Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1987, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1987, Síða 7
FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1987. 7 Fréttir Rannsókn á Búðardalsfaraldrinum: Vinnutap meira en eitt ár „Tilgangur rannsóknarinnar var sá að skilgreina faraldurinn í Búð- ardal, eðli veikinnar hjá einstakling- um, svo og hvort þetta geti kennt okkur hvemig eigi að bregðast við svona faraldri í framtíðinni eða bent til forvama. Hins vegar er þessi vinna rétt að hefjast og þetta er ein- ungis bráðabirgðaniðurstöður. Nánari læknisfræðileg rannsókn tekur mánuði og jafiivel ár,“ sagði Sigurbjöm Sveinsson, heiisugæslu- læknir í Búðardal. Sigurbjöm ákvað í kjölfar salmon- eEusýkingarinnar, sem kom upp í fermingarveislum í Búðardal um páskana, að gera rannsókn á faraldr- inum. Fékk hann til þess stuðning ráðuneytisins og vann i samvinnu við Ólaf Steingrímsson, j'firlækni á sýklarannsóknadeild Háskóla ís- lands. „Þetta var fyrst og fremst samantekt á niðurstöðum sem við fengum frá einstaklingum. Yfir 120 manns, sem vom í fermingarveislun- um, var sendur spumingalisti, svörunin ’var liðlega 80% við spum- ingum sem vörðuðu sjúkdómsgang- inn. Hins vegar höfúm við ekki reynt að sannreyna upplýsingamar sem fólkið gaf.“ Sigurbjöm sagði að bráðabirgða- niðurstöður bentu til þess að meiri- hluti gesta í veislunum hefði veikst og vinnutap af þessum sökum verið meira en 1 mannár, yfir 400 vinnu- dagar hefðu tapast. Lengsta fjarvist frá vinnu var 70 dagar en algengast var að fólk væri frá vinnu í 17 daga. Sögðust menn þó hafa verið slappir eitthvað lengur, jafinvel svo vikum skipti. „Þetta virðist því hafa verið í svæsnara lagi miðað við það sem venja er til um bakteríuna og frænk- ur hennar. Annars get ég ekki fúllyrt að faraldurinn hafi verið svæsnari en gengur og gerist,“ sagði Sigur- bjöm. Sigurbjöm sagði það vera sína kenningu að sjúkdómurinn hefði komið síðar firam en almennt væri getið i ffæðibókum sem um þetta Qölluðu. Veikindin hefðu byrjað 3 dögum eftir smitun og öll einkenni ekki verið komin fram fyrr en degi síðar. „Af þessum fyrstu niðurstöð' um er ljóst að sýking sem þessi er mikið alvörumál og hefúr mikið óhagræði í för með sér fyrir þá er veikjast, auk þess sem þjóðfélagstap er gífurlegt,“ sagði Sigurbjöm Sveinsson. •dFJ íslendingar mælast skussar í framleiðslu: SHjum á hælun- um við verðmæta- sköpunina Framleiðni vinnuafls hér á landi, öðm nafni nefnd verðmætasköpun, er með því minnsta sem þekkist meðal sambærilegra þjóða í helstu fram- leiðslugreinum okkar. í heild er framleiðnin lítil og hefur vaxið hægt. Þetta er niðurstaða úttektar sem Iðn- tækistofnun hefur staðið fyrir og nær til áranna 1973-1983. Þetta þýðir á mæltu máli að við sitjum á hælunum við verðmætasköpun í nútímaþjóð- félagi og búum þar af leiðandi við miklu verri lífskjör en efni standa til. I skýrslunni kemur ffarn að það er ekki eintóm leti sem hrjáir okkur við framleiðsluna. Þvert á móti hefur sú litla ffamleiðniaukning sem átt hefur sér stað skapast af auknu vinnuálagi og aukinni þátttöku kvenna í atvinnu- lífinu en ekki af tækniffamförum og bættu framleiðsluskipulagi. Skýrslan er þungur áfellisdómur á stjóm- kænsku þeirra rikisstjóma sem sátu að völdum á fyrmefridu árabili og skussahátturinn er ekki síst rakinn til ókyrrðar í efnahagsmálum, sífelldra skammtímaaðgerða og beinna af- skipta af atvinnulífmu. Allra lélegust er framleiðni okkar í landbúnaði og framleiðsluiðnaði og ekki nema í meðallagi í fiskveiðum sem við höfum talið okkur meistara í um árabil. Framleiðni í landbúnaði er þrefalt meiri í Bandaríkjunum en hér og vel tvöfalt meiri í Danmörku en hjá okkur. Aðeins Finnar hafa verið að skussast á sama róli en þeir em nú að stinga okkur af. Danir hafa einnig hátt í tvöfalda framleiðni á við okkur í fiskveiðum. I framleiðsluiðn- aði erum við slakastir í samanburði við átta af helstu samkeppnisþjóðum okkar og langt á eftir Bandaríkja- mönnum, Japönum, Þjóðverjum og Svíum. I matvælaiðnaði er sama uppi á ten- ingnum, þar erum við í flokki með tveim þjóðum, Norðmönnum og Finn- um, en talsvert eða mjög langt á eftir öllum hinum. Við erum hálfdrættingar á við Dani og Bandaríkjamenn eru með þrefalda framleiðni á við okkur - og þama erum við meðal annars að tala um fiskiðnað. í skýrslu Iðntæknistofnunar er und- irstrikað að í framleiðni hér á landi verði að nást skjótur bati ef við eigum ekki að verða undir í samkeppninni. -HERB Ámeshreppur: Mikil og góð Regína Thorarensen, DV, Gjögri: Mikil berjatínsla hefur verið hér í Ámeshreppi enda ber stór og falleg og þar af leiðandi fljóttínd. Heilu fjöl- skyldumar fara í beijamó í hinni góðu veðráttu og em hreppsbúar með bláar tennur eftir beijaát. Em nú til óvenju miklar saftbirgðir á flestum heimilum. berjaspretta Á meðan eru bændur byrjaðir á hinni margumtöluðu kirkjubyggingu og vom þeir búnir fyrir sláttinn að steypa sökkla. Nú er unnið af miklum krafti við að steypa plötuna og em margir í sjálfboðavinnu við bygging- una en bændur í Ameshreppi em fjölhæfir menn og kunna vel til allra verka. Gjögur: Fiskmóttaka og íbúð undir sama þaki Regína Thorarensen, DV, Gjögii Garðar Jónsson frá Reykjavík er nýbúinn að byggja fiskmóttöku og íbúð, allt undir sama þaki, á Gjögri og er að því mikil prýði. Það er 14 m langt og 7 m breitt. Gekk honum illa að fá smiði og aug- lýsti því eftir þeim í DV. Margir buðu sig fram fyrir þúsund krónur á klukku- stund, fiítt fæði og ferðir fram og til baka og kaup á leiðinni. Þetta þótti Garðari alltof dýrt en fékk loks húsa- smiðinn Magnús Helgason í Múla í Kollafirði í A-Barðastrandarsýslu ásamt einum aðstoðarmanni. Tók hann að sér að smíða húsið eftir að búið var að steypa plötu og útveggi og klámðu þeir þetta á fjórum dögum með hörkudugnaði. Fyrir þetta tóku þeir til samans minna en einn súkkul- aðidrengur frá Reykjavík hefði tekið fyrir sama verk. Það er hver heppinn sem fær Magnús og hans samstarfs- mann í vinnu. Það hefur verið venja að láta þann ibúa fegurstu götu Reykjavikur sem á afmæli næst 18. ágúst taka við viðurkenningunni fyrir hönd ibúanna. Hér afhendir Davíð Oddsson borgarstjóri Björk Melax, ibúa i Ljárskóg- um, viðurkenningu fyrir fegurstu götu Reykjavikur 1987. DV-mynd JAK Ljárskógar fegursta gatan Umhverfismálanefrid Reykjavikur útnefridi í gær, á 201 árs afmæli Reykjavíkur, fegurstu götu borgar- innar, það fjölbýlishús sem er snyrtilegast og hefúr fegurst um- hverfi, auk þess sem fyrirtæki og stofhanir fengu viðurkenningar fyrir snyrtilegan frágang á lóðum sínum. Sú gata sem Umhverfismálanefnd tilnefridi fegurstu götu Reykjavíkur 1987 er gatan Ljárskógar i Breið- holti. Ljárskógar er nítjánda gatan sem hlýtur þessa viðurkenningu en eftir að gata hefur verið tilnefnd feg- ursta gata Reykjavíkur er sett upp skilti með viðurkenningunni og fær skiltið að standa þar í tíu ár. Snyrtilegasta fjölbýlishúsið var tilnefnt Sólheimar 27. Þá fengu eftir- talin fyrirtæki og stofnanir viður- kenningar fyrir snvrtilegan frágang á lóðum sínum: Hótel Saga við Hagatorg, Krabbameinsfélaglslands við Skógarhlíð, Mál og menning. Siðumúla, Sundaborg, heildsölumið- stöð við Sundahöfn, Minjavemd. Bankastræti 2. Sveinn Egilsson hf.. Faxafeni. og Útvarpshúsið. Efsta- leiti. Þá var einnig bent á nokkur f>TÍr- tæki sem sýnt hefðu lofsverða viðleitni til umhverfisfegrunar en það voru Hampiðjan. DV. Eldsmiðj- an og Breiðfjörðsblikksmiðja. I ár eru liðin 40 ár frá þvi fyrst var efnt til viðurkenninga af þessu tagi en upphaflega voru það aðallega ein- bvlishús sem hlutu viðurkenningu. -ATA Engan skurðgröft Crundomat-borinn gerirskuröi aö mestu leyti óþarfa. Grundomat grefur sig undir götur og gangstéttir án þess aö trufla umferö. Framkvæmdaaðilar: DALVERK Sf, Sími 91-685242 ÚLFAR HARÐARSON, SÍmi 99-6625 umboö: I/M IKI a i i/fc ■ a m BORGARTUN 23 — 105 REYKJAVIK flj JOHN AIKMAN símar91-27655-9127440

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.