Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1987, Side 3
FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1987.
21
RÚV sunnudag kl. 13.30:
Mynd af listamanni
Sigrún Biömsdóttir tók saman
þátt um Oskar Gíslason kvik-
myndagerðarmann og ljósmyndara
í þáttaröðinni Mynd af listamanni.
En Óskar er, eins og ýmsum er
kunnugt, meðal atkvæðamestu
brautryðjenda í íslenskri kvik-
myndagerð, að minnsta kosti fram
að „Vorinu“ í íslenskri kvik-
myndagerð sem hófst með stofnun
Kvikmyndasjóðs 1978. En á þeim
tíma sem Óskar og aðrir íslenskir
starfsbræður hans í listinni unnu
sem ötullegast að kvikmyndagerð
voru engir styrkir eða aðstoð af
opinberri hálfu til kvikmyndagerð-
ar. Má sem dæmi taka mynd
Óskars af lýðveldishátíðinni 1944,
sem er merk heimildarmynd, og
maður skyldi ætla að það væri í
þágu hins opinbera að taka, en svo
var ekki, Óskar bar hitann og
þungann af kostnaði.
í þættinum á sunnudaginn verð-
ur rætt við Óskar sjálfan, sam-
starfsmenn hans frá ýmsum
mismunandi tímabilum í starfsferli
hans, þá Ævar R. Kvaran leikara
og leikstjóra og Helga Sveinbjörns-
son, ljósmyndara og fyrrverandi
samstarfsmann úr sjónvarpinu.
Ennfremur flytur Erlendur Sveins-
son kvikmyndagerðarmaður erindi
um Óskar og stöðu hans í íslenskri
kvikmyndasögu. Flutt verður tón-
list eftir Jórunni Viðar tónskáld,
sem hún samdi nýkomin frá námi
við fyrstu leiknu kvikmyndina sem
hann gerði, „Síðasti bærinn í daln-
um“. Tónlistarflutningurinn er
allur af upphaflegri hljóðritun,
1949.
Rætt verður við Oskar Gíslason sjálfan og marga af samstarfsmönnum
hans.
Fjallað verður á sunndag um hinn
eftirsótta og dýra málm, gullið, i
sjónvarpinu.
Sjónvaip sunnud kl. 17.10:
Góð-
málm-
uriim
gull
Heimildarmynd um þann eftirsótta
og dýra málm, gullið, verður á dag-
skrá sjónvarpsins á sunnudag.
Fjallað verður um hlutverk hans í
viðskiptum og iðnaði fyrr og síðar.
Meðal annars verður litið yfir sögu
gullsins, af hverju það náði slíkum
vinsældum sem raun ber vitni.
Einnig verður fjallað um notagildi
þess í daglegu lífi manna. Nokkur
afbrigði gulls eru til og má þar
nefna rauðagull, hvítagull og fleiri.
Fjallað verður um af hvaða rótum
þau eru sprottin. En oft sannast
málshátturinn: Ekki er allt gull
sem glóir.
Sjónvarp laugd. kl. 21.50:
Ástir
og
ananas
Blue Hawaii eða öðru nafni Ástir
og ananas með rokkkóngi allra
tíma, Elvis Presley, í aðalhlutverki
er fyrri mynd sjónvarpsins á laug-
ardagskvöldið, hvaða samband sem
svo er þar á milli. Myndin er
bandarísk frá árinu 1961 og segir
frá hermanni (Elvis Presley) sem
snýr heim til foreldra sinna á
Hawaii eftir að hafa gegnt her-
skyldu. Faðir hans vill láta piltinn
fara að hugsa ráð sitt og taka við
fjölskyldufyrirtæki sínu en hann
er alls kostar óráðinn um framtíð-
ina og vill njóta frelsisins meðan
hann hugsar ráð sitt. Með öðrum
orðum njóta ásta og ananas.
í mynd þessari syngur Elvis
nokkur gullkorna sinna sem eiga
við hina rómatísku Hawaii.
Leikarar auk Presleys eru Joan
Blakman, Nancy Walters, Roland
Winters og Angela Lansbury. Leik-
stjóri er Norman Taurog.
Elvis Presley leikur hermanninn
sem vill njóta frelsisins I Blue
Hawail.
Bylgjan sendir beint út frá Akureyri á laugardagskvöldió, en þar í bæ verður sannkallaó Akureyrarfestival
meö Ingimar Eydal og hljómsveit hans í broddi fylkingar.
Bylgjan laugardag kl. 14.00:
Akureyri síðdegis
og langt fram á nótt
Bylgjan ætlar nú að breyta held-
ur betur til og senda á laugardegin-
um út frá Akureyri. I fyrstu frá kl.
14.00 til 17.00 og aftur frá klukkan
22.00 til 02.00 eftir miðnætti. Með
í þeirri för eru Helgi Rúnar Óskars-
son sem ætlar að spila Bylgjuvin-
sældalistann. Jón Axel mun segja
nokkra góða brandara og hlæja
með. Að síðustu að deginum til
mun Hallgrímur Thorsteinsson
vera með þátt sinn sem nú nefnist
Akureyri síðdegis. Þar mun Hall-
grímur rekja garnirnar úr nokkr-
um Akureyringum og öðrum í
nágrenninu. Um kvöldið hins veg-
ar færa þeir sig yfir í Sjallann í
beina útsendingu og rifja upp
gamla Akureyrarstemmningu eins
og þegar hún var upp á sitt besta.
Meðal gesta í Sjallanum verða
að sjálfsögðu Ingimar Evdal ásamt
hljómsveit sinni. Hjónakornin
Finnur og Helena munu líta inn
og rifja upp gamlar minningar.
Einnig mun Bjarki Tryggvason
mæta til leiks ásamt Þorvaldi
Halldórssyni og Páli Jóhannssyni
tenór. Raddbandið skemmtir og
Bubbi Morthens ætlar að kasta
kveðju sinni á Akureyringa. Sann-
ast sagna verður eitt stórt Akur-
eyrarfestival í Sjallanum á
laugardagskvöldið sem við Reyk-
vikingar fáum nú að njóta í beinni
útsendingu.
Jóhanna Hafliðadóttir flytur leikdóm um barnaleikritið Rympa á rusla-
haugnum eftir Herdisi Egilsdóttur, sem frumsýnt var um siðustu helgi.
RÚV laugardag kl. 14.00:
íslenskar
aíþreyingarbókmermtir
í Sinnu. sem er á dagskrá rás.ar
eitt klukkan tvö á laugardögum.
er fjallað um listir og ntenningar-
mál. í þættinum á morgun. laugar-
dag. kl. 14.00 verður rætt við
rithöfundana Snjólaugu Bragad-
óttur og Birgittu H. Halldórsdótt-
ur. Þuríður Jóhannsdóttir mun
síðan ræða um verk þessara höf-
unda svo og bækur Ingibjargar
Sigúrðardóttur.
Síðast á dagskrá Stöðvar 2 á
laugardag er bandaríska kvik-
myndin Auglýsingastofan (Ag-
ency) frá 1984. Hún segir frá
mikilsverðu auglýsingafyrirtæki
sem er skyndilega selt utanaðkom-
andi aðila. Eftir að þessi skipti eiga
sér stað verða umtalsverðar breyt-
ingar á fyrirtækinu, á örskömmum
Jóhanna Hafliðadóttir flytur
leikdóm um barnaleikrítið Ryntpa
á ruslahaugnum eftir Herdisi Eg-
ilsdóttur. sem frumsýnt var um
síðustu helgi.
Ragnheiður Gvða Jónsdóttir
ræðir við Gerði Steindórsdóttur um
Norræna þýðingarsjóðinn. Einnig
verður fjallað um mvndlist í þætt-
inum. Umsjónarmaður þáttarins er
Þorgeir Ólafsson.
tíma og með leynd. Þrir starfsmenn
komast á snoðir um að ekki er allt
með felldu varðandi rekstur hins
nýja aðila.
Leikararnir eru ekki af verri end-
anum en þeir eru: Robert Mitchum.
Lee Majors, Valerine Perrine, Saul
Rubinek og Alexandra Stewart.
Leikstjóri er George Kaczender.
Stöð 2 sunnudag kl. 21.10:
Dagbók
Önnu
Frank
Dagbók Önnu Frank er löngu orðin
heimsfræg saga og sígilt bók-
menntaverk. Þar segir frá ungri
gvðingastúlku á þeim tima er Þjóð-
verjar gerðu innrás í Holland í
seinni heimsstyrjöldinni. Fjöl-
skvldan þurfti að fara í felur vegna
uppruna síns. sem ekki þarf að fara
mörgum orðum unt. og levndist hún
uppi á háalofti í tvö ár uns hún
fannst og var send i fangabúðir.
Dagbók Önnu Frank er sann-
söguleg og endurspeglar hörmung-
ar stríðsins -og ofsóknirnar á
hendur gyðingum. Leikendur eru
Maximilian Schell. Joan Plowright
og Melissa Gilbert (Húsið á slét-
tunni).
Melissa Gilbert, betur þekkt úr
Húsinu á sléttunni, leikur eitt aðal-
hlutverkið i dagbók Önnu Frank.
Stöð 2 laugardag kl. 23.50:
Leynd auglýsingastofuxmar