Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1986, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1986, Síða 7
FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1986. ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR Opna Coca Cola mótið 25 ára fslandsmótið í knattspymu: Spennandi umferð fram undan Nú um helgina verður opna Coca Cola mótið haldið hjá Golfklúbbi Ness. Mótið var fyrst haldið 1961 og er því 25 ára. Er þetta elsta opna golfinót landsins. Fyrstu árin var það haldið á golfvellinum í Öskjuhlíð en er hann var lagður niður var það flutt í Grafarholt og síðar á Nesvöllinn þar sem það er nú haldið. Þetta mót braut blað í golfsögu landsins því áður höfðu kylfmgar úr hinum ýmsu klúbbum ekkert tækifæri til að keppa innbyrðis nema á landsmóti. Skömmu síðar var einnig efiit til Coca Cola golf- keppni hjá hinum tveim klúbbun- um sem störfuðu, Golfklúbbi Hér sjást nokkrir aðstandendur mótsins. Frá vinstri: Hallgrimur T. Ragnarsson markaðsstjóri, Ottó Péturs- son, fyrrverandi formaður Golfklúbbs Ness, Pétur Bjarnason forstjóri og Sigurður Runólfsson, núverandi formaður Golfklúbbs Ness. DV-mynd Kristján Ari Það voru mikil fagnaðarlæti á varamannabekk Valsmanna þegar leikur Vals og Fram var flautaður af. Vals- menn sigruðu 1-0 og eru nú aðeins einu stigi á eftir Fram. DV-mynd Brynjar Gauti Það ætlar ekkert lát að verða á spennunni í íslandsmótinu í knatt- spymu. Eftir að Valsmenn unnu Framara um síðustu helgi er aftur hlaupin spenna í 1. deildina en um tíma leit út fyrir að Framarar væru að stinga af. Nú má hins vegar segja að hver leikur sé nánast úr- slitaleikur. Eftirfarandi leikir verða í deildakeppninni um helg- ina: 1. deild karla UBK - KR.....16. ágúst kl. 14.00 Þór A. - í A.16. ágúst kl. 14.00 Valur-ÍBV....16. ágústkl. 16.00 Fram-FH.......17. ágústkl. 19.00 ÍBK - Víðir.17. ágúst kl. 19.00 2. deild karla Völsungur - Þróttur R. ................15. ágúst kl. 19.00 KS - Selfoss....15. ágúst kl. 19.00 KA - ÍBÍ.........15. ágúst kl. 19.00 Einherji - Skallagr. ................16. ágúst kl. 14.00 3. deild karla A-riðill: Stjaman-ÍR.......15. ágúst kl. 19.00 Reynir S. - Fylkir 15. ágúst kl. 19.00 B-riðill: Leiknir F. - Austri E. ................16. ágúst kl. 14.00 Magni - Valur Rf. 16. ágúst kl. 14.00 Tindastóll - Leiftur .................16:ágústkl. 14.00 Þróttur N. - Reynir Á. ................16. ágúst kl. 14.00 Þá heldur úrslitakeppnin í 4. deild áfram um helgina. -SMJ Akureyrar og Golfklúbbi Vest- mannaeyja. Keppt verður með og án forgjafar og er þátttaka öllum heimil, ungum jafnt sem öldnum, konum sem körl- um, innlendum sem erlendum. Sérstök aukaverðlaun eru í boði fyrir þann sem fyrstur fer holu í höggi á 6. braut. Eru það 200 kass- ar af Coca Cola en hingað til hefur engum tekist að krækja sér í þessi verðlaun. Einnig verða veitt verð- laun fyrir að slá næst holu á sömu' braut og fyrir að slá lengsta högg af teig á 3 braut og ef vallarmet verður slegið á 9 eða 18 holum verða veitt verðlaun hjá körlum og konum. -SMJ Frjálsar íþróttir í Laugardalnum Unglingakeppni FRÍ og bikar- keppni FRf í fjölþraut fer fram á Laugardalsvelli nú um helgina, nánar til tekið 16. og 17. ágúst. Unglingakeppnin hefst kl. 13.00 en fjölþrautarkeppnin kl. 16.00. f unglingakeppninni keppa bestu unglingar landsins, 18 ára og yngri. Má búast við spennandi keppni í Laugardalnum um helgina. -SMJ v Frjálst, óháð dagblað Á MORGUN Gunnar Bjarnason er kominn i tuttugasta og niunda ættlið frá Ingólfi Arnarsyni. Hann ólst upp i hjarta bæjarins, einmitt á þeim stað þar sem talið er að bær Ingólfs hafi staðið. Helgarblaðið ræddi við Gunnar um Reykjavíkurlífið hér á árum áður. HÚFUÐBORGIN OKKAR, REYKJAVÍK, ER AÐ VERÐA TVÖ HUNDRUÐ ÁRA. HELGARBLAÐIÐ HELDUR UPP Á AFMÆLIÐ Í MÁLI OG MYNDUM. Það eiga fleiri afmæli en Reykjavíkur- borg. Rafstöðin við Elliðaár varð sextíu og fimm ára á árinu. Helgar- blaðið heimsótti þetta merka mann- virki. Hver var hann, þessi maður sem stendur svo keikur á stalli í fógeta- garðinum? Hversu vel þekkja Reykvíkingar sögu sína? Helgar- blaðið kannaði málið. Helgarblaðið ræddi við Þórunni Valdi- marsdóttur, höfund bókarinnar „Sveitin við sundin". Ennfremur var rætt við Jón G. Bergmann, formann Reykvíkinga- félagsins. Brugðið er upp gömlum og fágætum Ijósmyndum frá Reykjavík og margt margt fleira.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.