Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1986, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1986, Page 5
FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986. 27 ólmundur , Sólmundur! eftir Guðrúnu Ásmundsdóttur, víkur og er að sjálfsögðu sýnt í Iðnó. irnar. Inn í verkið er fléttað ýmsum kómísk- ;ru margir frumkvöðlar íslenskrar leiklistar. A, tónlistarstjóri er Jóhann G. Jóhannsson. irg Thoroddsen, Guðmundur Ólafsson, Guð- sson, Margrét ólafsdóttir, Ragnheiður Elfa tiiðvikudaginn 10. desember. sunnudaginn, sú fyrri kl. 14.00 og seinni á kl. 17.00. Valgerður sýnir klippimyndir í Gallerí Hallgerði. Klippimyndasýiung í Hállgerði Á morgun kl. 14.00 opnar Valgerð- ur Erlendsdóttir sýningu á klippi- myndum í Gallerí Hallgerði að Bókhlöðustíg 2 í Reykjavík. Valgerður stundaði myndlist- amám á árunum 1969-1974, fyrst í Myndlista- og handíðaskóla íslands. Einnig stundaði hún nám í Tékkó- slóvakíu og Stokkhólmi. Þetta er fyrsta einkasýning V algerðar en hún hefúr áður tekið þátt í 9 samsýning- um bæði hér heima og erlendis. Hún á verk í opinberri eigu á Siglufirði, Hering í Danmörku og Vánnersborg í Svíþjóð, auk þess er veggskreyting eftir hana í Vélsmiðju Jóns og Erl- ings á Siglufirði. Islenskar nútímabókmeimtir Á morgun verður haldinn fundur á vegum Félags áhugamanna um bókmenntir. Fundarefnið er íslen- skar nútímabókmenntir, staða þeirra og eðli. Þar munu fjórir fyrir- lesarar flytja erindi sem jafht tengj- ast ljóða- og skáldsagnagerð. Þeir eru: Eysteinn Þorvaldsson, Elísabet Þorgeirsdóttir, Guðmundur Andri Thorsson og Einar Már Guðmunds- son. Fundarstjóri er Silja Aðal- steinsdóttir. Fundurinn verður haldinn í ODDA, næsta húsi við Norræna húsið, og hefst kl. 14.00. Allir eru að sjálfsögðu velkomnir. Ómar sýnir við Óðinstorg Á morgun opnar Ómar Stefánsson wningu í Gallerí Svart á hvítu við Óðinstorg. Ómar er fæddur árið 1960. Hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla ís- lands á árunum 1977-81. Eftir það hélt hann til Vestur-Berlínar til framhaldsnáms við Hochschule der Kúnste þar sem hann dvaldi í fjög- ur ár undir handleiðslu hins þekkta Klaus Fussmanns. Sýningin í Gallerí Svart á hvítu er fjórða einkasýning Ómars. En auk þeirra hefur hann tekið þátt í fjöldamörgum samsýningum, bæði hér heima og erlendis. Á einni slíkri, árið 1983, voru settar upp veggmyndir eftir hann og sex kunna listamenn og hanga þær á járnbrautarstöðinni í Basel í Sviss. Fóstbræður 70 ára Karlakórinn Fóstbræður heldur um þessar mundir upp á 70 ára starfsafmæli sitt. Kórinn er talinn hafa verið stofnaður í nóvember 1916 og starfaði fyrst undir heitinu karlakór KFUM eða til ársins 1936. þá voru tengslin við KFUM orðin harla lítil og var því nafni kórsins breytt í Karlakórinn Fósbræður. I tilefni þessara merku tímamóta heldur kórinn sérstaka hátíðartón- leika í Langholtskirkju á morgun kl. 17.00 fyrir alla velunnara kórs- ins. Á efnisskrá eru bæði erlend og innlend lög auk þess koma fram óperusöngvararnir Kristinn Halls- son, Kristinn Sigmundsson, Sig- urður Björnsson og Sigríður Ella Magnúsdóttir sem öll hafa sungið með kórnum á liðnum árum. Með hinum starfandi kór munu nokkrir eldri félagar syngja. Gert er ráð fyrir að kórfélagar verði 60 talsins. Söngstjóri er Ragnar Björnsson. Undirleik annast Jónas Ingimundarson. arsson, fyrrverandi ráðherra, flytur hugleiðingu. Ungmenni leika á klarinett og Ólöf Kolbrún Harðar- dóttir syngur einsöng við undirleik Jóns Stefánssonar. Þá mun kirkju- kórinn syngja nokkur jólalög undir stjórn Reynis Jónassonar organista. Frank M. Halldórsson. Hátíð í Bústaðakirkju Fyrsti sunnudagur í aðventu hefur á liðnum árum haft yfir sér hið rétta svipmót hátíðar í Bústaðasöfnuði. Upphaflega var tilefnið einvörðungu nýtt kirkjuár og þau geðhrif sem slíkt veldur með nálægt jóla en síðan bættist það við til enn aukins hátíð- artilefnis að Bústaðakirkja var vígð hinn fyrsta sunnudag í aðventu 1971. Og síðan hefur runnið saman í eitt aðventuhátíð og afmæli. Næsti sunnudagur verður hluti þeirrar hefðar sem árin hafa mótað. Dagur- inn hefst með barnasamkomu kl. ellefu árdegis en þær hafa leitt kenn- ararnir Elín Anna Antonsdóttir og Guðrún Ebba Ólafsdóttir við miklar vinsældir og síðan er hátíðarmessa kl. 2 síðdegis. Og eftir messuna býður Kvenfélag Bústaðasóknar til veislu og er ekki að efa það a'ð þar verða borð hlaðin hinum lystilegustu kræs- ingum enda hafa konurnar fengið það orð á sig að betra verði vart fáan- legt heldur en þeirra framlag. Stjórn kvenfélagsins biður þær konur sem gefa kökur og annað þess háttar að koma þeim á sunnudagsmorguninn upp í safnaðarheimili eftir kl. 10.30. Um kvöldið er síðan boðið til hinn- ar vinsælu aðventusamkomu og vel til alls vandað eins og vanalega. Ber þar fyrst að nefna að biskupinn yfir Islandi, herra Pétur Sigurgeirsson, flytur ræðu kvöldsins og kirkjukór- inn og níu manna hljómsveit flytur ýmis verk undir stjórn organista kirkjunnar, Guðna Þ. Guðmunds- sonar. En einsöngvarar verða Ingi- björg Marteinsdóttir, Einar Örn Einarsson, Eiríkur Hreinn Helgason og Reynir Guðsteinsson. Ávarp flyt- ur formaður Bræðrafélags Bústaða- kirkju, Jónas Gunnarsson, og samkomunni lýkur með helgistund, sem presturinn annast, og kveikt verður á kertunum, sem allir fá við kirkjudyr, en flytja síðan með sér heim eins og litla kveðju frá kirkju sinni sem minnir á tengsl heimilis og kirkju sem ekki er síst vel virði að rækja vel á aðventúnni. Eins og ævinlega eru allir hjartanlega vel- komnir í Bústaðakirkju á meðan húsrúm leyfir. Ólafur Skúlason. Aðventusamkoma Breið- holtssóknar Ems og undanfarin ár verður aðventukvöld Breiðholts- safnaðar í hátíðarsal Breiðholts- skóla fyrsta sunnudag í aðventu sem að þessu sinni er á morgun, sunnu- daginn 30. nóvember, og hefst samkoman kl. 20.30. Að venju verður fjölbreytt dagskrá: Kór Breiðholtskirkju flytur að- ventu- og jólasöngva undir stjórn Daníels Jónassonar organista, Ragn- heiður Guðmundsdóttir söngkona syngur einsöng við undirleik gítar- leikarans Þórarins Sigurbergssonar og bassaleikarans Jóhanns Georgs- sonar. Valgerður Helgadóttir les jólafrá- sögu, Helgi Elíasson flytur aðventu- hugleiðingu og kvöldið endar svo með stuttri helgistund við kertaljós. Eru sóknarbúar hvattir til að hefja jólaundirbúninginn með því að fjöl- menna við þessa athöfn. Sr. Gísli Jónasson. Tilkynningar íþróttafélag fatlaðra Síðasti danstími fyrir börn í íþróttafélagi fatlaðra verður laugar- daginn 29. nóv. kl. 14.30. Kennsla fer fram í Hátúni 12. Kennari Dagný Björk Pjetursdóttir. Knudsenættin hittist Knudsenættin kemur saman á niðja- móti í Broadway sunnudaginn 30. nóv. kl. 14.30. Tilefnið er útgáfa tveggja binda veglegs verks um ætt- ina sem prýtt er ljósmyndum af á fimmta þúsund einstaklinga. Það sem gerir þetta niðjatal frá- brugðið áður útgefnum verkum af þessu tagi er að nú er í fyrsta sinn rakin sannkölluð „Reykjavíkurætt" með upphaf sitt í Kvosinni. Það er því vel við hæfi að slíkt rit komi út á afmælisári borgarinnar. Niðjatalið, sem er fjórða verkið í ritröðinni íslenskt ættfræðisafn, er gefið út af bókaforlaginu Sögusteini. Skoðunarferð um Kvosina og Vatnsmýrina Náttúruvemdarfélag Suðvestur- lands stendur fyrir kynnisferð um Kvosina og Vatnsmýrina á sunnu- dag. Lagt verður af stað kl. 13.30 frá Víkurgarði (Fógetagarðinum) á horni Aðalstrætis og Kirkjustrætis. Gengið verður um Kvosina og gömlu húsin „lesin“ eftir sögu og aldri. Að því loknu býður Hressingarskálinn þátttakendum upp á kaffisopa. Það- an verður haldið suður að Tjörn (rúta fylgir göngunni eftir) og gengið verður með henni vestanverðri að friðlýstu svæði í Vatnsmýrinni. Á leiðinni verður fjallað um jarðlög, lífríki og landnýtingu fyrr á öldum. Ef aðstæður leyfa verða torfhleðslur Tryggva Hansen sunnar í Vatns- mýrinni skoðaðar. Ur Vatnsmýrinni verður farið að Háskólabíói. Þar býður Mjólkursamsalan upp á sýru- drukk (mysu) til að svala þorsta göngumanna. I anddyri Háskólabíós gefst þátttakendum kostur á að skoða litlar sýningar. Fólki gefst þarna kostur á að varpa fram spurn- ingum um Kvosina, Tjörnina og Vatnsmýrina til leiðsögumannanna. Frá Háskólabíói verður farið um kl. 16.45 og gengið norður Suðurgötuna niður í Víkurgarð og þar lýkur göngunni um kl. 17.00. Ekki þarf að greiða fyrir þátttöku í göngunni eða veitingar en ef langferðabifreiðin verður notuð kostar það 100 kr. Hægt er að koma í gönguna og fara í hana hvenær sem er og hvar sem er. Allir eru velkomnir. Munið að fátt jafnast á við ferðalag undir góðri leiðsögn. Leiðsögumenn verða: Guð- jón Friðriksson sagnfræðingur, Árni Einarsson líffræðingur, Þorleifur Einarsson jarðfi-æðingur og Þórunn Valdimarsdóttir sagnfræðingur. Fleiri muna leggja sitt af mörkum í ferðinni. Kökubasar Kársnessóknar Verður í safnaðarheimilinu Borgum sunnudaginn 30. nóvember kl. 15. Tekið á móti kökum í safnaðarheimilinu á laugar- dagskvöld frá kl. 19-22 og sunnudags- morgun milli kl. 10 og 11. Málþingum John Locke Laugardaginn 29. nóvember halda Hið íslenska bókmenntafélag og Stofnun Jóns Þorlákssonar í samein- ingu málþing um John Locke í stofu 101 í Lögbergi, húsi Lagadeildar Háskóla íslands, kl. 14.30-17.15. Til þess er efnt í tilefni þess að út er komin hjá Hinu íslenska bók- menntafélagi „Ritgerð um ríkisvald" eftir Locke í þýðingu Atla Harðar- sonar, en þetta rit er eitt af undir- stöðuritum vestrænnar stjórnmála- hugsunar og hefur haft ómæld áhrif á stjórnskipan lýðræðisþjóðanna. Á málþinginu verða fluttir tveir fyrirlestrar. Dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson lektor talar um „John Locke og mannréttindahugtakið" og dr. Amór Hannibalsson dósent um „John Locke í sögulegu ljósi“. Fund- arstjóri verður prófessor Sigurður Líndal, forseti Hins íslenska bók- menntafélags. Á eftir hvorum fyrir- lestri verða frjálsar umræður og kaffihlé á milli þeirra, og eru allir velkomnir á málþingið. Vetrarlíf ’86 I fyrsta sinn hér á landi er nú hald- in stór sýning á öllum búnaði sem nauðsynlegur er til iðkunar útiveru að vetri til. Meðal þess sem til sýnis verður er skíðabúnaður, vélsleðar og búnaður tengdur þeim, viðlegubúnaður, fjór- hjól, áttavitar, lórantæki o.s.frv. Sýningin stendur yfir frá fimmtu- deginum 27. nóvember til sunnu- dagsins 30. nóvember. Sýningar- svæðið er opið frá kl. 10.00 til kl. 21.00 alla sýningardagana. Sýningin er haldin að Fosshálsi, Ártúnshöfða í Reykjavík. Nánari upplýsingar gefur formaður LIV, Sigurjón Pétursson, vinnusími 91-82500, heimasími 91-651305. Brúðuleikhús heimsækir Borgarbókasafn Borgarbókasafn vill vekja athygli barna og foreldra á því að í dag, laug- ardaginn 29. nóvember, verður brúðuleikhúsið Sögusvuntan á ferð- inni í Borgarbókasafni og sýnir Smjörbitasöguna. Leikhúsið sýnir á tveimur stöðum, kl. 13.15 í Bústaða- safni, Bústaðakirkju, og í aðal- safni, Þingholtsstræti 29A, kl. 17.00. Heimsókn brúðuleikhúss i Borgar- bókasafn hefur verið nokkuð fastur liður í starfsemi safnsins ár hvert og jafnan verið afar vinsæl. Hlaðvarpinn Vesturgötu 3 Það eru þrjú leikhús sem nú eru að sýna í Hlaðvarpanum - félags- og menningarmiðstöð kvenna að Vest- urgötu 3. Um helgina verða 7 leiksýningar á þeirra vegum. Á annarri hæð í Hlað- varpanum sýnir: Hlaðvarpaleikhúsið „Veruleika", föstudagskvöld kl. 20.30, laugardagskvöld kl. 20.30, sunnudagskvöld kl. 20.30. SÍÐUSTU SÝNINGAR í kjallara Hlaðvarpans sýnir hið nýstofnaða leikfélag, Frú Emilía, „Mercedes", föstudagskvöld kl. 20.30, sunnudagskvöld kl. 20.30, mánudagskvöld kl. 20.30. (Ath. aðeins 10 sýningar fyrirhugað- ar). ALÞÝÐULEIKHÚSIÐ sýnir í kjall- ara Hlaðvapans: „Hin sterkari" - „Sú veikari“, laugardag kl. 16.00. Ferðalög Áramótaferð Ferðafélagsins til Þórsmerkur Ferðin stendur yfir 30. des. - 2. jan. ’87 (4 dagar). Brottför kl. 07 þriðjudaginn 30. des. Fararstjórar: Einar Torfi Finnsson og Leifur Öm Svavarsson. Vegna mikillar aðsóknar í áramótaferð Ferðafélagsins er fólk vinsamlegast beðið að ná í farmiða fyrir 15. des. nk. Eftir þann tíma verða ósóttir miðar seldir öðrum. ATH.: Ferðafólk á eigin vegum getur ekki fengið gistingu í Skag- fjörðsskála um áramótin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.