Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1987, Page 15
LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1987.
15
Veitinghús
Ekki lengur þrengsli
Eftir millilendingu á hamborg-
arabúlunni Sprengisandi er Úlfar
Eysteinsson af Pottinum og pönn-
unni aftur kominn i sitt rétta
umhverfi í Úlfari og Ljóni við
Grensásveginn. Þar hefur hans
gamli veitingastaður gengið í end-
urnýjun lífdaganna, með meira
svigrúmi en áður var.
Gallinn við fyrirmyndarstaðinn
Pottinn og pönnuna fólst í þrengsl-
unum þar. Ulfar og Ljón hafa flesta
kosti hans, en hins vegar ekki
þennan galla. Hátt er til lofts og
vítt til útveggja í nýja, 60-70 sæta
staðnum. Borðin standa dreift og
yfirleitt með góðu bili á milli. Eld-
húsið er opið inni í sal, eykur
víðáttutilfinninguna og gerir raun-
ar staðinn nánast berangurslegan.
Að útliti eru Úlfar og Ljón afar
hlutlausir og hversdagslegir í sam-
anburði við þaulhugsuðu og
vönduðu innréttingarnar í Pottin-
um og pönnunni.
Þetta er fjölskyldustaður, staður
hjóna og barna, þótt einkum sé
boðið upp á fiskrétti, en slíkir höfða
venjulega ekki til barna. Vinsæld-
irnar stafa af verðlaginu, sem er
lítið hærra en í matstöðum með
mötuneytisfyrirkomulagi, þar sem
raðir af fólki bíða eftir, að ausið
sé úr stálhólfum upp á diska. Hér
er full þjónusta, utan þess að gestir
borga við útganginn. Samkvæmt
vinsælli reikningsaðferð minni
borgar fólk á þessum stað 20% fyr-
ir þetta ofan á Múlakaffisverð.
Brosandi þjónusta
Menn borga hins vegar ekkert
aukalega fyrir gæði þjónustunnar,
sem er alveg sérstök, betri en á
mörgum fínu stöðunum, þar sem
fólk hefur taudúka og tauþurrkur
og drekkur vín með mat. Hér bros-
ir starfsliðið hreinlega við gestum
eins og gömlum vinum. Mér finnst
þetta leiða til þægilegs andrúms-
lofts og hef tekið eftir, að mörgum
öðrum finnst það líka. Og starfslið-
ið brosir ekki bara, heldur lætur
einnig í té skjóta og örugga þjón-
ustu.
Kokkahúfur eru fyrir matreiðslu og
blóm fyrir umhverfi og þjónustu, en
krónupeningarnir tákna verðlagið.
Úlfar er yfirleitt á vettvangi, oft-
ast sjálfur við pottana. Stundum
er hann þó á bílaralli uppi í sveit.
Ég kom nýlega í Úlfarslausu
sunnudagshádegi og fannst mat-
reiðslan vera ívið slakari en
venjulega. Maturinn var meira eld-
aður og meira kryddaður en
venjulega, hvort tveggja til nokk-
urs baga.
Jónas Kristjánsson skrifar um veitingahús:
Ulfar og Ljón
bíta ekki fólk
á Grensásvegi
Þurrkuð loðna á salatborði
Sérgreinar Úlfars og staðar hans
eru hinar sömu og í gamla daga,
annars vegar fiskréttir og hins veg-
ar salatborð, sem ég held, að sé hið
bezta i bænum. Þar eru ótal skálar
af fersku og girnilegu grænmeti,
sem búa meðal annars y_fir fallegum
sveppum og hreðkum. í einni skál-
inni hefur að undanförnu verið
þurrkuð loðna, nytsamleg fæða áð
mati Japana.
Ekki þarf að hafa áhyggjur af
gömlum lummum á fastaseðli, því
að hann er enginn. Aðeins er boðið
upp á breytilegan seðil dagsins með
um það bil tólf réttum. I verði
þeirra er innifalin súpa dagsins
með nokkrum tegundum brauðs og
aðgangur að hinu viðamiklu salat-
borði. Eftirréttur er alls enginn í
boði. Af réttunum tólf eru yfirleitt
um tiu fiskréttir og svo tveir kjöt-
réttir handa hinum óforbetranlegu.
Margir réttanna eru óbreyttir á
seðlinum dögum og vikum saman,
svo sem gratineraður plokkfiskur
með rúgbrauði og blandað sjávar-
réttagratín. Ég saknaði hins vegar
hvítlaukskryddaðs saltfisks að
portúgölskum hætti. sem var á
seðlinum um daginn, en hvarf síð-
an. Ég þarf að bíða tækifæris og
stökkva á hann, næst þegar hann
birtist á seðlinum.
Úlfar prófar stundum nýjungar.
í rúmt ár hefur hann oft boðið
smálúðubita í súrsætri sósu að kín-
verskum hætti. Þetta er góður
réttur, enda er sósan skarpari og
síður sæt en slíkum sósum hættir
til að vera á vestrænum Kínastöð-
um. Fyrir bragðið er maturinn
frískari en ella.
Rauðmagi á súrkáli
Um svipað leyti voru á seðlinum
ein nýjasta uppfinning Úlfars,
pönnusteikt rauðmagaflök, sem
lágu á súrkáli, borin fram með pip-
arsósu. Súrkálið hæfði vel rauð-
maganum, sem var óvenjulega
bragðmildur. Með þessu fylgdu
kartöflur og gulrætur, hvort
tveggja soðið hæfilega skamma
stund.
Nýlega prófaði ég einnig kunn-
uglegri rétti, pönnusteikt karfaflök
með tómati og bræddum osti,
eggjahúðuð og pönnusteikt Svína-
vatns-silungsflök St. Germain og
steinbítspiparsteik með piparsósu.
Allt voru þetta góðir réttir, yfir-
leitt heldur meira eldaðir en
nauðsynlegt er, sérstaklega þegar
Úlfar var fjarri.
Súpur dagsins hafa verið tær
seyði, ekki hinar hvimleiðu hveiti-
súpur, sem of víða sjást í veitinga-
húsum hér á landi. Sósur bera hins
vegar oft vitni um hveiti. Kaffið
eftir matinn er gott, kostaði aðeins
tíu krónur, borið fram með pipar-
myntukúlum.
570 krónur á mann
Súpa, aðalréttur, grænmeti og
kaffi kostar að meðaltali 570 krón-
ur, ef fiskur er va’;^SSrf>g 700
krónur, ef það er kjö'.:r 1 -v-^þess-
um tölum felst óhófleg verðbólgS,
um 45%, frá samn tíma í fvrra.
Samanburður verðs og gæða í þjón-
ustu og matreiðslu setur samt Úlfar
og Ljón enn sem fyrr í úrvalsflokk
íslenzkra veitingahúsa.
Úlfar og Ljón eru almenningi
menningarauki, sem ekki er þung-
ur á fóðrum. Gagnstætt nöfnum
sínum úti í náttúrunni bíta þeir
ekki fólk. -og alls ekki fjárhags-
lega.
Jónas Kristjánsson
Matseðill dagsins
Kjötseyði
480 Gratineraður plokkfiskur með ri^brauð;
560 Blandað sjávarréttagratín *
570 Pönnusteikt heilagfiski með rækjum. ofnbakað
560 Heilsteikt rauðsprettuflök hússins
550 Pönnusteikt karfaflök með tómati og bræddum osti
570 Smálúðubitar í súrsætri sósu
530 Pönnusteikt rauðmagaflök á súrkáli og grænpiparsósa
550 Gratineraðar eellur
550 Steinbítspiparsteik með piparsósu
590 Pönnusteikt Svínavatns-silungsflök St. Germain
590 Hvalkjöts-piparsteik með piparsósu
790 Nauta-mínútusteik með steiktum sveppum
290 Salat og súpa
Ferðafólk - unglingar - sumarbústaðaeiqendur!
Nú geta menri slegið þrjár flugur í tveim högg-
um og horft á sjónvarpsfréttirnar í útilegunni
(og jafnvel tekið þær upp).
RTC 8330
220/12 volt + rafhlööur
3 bylgjur á útvarpi - einfalt kasettutæki
5" skermur - allar rásir á sjónvarpinu.
Hljómgott tæki fyrir kröfuharöa.
kr. 15.600,-
RTC 8310
220/12 volt + rafhlöður - tvöfalt kasettutæki
3 bylgjur á útvarpi. Tekur allar sjónvarpsrásir
5" skermur - 3 banda tónjafnari o.fl. o.fl.
Vandaö tæki við allra hæfi.
kr. 18.340,-
TENS4I SJONVARPSMIÐSTÖÐIN
Síðumúla 2 - sími 39090 og 68-90-90