Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1987, Síða 8
8
FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1987.
Utlönd
Halda áfram mótmælum sínum
Sjö Haitibúar, sem verið hafa í
hungurverkfolli í dómkirkjunni í
Port-Au-Prince, höfuðborg landsins,
undanfoma sex daga, ákváðu í gær
að halda mótmælum sínum áfram
þrátt fyrir að þeir hafi fengið kröfum
sínum frdlnægt.
Hungurverkfellsmennfrnir gripu
til þessara aðgerða til atuðnings
presti sem kirkjan ætiaði að fiytja á
brott frá söfnuöi hans í fátækra-
hverfi í borginni.
Kirkjan lét undan í gær og fær klerkurinn að halda áfram starfi í fotækra-
hverfinu en nú krefjast hungurverkfollsmenn þess að kirkjan taki eindregna
afetöð með kenningum klerksins sem þykja nokkuð frjálslyndar.
Segist vera frelsishetja
Fleiri sigla
að næturlagi
Augusto Pinochet, forseti Chile,
sagði í gær að það væri mesti mis-
skilningur að hann væri einræðis-
herra, þvert á móti væri hann
frelsishetja, sem barist hefði fyrir
frelsi Chile allt frá því hann tók við
völdum árið 1973.
Pinochet sagði í ræðu, sem hann
í Mulchen, um 500 kflómetra suður
af Santiago, höfuðborg Chile, í gær
að hann væri fyrst og fremst maður
sem vildi hið besta fyrir land sitt.
Sagðist hann hafe barist fyrir frelsi
allt frá því herinn steypti stjóm
marxista úr stóli fyrir nær fimmtán
árum.
Herprammi leigður sem fangelsi
Sex bandarísk herskip og þrjú olíu-
flutningaskip frá Kuwait sigldu í
gærkvöldi fram hjá eyjunni Abu Musa
inni á flóanum án þess að verða vör
við sérstakar athafnir írana. Þyrlu-
móðurskip og tvö önnur bandarísk
herskip slógust i for með herskipunum
þremur sem venjulega fylgja skipun-
um frá Kuwait.
Bandarísk skipalest var einnig á ferð
um suðurhluta Persaflóa í gærkvöldi
og var búist við að hún kæmi til norð-
urhluta flóans í morgun.
Það kom mönnum á óvart í gær að
skipalest hafði siglt inn á suðurhluta
flóans í skjóli myrkurs í fyrrinótt á
meðan athygli allra beindist að brott-
för þeirra er lágu við akkeri í norður-
hlutanum og biðu eftir hentugu
tækifæri til að sigla suður í gegnum
Hormuzsund. Nú sigla samtals ellefu
flutningaskip frá Kuwait undir banda-
rískum fána.
Oliuflutningaskip frá Kuwait á siglingu í Persaflóa.
Simamynd Reuter
íbúðaprammi, sem notaður var fyrir breska hermenn í styrjöld Breta og
Argentínumanna um Falklandseyjar, hefúr verið leigður til New York þar
sem hann mun gegna hlutverki fljótandi fangelsis.
Eigandi prammans, fyrirtækið Birby Line í Livewrpool, sagði í gær að
pramminn hefði verið leigður fongelsisyfirvöldum i New York fyrir um tutt-
ugu milljónir dollara og væri leigutíminn fimm ár.
íbúðabyggingin á prammanum er fimm hæða há og getur hýst allt að eitt
þúsund manns. Byggingin er samansett úr fjögur hundruð gámum.
Fjörutíu þúsund dóu
Fjörutíu þúsund hænsn hafa látið lífið af völdum mikilla hita á Balearic
eyjum, sem eru i eigu Spánar, á undanfarinni viku.
Mestur hænsnadauði varð á Majorca þar sem vindar innan úr Sahara
ey uðimörkinní hafo blásið heitu lofti yffr eyna og valdið hruni í hænsnarækt.
VIII enda kyrrstöðuna
_ Yitzhak Shamir, forsætisráðherra
ísraeis, sem nú er staddur í opin-
berri heimsókn í Rúmeníu, mun hafo
í hyggju að leggja fyrir Nicolae Ce-
auxescu, Rúmeniuforseta, nýjar
tillögur í dag, en þær munu lúta að
því að höggva á hnútinn í málefiium
fyrirhugaðrar friðarráðstefriu í Mið*
Austurlöndum.
Shamir er mjög í mun að ijúfa
kyrrstöðuna sem ríkt hefur í því
máli undanforíð.
Huga að mistökum áhafnar
Rannsóknamefhd sú er nú skoðar flugslysið er varð við Detroit fyrr í vik-
unni, íhugar nú þann möguleika að mannleg mistök hafi leitt til slyssins,
sem er arrnað mannskæðasta flugslys í sögu Bandaríkjanna.
Ekki er að fúllu ljóst hversu margir fórust með þotunni en víst er talið
að þeir hafi verið fleiri en hundrað og fimmtíu. Meðal þess sem gerir erfitt
fyrir um að ákvarða nákvæmlega hvetjir fórust og hversu margir er að svo
virðist sem nokkrir farþegar hafi ferðast undir röngu nafni. Virðast þeir
hafe notað nöfn kunningja sem ferðast mikið og eru nærri því að fá ókeyp-
is ferðir vegna mikilla viðskipa. Jafhframt hefúr reynst erfitt að ákvarða
hversu margir létust á jörðu niðri.
Aðeins einn ferþegi úr þotunni komst lífe af. Það var fjögurra ára gömul
stúlka, sem fannst illa brennd, en á lífi, í fengi látinnar móður sinnar. Fað-
ir hennar og eldri bróðir létu einnig lífið í slysinu.
Rannsóknaraðilar vildu ekki tjá sig um orðróm þann að mistök áhaihar
hafi valdið slysinu. Þeir staðfestu þó að orðrómur hefði heyrst um slík mis-
tök og að málið væri í rannsókn.
Fyrirtæki sektuð vegna mengunar
Gunnlaugur A. Jónsson, DV, Lundi:
Sænska ríkisstjómin mun innan
skamms leggja fram frumvarp um
efhahagsþvinganir gagnvart þeim fyr-
irtækjum sem gera sig sek um að
menga andrúmsloftið. Frá þessu
skýrði Birgitta Dahl, iðnaðar- og um-
hverfismálaráðherra Svía, í gær.
Ráðherrann sagði að fyrirtækin
yrðu beitt sektum í hlutfalli við meng-
unina sem þau valda. Takist þeim að
minnka mengunina verða sektimar
að sjálfsögðu lækkaðar.
Ýmsir telja að þessar hugmyndir
jafnaðarmanna séu fyrst og fremst við-
brögð þeirra og ótti við stóraukið fylgi
umhverfisvemdarflokksins í skoðana-
könnunum undanfama mánuði.
Verkfallsmönnum
hótað uppsögnum
Tvö þúsund námumanna í Suður-
Afríku hafa ákveðið að eiga heldur
hættu á að vera sagt upp störfúm held-
ur en að snúa aftur til vinnu. Úrslita-
kostir eins námufyrirtækjanna
hljóðuðu upp á uppsagnir ef verkfallið
yrði ekki lagt niður.
í gær ákváðu sjö hundruð námu-
verkamenn, sem verið hafa í verkfalli
í ellefu daga, að hlýða skipunum fyrir-
tækisins. Uppsagnimar gætu aukið
spennuna í þessu víðtækasta verkfalli
í sögu Suður-Afríku.
I gær vom námumenn beittir tárag-
' asi fyrir utan eina námuna þar sem
þeir höfðu ógnað öðrum starfsmönn-
um, að sögn talsmanna fyrirtækisins.
Sagt var að engir hefðu særst. Umræð-
ur verkalýðssamtaka og námueigenda
um hvemig koma megi í veg fyrir átök
milli verkfallsmanna og öryggisvarða
hafa farið út um þúíúr og ekki hefur
verið boðað til nýrra viðræðna.
Námuverkmenn í Suður-Afríku með flugmiða með hótunum um uppsagnir.
Simamynd Reuter