Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1986, Page 5
FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986.
5
Fréttir
Heimtur hafbeitarstödva:
Svipaðar og síðasta ár
þrátt fyrir nýmaveiki
„Á heildina litið eru heimtur haf-
beitarstöðva mjög svipaðar í ár og á
síðasta ári, þrátt fyrir nýmaveikiáfall-
ið sem kom upp á árinu. Það má þakka
ástandi sjávar eða hlýnandi sjó og
auknum gæðum sjógönguseiða," sagði
Jón Sveinsson, formaður Landssam-
bands fiskeldis- og hafbeitarstöðva.
Samkvæmt gróflegri áætlun slepptu
héifbeitarstöðvamar samtals um 425
þúsund tonnum af laxaseiðum til sjáv-
ar í fyrra. Á þessu ári em heimtur
stöðvanna samtals í kringum 60 þús-
und tonn. Árið 1985 vom heimtumar
um 58 þúsund tonn og árið 1984 um
24 þúsund tonn.
Misgóðar heimtur stöðva
Heimtur einstakra stöðva hafa þó
verið mjög mismunandi. Hjá Vogalaxi
á Vatnsleysuströnd vom t.d. allgóðar
heimtur. Þar var sleppt um 22 þúsund
seiðum í fyrra og endurheimt um 2.200
af 1 og 2 ára löxum. Hjó Pólarlaxi í
Straumsvík vom heimtur hins vegar
frekar slæmar. Um 100 þúsund seiðum
var sleppt í fyrra og vom endurheimt-
ur í ár um 2 til 3 þúsund laxar, að
miklum hluta 2 ára laxar, þar sem 1
árs laxinn mun ekki hafa skilað sér
vel þar.
Hjá Laxeldisstöðinni í Kollafirði var
um 100 þúsund seiðum sleppt en end-
urheimtur vom um 13 þúsund af 1 til
2 ára löxum. Þykja þetta tiltölulega
lélegar heimtur. Lárósstöðin á Snæ-
fellsnesi sleppti um 7.900 seiðum í fyrra
en endurheimti í ár um 2.200 laxa sem
þykja góðar heimtur. Einnig em þeir
hjá hafbeitarstöðinni Isnó í Keldu-
hverfi ánægðir með sínar heimtur,
þeir settu út 18 þúsund seiði í fyrra
og fengu inn 1.100 laxa í ár.
Sölumálin
Jón Sveinsson sagði að hafbeitarlax-
inn sem komið hefði í stöðvamar i ár
væri að mestum hluta seldur á inn-
lendum og erlendum markaði. Um
verðhmn hefði ekki verið að ræða og
hefði laxinn selst á mjög svipuðu verði
og í fyrra.
Hins vegar sagði hann að hafbeitar-
stöðvamar fiystu laxinn að hluta nú
sem fyrr og seldu fyrir og eftir óramót
þegar eftirspum væri meiri og verð
hærra.
„Sölumálum hefur að vísu ekki verið
sinnt sem skyldi. Það vantar allt heild-
arskipulag á söluna. Nú hefur Lands-
sambandið hins vegar verið að
undirbúa átak til þess að koma lagi á
markaðsmálin erlendis. Við höfum all-
ar aðstæður til þess að framleiða
eftirsóttan lúxuslax, sem gott verð
fæst fyrir,“ sagði Jón.
Jón Sveinsson, formaður Landssambands fiskeldis- og hafbeitarstöðva, stend
ur hér hróðugur með tvo væna laxa.
Snjór í fjallatind-
um á Vatnsnesi
Bóbert Jack, DV, TJom, Vatnsnesi
Sumarið er nú um það bil að
kveðja og kominn snjór í fjallst-
inda hér á Vatnsnesinu. Veður
hefur þó verið gott, alls ekki kalt
Is sást í Húnaflóa um daginn.
Hann var ekki mikill en þó var
hann kominn langt inn í flóann.
Ég hef oft hugleitt hvemig ís-
lendingum þyki það að koma heim,
eftir að hafa verið í ferðalögum úti
í hinum stóra heimi, sérstaklega
ef þeir búa á frekar afskekktum
stöðum eins og hér ó Vatnsnesinu.
Af eigin reynslu get ég ftdlvrt að
það er dálítið skrýtin tilfinning að
hafa dvalið í London, með öllum
þeim hávaða og gífurlega mann-
fjölda sem er í þeirri borg, og vera
svo næsta dag kominn norður í
kyrrð og ró við Vatnsnesfjöll.
Og svo er það loftið. Hvergi er
hreinna og ómengaðra loft en ein-
mitt á Islandi. Eftir mánuð á
Bretlandi, í Glasgow. Manchester,
London og viðar er dásamlegt að
vera kominn aftur til íslands og
losna við bensín- og olíulyktina
sem umkringdi mig daglega í borg-
um á Bretlandseyjum.
Erindreki krata
fer í prófkjör
Prófkjör Alþýðuflokksins á
Norðurlandi vestra verður 8. nóv-
ember. Framboðsfi'estui- er til 11.
október en þrír menn hafa þegar
ákveðið að gefa kost á sér.
Þessir þrir eru Jón Sæmundur
Sigurjónsson frá Siglufirði. sem
hefur skipað efsta sæti listans þæ-
í kjördæminu. Sveinn Benónýsson
frá Hvammstanga og Birgir D<t-
fjörð. erindreki Alþvðuflokksins.
-KÞ
VIDEOTÆKI
VX-510TC
• „Slimllne"
(aðeins 9,6 cm á hæðj.
• Framhlaðið m/fjarstýringu.
• Skyndiupptaka
m/stillanlegum tíma,
allt að 4 klst.
• 14 daga minni
og 2 „prógrömm".
• 12 rásir.
• Hrein kyrrmynd
og færsla á mílli
myndramma.
• Stafrænn teljari.
• Sjálfvirk bakspólun. 'L
• Hraðspólun m/mynd *
í báðar áttir. 4
32.900»
Laugavegi 63 — Síml 62 20 25