Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1986, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUK 11. SEPTEMBER 1986.
3
Fréttir
Bílaröðin náði allt trá Miklubraut og undir Kópavogsbrúna á mesta álags-
tímanum. DV-mynd BG.
Um 100 bifreiða
umferðarhnútur
Mikill umferðahnútur um eða yfir
100 bifreiða hefur að undanfömu
myndast á veginum milli Hafnarfjarð-
ar og Reykjavíkur vegna endumýjun-
ar á slitlagi vegarins við Kópavogs-
brúna. Vegagerðin stendur að
þessum framkvæmdum og ætlunin er
að endurbæta einnig þennan veg á
kafla í Garðarbæ og við vegamótin í
Engidal. Öllu verkinu á að vera lokið
um helgina og vonast er til að ekki
verði eins miklar truflanir á umferð
vegna sinnihluta þess.
Sigursteinn Hjartarson hjá Vega-
gerðinni sagði í samtali við DV að
þessi mikli umferðarhnútur væri að
hluta til ökumönnum sjálfum að
kenna, þeir drægju mjög úr ferð sinni
er þeir ækju framhjá vinnusvæðinu til
að forvitnast um verkið.
„Við vonumst til að framkvæmdim-
ar í Garðabæ valdi ekki eins miklum
truflunum því ekki verður byrjað að
vinna við þær fyrr en að lokinni mestu
umferðinni um veginn um morgun-
inn.“ sagði Sigursteinn í gær.
-FRI
Uppgjör Listahátíðar:
Styrkir og framlög
námu 7 milljón kr.
Uppgjör Listahátíðar 86 hefur verið
lagt ffam. Alls varð um 300 þúsund
kr. hagnaður af hátíðinni en hún hefur
ekki komið út réttum megin við rauða
strikið síðan 1978. Rétt er að taka fram
að þegar talað er um hagnað em
reiknuð sem tekjur ffamlög og styrkir
ríkis og borgar auk nokkurra annarra
aðila, að upphæð samtals um 7 millj-
ónir kr.
Gjöld Listahátíðar námu alls 26,4
milljónum kr. en tekjur af aðgangs-
eyri námu tæpum 20 milljónum. Hin
góða fjárhagsstaða hátíðarinnar gerði
það kleift að endumýja húsnæði sem
hún hefúr haft til umráða og skipta
þar út skrifstofubúnaði sem orðið var
brýnt verk.
„Ávinningurinn af þessari hátíð er
afstæður, nefna má Picasso-gjöfina og
að við eigum enn í fórum okkar sjón-
varpsefni sem ósýnt er, viðtöl við bæði
Doris Lessing og Ingmar Bergman,"
sagði Hrafn Gunnlaugsson, formaður
Listahátíðar, í samtali við DV.
Á fúndinum, þar sem uppgjörið var
lagt ffam, fóru menntamálaráðherra
og borgarstjóri ffam á að Hrafri yrði
áfram formaður hátíðarinnar en hann
hafnaði því boði. Aðspurður sagði
Hrafii að hann þakkaði hið mikla
traust sem honum væri sýnt með þessu
en hann þyrfti að huga að öðrum verk-
efhum eins og til dæmis kvikmynd
þeirri sem hann ætlar að gera í sam-
vinnu við Svía og svo væri vinnan á
sjónvarpinu númer eitt í bili.
Lögreglan á Egilsstöðum:
Leitar hreindýra-
þjöfa úr þyrlu
Lögreglan á Egilsstöðum fékk ný-
lega afhot af þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar til leitar að hreindýraveiði-
þjófum á aðalveiðisvæðunum á
Austfjörðum og áformuð eru fleiri
flug með þyrlunni í þessum tilgangi
en hreindýraveiðum lýkur þann 15.
september nk.
Áð sögn Úlfars Jónssonar, varð-
stjóra á Egilsstöðum, bárust lögregl-
unni spumir af veiðiþjófum við
Snæfell um síðustu helgi en ekki
tókst að hafa uppi á þeim og
.. „sennilega eru þeir búnir að éta
sitt ket...“ sagði Úlfar.
I þjrlufluginu, sem flogið var um
veiðisvæðin, voru, auk lögreglu-
manna af Egilsstöðum, Gils
Guðmundsson, yfirlögregluvarð-
stjóri úr Reykjavík, og Hjörtm-
Kjerúlf sem var leiðsögumaður. Alls
tók flugið einn og hálfan tíma og
var fyrst flogið inn Fellaheiðina. Þar
var engin hreindýr að sjá en skyggni
ágætt og gekk á með éljaleiðingum.
Síðan var flogið fyrir Kálffell og að
Þuríðarstaðadalsbrún en þar komu
Hreindýraveiðin hefur verið treg það sem af er en veiðitimabilinu lýkur
15. september.
leitarmenn auga á fyrstu veiðimenn-
ina og nokkur dýr er þeir höfðu
fellt. Var um heimamenn að ræða, í
fullu leyfi til veiða.
Eftir að hafa veifað til veiðimann-
anna var flogið að Kringilsá og aftur
til baka til Egilsstaða um Kringilsár-
rana. Á rananum sáust 3400 hrein-
dýr en engin merki um mannaferðir.
„Það er ljóst að með þessum hætti
fáum við gott og nákvæmt yfirlit
yfir veiðisvæðin og getum betur
spomað við veiðiþjófhaði," sagði
Úlfar Jónsson varðstjóri.
1 ár er leyft að veiða 700 hreindýr
en veiðin hefur verið treg það sem
af er veiðitímanum.
-FRI
yerö aöeins
909.500
LADA bílar hafa sannað kosti sína hér á iandi sem sterkir, öruggir, gangvissir,
ódýrir í innkaupi, með lítið viðhald og ódýra varahluti og ekki síst fyrir hátt
endursöluverð.
igntttsitmttttt!
-FRI