Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1987, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1987.
3
>v________________________________________________Fréttir
Meðferðarstöðin Von Veritas:
Fáum peninga frá íslandi
- segir Peter Scavenius
„Við erum vissir um að fá peninga
frá íslandi og erum því bjartsýnir á
að komast yfir þessa fjárhagsörðug-
leika. Við höfiim að vísu ekki pening-
ana í höndunum en ég er sannfærður
um að við fáum þá. Annars skýrist
þetta frekar í næstu viku,“ sagði Peter
Scavenius, sem nú rekur meðferðar-
stöðina Von Veritas í Danmörku.
Eins og áður hefur komið fram fékk
Von Veritas framlengda greiðslu-
stöðvun til 28. ágúst. Fyrirtækið hefur
verið rekið hallalaust síðan það fékk
greiðslustöðvun og eru aðstandendur
þess bjartsýnir á að rekstrargrundvöll-
ur sé fyrir starfsemi Von Veritas. Peter
Scavenius sagði í viðtali við DV i júlí
að í Danmörku væru um 400.000 alkó-
hólistar og fólk hefði verið hikandi í
íyrstu og þyrfti meiri reynslu af fyrir-
tækinu enda væri það ekki nema
tæplega ársgamalt.
Rótina að fjárhagsvandræðum Von
Veritas má rekja til þess að kostnaður
við umbætur á því húsnæði sem keypt
var undir starfsemina var tvöfalt hærri
en reiknað var með. Auk þess gat
fjórðungur viðskiptavinanna ekki
greitt fyrir meðferðina. Nú fær enginn
inni nema greiða fyrst.
Salha verður hlutafé fyrir 2 milljónir
danskra króna (11 milljónir íslenskra
króna) til að fleyta fyrirtækinu yfir
erfiðleikana sem það er nú í. Hins
vegar virðast heildarskuldir Von Ve-
ritas nema 48 milljónum íslenskra
króna ef marka má danska fjölmiðla.
Henrik Bemdsen segir þó að fyrirtæk-
ið eigi mun meiri eignir, einungis
húseignir þess væm 67 milljón króna
virði.
„Það er aðeins eitt vandamál sem
við eigum nú við að glíma og það er
sú ákvörðun stjómvalda að innheimta
22% söluskatt af þeirri þjónustu sem
við veitum," sagði Peter Scavenius.
Sagði Scavenius að við það myndi
dvölin á meðferðarstöðinni hækka úr
220.000 krónum í um 275.000 krónur.
„Þannig getum við ekki rekið stöðina
og gmndvellinum yrði kippt undan
henni. Hins vegar gerum við okkur
góðar vonir um að þetta verði ekki
þannig og ákvörðunin verði dregin til
baka. Fyrir því höfum við ákveðnar
heimildir, auk þess sem svona skatta-
vandamál hefúr verið leyst áður,“
sagði Peter Scavenius.
- Þú segist vera viss um að fá peninga
frá íslandi til að komast yfir erfiðleik-
ana, frá hverjum koma þeir og fáið
þið peninga einhvers staðar annars
staðar frá en íslandi inn í reksturinn?
„Á þessu stigi vil ég ekkert tjá mig
um frá hverjum peningamir koma á
íslandi, ég get kannski sagt þér eitt-
hvað frekar í næstu viku.“
- En fáið þið peninga einhvers staðar
annars staðar frá en íslandi?
„Ég get ekkert sagt um það.“
-JFJ
OPNUNARTILBOÐ 2
FULLKOMIN SAMSUNG
HUÓMTÆKJASAMSTÆÐA
MEÐ GEISLASPILARA
FYRIR AÐEINS KR. 32.900
Ótrúlegt en satt - og að auki inniheldur
samstœðan m.a.:
• 60 vatta magnara • Stafrœnt (digital)
útvarp • 16 stöðva minni FM MB LB
• Tvö kassettutœki með raðspilun • Dolby
• Tónjafnara • „High-speed-dubbing"
• Hljóðnematengi • Hljóðnemamixer
• Tvo hátalara í dökkum viðarkassa
JAPISS
BRAUTARHOLT 2 - KRINGLAN - SíMI 27133
AÐEINS 40 SAMSTÆÐUR TIL Á ÞESSU ÓTRÚLEGA VERÐI!
iurti-sf.