Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1987, Blaðsíða 1
FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987. 19
Dansstaðir - Matsölustaðir - Leikhús - Sýningar - Kvikmyndahús - Myndbönd o. f 1.
Ef þú vilt dansa
Ártún,
Vagnhöfða 11, sími 685090.
Gömlu dansarnir á föstudagskvöld. Hljóm-
sveitin Danssporið ásamt söngkonunni
Kristbjörgu Löve. Lokað laugardags-
kvöld.
Broadway,
Álfabakka 8, Reykjavik, sími 77500
Skemmtidagskráin „Allt vitlaust" á fóstu-
dagskvöld, kynning á ungfrú ísland en
krýningarkvöldið verður á mánudags-
kvöld. Á laugardagskvöld verður lokað.
Casablanca,
Skúlagötu.
Diskótek föstudagskvöld. Megas á laugar-
dagskvöld, opið til kl. 23.30.
Evrópa
v/Borgartún
Diskótek, opið til kl. 03 á föstudagskvöld
og til kl. 23.30 á laugardagskvöld.
Hollywood,
Ármúla 5, Reykjavík,
„Leitin að týndu kynslóðinni", lifandi tón-
list áranna fyrir 1975.
Hótel Borg,
Pósthússtræti 10, Reykjavík, sími 11440
Diskótek iöstudags- og laugardagskvöld.
Opið til kl. 23.30 á laugardagskvöld.
Gömlu dansamir á mánudagskvöld.
Hljómsveit Jóns Sigurðssonar leikur.
Hótel Esja, Skálafell,
Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, sími
82200
Dansleikir á föstudags- og laugardags-
kvöld. Tískusýning öll fímmtudagskvöld.
Hótel Saga
v/Hagatorg, Reykjavík, sími 20221
„Laddi og félagar" föstudagskvöld.
Lennon
við/Austurvöll, Reykjavík, sími 11630
diskótek föstudags- og laugardagskvöld.
Miami
Skemmuvegi 34, Kópavogi, simi 74240.
Diskótek föstudaga og laugardaga. Ald-
urstakmark 16 ára.
Casablanca
við Skúlagötu
Diskótek um helgina.
Uppi og niðri,
Laugavegi 116, Reykjavik, sími 10312
Opið alla daga vikunnar, lifandi tónlist.
Þórskaffi,
Brautarholti 2, Reykjavík, sími 23333
Grínveisla ársins. Þórskabarett á föstu-
dagskvöld. Hljómsveitin Santos ásamt
söngkonunni Guðrúnu Gunnarsdóttur.
Lokað laugardagskvöld.
Tónleikar
Tónleikar í Selfosskirkju
Föstudaginn 5. júm' kl. 20.30 munu Nora
Komblueh sellóleikari, Óskar Ingólfsson.
klarínettuleikari og Snorri Sigfús Birgisson
píanóleikari halda tónleika í Selfosskirkju. Á
efnisskrá tónleikanna em einleiks- og kam-
merverk eftir Lutoslawski, Webem, Schum-
ann, Stravinsky, Beethoven og Snorra Sigfús.
Grafík á ísafirði og
í Reykjavík
Hljómsveitin Grafík verður með tónleika í
Uppsölum á Isfirði laugardagskvöldið 6. júní
og hefjast þeir kl. 21. Munu þeir leika efni
af væntanlegum hljómplötum. Þess má geta
að meðlimir sveitarinnar em frá Isafirði og
verða þetta einu tónleikamir þar á þessu
ári. Mánudagskvöldið 8. júní spila þeir á
Hótel Borg og kemur Sniglabandið einnig
þar fram.
Keflavikurgangan í ágúst 1985.
Tíunda Keflavíkurgangan
Samtök herstöðvaandstæðinga
efna til Keflavíkurgöngu á morg-
un, laugardag. Þetta er 10. Kefla-
víkurgangan sem andstæðingar
erlendrar hersetu á íslandi hafa
efnt til síðan sú fyrsta var farin
vorið 1960. Gengið verður undir
hinum klassísku kjörorðum her-
stöðvaandstæðinga um endurreisn
hlutleysisstefnunnar, brottför
hersins og úrgöngu úr NATO.
Gangan mun einnig mótast af þeim
umræðum sem eiga sér nú stað um
víðtæka afvopnun í Evrópu og
verður í brennidepli 11. og 12. júní.
í Keflavíkurgöngunni verður einn-
ig knúið sterklega á um að íslensk
stjórnvöld virði þann almannavilja
sem skoðanakannanir sýna að er
ríkjandi um kjarnorkuvopnalaus
Norðurlönd.
Dagskrá Keflavíkurgöngunnar
er á þá leið að við aðalhlið her-
stöðvarinnar mun Ólafur Ragnar
Grímsson flytja ávarp og göngu-
hvatning kemur frá Ingibjörgu
Haraldsdóttur, kennara og for-
manni Samtaka herstöðvaand-
stæðinga. I Vogunum mun Ægir
Sigurðsson kennari fjalla um stað-
hætti og þjóðsagnir í nágrenni
herstöðvar. I Kúagerði verður súpa
og hvíld, lesið verður úr ljóðum,
fluttur leikþáttur og alménnur
söngur. Þegar komið verður að
Straumi mun Sigurður G. Tómas-
son verða með fróðskap um jarð-
fræði og sögu. í Kópavogi verður
ennfremur staldrað við og endar
gangan á Lækjartorgi þar sem flutt
verður ávarp og Bubbi Morthens
syngur og leikur. Fundarstjóri á
Lækjartorgi verður Birna Þórðar-
dóttir.
Rútuferðir verða frá BSÍ að aðal-
hliði herstöðvarinnar. Skráning í
gönguna er á skrifstofu herstöðva-
andstæðinga í síma 17966 og
623170.
Gjörningur
við Gallerí
Svart
á hvítu
Listakonan Viola Pfordte frá
Vestur-Berlín fremur gjörning fyrir
utan Gallerí Svart á hvítu við Óð-
instorg á hvítasunnudag kl. 23.
Viola stundaði nám við listahá-
skólann í Kiel 'í Þýskalandi á
árunum 1978-’82. Hún hefur verið
búsett í Vestur-Berlín síðan 1982
þar sem hún vinnur að list sinni
meðal annars í náinni samvinnu
við kvikmyndagerðarmenn og tón-
listarmenn.
Gjömingar Violu eru unnir út frá
ákveðnu þema, til dæmis samspili
ljóss og hreyfingar. I þeim notar
hún kvikmyndatækni og málverk
jöfnum höndum. Eftir námsdvöl í
New York 1984 hefur hún kannað
möguleikana á notkun elds í gjörn-
ingum sínum.
I síðasta hluta gjörningsins á
sunnudaginn mun Viola Pfordte
nota þessa tækni sem húr. kallar
„með eldinn í höndunum".
í tilefni gjörningsins verður opið
i Gallerí Svart á hvítu til kl. 23 á
sunnudagskvöldið en þar er nú
sýning á verkum Borghildar
Óskarsdóttur sem stendur til ann-
ars í hvítasunnu.
Frá Brekkuhlaupinu ’86 sem hátt i fimm hundruð börn tóku þátt i.
Hátíðíbæ:
Brekkuhlaupið
rásnúmerum. í verðlaun er glæsi-
legt reiðhjól. Fallhlífarstökkvari
stekkur af himnum ofan og dreifir
karamellum og síðast en ekki síst
mun Jóhann Hjartarson tefla fjöl-
tefli og fjölbreytt skemmtidagskrá
verður fyrir þá allra yngstu.
I fyrra mættu hátt í fimm hundr-
uð börn til leiks og ekki er búist
við síðri þáttöku í ár.
Hið árlega Brekkuhlaup, sem
nánast allt snýst um á Akureyri,
verður haldið á Hamarstúninu á
laugardag. Skráning í hlaupið hefst
klukkan 12 og hlaupið verður af
stað kl. 13. Keppt verður í þremur
greinum drengja og stúlkna. Og í
lokin fá allir gos og sælgæti og
jafnframt verður happdrætti í
gangi þar sem dregið verður úr
Megas og Bubbi hrella i sameiningu Stapadrauginn i kvöld.
Bubbi og Megas
í Stapanum
Megas hefur að undanförnu ve-
rið á ferð hringinn í kringum
landið og er senn að ljúka tónleika-
för sinni. í kvöld, föstudagskvöld,
verður næstsíðasta skemmtun
hans, en þá mun meistari Megas
ásamt Bubba Morthens taka lagið
í Stapanum í Njarðvík, bæði gömul
og ný lög, og hefjast tónleikarnir
stundvíslega kl. 21.00.
Á laugardagskvöldið endar svo
Megas tónleikaferð sína i Reykja-
vík á skemmtistaðnum Casablanca
og hefjast þeir tónleikar einnig
klukkan 21.00.