Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1986, Side 19
FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986.
19
íþróttir
• Pétur Pétursson og Atli Eðvaldsson sjást hér kljást við varnarmenn Frakklands, Bats markvörð, Battiston og
Boli sem stekkur upp á bak Atla. DV-mynd Bj.Bj.
„íslenska
liðið gott“
- sagði landsliðsþjálfari A-Þjóðverja
„fslenska liðið er mjög gott, það kom
greinilega fram í þessum leik. Það er
sama hvar litið er á liðið, það var erf-
itt að finna veikan punkt á því. Mér
fannst taktík íslenska liðsins mjög vel
heppnuð og þá var barátta íslensku
leikmannanna hreint ótrúleg. Það er
greinilega góður andi í þessu liði. Sig-
urinn hefði getað lent hjá hvoru liðinu
sem var og það hlýtur að vera sigur
fyrir f.slendinga,“ sagði Harald
Irmscher, landsliðsþjálfari A-Þjóð-
verja, sem var hér til að fylgjast með
liðunum tveim en eins og kunnugt er
leika A-Þjóðverjar í riðli með okkur.
„Auðvitað var franska liðið mjög
teknískt en það er eitthvað að hjá leik-
mönnum í sókninni. Þeir sköpuðu sér
í raun aðeins tvö tækifæri á þessum
90. mínútum. Það er að vísu ekki óeðli-
legt að þeir dali núna en liðið var á
toppnum í Mexíkó. Þá vantaði greini-
lega menn til að fylla skörð þeirra
Platini og Giresse,“ sagði Irmscher.
- Hveijir fannst þér bestir í íslenska
liðinu?
„íslendingar eiga greinilega mikið
af góðum leikmönnum. Ég var sér-
staklega hrifinn af framlínumönnun-
um tveim (Pétri og Amóri) og þá
fannst mér Ragnar og Atli leika vel,“
sagði Irmscher, sem varð greinilega
fyrir miklum áhrifum af leik íslenska
liðsins í gær. Hann vildi til dæmis
ekkert ræða um möguleika A-Þjóð-
verja gegn íslendingum. -SMJ
„Égvartótfti mað
urinn í liðinu“
„Islenska vömm
lék mjög vel“
- sagði Yannick Stopyra
Ég lét draga mig nauðugan á
landsleikinn. Ekki vegna þess að ég
hefði ekki áhuga á að sjá hann -
þvert á móti. Ég hafói hugsað mér
að sitja heima af hollustu við þjóð
mína og knattspymulandslið henn-
ar. Ég ætlaði ekkert af þessum leik
að vita, las ekki um hann í blöðun-
um, kynnti mér ekki hvenær hann
ætti að fara fram og velti því fyrir
mér að fara úr bænum í eina eða
tvær vikur á meðan ósköpin gengju
yfir.
Þessi hæverska var úthugsað ráð
sem ég taldi að gæti hugsanlega orð-
ið landsliðinu til hjálpar í erfiðri
viðureign við frönsku meistarana. f
allt sumar hef ég af athygli og áhuga
fylgst með snillingunum í Borgar-
nesi, Skallgrímsliðinu í annarri
deild, og sent þeim hugskeyti af al-
efli, verið með þeim í huganum hvem
leik frá bytjun til enda sánnfærður
um getu þeirra og dug. En Skalla-
grímur hefur ekki komið vel út. Ég
verð að játa að útkoman hjá mínum
mörrnum hefði naumast getað orðið
lakari i sumar - og því rnikið vafa-
mál hvort hugarorka mín og fyrir-
bænir hafi hjálpað þeim.
Ég haföi því hugsað mér að vita
ekkert um landsleikinn. Senda Ás-
geiri, Atla og félögum ekkert
hugskeyti - af ótta við að slíkar
sendingar spilltu bara fyrir þeim.
En kunningi minn greip mig þegar
ég var á leiðinni út um bakdymar
og ætlaði úr bænum - greip mig og
fór með mig á völlinn. Auðvitað
langaði mig þessi ósköp og var því
ekki sérlega tregur í taumi. En ég
vorkenndi landsliðinu. Og óttaðist
að nærvera mín hlypi eins og blý í
A vell-
inum
með
Gunnari
ur vallargestur í framtíðinni. Skalla-
grímur í Borgamesi getur líka treyst
á mig. Látið ekki deigan síga! Ég
mun berjast með ykkur til þrautar,
drengir snarir!
- GG
„Það er auðvitað mjög svekkjandi
fyrir mig sem sóknarmann að skora
ekki. Við vissum að íslendingar yrðu
rosalega ákveðnir, það vilja jú allir
vinna Evrópumeistarana," sagði
Yannick Stopyra sem tókst ekki að
sýna mikið gegn ákveðinni vöm ís-
lendinga.
„Jú, jú íslenska vömin lék vel. Þeir
em sterkir í loftinu og vom í öllum
hættulegum boltum sem komu fyrir
markið. Við áttum í erfiðleikum með
að leika þríhymingaspil og teknískt
eins og okkar er vani. Við hefnum
okkar í Frakklandi en þá eigum við
gi-eiðari leið framhjá vamarmönnun-
um enda leikið þar á breiðari velli,“
sagði Stopyra sem var greinilega ekki
sáttur við úrslitin.
-SMJ
tæmar á því, að óskir mínar og
bænir misstu marks og féllu óvart
Frökkunum í skaut - og hleyptu í
þá frönskum fítonskrafti.
Mörg undanfarin ár eftir lands-
leiki hef ég lötrað heim dapur i
bragði og velt því fyrir mér hvort frá
mér stafaði einhveijum neikvæðum
krafti sem væri beinlínis orsök þess
að við töpuðum leik eftir leik. Vegna
hugboðs um að þessi gæti verið
raunin hef ég ekki fylgst svo náið
með landsleikjum upp á síðkastið.
Enda hafa mínir menn staðið sig vel.
En í gær var eins og einlæg og
beinskeytt hugsun undirritaðs hitti
þá i hjartastað; þeir gáfu Frökktm-
um aldrei tommu eftir, vom jafnvel
nær því að skora en sjálfir Evrópu-
meistaramir. Mér líður núna eins
og ég hafi verið tólfti maðurinn í
íslenska liðinu hef á tilfinninguimi
að ég hafi staðið fyrir lunknum send-
ingum á Ásgeir, Amór og Pétur og
verið einna næst þvi í íslenska liðinu
að skora. Ég bar höfuðið hátt þegar
ég hélt heim af vellinum, fann ekki
fyrir þreytu og gat hugsað mér að
leika annan leik. Það stafar greini-
lega ekki lengur af mér neikvæðum
krafti. Hugskeyti mín em farin að
hitta í mark! Ég ákvað að vera dygg-
• Maðurinn t.v. á myndinni hefur ekkert með greinarstúfinn að gera. Hann er úr drykkjulandsllði islands, eins
og stendur á húfu hans, og var ekki í neinu standi til að skrifa grein feftir leikinn. En hann stóð sig vel meðan á
baráttunni í stúkunni stóð. DV-mynd S
„íslenska liðið mjög gott“
- sagði Jim Barron, þjátfari ÍA
Albert hitti Fontaine
„íslenska liðið stóð sig mjög vel í
leiknum og heföi allt eins getað sigrað
með smáheppni. Mér fannst sérstak-
lega ánægjulegt hve strákamir sem
spila hér heima stóðu sig vel. Þeir em
góðir fulltrúar íslenskrar knattspymu
og þá sérstaklega þeirrar sem er leik-
inn í deildinni hér,“ sagði Jim Barron,
þjálfari Akumesinga, eftir leikinn.
„Ég verð að segja að franska liðið olli
mér töluverðum vonbrigðum. Sérstaklega
fannst mér þeir slakir x sóknarleik sín-
um,“ sagði Barron. -SMJ
•Jim Barron.
Það vom fagnaðarfundur á Laugar-
dalsvellinum í gær þegar Albert
Guðmundsson ráðherra og Juste
Fontaine, fyrrum leikmaður Frakk-
lands, mættust. Þeir léku saman með
Nizza í Frakklandi hér á árum áður
við góðan orðstír.
Fontaine hefur unnið það sér til
frægðar að eiga markametið í HM-
keppninni. Hann skoraði hvorki meira
né minna en 13 mörk í HM 1958 í
Svíþjóð. Skoraði mörk í öllum sex
leikjum Frakka í keppninni. Fontaine
hefur komið áður til íslands. Lék hér
í undankeppni HM 1957.
-sos