húsi sínu við Bergstaðastræti 74. Hann arfleiddi þjóð sína að miklum fjölda listaverka, ásamt húsi sínu og heimili. Ásgrímssafn var opnað í húsinu 1960 og eru í safninu 192 fullgerð oliumálverk og 277 full- gerðar vatnslitamyndir og stúdíur, auk fjölda þjóðsagnateikninga. Einnig eru í safninu ófullgerðar myndir frá ýmsum tímum. í heimili Ásgríms og vinnustofu er aðeins hægt að sýna 30-40 listaverk í einu og er því skipt um myndir þrisvar sinnum á ári. Nú stendur yfir i safninu sumar- sýning á Reykjavíkurmyndum Ásgríms í tilefni afmælis borgar- innar. Þær eru flestar málaðar á árunum 1910 til 1920. Ásgrímur kom alkominn heim árið 1909 og Tunglsljós nefnist þessi mynd Ásgrims Jónssonar sem hann málaöi af vesturbænum en nú eru til sýnis Reykjavikurmyndir Ásgríms í Ásgrims- safni við Bergstaðastræti. Sýningar Árbæjarsafn Opið alla daga kl. 13.30-18 nema mánu- daga er lokað. Nýopnuð sýning í prófess- orshúsinu á Kleppi í tilefni 200 ára afmælis Reykj avíkurborgar Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74 Sýning á Reykjavíkurmyndum Ásgríms Jónssonar í tilefni af afmæli borgarinnar. Sýningin er opin alla daga nema laugar- daga kl. 13.30-16 og stendur til ágústloka. Ásmundarsafn við Sigtún Opnunartími safnsins er á þriðjudögum, fimmtudögum, laugardögum og sunnudög- um frá kl. 14-17. Ásmundarsalur við Freyjugötu 11 íslenskir arkitektanemar við nám er- lendis sýna verk sín til og með 17. ágúst. Sýningin er opin virka daga kl. 9-16 og 17-21, um helgar kl. 14-21. Gallerí Borg, Pósthússtræti Sumarsýning stendur yfir, skipt um mynd- ir reglulega. Galleríið er opið frá kl. 10-18 virka daga. Kjarvalsstaðir við Miklatún Reykjavík í 200 ár. Svipmyndir mannlífs og byggðar. Laugardaginn 16. ágúst verð- ur þessi sýning opnuð í tilefni 200 ára afmælis borgarinnar. Gallerí Gangskör Nú stendur yfir sýning Gangskörunga og er hún opin daglega frá 18-24. Gallerí Gangurinn Þann 4. ágúst var opnuð sýning á verkum austurríska málarans Fritz Grosz. Hann málar abstrakt myndir. Nokkrar olíukrít- armyndir eru einnig á sýningunni. Hún mun standa yfir í mánuð. Gallerí íslensk list, Vesturgötu 17 Þar stendur yfir sumarsýning Listmálara- félagsins. 15 félagar Listmálarafélagsins sýna. Þetta er sölusýning og er hún opin virka daga frá kl. 9-17 og kl. 14-18 um helgar. Mokkakaffi, Skólavörðustíg Málverkasýning Baldurs Edwins stendur nú yfir. Hann sýnir vatnslitamyndir frá Reykjavík. Sýningin er opin daglega frá 9.30-23.30. Nýlistasafnið, Vatnsstíg Laugardaginn 16. ágúst kl. 16.00 opna Tumi Magnússon og Ráðhildur Ingadóttir málverkasýningu. Verkin eru öll unnin á Englandi síðastliðinn vetur og eru af ýms- um stærðum og gerðum. Sýningin er opin frá kl. 16-20 virka daga og kl. 14-20 um helgar og mun hún standa til 24. ágúst. Norræna húsið v/Hringbraut Sumarsýning stendur yfir. Að þessu sinni eru á sýningunni verk fjögurra listmálara af yngri kynslóðinni, þeirra Einars Há- konarsonar, Gunnars Ámar Gunnarsson- ar, Helga Þorgils Friðjónssonar og Kjartans Ólasonar. Sýningin verður opin daglega kl. 14-19. í anddyrinu er sýning á ljósmyndum og sáldþrykki eftir þýska ljósmyndarann Karlheinz Strötzel. Fyrirmyndir hans að öllum myndunum er ísleriskt landslag og gamlir íslenskir torfbæir. Myndirnar eru allar til sölu og rennur ágóðinn af sölu þeirra til byggingar Hallgrímskirkju. Listasafn ASÍ, Grensásvegi Nú stendur yfir í Listasafni ASl „Sumar- sýning" en þar eru sýnd 40 verk í eigu safnsins. Sýningin er opin alla daga vik- unnar kl. 14-18 og henni lýkur sunnudag- inn 24. ágúst. Listasafn Einars Jónssonar við Njarðargötu er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn daglega frá kl. 10-17. Listasafn Háskóla íslands í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opið daglega kl. 13.30-17. Þar eru til sýnis 90 verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri listamenn þjóðarinnar. Aðgangur að safn- inu er ókeypis. Listver, Austurströnd 6, Seltjarnarnesi. I dag 15. ágúst kl. 16 opnar Myndlistar- klúbbur Seltjamamess sýningu í tilefni vinabæjarmóts. Það eru 10 Seltimingar í klúbbnum sem eiga myndir á sýningunni sem stendur til 31. ágúst og er opin virka daga kl. 16-22 og um helgar kl. 14-22.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.