Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1987, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1987.
21
Skák
Fómarskákir
á millisvæðamóti
Fyrsta millisvæðamótið af þremur
stendur nú yfir í júgóslavneska
landamæírabænum Subotica og eins
og jafnan á millisvæðamótunum,
stefnir í harðvítuga baráttu í loka-
umferðunum. Fjórir efstu menn
komast áíram í áskorendakeppnina
og þaðan liggur síðan leiðin, sam-
kvæmt venju, upp metorðastigann á
slóðir Karpovs og Kasparovs.
Nokkurt ólán hefur hvílt yfir þessu
móti því að tveir skákmenn hafa
forfallast. Vestur-þýski stórmeistar-
inn og sérvitringurinn Robert
Húbner mættu ekki til leiks og er
það ekki í fyrsta skipti sem slíkt
hendir hann i heimsmeistarakeppn-
inni. Hann lét ekki vita með nægum
fyrirvara að hann ætlaði að sitja
heima svo að ákveðið var að kepp-
endur yrðu einungis 17 i stað 18 sem
fyrirhugað var. Er tefldar höfðu ver-
ið 7 umferðir á mótinu varð banda-
ríski stórmeistarinn Kavalek síðan
að hætta vegna veikinda. Það eru
því aðeins 16 skákmenn eftir og stað-
an í mótinu vill því verða nokkuð
óljós þar eð skákmeistaramir hafa
teflt misjafnlega margar skákir.
En það er barist með kjafti og klóm
til þess að hreppa eitt af fjórum efstu
sætunum. Að loknum 12 umferðum
voru þrír skákmenn jaffiir efstir með
8 v. úr 11 skákum - allir höfðu setið
yfir einu sinni: Englendingurinn
knái, Nigel Short, landi hans, Jonat-
han Speelman, og Ungverjinn Zoltan
Ribli. I humátt á eftir þeim þremen-
ingum kom „töframaðurinn"
Mikhail Tal, með 7 'A v„ einnig út
úr 11 skákum. Síðan kom Rodrigu-
ez, frá Kúbu, með 6 'A v. (af 11), þá
Marjanovic með 6 v. (af 10), Zapata,
Kólumbíu, með 6 v. (af 11) og í 8.
sæti var Sax, Ungveijalandi, með
5 'A v. og biðskák að auki úr 10 skák-
um.
Þeir sem neðar koma eiga ekki
möguleika. Alburt og Emst hafa 4'/2
v„ Smyslov 4 v. og biðskák, Popovic
4 v. (allir eftir 10 skákir), Tsjemín
með 4 v„ Xu með 3 '/2 v„ Prasad með
2 Zi v. og Hamed með 1 'A v. (allir
eftir 11 skákir).
Millisvæðamót númer tvö, það sem
haldið er í Szirak í Ungveijalandi,
vekur mestan áhuga okkar íslend-
inga því að þar er Jóhann Hjartar-
son meðal þátttakenda. Mótið hófst
í gær og stendur til 10. ágúst. Jóhann
er þar í góðum hópi skákmanna -
margir telja að þetta mót sé best
skipað mótanna þriggja en um það
má auðvitað ávallt deila. Elvar Guð-
mundsson er Jóhanni til halds og
trausts í Szirak sem er smábær um
80 km norðaustur af Búdapest. Teflt
er þar í gömlum kastala sem eitt sinn
var sumardvalarstaður ungversks
hefðarfólks en hefur nú verið breytt
í þriggja stjörnu hótel. Þeir sem tefla
í Szirak ásamt Jóhanni eru sovésku
stórmeistaramir Beljavsky og Salov,
Ljubojevic og Velimirovic, frá Júgó-
slavíu, Christiansen og Benjamin frá
Bandaríkjunum, Svíinn Ulf Anders-
son, Nunn og Flear, Englandi,
Spraggett frá Kanada, Milos frá
Brasilíu, Buaziz frá Túnis og að síð-
ustu Lajos Portisch ásamt einum
keppanda til viðbótar frá heima-
landinu. Hörkumót í uppsighngu í
Szirak.
Erfiðlega gekk að finna keppnis-
stað fyrir þriðja millisvæðamótið en
nú hefur verið ákveðið að það verði
haldið í Zagreb í Júgóslavíu í ágúst.
Þar tefla engir aukvisar fremur en
í hinum mótunum: Koi-tsnoj, Spas-
sky, Nikolic, Polugajevsky, Seira-
van, Pinter, Miles, Nogueiras,
Granda Zuniga, Eingom, Grunfeld,
Torre, Barlov, Inkiov, Hickl, Elvest
og Baratar.
En víkjum sögunni aftur til Su-
botica. Þar hefur verið fjörlega teflt
og ekkert gefið eftir enda er mikið
f húfi. Sá sem mest hefur komið á
óvart er enski stórmeistarinn Jonat-
han Speelman sem teflir sérlega
ftísklega. Speelman hefur náð mjög
góðum árangri að undanfórnu.
Skák
Jón L. Árnason
Hann varð yfirburðasigurvegari á
breska svæðismótinu í Bath í febrúar
- fékk 9 v. af 10 mögulegum. Síðan
deildi hann efsta sætinu með
Kortsnoj á alþjóðlegu móti í Beers-
heva í Israel í byrjun apríl og tefldi
vel. Hann er stærðfræðingur að
mennt og grænmetisæta. Þegar þetta
tvennt fer saman að vibættum stór-
meistaratitli hlýtur útkoman að
verða hálfgerður furðufugl. Enda er
Speelman nokkuð einkennilegur í
háttum en afar skemmtilegur maðui'
og hugmyndaríkur skákmaður. í
vegabréfinu segir að hann sé rithöf-
undur!
Skoðum tvær skákir Speelmans frá
Subotica sem eru dæmigerðar fyrir
taflmennsku hans. I báðum skákun-
um leikur taflborðið á reiðiskjálfi
og allt er lagt í sölumar. Speelman
sér um flugeldasýninguna í seinni
skákinni en í þeirri fyrri verður hann
fómarlamb leikfléttusnillingsins frá'
Riga.
Hvítt: Mikhail Tal
Svart: Jonathan Speelman
Caro-Kann vörn.
1. e4 cfi 2. d4 d5 3. Rd2 dxe4 4. Rxe4
Rd7 5. Bc4 Rgffi 6. Rg5 e6 7. De2 Rb6
8. Bb3
Tal fetar ekki í fótspor Sokolovs
gegn Karpov, sem lék 8. Bd3 en réðst
á vegg, Leikur Tals er vel þekktur
en hefur af einhverjum ástæðum
„ekki verið í náðinni".
8. - h6 9. R5f3 a5 10. a3 Be7
Algengara er 10. - a4 11. Ba2 c5
og reyna að ráðast strax til atlögu
á miðborðinu.
11. Bd2 Rbd5 12. c4 Rc7 13. Bc2 0-0
14. Re5!
Töframenn hugsa ekki um peðin
sín! Speelman bítur á agnið enda
þótt ljóst sé að hvítur fái yfirburði
í liðsskipan og lumi á hættulegri
sókn uppi í erminni.
14. - Dxd4?! 15. Bc3 Dd816. Rgfí Rce8
17. g4! b5 18. g5 hxg5 19. Rxg5 Ha6 20.
Df3 b4 21. Dh3! g6
22. Bxg6!
Þar er Tal rétt lýst. Hvítreitabisk-
upinn má svartur ekki drepa því að
eftir 22. - fxg6 23. Rxg6 er óveijandi
máthótun á h8.
22. - bxc3 23. Rexf7 Dd2+ 24. Kfl
Hxf7 25. Bxf7+ Kg7 26. Hgl! Dxg5
Hann á ekki aðra leiki því að
kóngurinn var berskjaldaður fyrir
hvítu sókninni. En svartur fær ekki
nægilegt lið fyrir drottninguna.
27. Hxg5+ Kxf7 28. bxc3 e5??
Speelman var fljótur að gefast upp
er hann sá hvað hann hafði gert.
Biskupinn á c8 er valdlaus og fellur
í næsta leik.
Hvítt: Devaki Prasad
Svart: Jonathan Speelman
Sikileyjarvörn.
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 d6 6. Bc4 Db6 7. Rb3 e6 8.
Be3 Dc7 9. Bd3 a6 10.a4 b6 11. f4 g6
12. 0-0 Bg7 13. De2 0-0 14. g4?
Algeng sóknartilraun í Sikileyjar-
vöminni en í þessari stöðu er þetta
vindhögg því að svartur er vel í
stakk búinn til þess að mæta atlög-
unni.
14. - Rb4 15. g5 Rd7 16. f5 exf5 17.
exf5 Bxc3!? 18. bxc3 Rxd319. cxd3 Bb7
Speelman gaf vai-narbiskup sinn á
svörtu hornalínunni með glöðu geði
því að nú á hvítreitabiskup hans
engan andstæðing. Þetta er góður
efniviður í stórsókn að hvítu kóngs-
stöðunni sem er orðin fremur skjól-
lítil eftir æðibunugang peðanna.
20. Rd4 Hae8 21. Dd2 Ba8 22. Kf'2 He5
23. Bf4 Hfe8!
Snjöll hugmynd. Eftir 24. Bxe5
dxe5 25. Rf3 Rc5 hefur svartur öll tök
á stöunni og býst til að brjótast fram
með e-peðinu.
24. Kg3 Rc5 25. Kh4!? Dd7 26.. Habl
Rxa4 27. Bxe5 dxe5 28. fxg6 hxg6 29.
Rc2
29. - Rxc3! 30. Dxc3 Bg2!
Frumleg flétta enda er staðan
óeðlileg með hvíta kónginn úti á
kanti. Svartur hótar máti á h3 og
þennan reit getur hvítur ekki varið.
Ef 31. d4, þá 31. - exd4 32. Rxd4
He4+ o.s.frv.
31. Kg3 Dh3+ 32. Kf2 Bxfl 33. Re3
Vegna þess að 33. Hxfl Hc8! og
síðan 34. - Dxh2 + og Rc2 fellur er
ekki aðlaðandi.
33. - Dxh2* 34. Kxfl Dhl- 35. Kf2
Dxbl 36. Rg4 Da2+ 37. Kg3 De6 38.
Rf6+ Kg7
Metþátttaka í boðsmótinu
Davíð Ólafsson varð efstur á boðs-
móti Taflfélags Revkjavíkur sem
lauk f>TÍr skömmu. Davíð hlaut 6'A
v. af 7 mögulegum. Bar sigurorð af
Snorra G. Bergssyni, sem efstur varð
á þessu móti i fyrra, í lokaskákinni.
Boðsmótið er árlegur viðburðm-
og er nánast eina árvissa mótið hér
á landi. sem fram fer að sumarlagi.
Metþátttaka varð í ár, áttatíu kepp-
endur tefldu með. „Þetta er létt
sumarmót sem hentar ungum mönn-
um á uppleið og eins þeim sem \dlja
ekki taka of hart á," sagði Ólafúr
H. Ólafsson, varaformaður Taflfé-
lags Reykjavíkur, í samtali við DV.
I 2. - 7. sæti á mótinu urðu Snorri
Bergsson, Tómas Bjömsson, Sigurð-
ur Daði Sigfússon (allir Taflfélagi
Reykjavíkur), Björgvin Guðmunds-
son (Skákfélagi Hafnaifyarðar),
Sveinn Kristinsson og Jón Ámi
Halldórsson, í þessari röð eftir stig-
um, allir með 5 'A v.
Næst komu Guðfríður Lilja Grét-
arsdóttir, Hrannar Baldursson,
Sigurjón Birgisson (Skákf. Hafnar-
fjarðar), Uros Ivanovic, Ingi Fjalar
Magnússon, Einar T. Óskarsson,
Eiríkur Bjömsson og Eggert ísólfs-
son, allir með 5 v. Aðrir fengu minna.
Skákstjóri var Ólafur Ásgiimsson.
-JLÁ
TIL HJALPAR
— gegn vimuefnum —
ÁHEITASÍMINN
62 • 35•50
62 svo byrjar baga
bræður og systur hlýðið á
35 ég held til haga
hverju sem okkur gagnast má
50 hjartans höfðinginn,
hringdu nú elsku vinur minn
KRÝSUVÍKURSAMTÖKIN
ÞVERHOLTI 20 • 105 REYKJAVlK
S 62 10 05 OG 62 35 50
afsláttur
í júní og júlí veitum við
15% staðgreiðsluafslátt af
öllum bremsuklossum
í Volksvagen, Mitsubishi
og Range Rover bifreiöar.
Kynntu þér okkar verð,
það getur borgað sig.
SIMAR:
91-695500
91-695650
91-695651
HEKLAHF