Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1987, Side 2
2
FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1987.
Fréttir
Keppinautum boðinn Búnaðarbankinn:
Játa því hvorki né neita
sagði Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra í morgun
Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra
var spurður að því í morgun hvort
hann hefði boðið þeim aðilum sem
nú keppa um kaupin á hlutabréíúm
ríkisins í Útvegsbankanum Búnað-
arbankann til kaups en hávær
orðrómur er um að sú leið verði far-
in til lausnar málinu.
„Ég ætla hvorki að játa því né
neita,“ sagði viðskiptaráðherra.
Þá var ráðherra spurður hvort
vantað hefði upp á tryggingar þeirra
33ja sem buðu í Útvegsbankann.
„Það er rétt að greinargerð þeirra
fyrir tryggingum var ekki fullnægj-
andi og þeim hefur verið gefinn
frestur til að gera grein fyrir trygg-
ingum sínum til morguns. Ég tel
alveg víst að viðræðum mínum við
þá aðila sem vilja kaupa hlutabréfin
ljúki ekki fyrr en eftir helgi, alla
vega verður ákvörðun vart tekin
fyrr,“ sagði Jón Sigurðsson.
Þá sagði Jón að enda þótt það
væri hans að taka ákvörðun í þessu
bankamáli hlyti hann að hafa fullt
samráð við aðra ráðherra, annað
væri ekki hægt í svo stóru máli.
Ekki vildi Jón taka undir það sem
komið hefði fram í fréttum að ríkis-
stjómin riði til falls vegna Útvegs-
bankasölunnar, sagði það orðum
aukið.
Mikið gekk hins vegar á hjá fjár-
málaráðherra í Amarhvoli í morgun.
Ýmsir þingmenn komu á hans fund,
þar á meðal Sighvatur Björgvinsson
og skömmu eftir að hann gekk á
fund Jóns Baldvins Hannibalssonar
komu allir bankastjórar Seðlabank-
ans á fund fjármálaráðherra. í gær
átti Geir Hallgrímsson seðlabanka-
stjóri fund með Jóni Sigurðssyni
viðskiptaráðherra áður en þeir Val-
ur Amþórsson og Kristján Ragnars-
son komu til fundar við ráðherra.
Þótt Jón Sigurðsson segi að ríkis-
stjómin riði ekki til falls er ljóst að
íslenski fjármálaheimurinn titrar.
-S.dór
Miklar annir voru í Valhöll í gær en þá stóð stór hópur manna i því aö hringja i flokksráðsmenn Sjálfstæðis-
flokksins til að kanna viðhorf þeirra i mesta hitamáli sumarsins. Flokksráðsmennirnir voru beðnir um að
segja hug sinn í Útvegsbankamálinu og hvort þeir teldu að sjálfstæðismenn ættu að slíta stjórnarsamstarfi
við Framsókn og Alþýðuflokk ef Sambandið fengi að kaupa Útvegsbankann. Meirihluti flokksráðsmannanna
mun hafa verið fylgjandi stjórnarslitum. DV-mynd GVA
Þorsteinn fékk ótvírætt svar frá flokksráðinu í gær:
Ef SÍS fær bank-
ann á að slíta
stjómarsamstarfínu
Mikill meirihluti þeirra flokksr-
áðsmanna Sjálfstæðisflokksins, sem
skrifstofa flokksins hafði samband
við í gær, vill sýna fulla hörku í
Útvegsbankamálinu. Nær allir vilja
að hlutabréf ríkisins falli í hendur
einkaframtakinu. Og langflestir eru
á því að slíta eigi stjómarsamstarf-
inu ef Framsóknarflokkur og
Alþýðuflokkur ætla að knýja fram
sölu til samvinnuhreyfingarinnar.
Þetta eru ótvíræðar niðurstöður
úr eins konar skoðanakönnun sem
efht var til að frumkvæði Þorsteins
Pálssonar forsætisráðherra, form-
anns flokksins. Skoðanakönnunin
náði til um 250 flokksráðsmanna sem
mynda æðstu valdastofnun Sjálf-
stæðisflokksins milli landsfunda.
Samkvæmt heimildum DV náðist í
verulegan meirihluta flokksráðsins.
Þessi „nútímavinnubrögð" forsæt-
isráðherra vöktu enga hrifningu
meðal samstarfsflokka sjálfstæðis-
manna og ljóst er að þau hafa
staðfest illbrúanlega gjá milli sjálf-
stæðismanna og framsóknarmanna
varðandi sölu Útvegsbankabréf-
anna. Viðbrögð flokksráðsmanna
voru einnig mjög á tvo vegu, ýmist
voru menn hlynntir þessu samráði
eða töldu það hreint glappaskot af
Þorsteins hálfu að negla þannig nið-
ur afstöðu sína i málinu þar sem
hann er sameiningartákn ríkis-
stjómarinnar.
-HERB
Steingnmur Hermannsson:
„Þetta eru al-
varlegar hótanir"
„Það er varla að ég trúi þessu enn,
þessi vinnubrögð eru alveg makalaus
og það er ákaflega slæm byrjun í ríkis-
stjóm að starfa undir svona hótunum,
þetta em alvarlegar hótanir og nú er
forsætisráðherra búinn að stilla sjálf-
um sér upp við vegg, ég skil þetta
ekki,“ sagði Steingrímur Hermanns-
son utanríkisráðherra í morgun.
Þetta er álit hans á skoðanakönnun
Þorsteins Pálssonar forsætisráðherra
meðal flokksráðs Sjálfstæðisflokksins
um Útvegsbankamálið sem skrifstofa
flokksins gerði í gær að beiðni Þor-
steins. „Sú erfiða þraut hvílir á
forsætisráðherra að taka sjálfstæða
afstöðu til meiriháttar mála og standa
eða falla með gerðum sínum. Ef hann
þarf að láta segja sér fyrir verkum er
illa komið fyrir honum og þeirri ríkis-
stjóm sem hann á að leiða og ég sé
ekki hvemig hann ætlar að halda
uppi samstarfi með þessum hætti, þetta
em afarkostir," sagði Steingrímur.
Hann staðfesti að nú væri hafin
könnun á sölu Búnaðarbankans, til
þess að leysa þann hnút sem nú er á
Útvegsbankamálinu. Þótt Búnaðar-
bankinn sé mun stærri er eigið fé hans
og þar með söluverð ekki miklu hærra
en hins nýja Útvegsbanka. Steingrím-
ur sagði framsóknarmenn ekki hafa
verið hrifna af því að breyta Búnaðar-
bankanum í hlutafélag en á honum
mátti heyra að hann hefði samþykkt
að þetta úrræði yrði kannað.
-HERB
Lóðarhafí
afþakkaði
Miklar deilur hafa verið vegna sölu
á Sæbólslandi í Kópavogi. Mál varð-
andi söluna verður þinglýst hjá
Hæstarétti í október. í sumar risu deil-
ur á ný vegna úthlutunar á lóðinni
númer tólf við Helgubraut í Sæbólsl-
andi. Lögerfingjar Sæbólslands
hótuðu málsókn á hendur Kópavogs-
bæ væri úthlutunin ekki dregin til
baka. Það var ekki gert. Sjötta ágúst
var bókað í fundargerð bæjarráðs að
sá sem fékk lóðina hefði afþakkað
hana bréflega.
Bjöm Þorsteinsson bæjarritari sagði
við DV að ekki hefði verið rætt hvort
lóðin yrði auglýst á ný. Málshótun
erfingjanna hefði ekkert með það að
gera. Bjöm sagði að ekki hefði verið
rætt um hvað yrði gert frekar á Sæ-
bólslandi en þar em nú nokkur auð
svæði.
Garðar Sverrisson, talsmaður erf-
ingjanna, segir að verði lóðin auglýst
á ný munu erfingjamir höfða mál.
Þeim þyki rétt að ekki verði neitt að
gert fyrr en Hæstaréttardómur fellur
í málinu.
-sme
Evrópumeistaramótið í sundi:
Eðvarð í úrslK og
met hjá Magnúsi
Jón Kristján Sigurðssan, DV, Frakkiandi;
„Þetta gekk bara vel og vonandi
tekst mér að setja Norðurlandamet í
úrslitasundinu í kvöld,“ sagði sund-
kappinn Eðvarð Þór Eðvarðsson í
samtali við DV rétt áður en blaðið fór
í prentun en í morgun synti Eðvarð í
undanrásum í 200 metra baksundi og
varð annar í sínum riðli og sjötti þeg-
ar á heildina er litið af 25 keppendum.
Eðvarð fékk tímann 2:03,62 mín. sem
er 2. besti tími á Norðurlöndum frá
upphafi en Norðurlandamet hans er
2:03,30 mín. Gífurleg keppni var í bak-
sundinu í morgun og sex bestu menn
náðu sex bestu tímunum í greininni í
ár. Aðeins munaði 59/100 á 2. og 6.
manni.
Magnús Ólafsson keppti í morgun í
undanrásum í 100 metra skriðsundi
og setti íslandsmet, synti á 52,36 sek.
Magnús varð í 25. sæti af 34 keppend-
um og komst ekki í úrslit. Sjá nánari
fréttir af Evrópumótinu í Strasbourg
á íþróttasíðum á bls. 18-21.
-SK