Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1986, Page 23
FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986.
23
pv__________________________________________íþróttir
r————————————————————————————————n
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
L
Kristján leikur ekki með
Gummersbach á næstunni
- félagið hefur kallað á Danann Erik Veje Rasmussen
Afli H2mars3cm, DV, V-i>ýskalandi;
Kristján Arason mun ekki leika
með Gummersbach fyrr en í des-
ember. Það hafa enn ekki náðst
samningar á milli Gummersbach
og Hamel um kaupverð Kristjáns
og lausn á þeirri deilu er ekki í
sjónmáli.
Kristján mun því aðeins leika
opinberlega með íslenska landslið-
inu út þetta ár. Hans tveir fyrstu
leikir verða með íslenska landslið-
inu gegn V-Þýskalandi í nasstu
viki.
Vegna fjarveru Kristjáns kallaði
Gummersbach á danska landsliðs-
manninn Erik Veje Rasmussen
sem lék með félaginu sl. keppnis-
tímabil. Rasmussen kom fljúgandi
til V-Þýskalands á þriðjudags-
kvöld. Hann fór á eina æfingu með
félaginu og lék síðan með því gegn
Schwabing í Bimdesligunni í gær-
kvöldi.
Rassmussen stóð sig mjög vel.
Það var þó ekki nóg því a$-tíúm-
mersbach tapaði, 21-22, á útivelli.
Landsliðsmaðurinn Neitzel gat
ekki leikið með Gummersbach þar
sem hann var í leikbanni. Andreas
Thile átti mjög góðan leik í marki
liðsins en markahæsti leikmaður-
irm var Fitzek með fimm mörk.
sos
Pfaff felldi
Frank Stapleton
- og Brady jafhaði, 2-2, fyrir íra úr vrtaspymu
Liam Brady tryggði Irum jafntefli,
2-2, gegn Belgíumönnum í Brussel
þegar harm skoraði jöfnunarmarkið
úr vítaspymu á síðustu sekúndum
leiksins. Rúmenski dómarinn Ion Igan
dæmdi vítaspymuna á markvörðinn
Jean-Marie Pfaff, sem braut á fyrirliða
írlands - Frank Stapleton. 22.212
áhorfendur sáu Brady skora ömgglega
úr vítaspymunni.
Nico Claesen frá Standard Liege
skoraði fyrst fyrir Belgíu í leiknum.
Þrumaði knettinum í markið eftir
homspymu Frank Vercauteren. Að-
eins fjórum mínútum seinna vom írar
búnir að jafna með marki Frank Stap-
leton sem skoraði úr þröngu færi.
Þegar svo 19 mín. vom til leiksloka
héldu flestir að Belgíumenn væm bún-
ir að gera út um leikinn. Það var
Enzo Schifo sem skoraði markið með
föstum skalla - knötturinn söng upp
í markhominu án þess að Pat Bonner
ætti möguleika á að veija. Það var
þó ekki því að Brady náði að jafna
eins og fyrr segir.
Það var greinilegt að Belgíumenn
söknuðu vamarmannanna sterku,
Eric Gerets, Michel Renquin og Frank
van der Elst sem em meiddir. SOS
i $H
Gary Lineker og Mark Hughes skoruðu báðir í Barcelona i gærkvöldi
Lineker og Hughes
voru á skotskónum
- skoruðu möik í Barcelona í gærkvöldi
Rólegt á
Heysel
Það fór allt friðsamlega fram á
Heysel-leikvanginum í Brussel í
gærkvöldi þegar Belgíumenn og
írar léku þar í EM. Um 2000 írar
mættu til að horfa á leikinn. Mik-
ill viðbúnaður var fyrir leikinn og
vom þar mættir 700 lögregluþjón-
ar ásamt sérþjálfúðum hundum.
Þá vom 400 hermenn til taks ef til
óláta kæmi. Allt gekk eins og í
sögu og hurfri áhorfendur af vellin-
um á stuttum tíma. Þess má geta
að belgíska knattspymusamband-
ið útvegaði lrum 950 miða en aðrir
keyptu miða við inngang vallarins.
sos
Fékk gula
spjaldið
fýrir að
hrækja
Það var greinilegt að mótstaða
fslendinga á Laugardalsvellinum
fór í taugamar á leikmönnum
Frakka, sérstaklega hinum unga
Vercmysse frá Bordeaux sem lék
sinn sjöunda landsleik. Hann var
orðinn grenjandi illur og fékk að
sjá gula spjaldið þegar hann
hrækti á eftir Atla Eðvaldssyni,
fyrirliða íslenska liðsins. Það var
greinilegt að Vercraysse ætlaði að
sýna sig gegn Islendingum, en
hann kom inn vegna meiðsla Pap-
in hjá MarseiUe.
sos
Dýrasti miðherjadúett heims - Gary
Lineker og Mark Hughes, sem Barcel-
ona keypti frá Everton og Manchester
United, gátu ekki leikið með Englandi
og Wales í gærkvöldi. Barcelona gaf
þá ekki lausa. í staðinn léku þeir á
Nou Camp í Barcelona þar sem yfir
100 þús. áhorfendur fögnuðu þeim gíf-
urlega. Þeir vom báðir á skotskónum
og tryggðu Barcelona sigur, 2-0, yfir
Cadiz.
Gary Lineker byijaði á því að skora
á níundu mín. leiksins úr þröngu færi
eftir sendingu Julio Alberto. Það var
svo Mark Hughes sem gulltryggði sig-
urinn á 37. minútu með sannkölluðum
þrumufleyg. Hann sveiflaði hægri fæt-
inum rétt við vítateigslínu og knöttur-
inn söng í netamöskvum Cadiz.
Sporting Gijon og Real Madrid
gerðu jafhtefli, 2-2, í Gijon. Mexíkan-
inn Luis Flores skoraði fyrst fyrir
heimamenn, strax á annarri mínútu.
Rafael Gordillo átti þrumuskot að
marki Gijon af 20 m færi á 20. mín.
Markvörðurinn Juan Ablanedo varði
en hélt ekki knettinum. Argentínu-
maðurinn Jorge Valdano var á réttum
stað og skoraði. Manuel Mesa kom
Gijon yfir, 2-1. Rétt fyrir leikhlé braut
markvörðurinn Ablenedo á Mexíkan-
anum Hugo Sanehez og var rekinn
af leikvelli. Vítaspyma var dæmd og
skoraði Sanchez ömgglega úr henni,
2-2. Þess má geta að Bemardino Mino,
vamarmaður Real, var rekinn af leik-
velli í seinni hálfleiknum eftir að hann
hafði fengið að sjá gula spjaldið öðm
sinni.
Barcelona, Real Betis og Las Palmas
em efst á Spáni eftir þrjár umferðir
með fimm stig. Real Madrid, Atletico
Madrid og Real Mallorca em með
fjögur stig.
sos
Heppnin með Skotum
- gegn Búlgöram á Hampden Park
Skoska landsliðið í knattspymu
lék i gær af álíka snilld og það
gerði í síðustu heimsmeistara-
keppni, var mjög heppið að tapa
ekki fyrsta leik sínum í Evrópu-
keppninni í gær er þeir fengu
Búlgari í heimsókn. Lokatölur
urðu markalaust jafntefli og vom
Búlgarir mun nær því að vinna
sigur.
Búlgarska liðið, sem komst í
16-liða úrslitin í HM í Mexíkó án
þess að vinna leik, lék sérstaklega
vel í fyrri hálfleiknum og fékk þá
þrjú góð marktækifæri. Heldur dró
af Búlgörum í síðari hálfleik.
Gamla brýnið, Kenny Dalglish,
kom inn á í síðari hálfleik fyrir
Charlie Nicholas og lék sinn 101.
landsleik fyrir Skota en fékk litlu
áorkað.
Skoska liðið var þannig skipað:
Leighton, Gough, Malpas,
McStay, Narey, Miller, Cooper,
Aitken, Johnston, Strachan, Nic-
holas (Dalglish). 35.070 áhorfendur
sáu leikinn. -SK
Lars Lunde
til Bayem
Munchen
Aöi HtaaraBcm, DV, V-Í>ýskalandi:
Lars Lunde, sem kjaftaði sig inn í
danska landsliðshópinn sem lék
gegn A-Þjóðveijum í Leipzig í
gærkvöldi, mun leika með Bayem
Múnchen í vetur. Bayem kej’pti
hann í gær frá svissneska félaginu
Young Boy’s á 24,2 miiljónir ísl.
króna og þar að auki skuldbatt ,.
félagið sig til að leika vináttuleik
gegn Young Boy’s í Bem.
Lunde, sem Sepp Piontek, lands-
liðsþjálfari Dana, gaf tækifæri til
að sýna sig, byijar feril sinn hjá
Bayem í næsta mánuði. Hann
leikur sinn síðasta leik með sviss-
neska félaginu gegn Real Madrid
í Evrópukeppninni. Lunde, sem er
22 ára, er mikill markaskorari.
Skoraði 21 mark fyrir ungu strák-
ana í Sviss sl. keppnistímabil og
var markahæstur þar í landi.
SOS
Danskur sigur
í Leipzig
Danir unnu sigur, 1-0, yfir A-
Þjóðveijum í vináttulandsleik í
knattspymu sem fór fram í Leipzig
í gærkvöldi. 30 þús. áhorfendur sáu
John Eriksen skora mark þeirra á
24. mínútu.
• Norðmenn og Ungveijar
gerðu jafntefli, 0-0, í vináttulands-
leik í Osló. Aðeins 2.917 áhorfend-
ur sáu leikinn.
• Tékkar lögðu Hollendinga að
velli, 1-0, í Prag. Ivo Knoflicek
skoraði markið á 40. mínútu.
Áhorfendur 9.000.
sos
Stórsigur
Rúmena í
Búkarest
Rúmenar tefldu fram átta leik-
mönnum frá Evrópumeistaraliðinu
Straua Bukarest þegar þeir unnu
stórsigur, 4-0, yfir Austurríkis-
mönnum í Evrópukeppni landsliða
í gærkvöldi. 20.000 áhorfendur
vom samankomnir á heimavelli
Straua í Bukarest. Stefan Iovan frá
Straua skoraði tvö mörk og félagi
hans, Marius Lacatus, eitt. Fjórða
markið skoraði Gheorghe Hagi,
sem er talinn einn efiiilegasti
knattspymumaður Evrópu. Hagi,
sem er 21 árs, lék mjög vel á miðj-
unni þar sem Rúmenar réðu lögum
og lofúm.
sos