Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1986, Síða 6
6
FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986.
Viðskipti
Skuldir vegna skreiðar í íslenskum bónkum:
Sex hundruð
í bönkum landsins, aðallega Seðla-
bankanum, Landsbankanum og
Útvegsbankanum, nema skuldir vegna
skreiðarframleiðslu undangenginna
ára, svokölluð aíurðalán, mörg hundr-
uð milljónum króna. Skreiðarskuldir
við Seðlabankann eru nú samtals um
400 milljónir króna. Þar af skuldar
Landsbankinn 290 milljónir og Út-
vegsbankinn um 76 milljónir.
En Landsbankinn og Útvegsbank-
inn hafa lánað gott betur til skreiðar-
framleiðslu því nú nema skreiðar-
skuldir við Landsbankann alls um 500
milljónum og við Útvegsbankann um
110 milljónum.
Árið 1984 hætti Seðlabankinn að taka
veð í skreið fyrir Nígeríumarkað. En
Landsbankinn og Útvegsbankinn
héldu áfram og veittu ýmis viðbótarl-
án vegna skreiðarframleiðslu. Núver-
andi skreiðarskuldir við Seðlaban-
kann eru því frá árinu 1981 til ársins
1983.
Samkvæmt upplýsingum frá Seðla-
bankanum hefúr bankinn komið
verulega til móts við skreiðarframleið-
endur vegna þessara lána.
Skuldir vegna skreiðarframieiðslu nema rúmlega sex hundruð milljónum í Landsbankanum og Utvegsbankanum.
Peningamarkaður
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65-69 ára geta losað inn-
stæður sínar með 9 mánaða fyrirvara, 70-74
ára með 6 mánaða fyrirvara og 75 ára og eldri
með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarnir eru
verðtryggðir og með 8% vöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fvrir þá sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar.
Nafnvextir eru 15% og ársávöxtun 15%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir
10% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mán-
uði án úttektar upp í 16%. Ársávöxtun á
óhreyfðri innstæðu er 13,64% á fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 14%
nafnvöxtum og 14,5% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 0,75% í svonefnda vaxtaleið-
réttingu.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 14,5% nafnvöxtum og
15% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort með 10,5% nafnvöxtum og 10,8%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3,5%
vöxtum. Hærri ávöxtunin gildir hvem mán-
uð. Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygg-
ing auk 2% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka
má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án
þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir
30.06. og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
14% nafnvöxtum og 14,49% ársávöxtun eða
ávöxtun 6ja mánaða verðtryggðs reiknings
reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast
0,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
100 ára afmælisreikningur er verðryggð-
ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25%
og breytast ekki á meðan reikningurinn verð-
ur í gildi.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fyrst 8%, eftir 2 mánuði 8,25%, 3 mánuði 8,
50%, 4 mánuði 9%, 5 mánuði 9,5% og eftir 6
mánuði 12%, eftir 12 mánuði 12,5% og eftir
18 mánuði 13%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6
mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún
um hávaxtareikninginn.
18 og 24 mánaöa reikningar eru bundnir
og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum, nú 12,4%, eða ávöxtun 3ja mán-
aða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxt-
um sé hún betri. Samanburður er gerður
mánaðarlega en vextir færðir í árslok. Sé tek-
ið út af reikningnum gilda almennir spari-
sjóðsvextir, 8%, þann mánuð.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur.
Meginreglan er að innistæða, sem er óhreyfð
í heilan ársQórðung, nýtur kjara 6 mánaða
bundins óverðtryggs reiknings eða 6 mánaða
verðtryggðs reiknings, eftir því hvor gefur
hærri ávöxtun fyrir þann ársfjórðung.
Vextir og verðbætur færast á höfuðstól í lok
hvers ársQórðungs, hfai reikningur notið
þessara „kaskókjara“. Reikningur ber kaskó-
kjör, þótt teknir séu út vextir og verðbætur,
sem færðar hafa verið á undangengnu og yfir-
standandi ári. Úttektir umfram það breyta
kjörunum sem hér segir:
Viðeina úttekt í fjórðungi reiknast almenn-
ir sparisjóðsvextir af úttekinni fjárhæð, en
kaskókjör af eftirstöðvum. Við fleiri úttektir
fær öll innistæða reikningsins sparisjóðs-
bókarvexti.
Sé reikningur stofnaður fyrsta eða annan
virkan dag ársfjórðungs, fær innistæðan hlut-
fallslegar verðbætur m.v. dagafjölda í innlegs-
mánuði, en ber síðan kaskókjör úr íjórðung-
inn. Reikningur, sem stofnaður er síðar fær
til bráðabirgða almenna sparisjóðsbókavexti
en getur áunnið sér kaskókjör frá stofnadegi
að uppfylltum skilyrðum.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum, 12,5%, með
13% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ásfjórðungi. Reynist tromp-
vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt
á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn-
an mánaðar bera trompvexti sé innstæðan
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 8%. Vextir færast misserislega.
12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði vél-
stjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði,
óverðtryggða en á 15,5% nafnvöxtum. Þeir
eru færðir einu sinni á ári og ársávöxtun er
því einnig 15,5%.
18 mánaða reikningar 5 sparisjóða eru
með innstæðu bundna óverðtryggða í 18 mán-
uði en á 14,5% nafnvöxtum og 15,2% árs-
ávöxtun. Sparisjóðirnir í Keflavík, Hafnar-
firði, Kópavogi, Borgamesi og Sparisjóður
Reykjavíkur bjóða þessa reikninga.
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem
eru 50 þúsund að nafnverði.
Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með
þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, fjög-
urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur,
vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól
við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14
ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun
er 8,16% á verðbættan höfuðstól hverju sinni
og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert.
Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð-
stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára.
Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til-
tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku
marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%.
Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í
einu lagi við innlausn.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða
óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum.
Þau eru seld með aflollum og ársávöxtun er
almennt 12-16% umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán, nema á 3. ársfjórðungi 1986: Til
einstaklinga 846 þúsundum króna, 2-4 manna
fjölskyldna 1.057 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.258 þúsundum. Lánin eru til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema
á 3. ársfjórðungi 1986: Til kaupa í fyrsta sinn
er hámark 423 þúsund krónur til einstakl-
ings, annars mest 211 þúsund. 2-4 manna
fjölskylda fær mest 537 þúsund til fyrstu
kaupa, annars mest 268 þúsund. 5 manna fjöl-
skylda eða stærri fær mest 629 þúsundir til
fyrstu kaupa, annars mest 314 þúsund. Láns-
tími er 21 ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóðurákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að
lánsrétti er 30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru á bilinu 150 1000 þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð-
tryggð og með 5% vöxtum. Lánstími er 15-42
ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknað-
ir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir
reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári
verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður
þá hærri en nafnvextirnir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tíma-
bilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því
10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verðbólgu
dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún
getur jafnvel orðið neikvæð.
Liggi 1000 krónumar inni í 6 + 6 mánuði á
10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eft-
ir 6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur
og ofan á þá upDhæð leggjast 5% vextir seinni
6 mánuðina. Á endanum verður innstæðan
því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru frá 01.04.1986 2,25% á
mánuði eða 27% á ári.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í september 1986 er 1486
stig en var 1472 stig í ágúst. Miðað er við
grunninn 100 í júní 1979.
Byggingarvísitala á 3. ársfjórðungi 1986
er 274,53 stig á grunninum 100 frá 1983 en
4068 stig á grunni 100 frá 1975.
Húsaleiguvísitala hækkaði um 5% 1. júlí
en þar áður um 5% 1. apríl og 10% 1. jan-
úar. Þessi vísitala mælir aðeins hækkun
húsaleigu þar sem við hana er miðað sérstak-
lega í samningum leigusala og leigjenda.
Hækkun vísitölunnar miðast við meðaltals-
hækkun launa næstu þijá mánuði á undan.
milljónir
Seint ó árinu 1984 voru gefhir eftir
vextir af lónunum að upphæð um 70
milljónir króna og aftur í mars 1985
að upphæð 71 milljón króna. Þó voru
lónin endurgreidd að hluta vegna
gengismunar og nú er svo komið að
Seðlabankinn heftu- fellt niður alla
vexti af skreiðarlónum aftur til 1. jan-
úar 1985, eða sem nemur um 134
milljónum króna. Skreiðarskuldir við
Seðlabankann, þessar 400 milljónir,
eru því vaxtalausar. Líklegt er að
Útvegsbankinn og Landsbankinn feti
í fótspor Seðlabankans og felli niður
vexti af skreiðarlónum.
Og samkvæmt upplýsingum fró
bönkunum mun þeim líklega svíða
mest vegna skreiðarævintýranna.
-KB
Umboðssalinn í norska „skreiðarhneykslinu":
Átti í viðræðum
við íslenska
skreiðarseljendur
Sá umboðsaðili sem talinn er bera
ábyrgð á skreiðarhneykslinu, sem upp
kom í Noregi í sumar vegna viðskip-
tanna við Nígeríu, er góðkunningi
íslenskra skreiðarsöluaðila. Maðurinn
er írskur og heitir Christopher
O’Kelly.
Eins og fram kom í fréttum í sumar
seldu norskir skreiðarútflytjendur
óhemju magn af skreið, eða um 3.500
VEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtiyggð
Sparisjóðsbækur óbundnar 8-9 Lb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 8.5-10 Ab.Lb.Vb
6 mán. uppsögn 9.5-12.5 Ab.Vb
12mán. uppsögn 11-14 Ab
Sparnaður - Lánsréttur
Sparað i 3-5 mán. 8-13 Ab
Sp. i 6 mán. ogm. 8-13 Ab
Ávisanareikningar 3-7 Ab
Hlaupareikningar 3-4 Lb.Sb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1 Allir
6 mán. uppsögn 2.5-35 Lb
Innlán með sérkjörum 8-16
Innlán gengistryggð
Bandarikjadalur 6-7 Ab
Sterlingspund 9-10.5 Ab.Vb
Vestur-þýsk mörk 3.5-4 Ab
Danskar krónur 6-7.5 Ab.Lb. Bb.Sb
Utlán óverðtryggð
Almennir víxlar(forv.) 15.25 Allir
Viðskiptavixlar(forv.)(1) kge og 19.5
Almenn skuldabréf(2) 15.5 Allir
Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 7-9
Utlán verðtryggð Skuldabréf
Að2.5árum 4 Allir
Til lengri tima 5 Allir
Utián til framleiðslu
Isl. krónur 15
SDR 7.75
Bandaríkjadalur 7.75
Sterlingspund 11.25
Vestur-þýsk mörk 6
Spariskírteini
3ja ára 7
4ra ára 8.5
6ára 9
Með vaxtmiðum(4 ár) 8.16
Gengistryggð(5 ár) 8.5
Almenn verðbréf 12-16
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5
Dráttarvextir 27
VlSITÖLUR
Lánskjaravisitala 1486 stig
Byggingavisitala 274.53 stig
Húsaleiguvísitala Hækkaöi 5%1.júli
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnverðs:
Eimskip 200 kr.
Flugleiðir 140 kr.
Iðnaðarbankinn 98 kr.
Verslunarbankinn 97 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, af þriðja aðila, er
miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá
flestum bönkum og stærri sparisjóðum.
(2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs
vanskilalána er 2% bæði á verðtryggð
og óverðtryggð lán. Skammstafanir:
Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðar-
bankinn, Ib = Iðnaðarbankinn, Lb=
Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn,
Ob = Útvegsbankinn, Vb = Verslunar-
bankinn, Sp = Sparisjóðimir.
tonn til Nígeríu síðastliðið vor. Og
norskir skreiðarútflytjendur töldu sig
heldur betur hafa dottið í lukkupott-
inn. Verðmæti skreiðarinnar var
metið á um 275 milljónir íslenskra
króna. Þessi sala vakti mikinn ugg
meðal íslenskra skreiðarframleiðenda
sem töldu að hún mundi torvelda enn
frekar sölu ó íslenskri skreið til Níger-
íu.
Nú er talað um þessa sölu í Noregi
sem eitt „skreiðarhneykslið" enn. í
norska blaðinu Fiskaren var fjallað
um þetta hneyksli nýlega og skýrt frá
því að engar greiðslur hefðu borist
fyrir skreiðina sem þegar væri komin
til Nígeríu, sagt að viðskiptin væru
öll í óreiðu og að frekari skreiðarsend-
ingar hefðu verið stöðvaðar.
Norsku útflytjendumir fengu
bankaábyrgðir hjá sparisjóði Tromsö-
fylkis sem baktryggði sig hjá Mid-
land-bankanum í Englandi.
Samkvæmt heimildum DV er nú útlit
fyrir að sparisjóðurinn í Tromsö tapi
um 100 milljónum norskra króna, eða
um 500 milljónum íslenskra króna, á
viðskiptunum.
Christopher O’ Kelly, sá sem hafði
milligöngu um viðskiptin, er sagður
vera eftirlýstur af enskum banka fyrir
fjármálamisferli. íslenskir söluaðilar
hafa haft afskipti af manninum og
hafa reynt að fá hann til að hafa milli-
göngu um sölu á íslenkri skreið. í fyrra
leit út fyrir að honum yrði falin milli-
ganga á mjög stórri skreiðarsendingu
og því var öðrum sölumöguleikum
hafhað á meðan. Honum tókst hins
vegar ekki ætlunarverkið og íslenska
skreiðin því jafnóseld og áður.
-KB
Heimsmetstilraun Marska
Staðfesting
ekki komin
„Nei, ég er ekki búinn að fá þetta
staðfest að utan, en ég geri fastlega
ráð fyrir að hér hafi verið um heims-
met að ræða í bakstri sjávarrétta-
böku,“ sagði Ömólfur Thorlacius,
umboðsmaður Guinness á íslandi, í
samtali við DV.
Eins og fram hefur komið bökuðu
matreiðslumenn fyrirtækisins Marska
sjávarréttaböku á sýningunni Heimil-
ið ’86 sl. laugardag sem var 3,58 metrar
að þvermáli og flatarmál hennar var
10,3 fermetrar. Til að fyrirbyggja mis-
skilning þá er ljóst að stærri baka
hefúr verið bökuð en heimsmetstil-
raun þeirra hjá Marska var í sjávar-
réttaböku. Stærsta baka með annars
konar áleggi, sem bökuð hefur verið,
mun hafa verið 547 fermetrar að flatar-
máli og 26,4 metrar í þvermál.
-SJ