Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1986, Side 2
46
LAUGARDAGUR 29. NÖVEMBER 1986.
Stórmynd
í smíðum
Mikhail Baryshnikov hefur um ára-
bil notið notið mestrar hylli allra
ballettdansara vestanhafs. Fer þar
saman að hann þykir afburða dansari
og er að auk landflótta Rússi. Þegar
listamenn eru annars vegar telja
Bandaríkjamenn þetta hina ágætustu
blöndu.
Nú hefur Misha - það er gælunafn
dansarans - ákveðið að leggja skóna
á hilluna eftir eitt eða tvö ár. Ferli sín-
um ætlar hann að Ijúka glæsilega
með kvikmynd sem þegar eru hafnar
tökur á í borginni Bari á Ítalíu.
Misha hafði tal af leikstjóranum
Herbert Ross og lagði til að þeir kvik-
mynduðu ballettinn Gisellu. Ross
leist vel á og bætti við hugmynd um
Misha og Ferri.
að láta kvikmyndina fjalla um kvik-
myndun á ballettinum og ástarævin-
týri aðalleikarans.
Næst fóru þeir félagar þess á leit
við tvístirnið Golan/Golbus að þeir
framleiddu myndina. Þeir voru um
árabil afkastamestu framleiðendur B
mynda í heiminum en hafa hin síðari
ár lagt metnað sinn í vandaðri mynd-
ir. Þeir sögu já eftir fimm mínútur.
Á móti Misha dansar ítalska fegurð-
ardísin Alessandra Ferri. Misha segir
að myndin verði með því síðasta sem
hann geri sem ballettdansari og lofar
því að lokin á ferlinum verði glæsileg.
Herferð
gegn eyðni
Ýmsum þykir merkilegt að fimm ár
skuli líða frá því að eyðnin tók að
skelfa heimsþyggðina þar til Bretar
kveiktu á perunni og hófu herferð
gegn þessum vágesti.
Síðustu daga hafa hryllingssögur
af eyðni tröllriðið breskum fjölmiðlum
eftir að heilbrigðisráðherrann ákvað
að hefja stórsókn gegn veikinni.
„Næsti rekkjunautur þinn gæti ver-
ið sá útvaldi - einn af smitberum
eyðninnar", segir í einni af auglýsing-
unum sem yfirvöld hafa látið gera.
„Deyið ekki úr fáfræði", er eitt slag-
orðið og fleira heyrist I þessum dúr.
Til stendur að koma á fót sérstakri
stofnun sem á að hafa það að verk-
efni að berjast gegn eyðninni. Þegar
hafa á þriðja hundrað Bretar látist úr
sjúkdómnum og búist er við sú tala
hafi tvöfaldast innan árs.
Þegar hefur almenningur i Bretlandi
brugðist vel við áróðu:rsherferðinni
og talið tíma til kominn að gera eitt-
hvað í málinu. Síðustu daga hafa
þúsundir manna haft samband við
leynisíma þar sem þeir sem vilja geta
samið um að mæta I eyðnipróf án
þess að láta nafns síns getið.
Midler
eignast dóttur
Betti Midler, söngkona og leikkona,
eignaðist nýverið dóttur. Þetta er fríð-
leiksbarn að sögn blaðafulltrúa
Midler. Við fæðingu var hún fast að
20 mörkum.
Midler er nú fertug og hefur ekki
eignast barn áður. Hún giftist kaup-
manninum Martin von Haselberg
fyrir tveim árum.
Betti Midler.
Ættgöfgi og
eðalsteinar
Þjófar brutust inn í hótelherbergi
Horowitz-hjónanna í Frankfurt og
stálu skartgripum sem metnir eru á
um 2 milljónir króna. Horowitz, sem
nú er 83 ára, var við tónleikahald í
Frankfurt. Hann hefur um árabil verið
einn frægasti píanóleikari heims.
Kona hans, Wanda Toscanini, er
komin hátt á áttræðisaldur. Hún er
dóttir Arturo Toscanini hljómsveitar-
stjóra sem frægur var fyrr á öldinni.
Þau Horowitz-hjón teljast því til að-
alsfólks í tónlistarheiminum.
Enn hefur ekki tekist að hafa upp á
skartgripunum sem taldir eru hafa
mikið sögulegt gildi.
Færri kallaðir
en útvaldir
E.L. Doctorow og Barry Lopez
hlutu amerísku bókmenntaverðlaunin
fyrir árið í ár. Doctorow fékk verð-
launin fyrir skáldsöguna World Fair.
Saga hans byggir að hluta til á minn-
ingum frá kreppuárunum I Bandaríkj-
unum.
Lopez fékk verðlaunin fyrir frásagn-
ir almenns eðlis. Honum þótti takast
vel upp í bók sem hann nefnir Heim-
skautadrauma. Þar fléttar hann
saman frásögnum af rannsóknarleið-
öngrum og hugleiðingum um líf á
norðurslóðum.
Við afhendinguna bar þó öllu meira
á vonbrigðum þeirra sem ekki fengu
viðurkenningu en gleði sigurvegar-
anna. Peter nokkurTaylor þótti líkleg-
ur til verðlauna en neitaði að leggja
þók sína fram fyrir dómnefnd því
„þessi verðlaun særa fleiri en þau
gleðja", eins og hann orðaði það.
Formaður dómnefndar kannast
einnig við þessi sárindi. Hann segir
að dómnefndin hafi í raun setið uppi
með þrjá sigurvegara en ekki haft
rétt til að verðlauna þá alla. Því hljóti
einhver að vera óánægður.
ER BLAÐIÐ FYRIR ALLA
JOLAFÖNDUR
Könglakerlingar, englar,
kertastjakar og fleira.
Öskubuskuævintýri um
Jannike Björling/Borg.
íslenskur skóli í London - „Að rækta
íslendinga..."
Eurythmics á poppsíðu
og fl. og fl.
VIKAN ER
FJÖLBREYTT
AÐ VANDA
HOLLYWOODKEPPNIN
Æft og undirbúiö í Broadway.