Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1986, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1986, Qupperneq 4
FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1986. FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1986. 27 22 ------------- Messur Guðsþjónustur í Reykjavíkur- prófastsdæmi sunnudaginn 16. nóv. 1986. Árbæjarprestakall Bamasamkoma í Foldaskóla í Graf- arvogshverfi laugardaginn 15. nóv. kl. 11. árdegis. Sunnudagur: Barna- samkoma í safnaðarheimili Árbæjar- sóknar kl. 10.30 árdegis. Guðsþjón- usta í safnaðarheimilinu kl. 14.00. Organleikari Jón Mýrdal. Öllu eldra fólki í söfnuðinum er sérstaklega boðið til guðsþjónustunnar. Samvera með dagskrá og kaffiveitingar á veg- um Kvenfélags Árbæjarsóknar eftir messu. Meðal dagskráratriða: Frú Margrét S. Einarsdóttir forstöðu- maður flytur ræðu og Guðmundur Jónsson óperusöngvari syngur ein- söng. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. Áskirkja Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðs- þjónusta kl. 14. Sr. Árni Bergur Sigurbjömsson. Bústaðakirkja Bamasamkoma kl. 11. Elín Anna Antonsdóttir og Guðrún Ebba Ólafs- dóttir. Messa kl. 14. Organisti Kjartan Sigurjónsson. Bræðrafé- lagsfundur mánudagskvöld. Æsku- lýðsfélagsfundur þriðjudagskvöld. Félagsstarf aldraðra verður laugar- daginn 15. nóv. og verður Nessöfnuð- ur heimsóttur. Félagsstarf aldraðra miðvikudaginn 19. nóv. verður í Bú- stöðum. Sr. Ólafur Skúlason. Digranesprestakall Barnasamkoma í safnaðarheimilinu við Bjarnhólastíg kl. 11. Guðsþjón- usta i Kópavogskirkju kl. 14. Sr. Þorbergur Kristjánsson. Dómkirkjan Laugardagur 15. nóv.: Barnasam- koma í kirkjunni kl. 10.30. Egill og Ólafía. Sunnudagur 16. nóv.: Messa kl. 11.00. Sr. Hjalti Guðmundsson. Messa kl. 14.00. Fermingarböm flytja bænir og ritningartexta. Sr. Þórir Stephensen. Dómkórinn syng- ur við báðar messurnar. Organisti Marteinn H. Friðriksson. Etliheimilið Grund Guðsþjónusta kl. 14.00. Gunnar Matthíasson guðfræðingur. prédikar. Félag fyrrverandi sóknarpresta. Fella- og Hólakirkja Laugardagur: Barnasamkoma i Hólabrekkuskóla kl. 14. Sunnudag- ur: Barnaguðsþjónusta - Kirkju- skóli kl. 11. Ragnheiður Sverrisdótt- ir. Guðsþjónusta kl. 14. Organleikari Gúðný Margrét Magnúsdóttir. Fundur í æskulýðsfélaginu mánudag (7. nóv. kl. 20.30. Sr. Hreinn Hjartar- son. Frikirkjan í Reykjavik Bamaguðsþjónusta kl. 11. Guð- sþjallið í myndum. Bamasálmar og srhábamasöngvar. Afmælisbörn boð- in? sérstaklega velkomin. Sr. Gunnar B|örnsson. Grensáskirkja Bfirnasamkoma kl. 11.00. Messa kl. 14.00. Organleikari Árni Arinbjarn- arson. Kvöldmessa kl. 20.30, altaris- ganga. Þorvaldur Halldórsson stjórnar söng. UFMH tekur þátt í messunni. Kaffisopi á eftir. Sr. Hall- dór S. Gröndal. Hallgrímskirkja Messa kl. 11.00. Sr. Karl Sigurbjöms- sön. Bamasamkoma er á sama tíma í safnaðarheimilinu. Messa kl. 17.00, altarisganga. Sr. Ragnar Fjalar Lár- usson. Þriðjudagur 18. nóv.: Fyrir- bænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Landspítalinn Messa kl. 10. Sr. Ragnar Fjalar Lár- usson. Háteigskirkja Méssa kl. 10. Bamaguðsþjónusta kl. 11.00. Sr. Arngrímur Jónsson. Messa kl. 14.00. Sr. Tómas Sveinsson. Kársnesprestakall Fjölskylduguðsþjónusta í Kópavogs- kirkju kl. 11 árdegis. Nemendur úr Tónlistarskóla Kópavogs leika á flautur. Fundur foreldra fermingar- bama í safnaðarheimilinu Borgum miðvikudagskvöld 19. nóv. kl. 20.30. Sr. Ámi Pálsson. Langholtskirkja Kirkja Guðbrands biskups. Óska- stund bamanna kl. 11.00. Söngur -sögur - myndir. Þórhallur Heimis- son og Jón Stefánsson sjá um stundina. Guðsþjónusta kl. 14.00. Prestur séra Sigurður Haukur Gu- jónsson. Orgelleikari Jón Stefáns- son. Enn eru fermingarböm og foreldrar þeirra hvettir til þess að mæta. Sóknamefhdin. Ráðstefha um óperuflutning Óperadeild Félags íslenskra leik- ara heldur ráðstefnu um helgina í Norræna húsinu undir yfirskrift- inni „Óperuflutningur á íslandi í nútíð og framtíð". Byrjar hún á morgun kl. 10.30 með framsöguer- indum Þuríðar Pálsdóttur, Garðars Cortes, Gísla Alfreðssonar, Ólafs B. Thors, Sveins Einarssonar og Júlíusar Vífils Ingvarssonar. Seinni hluta laugardagsins verður ráðstefnugestum skipt í starfshópa. Meðal efna sem fjallað verður um eru: Þjóðleikhúsið, íslenska óp- eran, Tónlistarhúsið, staða óperu- sóngvara í íslensku þjóðfélagi, Sinfóníuhljómsveit íslands, nám óperasöngvara o.fl. Á sunnudaginn verður ráðstefnan öllum opin og hefst hún kl. 13.00 með ávarpi Sverris Hermannssonar mennta- málaráðherra. Mataruppákoma Nýlega lauk Krákan matarheims- reisu sinni og næstu helgar kynnir hún ferðasöguna í formi matar- uppákoma. Þessi helgi hefst í Mexíkó. Þjóðarréttur þeirra er tor- tilla og verður hann kynntur með tilheyrandi meðlæti og veigum. Helgina þar á eftir pírir Krákan augun en meira um það kemur í ljós seinna. Þess má einnig geta að Krákan hreifst mikið af enskum krármat og býður hún nú upp á þennan fljótafgreidda og létta hádegismat með frönsku ívafi. Morgunn við Ræningjaflöt Á morgun kl. 14.00 verður opnuð sýning á málverkum Ágústs Pet- ersen í Listasafni ASI að Grensás- vegi 16. Þá verður afhent málverkið Morgunn við Ræningja- flöt sem listamaðurinn hefur ákveðið að færa safninu að gjöf. Á sýningunni verða 64 málverk og verður sýningin opin alla daga til 7. desember. Opið verður virka daga kl. 16.00-20.00 og um helgar frá 14.00-22.00. Kaffiveitingar eru um helgar. Myndir eftir Jóhönnu Bogadóttur eru i eigu ýmissa listasafna víða um heim. Jóhaima Bogadóttir í Norræna húsinu Á morgun, laugardag, opnar Jó- hanna Bogadóttir sýningu á málverkum og teikningum í sýn- ingasölum Norræna hússins Myndirnar era unnar á sl. tveim árum. Þetta er sjöunda einkasýn- ing Jóhönnu í Reykjavík. Einnig hefur hún sýnt á ýmsum stöðum úti á landi og víða erlendis, síðast nú í vor í Stokkhólmi. Jóhanna hefur jafnframt tekið þátt í mörg- um samsýningum, þar á meðal alþjóðlegum grafíksýningum hér heima og erlendis. Myndir eftir hana eru í eigu ýmissa listasafna, t.d. Atheneum í Helsinki og Muse- um of Modern Art í New York. Sýningin stendur til 30. nóvember og verður opin daglega frá klukkan 14.00 til 22.00. Sigurður notar mikið blandaða tækni. Sigurður sýnir 15 verk Á morgun mun Sigurður Örlygs- son opna sýningu á 15 vcrkum i vestursal Kjarvalsstaða. Verkin eru stór, unnin með blandaðri tækni og ná hálfa leiðina í skúlpt- úr. Sigurður lærði í Myndlista- og handíðaskólanum frá 1967-71, Akademíunni í Kaupmannahöfn 1971-72 og Art student league of New York á árunum 1974-75. Þessi sýning er 10. einkasýning Sigurðar í Reykjavík en hann hefur sýnt á fjölda samsýninga úti á landi og erlendis. Verk rnrnin úr járni og tré Helgi Gíslason mun opna sýningu í vest- urforsal Kjarvalsstaða á morgun. Þar mun hann sýna 13 verk úr samblandi af járni og tré sem öll eru unnin á þessu ári er hann dvaldist á gestavinnustofu Norrænu myndlistarmiðstöðvarinnar á Sveaborg í Finnlandi. Helgi stundaði nám í Myndlista- og handíðaskólanum frá l%5-70 og í Va- landsakademíunni í Gautaborg frá 1971-76. Hann hefur haldið 4 einkasýning- ar í Reykjavík og nokkrar samsýningar bæði erlendis, mikið í Þýskalandi, og úti á landi. Aðaluppistaðan i verkum Helga er járn og fré. Marblett- irog HerraHú Leikfélag Akureyrar sýnir í kvöld og annað kvöld kl. 20.30 revíukaba- rettinn Marbletti sem Pétur Einarsson leikstýrir. Á laugardag og sunnudag kl. 15.00 verður end- urtekin dagskrá til heiðurs Kristj- áni frá Djúpalæk. Dagskráin verður leiklesin og sungin og nefn- ist Dreifar úr dagsláttu. Verður hún í nýja Alþýðuhúsinu. Klukkan þrjú á sunnudag verður svo barna- leikritið Herra Hú. Marblettir eru ekki harmleikur eins og nafnið gefur til kynna heldur létt- ur og skemmtilegur revíukabarett. York Winds-blásara- kvintett frá Kanada Laugardaginn 15. nóv kl. 14.30 mun kvintettinn halda tónleika á vegum Tónlistarfé- lagsins í Austurbæjarbíói. Á efnisskrá eru verk eftir Bach, Haydn, Farkad, Hetu, Carter og Taffanel. York Winds hefur fyrir löngu unnið sér alþjóðlega viðurkenningu sem einn fremsti blásarakvintett heims. Hann hefur haldið fjölda tónleika í Kanada, Bandaríkjunum og Mið-Austurlöndum og verið gestur á tónlistarhátíðum um allan heim. Hann kemur hingað á leið sinni úr tónleikaferð um Evrópu. Miðar á tónleikana fást í Bókabúð Lárasar Blöndal, í Istóni og við innganginn. Helgi Björnsson leikur köttinn í uppfærslu Alþýðuleikhússins i Bæjarbíói. Kötturiim sem fer sínar eigin leiðir Á sunnudaginn kl. 15.00 sýnir Alþýðuleikhúsið Köttinn sem fer sínar eigin leiðir í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Söngleikurinn er eftir Ólaf Hauk Símonarson og byggður á sögu eftir R. Kipling. Ólafur samdi lög, ljóð og texta. Leikendur eru Helgi Björnsson, María Sigurðardóttir, Barði Guðmundsson, Margrét Ólafsdóttir, Gunnar Rafn Guð- mundsson, Erla B. Skúladóttir og Bjarni Yngvason. Leikstjórn er höndum Sigrúnar Valbergsdóttur. Leikmynd og búninga hannaði Gerla. Lárus Björnsson annast lýsingu og Gunnar Þórðarson útsetningu laga. Laugarneskirkja Laugardagur 15. nóv.: Biblíulestur í umsjá dr. theol Sigurðar Stein- grimssonar kl. 11 í safnaðarheimil- inu. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Barnakórinn og kirkjukór syngja. Mánudagur 17. nóv.: Æskulýðsstarf kl. 18. Þriðjudagur: Bænaguðs- þjónusta kl. 18.00. Beðið fyrir sjúkum. Altarisganga. Orgelleikur frá kl. 17.50. Sóknarprestur. Neskirkja Laugardagur: Samverustund aldr- aðra kl. 15-17. Jafnaldrar úr Bú- staðasókn koma í heimsókn. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. Sunnudagur: Bamasamkoma kl. 10. Munið kirkjubílinn. Sr. Frank M. Halldórsson. Guðsþjónusta kl. 14. Orgel- og kórstjórn Reynir Jónasson. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. Mánudagur: Æskulýðsstarf kl. 20.00 í umsjá Aðalsteins Thorarens- en. Þriðjudagur og fimmtudagur: Opið hús fyrir aldraða kl. 13-17. Miðvikudagur: Fyrirbænamessa kl. 18.20. Sr. Guðmundur Óskar Ólafs- son. Fimmtudagur: Biblíulestur kl. 20.00. Sr. Frank M. Halldórsson. Seljasókn Barnaguðsþjónusta í Seljaskólanum kl. 10.30. Barnaguðsþjónusta í Öldu- selsskóla kl. 10.30. Guðsþjónusta í Ölduselsskólanum kl. 14.00. Þriðju- dagur 18. nóv.: Fundur í æskulýðs- félaginu Sela kl. 20.00 í Tmdaseli 3. Sóknarprestur. Seltj arnarneskirkj a Laugardagur 15. nóv.: Laufa- brauðsskurður í Mýrarhúsaskóla milli kl. 13 og 17. Sunnudagur: Bamaguðsþjónusta kl. 11. Eimý og Solveig Lára tala við börnin og stjóma söng. Guðsþjónusta kl. 14. Orgelleikari Sighvatur Jónasson. Prestur sr. Solveig Lára Guðmunds- dóttir. Kaffisopi eftir messu. Mánudagskvöldið kl. 20.30: Opið hús fyrir unglingana. Sóknar- prestur. Tillcyimingar Síðustu sýningar á ILTrovatore Síðustu sýningar Islensku óperunnar á IL Trovatore eftir Verdi verða á laugardags- og sunnudagskvöld kl. 20. Verða þá sýn- ingamar alls orðnar 30 en aukasýningar þá orðnar 5 vegna mikillar aðsóknar. Verður sunnudagssýningin send beint út í sjónvarpi og á Rás 2, vonandi landsmönn- um öllum til mikillar ánægju. Kvenfélag Hreyfils heldur basar og flóamarkað sunnudaginn 16. nóvember kl. 14 í Hreyfilshúsinu. Selt verður kaffi og kökur. Kór Breiðholtskirkju með hlutaveltu Sunnudaginn 16. nóvember nk. heldur kór Breiðholtskirkju hlutaveltu og kaffisölu í húsi KFUM og K við Maríubakka. Hluta- veltan hefst kl. 15 stundvíslega og eru allir velunnarar kirkjunnar hvattir til að mæta. Golfskóli Þorvalds Golfskóli Þorvalds Ásgeirssonar tekur aft- ur til starfa á morgun, 15. nóvember. Kennslan, sem er bæði fyrir byrjendur og lengra komna í íþróttinni, verður i íþrótta- húsinu Ásgarði, Garðabæ, á laugardögum. Allar nánari upplýsingar um golfskólann eru gefnar í síma 34390. Alþýðuleikhúsið sýnir leikritið Kötturínn sem fer sínar eigin leiðir í Bæjarbíói á sunnudag kl. 15. Þá verður sýning á „Hin sterkari, Sú veikari" í kjallara Hlaðvarpans, Vestur- götu 3, á sunnudaginn kl. 21. Kolbeinn Bjarnason leikur fyrir sýningu. Upplýs- ingar um miðasölu í síma 15185. Þjóðleikhúsið Sýning á Valborg og bekkurinn á sunnu- dag kl. 16. Innifaldar í miðaverði eru kaffiveitingar sem hægt er að njóta á und- an sýningu. Uppreisn á ísafirði, leikrit Ragnars Arn- alds um uppreisnina á Isafirði í Iok síðustu aldar, er sýnt föstudag, laugardag og sunnudag kl. 20.30. Alls leika um 50 manns í sýningunni. Leikfélag Akureyrar Sýningar á revíuleiknum Marblettir föstu- dags- og laugardagskvöld kl. 20.30. Barnaleikritið Herra hú verður sýnt á sunnudag kl. 15. Á laugardag og sunnudag kl. 15 verður leiklesin og sungin dagskrá til heiðurs Kristjáni frá Djúpalæk í nýja Alþýðuhúsinu. Spánarkvöld Veitingahúsið Evrópa heldur áfram með þjóðakvöldin á sunnudagskvöldum og næsta sunnudag er það Spánarkynning skemmtikvöld og dans. Tekið verður á móti gestum með fordrykk og land og þjóð kynnt í máli og myndum auk þess sem spiluð verður spönsk tónlist. Ari Garðar gestameistari verður með kynningu á spönskum mat. Einsöngvaraefni úr Söng- skólanum í Reykjavík, Svava K. Ingólfs- dóttir, syngur spönsk lög við píanóundir- leik Láru Rafnsdóttur. Frumsaminn dans verður sýndur, Módelsamtökin verða með tískusýningu fyrir dömur og herra, spilað verður bingó. Stjórnandi kvöldsins og kynnir verður Hermann Ragnar Stefáns-, son. Forsala og borð frátekin í Evrópu sunnudaginn 16. nóv. milli kl. 15 og 17. Kvennadeild Breiðfirðingafé- lagsins heldur kökubasar í Blómavali við Sigtún laugardaginn 15. nóvember kl. 10. Ágóðinn rennur til dvalarheimilis aldraðra í Búð- ardal. Útivistarferðir Sunnudagsferð 16. nóv. kl. 13 Helgadalur-Reykjaborg-Hafra- vatn. Fjölbreytt og auðveld gönguferð í Mosfellssveitinni. Reykjaborg er sérstæð- ur og áberandi klettahöfði. Verð 400’kr. Frítt f. böm m. fullorðnum. Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, bensínsölu. Tunglskinsganga á mánudagskvöldið 17. nóv. kl. 20. Gengið verður út á Hvaleyri og skoðaður Rúnasteinninn og síðan haldið með ströndinni að Straumsvík. Fjörubál. Til- valdar ferðir fyrir unga sem aldna. Sjáumst. Munið aðventuferðina í Þórs- mörk 28. nóv. Trúðurinn Ruben kemur fram í síðasta sinn. Trúðurinn Ruben lýkur ferðalagi sínu í Bæjarbóí í dag, föstudag, og kemur hann þar fram kl. 18. Síðustu forvöð er að sjá þennan skemmtilega Iistamann. Dagur lyfjafræðinnar 1986. Laugardaginn 15. nóvember nk. gengst Lyfjafræðingafélag íslands fyrir „Degi lyíjafræðinnar" í stofu 101 í Lögbergi og hefst hann kl. 14 síðdegis. Dagur lyfjafræð- innar ber að þessu sinni yfirskriftina: Tölvur og apótek, verkefni og notagildi. Fundarstjóri verður Guðmundur Steins- son apótekari en frummælendur verða Sigurjón Jónsson apótekari. Guðmundur Reykjalín framkvæmdastjóri, Hjördís Cla- essen lyfiafræðingur, Kristján Linnet lyfiafræðingur, Axel Sigurðsson lyfiafræð- ingur og Leifur Franzson lyfiafræðingur. Verða ræddir möguleikar tölvunotkunar í apótekum og sjúkrahússapótekum, jafnt í Reykjavík sem á landsbyggðinni. Dagur lyfiafræðinnar er einkum ætlaður lyfia- fræðingum og öðru starfsfólki apóteka en öllum er heimill aðgangur. Áhugafólk um verkalýðssögu. Undanfarnar vikur hefur hópur fólks unn- ið að undirbúningi að stofnun félags áhugafólks um verkalýðssögu. Stofnfund- ur félagsins verður haldinn í Fundarsal Starfsmannafélagsins Sóknar, Skipholti 50 a, í Reykjavík í dag, föstudag 14. nóv- ember, kl. 20.30. Félag áhugafólks um verkalýðssögu á að vera vettvangur sagn- fræðinga og fólks úr verkalýðshreyfing- unni þar sem allir sem áhuga hafa á verkalýðssögu geta mæst í umræðum og starfi. Auk einstaklinga geta verkalýðs- félög og sambönd orðið aðilar að félaginu. Hlutverk félagsins er að sameina alla þá sem áhuga hafa á verkalýðssögu og það á að stuðla að víðtækri samstöðu um að byggja upp öfluga heimilda- og rann- sóknastofnun í verkalýðssögu með aðild margra aðila. Sölusýning í Gamla Lundi Félagið Nytjalist á Norðurlandi heldur sölusýningu í Gamla Lundi á Akureyri um helgina. Sýningin hefst í dag, 14. nóvemb- er, kl. 17 og stendur til kl. 21. Laugardag og sunnudag verður sýningin opin frá kl. 14-21. Á sýningunni verður grafík, út- skurður, myndvefnaður, almennur vefnað- ur, 'leirmunir og fleira til sýnis. Nemendaleikhúsið Síðasta sýningarhelgi á Leikslok í Smyrnu fer nú í hönd. Sýningar verða laugardag- inn 15. nóvember og sunnudaginn 16. nóv. kl. 20.30. Sýnt í Lindarbæ. Miðapantanir i síma 21971. Leikfélag Reykjavíkur Upp með teppið Sólmundur eftir Guðr- únu Ásmundsdóttir verður sýnt hjá Iðnó um helgina. Þá eru einnig sýningar á Veginum til Mekka, sem frumsýndur var í Iðnó um síðustu helgi, svo og Landi míns föður sem enn er sýnt fyrir fullu húsi um hverja helgi. Félagsstarf aldraðra í Reykjavík Sala á handunnum munum í félagsmið- stöðvunum Furugerði 1 og Lönguhlíð 3 laugardaginn 15. nóvember frá kl. 13 18 á báðum stöðum. Kaffi og meðlæti á boðstól- um. York Winds - blásara- kvintettfrá Kanada hjá Tónlistarfélaginu. Laugardaginn 15. nóv kl. 14.30 mun kvint- ettinn halda tónleika á vegum Tónlistarfé- lagsins í Austurbæjarbíói. Á efnisskrá eru verk eftir Bach, Haydn, Farkas, Hetu, Carter og TalTanel. York Winds hefur fyr- ir löngu unnið sér alþjóðlega viðurkenn- ingu sem einn fremsti blásarakvintett heims. Hann hefur haldið fiölda tónleika í Kanada, Bandaríkjunum og Mið-Aust- urlöndum og verið gestur á tónlistarhátíð- um um allan heim. Hann kemur hingað á leið sinni heim úr tónleikaferð um Ev- rópu. 1 dag, föstudag, mun kvintettinn halda námskeið fyrir tónlistarnemendur og aðra áhugamenn í Tónlistarskólanum í Reykjavík, Skipholti 33, frá kl. 14 17. Meðlimir kvintettsins munu kynna þar kanadíska tónlist og leiðbeina tveimur nemendakvintettum Tónlistarskólans. Miðar á tónleikana fást í bókabúð Lárusar Blöndal, ístóni og við innganginn. Að- gangur að námskeiðinu er ókeypis og öllum heimill. Bókaútsala bókaforlaga við Þingholtsstræti Bókaútsala verður hjá Hinu íslenzka bók- menntafélagi næstu daga í Þingholtsstræti 3. Hefst hún í dag. Tilefnið er 170 ára af- mæli Bókmenntafélagsins. Bókaforlögum, Menningarsjóði, ísafold og Þjóðsögu. sem öll eru við Þingholtsstræti, var boðin þátt- taka í bókaútsölunni og verða bækur þeirra einnig til sölu í afgreiðslu Bók- menntafélagsins. Á bókaútsölunni eru fiölmargir spennandi bókatitlar. Elstu rit- in eru frá árinu 1897 og þau yngstu nýleg. Meðal efnis eru vandaðar barnabækur. ævisögur, skáldsögur, bækur um bók- menntir og listir, fræðibækur og allmargir árgangar tímarits Bókmenntafélagsins, Skírnis, og nokkur hefti úr Safni til sögu íslands. Verði útsölubókanna er mjög stillt í.hóf, eða frá kr. 50, enda á allt að seljast. Utsalan verður opin í dag til kl. 18, laugar- dag kl. 9 16 og sunnudag frá kl. 13-16. Myndlistarsýning í Safnahúsi Vestmannaeyja Um þessar mundir stendur yfir myndlist- arsýning G.R. Lúðvíkssonar í Safnahúsi Vestmannaeyja. G.R. Lúðvíksson sýnir þar 15 vatnslitamyndir og 7 olíumálverk. Þetta er 15. einkasýning hans. Sýningin stendur til sunnudagskvölds og er opin frá kl. 16-19. Þess má einnig geta að um mán- aðamótin er væntanleg ný hljómplata með frumsömdum jólalögum eftir G.R. Lúð- víksson og texta eftir Sigurbjörgu Axels- dóttur. Hljómplatan mun bera heitið Jólasnjór. Á henni eru átta jólalög. Félagsfundur hjá Kvenrétt- indafélagi íslands Laugardaginn 15. nóvember efnir Kven- réttindafélag íslands til félagsfundar um spurninguna „Eru prófkjör leið kvenna inn á þing?" Framsöguerindi flytja konur á vettvangi stjómmála. I þetta sinn verður fundurinn með nýju sniði á nýjum stað. Verður þetta svokallaður morgun-hádeg- isfundur, þ.e. fundur yfir léttum veitingum af morgunverðar- og hádegisborði. Fund- urinn verður haldinn í hinum vistlega. nýinnréttaða sal í kjallara Hallveigar- staða, (gengið inn frá Túngötu). Hann hefst kl. 11 f.h. (ath. breyttan tíma) og stendur fram til kl. 14. Verði veitinga mun stillt í hóf eins og kostur er. Fundurinn er öHuni opinn. Kröfur kvenna í komandi samningum Ráðstefna Samtaka kvenna á vinnumark- aði i Gerðubergi verður haldin laugardag- inn 15. nóv. Ráðstefnan hefst kl. 10 og stendur til kl. 18. Fluttar verða stuttar framsögur og á eftir verða málin rædd í starfshópum og almennum umræðum. Það er von Samtaka kvenna á vinnumarkaði að sem flestar konur sjái sér fært að mæta á ráðstefnuna og setja þannig pressu á verkalýðsforystuna og í kröfugerð og samningum verði ekki gengið framhjá raunverulegum þörfum láglaunakvenna. Ársþing Fimleikasambands íslands verður haldið 14.-15. nóv. í íþróttamið- stöðinni Laugardal. og hefst kl. 18.30 í dag, föstudag, þinginu verður fram haldið á laugardag kl. 11. f.h. Dagskrá þingsins er samkvæmt lögum sambandsins, 8. gr. Á laugardagskvöldið er fyrirhuguð árshátíð og verður hún haldin í Kiwanissalnum í Brautarholti 26 og hefst kl. 20 með borð- haldi, eitthvað annað verður gert sér til gamans og mun diskótekið Dísa annast um fiörið. Aðgöngumiðar að mat eru seld- ir hjá stjórnunarfólki FSl. Almenn ráðstefna um uppeldis- og menntamál verður haldin í Sóknarsalnum, Skipholti 50a, laugardaginn 15. nóvember kl. 14-17.30. Yfirskrift ráðstefnunnar er „Lengi býr að fyrstu gerð“. Þarna verður fiallað um mál sem öllum kemur við. Stutt framsöguerindi verða flutt og frjálsar umræður. Kvennadeild Skagfirðingafé- lagsins í Reykjavík er með fund fyrir félagsmenn og gesti í Drangey, Síðumúla 35, sunnudaginn 16. nóvember nk. ki. 14. Spilað verður bingó. Húnvetningafélagið í Reykjavík efnir til kaffisölu (veisluborð) og meiri- háttar hlutaveltu í félagsheimilinu Skeif- unni 17 laugardaginn 15. nóvember kl. 15. Tekið verður á móti gjöfum (kökum og munum) í dag milli kl. 18 og 22 og laugar- dag frá kl. 10. Flóamarkaður og kaffisala Næstkomandi sunnudag. 16. nóvember. verður flóamarkaður og kaffisala í Templ- arahöll Reykjavíkur, Eiríksgötu 5. á vegum Skíðadeildar Hrannar. Á flóamark- aðinum mun kenna ýmissa grasa og verður þar váfalaust margt muna til að kaupa. Þá geta menn fengið sér kaffisopa og rjómavöfflur í leiðinni. Húsið verður opið kl. 14 17 og eru allir velkomnir. Basar Kvenfélags Hallgríms- kirkju Á morgun, laugardaginn 15. nóv.. kl. 15. opnar Kvenfélag Hallgrímskirkju basar í safnaðarheimili kirkjunnar. Á basarnum er margt eigulegra muna. þar á meðal mikil handavirtna. Einnig verða þar til sýnis og söiu minjagripir sem kvenfélagið mun framvegis hafa til sölu í kirkjunni. Allir unnendur Hallgrímskirkju eru hvatt- ir til að koma á basarinn. gera góð kaup og styrkja félagið í starfi þess fyrir HaU- grímskirkju. Ferðalög Ferðafélag íslands Dagsferð sunnudaginn 16. nóv. KI. 13 verður gengið á Vífilsfell (655m). Ekið verður sem leið liggur í átt til Hellis- heiðar. farið úr bílnum gegnt Jósepsdal og tekur gangan um 3 klst. Verð kr. 350. Brottför frá Umferðarmiðstöðinni. aust- anmegin. Farmiðar við bíl. Frítt fvrir börn í fvlgd fullorðinna. Laugardagsganga Hana nú Vikuleg laugardagsganga frístundahóps- ins Hana nú í Kópavogi verður á morgun. laugardaginn 15. nóvember. lagt af stað frá Digranesvegi 12 kl. 10. Markmið göngunnar er samvera, súrefni og hrevf- ing. I svartasta skammdeginu er molakaffi og smágöngutúr góð bvrjun á góðri helgi. Allir velkomnir. Sýningar Árbæjarsafn Opið samkvæmt samkomulagi. Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74 Safnið er opið þriðjudaga, fimmtudaga og sunnudaga kl. 13.30 16. Ásmundarsafn við Sigtún Opnunartími safnsins er á þriðjudögum, fimmtudögum, laugardögum og sunnudög- um frá kl. 14 17. Ásmundarsalur við Freyjugötu Álfhildur Ólafsdóttir opnar málverkasýn- ingu í Ásmundarsal á morgun. Sýningin verður opin daglega kl. 14-19 og lýkur henni sunnudaginn 23. nóvember. Gallerí Hallgerður Ása Ólafsdóttir opnar sýningu í Gallerí Hallgerði á morgun. Á sýningunni verða tvö myndofin verk og 19 collagemyndir. Allt eru þetta myndir sem á symbóliskan hátt segja frá. Þær eru allar unnar á árinu 1986. Sýningin er opin daglega kl. 14 18 og stendur til 23. nóvember.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.