Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1986, Blaðsíða 31
FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1986.
allt önnur
ELLA
Elín Þórarinsdóttir, barnabarn séra Árna Þórarinssonar, pró-
fasts á Stórahrauni, varsaklaus sveitastúlka þegar hún kom til
höfudstaðarins nokkrum árum eftir stríð. Þá kynntist hún
Gunnari Salómonssyni, öðru nafni Úrsusi, annáluðum krafta-
jötni og alþjóðlegum aflraunamanni. Þrátt fyrir 25 ára aldurs-
mun felldu þau hugi saman og giftust. Leið Ellu lá nú út í heim
þar sem hún gerðist fegurðardrottning og slagarasöngkona og
fylgdi Úrsusi stnum gegnum súrt og sœtt; í kastljósum fjölleika-
húsa og utan þeirra.
ALLT ÖNNUR ELLA er þroskasaga konu sem eftir þrjú hjóna-
bönd og ótrúlegt lífsvolk verður allt önnur Ella. ALLT ÖNNUR
ELLA bregður upp svo mörgum fjörlegum myndum sorgar og
gleði, eymdar og allsnœgta, brennandi ástar og svartasta hat-
urs, að lesandinn hlýtur að undrast, hve blandaðir ávexlir einn-
ar ævi geta orðið.
Ingólfur Margeirsson ritstjóri sló
rækilega í gegn með bók sinni
um Guðmundu Elíasdóttur, LÍFS-
JÁTNINGU, sem var umsvifa-
laust prentuð í þremur stærðar
upplögum og tilnefnd fyrst slíkra
bóka til Bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs. Ingólfur á svo
auðvelt að nálgast viðmælendur
sína og segja sögu þeirra í
áreynslulausri frásögn, að naum-
ast verður betur gert.
NUTIMAFOLK
Bókin um einstaklinginn í einkalífi og
starfi. Gagnleg bók handa fólki á öllum aldri
I Nútímafólki er m.a. leitast uiö ad
svara þessum spurningum:
• Hvað mótar einstaklinginn?
• Hvernig pössum við saman?
• Hvers vegna ganga sum sambönd
en önnur ekki?
• Hvers vegna rífumst við?
• Hvernig hjálpum við börnum
best í skilnaði?
• Hvernig vegnar þér í starfi?
• Hvernig eru samskiptin á
vinnustað?
• Andlegt heilbrigði — hvað er
að vera „ normal“?
Islensk bók sem á
erindi vid alla og þig
líka
Höfundar Nútímafólks eru
hinir kunnu sálfræðingar Álf-
heiður Steinþórsdóttir og
Guðfinna Eydal. Þær reka f
sameiningu sjálfstætt fyrirtæki
á sínu sviði, Sálfræðistöðina,
þar sem þær bjóða m.a. upp á
einkaviðtöl og starfsráðgjöf.
Álfheiður og Guðfinna hafa á
undanförnum árum efnt til
námskeiða um land allt og hafa
þúsundir manna sótt þessi
námskeið, sem bæði hafa verið
sniðin að þörfum almennings,
sérhæfðra starfshópa og at-
vinnufyrirtækja. Þá hafa þær
ritað fjölda greina í blöð og
tímarit.