Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1986, Qupperneq 6
28
FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1986.
Manrico(Garðar Cortes) og Leonora(Ólöf Kolbrún Harðardóttir) á við-
kvæmu augnabliki.
Leikhús- Leikhús- Leikhus- Leikhús- Leikhús Leikhús - Leikhús
Síðustu sýningar
fl Trovatore
Um helgina verða síðustu sýn-
ingar á uppfærslu Islensku Ópe-
runnar á II Trovatore eftir
Giuseppe Verdi, eitt virtasta tón-
skáld sem sögur fara af.
II Trovatore er byggð á spæn-
skum harmleik frá því 1836; leikinn
samdi Antonio García Gutiérrez
(1813-1884), þá tuttugu og þriggja
ára. Leikurinn er talinn til sígildra
spænskra bókmennta, og er hann
einn um það af öllum verkum höf-
undarins. Verdi féll strax fyrir
efninu sem honum þótti óvenjulegt
sem það óneitanlega er.
Þar segir frá tveimur keppinaut-
um um ástir einnar konu; þeir tveir
eru líka fjandmenn í borgarastyrj-
öld svo og bræður í þokkabót án
þess að vita það. Leonóra þykir
með eindæmum tign og sannkristin
kona festir ást á á ókunnum ridd-
ara, rýfur klausturheit til að fylgja
honum og sviptir sig lífi að lokum.
Óperan skiptist í átta atriði, og
hvert þeirra er eins og málverk en
ekki eins kvikmynd. Sjálfir at-
burðirnir sem skipta sköpun i
'sögunni sjást ekki:Það er bara frá
þeim sagt eins og í grískum harm-
leik. Það sést engin hólmaganga,
engin galdrabrenna, ekkert stríð.
Jafnvel mansöngvarinn sem óp-
eran heitir eftir syngur mansöngv-
arinn utan sviðs.
Þó undarlegt megi virðast, hafa
vinsældir II Trovatore- farið fyrir
brjóstið á mörgum óperuaðsáend-
um. Þeir hafa ekki einungins sett
fyrir sig söguþráð óperunnar, held-
ur töldu þeir þetta skref afturábak
í þróun óperugerðar Verdis.
Óperan verður flutt á laugadags
og sunnudagskvöld kl. 20.00 bæði
kvöldin, það má geta þess að að á
sunnudagskvöld verður II Trovat-
ore flutt í beinni útsendingu í
Sjónvarpinu. Persónur og ein-
söngvarar eru Luna greifi: Kristinn
Sigmundsson Leonora: Ólöf Kol-
brún Harðardóttir, Azuncena:
Hrönn Hafliðadóttir, Manrico:
Garðar Cortes, Ferrando: Viðar
Gunnarsson, Inez: Elísabet Waage,
Ruiz: Hákon Oddgeirsson. Kór og
hljómsveit Islensku óperunnar
annast undirleik og söng. Hljóm-
sveitastjóri er Anthony Hose,
leikstjórn annaðist Þórhildur Þor-
leifsdóttir. Leikmyndina sá Una
Collins um.
Kvikmyndahús - Kvikmyndahús
Regnboginn
Regnboginn hefur frumsýnt nýj-
ustu mynd Gene Wilder, Draugaleg
brúðkaupsferð með þeim hjónun-
um honum og Gildu Radner í
aðalhlutverkum en margir muna
eflaust eftir þeim úr myndinni
Woman in Red. Auk þeirra fer Dom
De Louise með eitt aðalhlutverk-
anna í þessum bráðsmellna farsa.
Söguþráðurinn er í stuttu máli sá
að nýgift hjón ákveða að eyða
hveitbrauðsdögunum í höll einni.
Brátt kemur í ljós að fleiri „gesti“
er að finna i höllinni en þár eru
skráðir i gestabækur og hin nýgiftu
lenda í margs konar basli við
ágenga drauga.
Gene Wilder og aðrar sem standa
að þessari mynd þarf vart að kynna
en þetta gengi hefur gert margar
ágætar gamanmyndir á síðustu
árum og hefur efniviðurinn oft ver-
ið sóttur í klassískt efni. Nægir að
nefna myndir á borð við Young
Frankenstein og Sherlock Holmes
Smarter Brother.
Háskólabíó
Rodney Dangerfield fer á kostum
sem forríkur faðir nemenda í skóla
einum i Bandaríkjunum. Föðurn-
um finnst sonurinn lélegur í námi
og ákveður að setjast í bekk með
honum til að peppa guttann upp.
Leiðir þetta til ýmiss konar uppá-
koma sem eru hver annarrí fyndn-
ari.
Myndin „Aftur i skóla“ er fjórða
mynd Dangerfields en einhverjir
muna kannski eftir honum úr
myndinni Easy Money sem sýnd
var hérlendis, eða í kostulegu
aukahlutverki í myndinni Caddyc-
hack. Dangerfield hóf feril sinn sem
grínisti í næturklúbbum í Banda-
ríkjunum og ber húmor hans þess
glöggt merki, einnar línu tilsvör
og athugasemdir standa út úr hon-
um í stríðum straumum í þessari
mynd.
Laugarásbíó
Laugarásbíó hefur frumsýnt
myndina Frelsi, með þeim Alan
Alda, Michael Caine og Bob Hosk-
ins í aðalhlutverkum, gamanmynd
um gerð kvikmyndar. Söguþráður-
inn er á þá leið að til smábæjar
kemur gengi kvikmyndagerðar-
manna og breyta þeir bænum á
einni nóttu í kvikmyndaver með
tilheyrandi látum og uppistandi.
Það er vert að geta Bob Hoskins
í þessari mynd en hann er hér í
hlutverki handritshöfundar þeirrar
myndar sem gera á og stelur sen-
unni. Þessi hæfileikaríki leikari
hefur barist um í smáhlutverkum
nær alla sína leikæfi en með mynd-
Af þeim kvikmyndum, sem frum-
sýndar hafa verið í kvikmyndahús-
um borgarinnar að undanförnu, er
myndin Aliens tvímælalaust sú at-
hyglisverðasta en hún er framhald
myndar með sama nafni sem Ridley
Scott gerði og sýnd var í Nýja bíói.
Mynd Ridley Scott er ein besta
hrollvekja sem gerð hefur verið og
jafnframt ein besta vísindaskáld-
skaparmynd síðari tíma. I fram-
haldinu leikur Sigourney Weaver
áfram hina harðsoðnu Ripley, eina
áhafnarmeðlim geimskipsins Nost-
romo sem komst lífs af úr síðustu
geimferð. Myndin hefst er Nost-
romo kemur aftur til „byggða" og
Ripley er vakin af dásvefni. Brátt
er fyrirhugaður annar leiðangur til
plánetu þeirrar er Nostromo kom
til síðast og nú er ætlunin að eyði-
leggja skrímsli þau er þar þrífast
en Ripley fær að frétta að hún hafi
legið í dásvefni í 57 ár og að í milli-
tíðinni hafi risið nýlenda manna á
þessari plánetu, hlutur sem setur
að henni hroll.
Ripley fellst á að koma með í
þennan leiðangur og fer hún ásamt
hópi hermanna til plánetunnar.
Það sem þar blasir við þeim er best
að áhorfendur fái sjálfir að kynn-
ast.
Alien er gerð af leikstjóranum
James Cameron sem meðal annars
hefur gert myndina Terminator
sem öllum að óvörum var ein vin-
sælasta mynd ársins 1984 en
Cameron þessi hefur gert nokkrar
aðrar myndir byggðar á vísinda-
skáldskap.
-FRI
Bíóhöllin
Framhald Alien
Kvikmyndahús
inni Mona Lisa skaut honum upp
á stjörnuhimininn og þar hefur
hann unnið hörðum höndum við
að festa sig í sessi síðan.
Aðra þarf vart að kynna og það
er Alan Alda sem leikstýrir og
skrifar handrit þessarar myndar en
íslenskir sjónvarpsáhorfendur geta
nú á nýjan leik fylgst með honum
í MASH.
Stjörnubíó
Það er alltaf ánægjuleg tilbreyt-
ing þegar bíóhúsin frumsýna aðrar
myndir en breskar og bandarískar
þótt framleiðslan sé kannski ekki
klassísk en nýlega frumsýndi
Stjörnubíó frönsku myndina I úlfa-
hjörð, gerða af Jose Giovanni með
Claude Brasseur í aðalhlutverki.
Myndin íjallar um rán bandarísks
hershöfðingja og eru það Rauðu
herdeildirnar sem standa að því.
Hann er fluttur í gamalt hervirki
sem erfitt er að komast að.
Sérfræðingi í baráttu gegn
hryðjuverkamönnum er falið að ná
hershöfðingjanum aftur og til þess
verks fær hann hóp manna sem
gengur undir nafninu „Úlfarnir",
harðsoðnir náungar sem ekki kalla
allt ömmu sína.
-FRI
Hvað er á seyði um helgina - Hvað er á seyði um helgina - Hvað er á seyði um helgina - Hvað er á seyði um helgina
Sýningar
Gallerí Borg,
Pósthússtræti.
Galleríið er opið kl. 10 18 virka daga og
kl. 14-18 um helgar. '
Gallerí íslensk list,
Vesturgötu 17
Þar stendur yfir sýning Septem-hóps-
ins.
Gallerí Gangskör, /
Amtmannsstíg
Egill Eðvarðsson opnar sýningu á verkum
sínum laugardaginn 15. nóvember. Sýn-
ingin verður opin virka daga kl. 12-18 og
um helgar kl. 14-18.
Gallerí Langbrók-Textíll,
Bókhlöðustig 2
Opið þriðjudaga til föstudaga kl. 12-18 og
laugardaga kl. 11-14.
Gallerí, Skipholti 50 c
Gunnar Örn sýnir 16 mónótýpur frá þessu
ári. Hann hefur haldið 18 einkasýningar
og tekið þátt í fjölda samsýninga víða um
Evrópu. Sýningin er opin virka daga og
laugardaga kl. 14-18.
Kjarvalsstaðir,
Miklatúni
Helgi Gíslason opnar á morgun sýningu á
13 verkum, unnum í tré og jám. Helgi
hefur haldið fjórar einkasýningar í
Reykjavík og tekið þátt í fjölda samsýn-
inga. í vestursalnum opnar Sigurður
Örlygsson sýningu á 15 verkum, unnum á
þessu ári. Sigurður hefur haldið einkasýn-
ingar og tekið þátt í samsýningum.
I austurforsal opnar Sjöfn Hafliðadóttir
sýningu á morgun. Hún hefur búið erlend-
is síðustu 37 árin. Sýningamar verða
opnar daglega kl. 14-22 til 30. nóvember.
Mokkakaffi,
Skólavörðustig
Guðjón Ketilsson sýnir grafík og teikning-
ar.
Norræna húsið
Jóhanna Bogadóttir opnar á morgun sýn-
ingu á málverkum og teikningum í
sýningarsölum Norræna hússins. Sýning-
in stendur til 30. nóvember og verður opin
daglega frá kl. 14-22.
Nýlistasafnið,
Vatnsstíg
Um síðustu helgi hófust í Nýlistasafninu
sýningar á verkum Guðjóns Ketilssonar
og Guðrúnar Hrannar Ragnarsdóttur.
Sýningunum lýkur nk. sunnudagskvöld
kí. 20. Guðjón sýnir málverk á efri hæð
safnsins. Guðrún Hrönn sýnir á neðri hæð
safnsins málverk, skúlptúr og fleira.
Listasafn ASÍ,
Grensásvegi
Laugardaginn 15. nóvember verður opnuð
sýning á málverkum Ágústs Petersen. Þá
verður afhent málverkið „Morgunn við
Ræningjaflöt" sem listamaðurinn hefur
ákveðið að færa safninu að gjöf. Á sýning-
unni eru 64 málverk og verður sýningin
opin alla daga til 7. desember. Opið virka
daga kl. 16-20 og um helgar kl. 14-22.
Kaffiveitingar um helgar.
Listasafn Einars Jónssonar
við Njarðargötu
er opið alla daga nema mánudaga frá kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega frá kl. 10-17.
Listasafn Háskóla íslands
í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opið
daglega kl. 13.30-17. Þar era til sýnis 90
verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri
listamenn þjóðarinnar. Aðgangur að safn-
inu er ókeypis.
Listasafn íslands
Þar stendur yfir yfirlitssýning á verkum
Valtýs Péturssonar. Sýningin spannar all-
an listferil Valtýs allt frá því að hann var
við nám í Bandaríkjunum 1944 46 til verka
frá þessu ári. Eru þar alls 127 verk, olíu-
myndir, mósaík og gvassmyndir. I tilefni
sýningarinnar hefur verið gefin út vönduð
sýningarskrá og litprentað plakat. Sýn-
ingin er opin virka daga frá kl. 13.30-18
en kl. 13.30-22 um helgar.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning opin á þriðjudögum,
limmtudögum og laugardögum frá kl. 14-
16.
Sjóminjasafn íslands,
Vesturgötu 8, Hafnarfirði
Opið þriðjudaga til sunnudaga kl. 14-18.
Sædýrasafnið
Opið alla daga kl. 10-17.
Slunkaríki,
ísafirði
Hlaðvarpinn
Guðmundur Björgvinsson opnar sýnjngu
á verkum sínum í Hlaðvarpanum, Vestur-
götu 3, á morgun, laugardag.