Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1986, Side 18
18
FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986.
íþróttir
Áfellist
ekki
mína
- segir Henri Michei,
landsiiðsMálfari Frakka
„Ég er vonsvikinn ég neita því
ekki en við vissum fyrirfiram að
þetta yrði erfiður leikur," sagði
Henri Michel, landsliðsþjálfari
Frakka. „Ég áfellist samt ekki
leikmenn mína. Islendingar eru
erfiðir heim að sækja það er löngu
vitað. Skotar og Spánverjar áttu í
erfiðleikum með íslendinga hér
ekki alls fyrir löngu. Við höfum
kynnst því áður að þungir veUir
henta illa teknísku spili okkar. Við
misstum þama dýrmætt stig, við
verðum þá að ná í stig ytra gegn
Austur-ÞjóðverjumogRússum. En .
þeir eiga líka eftir að leika á Is-
landi. Eg vona að íslendingar gefi
þeim engin grið. íslendingamir
léku fast, það vissum við fyrirfram.
Nei, ég áfellist engan leikmann.
Okkur tókst einfaldlega ekki að
brjóta íslendingana niður. Heima
í Frakkandi verður auðvitað allt
önnur saga.
- Þú sagðir fyrir leikinn að allt
annað en sigur væri slæmt?
„Já, ég neita því ekki. Auðvitað
er það svo að Evrópumeistarar
eiga ekki að tapa stigi gegn svo-
kölluðum „veikum liðum“. Það
segið þið bíaðamennimir. En það
em engin veik lið lengur.
Ásgeir Sigurvinsson var góður í
þessum leik, en þetta íslenska lið
lék allt vel. Það er vel skipulagt,
leikmenn iiðsins em í framúrskar-
andi líkamsþjálfun. Ég tek engan
leikmann út í mínu liði. Það gekk
ekkert upp hjá okkur. Sóknar-
mennirnir, ég vil ekki viðurkenna
að Paille og Stopyra hafi staðið sig
illa. Þið verðið að athuga að það
var við ramman reip að draga.
Völlurinn er mjór og það þýðir að
þeim veittist auðvelt að safnast
saman og stöðva miðvallarspilið.
Leikmenn mínir notuðu ekki kant-
ana nægilega vel,“ sagði Michel.
„Með því besta
seméghefséð"
- sagði Jón Gunnlaugsson
„Þetta er með því albesta sem ég hef
séð til landsliðsins. Leikmenn liðsins
tóku á öllu sínu og vom hver öðrum
betri,“ sagði Jón Gunnlaugsson, for-
maður knattspymuráðs Akraness.
„Leikur íslenska landsliðsins hefur
breyst mikið, meira um spil. Kannski má
segja að vömin hafi kannski ekki leikið
af nægilega mikilli yfirvegun en hún stóð
sig þó mjög vel. Mér fannst Ragnar Mar-
geirsson koma mest á óvart í leiknum og
Omar Torfason sótti sig verulega þegar
leið á leikinn. Annars á allt íslenska lands-
liðið hrós skilið fyrir þennan leik,“ sagði
Jón Gunnlaugsson.
-SK
•Jón Gunnlaugsson.
________DV
ísland eins og Geysir
- sem Frakkar áttu erffftt með að hemja. Barátta tryggði íslandi jafntefli, 0-0
Það er hægt að líkja íslenska lands-
liðinu í knattspymu við Geysi - það
gaus oft kröftuglega í Laugardalnum,
en þess á milli dró liðið sig til baka.
Þetta var nóg til að hrella Evrópu-
meistara Frakka, sem urðu að sætta
sig við jafntefli, 0-0, í Evrópukeppni
landsliða. „Auðvitað er það sárt að
ná ekki að knýja fram sigur hér í
Reykjavík. íslensku leikmennimir em
leiknir, sterkir og baráttuglaðir. Þeir
sýndu að það er erfitt að leggja þá að
velli hér,“ sagði Jean Tigana, miðvall-
arspilarinn sterki. Frakkar áttu oft í
miklum erfiðleikum með íslensku leik-
mennina sem náðu oft snöggum
sóknatlotum. Það var greinilegt að
þeir fóm eftir dagskipun Sigi Held
landsliðsþjálfara. Að halda sig aftar-
lega og geysast síðan fram þegar við
atti.
öflugt gos í byrjun
Það vom þessi gos sem komu Frökk-
um oft í opna skjöldu - strax á 4.47.
mínútu gáfu þeir Ásgeir Sigurvinsson
og glókollamir Pétur Pétursson og
Amór Guðjohnsen tóninn. Pétur sendi
knöttinn fram á vinstri kantinn til
Ásgeirs, sem lék með knöttinn út í
hom og krossaði knöttinn fyrir mark
Frakka. Amór var þar á réttum stað.
Heppnin var þó ekki með honum -
hann hitti knöttinn illa, þannig að
knötturinn þaut yfir þverslá Frakka.
Næsta gos kom svo á 24.37. mínútu,
sem lauk með skoti Amórs. Hann
náði góðu skoti eftir sendingu Ómars
Torfasonar - knötturinn hrökk í einn
vamarmann Frakka og fyrir aftan
endamörk. Það var svo á 21.15. mínútu
sem spennan komst í hámark, eftir
homspymu Amórs. Rnötturinn barst
fyrir mark Frakka, en vegna miskiln-
ings Sævars Jónssonar og Ragnars
Margeirssonar, varð ekkert úr því
marktækifæri. Sævar „stal“ knettin-
um frá Ragnari og skaut framhjá. Ef
Sævar hefði vitað um Ragnar og látið
knöttinn eiga sig þá hefði ekki þurft
að spurja að leikslokum.
Frakkar ógna lítið
Frakkamir náðu sér aldrei á strik í
fyrri hálfleiknum, en þeir urðu síðan
líflegri í þeim síðari. Áttu þá nokkur
þokkaleg marktækifæri, en aldrei þó
hættuleg. Stopyra skallaði yfir mark
íslands, Bjami Sigurðsson varði vel
skot frá Femandez og Genghini átti
síðan skot framhjá.
íslendingar áttu einnig sín mark-
tækifæri. Sigurður Jónsson átti skalla
yfir eftir homspymu Ásgeirs, Amór
náði ekki að nýta sér snilldarsendingu
Ásgeirs þegar hann komst einn inn
fyrir vöm Frakka. Boli kom í veg fyr-
ir það. Amór komst síðan aftur einn
inn fyrir vöm Frakka, eftir stungu-
sendingu frá Sigurði Jónssyni - skot
hans var ekki nógu hnitmiðað og
knötturinn skoppaði fram hjá marki.
Undir lok leiksins fór skapið að
hlaupa með Frakka í gönur og var
greinilegt að þeir þoldu ekki mótlætið.
Þeir gerðu örvæntingarfulla tilraun
til að knýja fram sigur, en komust
ekki í gegnum sterka vöm íslendinga.
Sterkir einstaklingar
Vamarleikaðferð með skyndisókn-
um er eflaust sú leikaðferð sem hentar
islenska landsliðinu best. Það em
margir snjallir einstaklingar í liðinu,
sem sýndu góða spretti. Það vantaði
þó meiri samvinnu og leikmenn máttu
vera fljótari að hugsa þegar þeir brun-
uðu fram í sókn. Stundum vom þeir
of seinir að losa sig við knöttinn, þann-
ig að Frakkar náðu að verjast.
Baráttan var aðall íslenska landsliðs-
ins eins og svo oft áður. „Ég vona svo
sannarlega að íslensku leikmennimir
sýni eins góðan leik og baráttu gegn
Rússum og A-Þjóðverjum hér í
Reykjavík, eins og þeir sýndu gegn
• Bjarni Sigurðsson stóð sig vel í markinu. Hér sést hann verja skot frá Fernandez.
•Siguröur Halldórsson.
„Siggi Jóns
var bestur “
- sagði Sigurður Halidórsson
„Það var mjög gaman á þessum leik
og Frakkamir léku eins og ég bjóst
við. Þetta er mjög góður árangur hjá
strákunum en það kom á daginn að
draga fór af okkar mönnum undir lok
leiksins enda gífurlega erfitt að eiga
við þetta franska lið,“ sagði Sigurður
Halldórsson, fyrrverandi landslið-
smiðherji og núverandi þjálfari Sel
fossliðsins í 2. deild í knattspymu.
„Taktiskt séð gekk þessi leikur upp en
ég hefði viljað sjá Sigurð Jónsson í hlut-
verki stjómanda á miðjunni. Hann var í
of miklu vamarhlutverki í þessum leik og
að minu mati var hann besti maður ís-
lenska liðsins í leiknum," sagði Sigurður
Halldórsson.
-SK
„Vörnin alveg
sérstök“
- sagði Blert „Lolli" Söivason
„Mér farrnst vömin alveg sérstak-
lega góð í þessum leik og betri en hún
heíúr verið í mörg ár,“ sagði Ellert
Sölvason, margrejndur landsliðsmað-
ur í knattspymu og frægur áhugamað-
ur um knattspymu.
„Um sóknina er það að segja að sú takt-
ik sem íslenska liðið lék í þessum leik,
4—1-2, skilar ekki mörgum mörkum og hún
á ekki við mig. Þegar ég var í þessu var
leikin sóknarknattspyma, 5-3-2, og þá
komu mörkin. En úrslitin i þessum leik
voru ánægjuleg og sérstaklega góð fyrir
okkur,“ sagði Ellert „LoHi“ Sölvason.
-SK
• Ellert Sölvason.
• Albert Guðmundsson,
?rÁ eftír að velda
heimsathygir
- sagði Albert Guðmundsson
„Þetta var mikill baráttuleikur og
úrslitin fóm fram úr björtustu von-
um,“ sagði Albert Guðmundsson
iðnaðarráðherra.
„Með miklum baráttukrafti tókst
íslensku leikmönnunum að brjóta
franska liðið niður og ef til vill átti
völlurinn einhvem þátt í óförum
Frakkanna. Þessi úrslit em hins vegar
mjög útkoma fyrir okkur og ég veit
að þessi úrslit eiga eftir að vekja
heimsathygli. íslenska liðið var mjög
samstætt og gott,“ sagði Albert Guð-
mundsson.
-SK
okkur,“ sagði Tigana eftir leikinn.
Vamarleikur íslenska liðsins var
góður. Það var aðeins um tíma í fyrri
hálfleiknum sem öftustu mennimir
vom ekki nægilega vel með á nótun-
um. Vömin opnaðist þá nokkrum
sinnum illa. MiðvaOarspilaramir
unnu vel og þá sérstaklega Ragnar
Margefrsson og Ásgeir Sigurvinsson,
sem sköpuðu oft hættu þegar þeir
brunuðu fram. Amór og Pétur vom
hreyfanlegir, en maður haföi það þó á
tilfinningunni að Amór ætti frekar að
leika á miðjunni. Sprengjukraftur
hans er geysilegur þegar hann brunaði
fram.
Liðin vom þannig skipuð:
•ÍSLAND: Bjami, Gunnar, Ágúst
Már, Sævar, Atli, Ásgeir, Ómar, Ragn-
ar, Amór og Pétur.
•FRAKKLAND: Bats, Amoros,
Ayache, Battiston, Boli, Femandez,
Tigana, Vercmysse, Genghini, Stop-
yra og Paille.
• Dómari: Alan Ferguson, Skot-
landi.
•Gul spjöld: Pétur, Ayache og
Vercmysse.
•Áhorfendur: 13.758.
-sos
DV-mynd S
„Stór sigur
fýrir okkur“
- sagði forseti ÍSÍ
„Þetta var mjög góður leikur frá
fyrstu til síðustu mínútu. Þetta er með
því besta sem ég hef séð til íslenska
landsliðsins í knattspyrnu," sagði
Sveinn Bjömsson, forseti íþróttasam-
bands íslands.
„Þetta var mjög spennandi leikur og við
hefðum getað sigrað. Mér fannst franska
liðið svipað og það var í sjónvarpinu í
leikjunum í heimsmeistarakeppninni f
Mexíkó. Við megum ekki gleyma því að
við vorum að leika gegn Evrópumeistur-
unum og þessi úrslit voru stór sigur fyrir
okkur,“ sagði Sveirrn.
-SK
•Sveinn Björnsson.