Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1986, Page 12
12
FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986.
ÁRSHÁTÍÐ
5 ára nemenda Hólabrekkuskóla (fædd 1965) verður
haldin laugardaginn 13. sept. í Risinu, Hverfisgötu
105. Miðasala fer fram miðvikudag og fimmtudag
milli kl. 13 og 18. S. 29670.
Þorgeir, Hjörtur, Þórjón.
PANTANIR
SÍMI13010
V/SA
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
KLAPPARSTÍG 29.
LAUS STAÐA
Staða skrifstofumanns í Þjóðminjasafni Islands er laus
til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Helstu verkefni, sem í starfinu felast, eru þessi: gjald-
kerastörf, umsjón með reikningshaldi og áritun reikn-
inga, bókhald að hluta og ýmis skrifstofustörf, eftir
því sem aðstæður leyfa og þörf krefur.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og starfsferil
skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu fyrir 10.
október næstkomandi.
8. september 1 986,
menntamálaráðuneytið.
TÓBAKSVARNA-
NÁMSKEIÐ
Lungna- og berklavarnadeild mun í haust halda 2
námskeið til stuðnings þeim sem vilja hætta að reykja
en hefur ekki tekist það upp á eigin spýtur.
Námskeiðin verða á þriðjudögum frá kl. 13-14.30.
Það fyrra byrjar 7. október en það síðara 11. nóvember.
Á hvoru námskeiði verða haldnir 5 fundir með skugga-
myndasýningum og umræðum á eftir.
Þátttakendur fá afhenta möppu með fræðsluefni fund-
anna.
Frá og með fyrsta fundinum er hætt að reykja.
Námskeiðsgjald er 2.000 kr.
Þeir sem hafa áhuga á þátttöku eru beðnir að skrá sig
í síma 22400 frá kl. 9-11 virka daga.
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur,
lungna- og berklavarnadeild
(gengið inn frá Egilsgötu).
Lœrið að fljúga
Flugkennsla alla daga og öll kvöld.
Einkaflugmannsnámskeið hefst 19. september næstkomandi.
Væntanlegir nemendur hafi samband sem fyrst. Góðar kennsluvél-
ar og fín aðstaða. Eldri nemendur okkar, rifjið upp flugið og náið
fyrir réttindum.
FLUGSKÓLI
HELGA JÓNSSONAFt,
Reykjavíkurflugvelli, sími 10880
Neytendur
íslenskt hugvit
í framkvæmd
„Það voru um 30-40 lásar á einu
trolli, þurfti tvo menn til þess að
opna hvem lás sem síðan var í mörg-
um stykkjum. Mér datt í hug að
hanna nýjan lás. Það er ekkert laust
stykki í honum. Einn maður getur
líka auðveldlega opnað hann og lok-
að á augnabliki," sagði Ragnar Þór
Bóasson uppfinningamaður úr
Kópavoginum sem DV hitti á heimil-
issýningunni í Laugardal á dögun-
um.
Þessi lás, sem er á keðju, er greini-
lega mjög hugvitssamlega upphugs-
aður en jafnframt mjög einfaldur
eins og allar góðar uppfinningar.
Ragnar Þór hefur sótt um einkaleyfi
fyrir þennan lás hér á landi. í fljótu
bragði má hugsa sér að þessi hug-
mynd gæti komið að góðum notum
á fleiri stöðum en í sjávarútveginum.
Hún væri áreiðanlega alveg tilvalin
til þess að þjóna sem þjófavama-
keðja á útihurðinni, svo eitthvað sé
nefht.
Læstur lyfjaskápur
„Geymist þar sem böm ná ekki
til,“ er algeng áletmn á ýmsum
umbúðum vöm, bæði lyfium og
hreinlætisvörum.
Alltof sjaldan er þessum tilmælum
hlýtt. Lyfin em geymd á eldhúshillu
eða í náttborðsskúffúm og hættuleg-
ar hreinlætisvörur í skápnum undir
vaskinum.
Á sýningu íslenskra hugvitsmanna
sáum við mjög haganlega læsingu á
lyfjaskáp sem á að vera ömggur fyr-
ir bömum. Það er uppfinningamað-
urinn Jóhannes Pálsson sem hefur
hannað þessa læsingu.
^ ÖRYGGíSTAPPI
fyrtr ftöskuf
höfpÞdur; Ferdktónd Ómarsson
fysíng; tvöfaldur tappi nv:ð orygg;slwltu, sem
•löckis er unnt aö skrúfe á 09 af meó
aérstöku tegf
Öryggistappi Ferdinands Ómars-
sonar er ekki kominn lengra en á
teikniborðið.
Öryggistappi
Enn eitt sáum við á þessari hug-
vitssýningu, en það var teikning af
öryggistappa fyrir alls kyns hrein-
lætisvörur. Þessi „tappi“ er enn ekki
kominn lengra en á teikniborðið en
hugmyndin virðist mjög sniðug.
Ferdinand Ómarsson hefur fundið
þennan tappa upp. Hann sagðist
hafa fengist nokkuð við uppfinning-
ar. Fóðurblandari sem hann hannaði
hefúr verið framleiddur og líkar vel.
Ferdinand vinnur annars við örygg-
isvörslu.
Flestar hugmyndir tengdar
sjávarútvegi
í þeirri deild Heimilissýningarinn-
£ir, er nefndist Hugvit, sýndu tuttugu
uppfinningamenn tuttugu og fjórar
hugmyndir. Að sögn Þorleife Þórs
Jónssonar frá Iðntæknistofnun em
flestar íslenskar uppfinningar í sam-
bandi við sjávarútveginn en nokkrar
tengjast heimilinu. Það hefur verið
erfitt fyrir íslenska hugvitsmenn að
koma hugmyndum sínum á fram-
færi. Iðnaðarráðherra ákvað að
koma þessum hugmyndum á fram-
færi og var Iðntæknistofnun falið
að sjá um framkvæmdina.
-A.BJ.
Læsti lyfjaskápurinn hans Jóhannesar Pálssonar. DV myndir BG
Ragnar Þór Bóasson með lásinn sinn sem áreiðanlega má nota á fleiri
stöðum en i sjávarútveginum.
Raddir neytenda
Hvemig á að skrá fæðis-
kostnað á vinnustað?
Erla hringdi:
Mig langar til þess að vita hvort
fólk tekur með í reikninginn í heimilis-
bókhaldinu fæði sem það borgar á
vinnustað, fæði fyrir skólaböm, ef það
fær sér pylsur á hlaupum og þannig
útgjöld.
Vantar upplýsingar
Þetta er góð spuming hjá Erlu. Það
væri gaman að heyra frá þeim sem
halda búreikningana með okkur í
heimilisbókhaldi DV hvemig þeir
snúa sér með svona dæmi.
Auðvitað á að skrá útgjöldin í bú-
reikningunum en hvort þau em skráð
sem beinlínis matarkostnaður skal lá-
tið ósagt. Pylsukaup á hlaupum finnst
okkur að eigi að skrá sem „vasapen-
inga“ en ekki matarkostnað.
Við lýsum eftir upplýsingum um
hvemig fólk skráir þessi útgjöld.
-A.BJ.