Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1986, Page 13
FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986.
13
Neytendur
Þetta litla fólk er að velta fyrir sér
hvaða stykki það eigi að sjá en tal-
svert er hægt að spara á því að kaupa
áskriftarkort ! leikhúsunum ætli fólk
að sjá nokkur verk.
Hvað
kostar í
leikhús?
Nú getur leikhúsáhugafólk tekið
gleði sína á ný því seinnipart mánað-
arins heíjast sýningar á fjölum leik-
húsanna á ný eftir sumarleyfi.
Á haustin er íylgst með eftirvænt-
ingu með því sem boðið verður upp á
í leikhúsunum og kom nú nýlega fram
skrá yfir þau verkefhi sem sett verða
upp í vetur. Ýmislegt spennandi er á
dagskrá en Neytendasíðan kynnti sér
auðvitað aðgöngumiðaverð eins og
hennar er von og vísa.
Fjölmargir eru þeir sem kaupa á
hverju hausti áskriftarkort en með því
sparast aur og fylgir því einnig nokkur
hagræðing ætli fólk á annað borð að
sjá flest þau stykki sem boðið er upp á.
í Þjóðleikhúsinu eru seld áskriftar-
kort á 7 sýningar leikhússins og kosta
þau 3.200 krónur og er þá um sýning-
ar númer 2 til 8 að ræða. Hver
aðgöngumiði á venjulega leiksýningu
kostar 500 krónur en 1000 krónur í
óperuna. Sparast því 800 krónur með
því að kaupa kort.
Leikfélag Reykjavíkur býður upp á
áskriftarkort á fjórar sýningar leik-
hússins og kostar kortið 2.000 krónur.
Miðaverð á hvert leikrit er 550 krón-
ur.
-RÓ.G.
Óthilegur verðmunur
á bómullarpokum
Það er enginn vandi að átta sig á verði þegar
svokallað einingarverð er tekið fram, það er
getið er t.d. um verð á kg vörunnar. Þetta
ætti að gera í verslunum en því miður er það
sjaldgæft. Mörg dæmi eru um pakkningar sem
eru svipaðar að stærð að sjá en getur munað
mjög miklu þegar betur er að gáð á verðinu.
Velunnari neytendasíðunnar sendi okkur
tvo poka undan bómull. í öðrum voru 100 g
og kostaði hann 47,95 kr. í Kaupfélagi Borg-
firðinga en í hinum voru 200 g og kostaði
hann 46,90 hjá Hagkaupi.
Hvor pokinn var dýrari? Til að sjá voru
þeir mjög ámóta stórir.
Annar pokinn var meira en tvisvar sinnum
dýrari en hinn, eða 103% dýrara kg bómullar-
innar. Bómullin sem fékkst í Kaupfélaginu í
Borgarnesi kostaði 479,50 kr. kg en sú i Hag-
kaupi kostaði 234,50 kr. kg!
Ötrúlegt en satt. -A.BJ.
Þaö munar helmingi á innihaldi þessara poka í magni og
það munar líka meira en helmingi á verði þeirra. En fljótt
á litið eru þeir svipaðir að stærð en þeir eru keyptir hvor
i sinni versluninni. DV-mynd
RYÐFRÍTT STÁL
EROKKAR MÁL!
Fyrirliggjandi í birgðastöó:
^ (fi) Husqvama ^
CIASSICA-100
Fullkomin saumavél
Ryðfrítt stangastál
Stálgæði: AISI 304 (Wst. 4301) * X
. Vinklar Profílar Flatt 1
LlLL —
Sívalt Pipur Fjölbreyttar
o O 0 stærðir og þykktir
Ryðfríar stálplötur
Það þarf ekki að sauma
margar buxur eða blússur
til að borga uppCLASSICA 100.
Hægri hönd heimilisins.
Gunnar Asgeirsson hf.
Suðurlandsbrnut 16 IZF 91-35200
Stálgæði: AISI 304 (Wst. 4301)
Stálgæði: AISI 430 (Wst. 4016)
SINDRA
Plötuþykktir: 0,8 - 6,0 mm
Plötustærðir: 1250 x 2500 mm
STALHF
Pósthólf 881, Borgartúni 31, 105 Reykjavík, sími: 27222.
ARGUS/SlA