Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1987, Page 16
FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1987.
16
Spumingin
Hvað finnst þér að eigi
að verða um
Útvegsbankann?
Sigurjón Grétarsson: Mér fmnst að
útvegsmenn eigi að fá hann. Tilboð
fyrirtækjanna er miklu hagstæðara
heldur en Sambandsins sem er að
auki með það mikið veldi að þeir
hafa ekki þörf á meiru.
Bárður Bárðarson: Mér finnst að það
eigi ekki að selja hann, heldur bara
hafa hann eins og hann er.
Sveinfríður Ólafsdóttir: Ég hef ekki
hugmynd um það. Ég hef enga skoð-
Agla Tulinius: Mér finnst allavega
að Sambandið eigi ekki að fá hann.
Ég er á móti þessari einokun. Þá
ætti miklu frekar að taka hinu til-
boðinu.
Eiríkur Lárusson: Mér finnst að
hann eigi að vera hlutafélag, eitt-
hvað í svipaða veru og tilboð fyrir-
tækjanna og útvegsmannanna felur
í sér. Sambandsmenn hafa alveg nóg.
Karl Jeppesen: Ég veit það ekki og
tel mig ekki færan um að dæma þar
um. En ef ég hugsa mig um þá styð
ég frekar að útvegsmenn standi að
bankanum ef eitthvað er.
Lesendur
Ólafsvíkingur skrifar:
Um mánaðamótin maí/júní tóku
ungmenni hér í Ólaisvík sig til og
keyptu 11 seglbretti ásamt þurrbún-
ingum og öðru tilheyrandi. Þessu .
hefúr verið misjafhlega tekið af full-
orðna fólkinu. Sumir sjá björtu
hliðamar en aðrír telja þetta sóun á
peningum og stórhættulegt. Land-
eigendur ráku t.d. unglingana af
vatni héma rétt við bæinn og höfðu
jú fúllan rétt á því, því þeir eiga
vatnið. En einhvem veginn hef ég
það á tilfinningunni að þessi segl-
brettamenning hér í Ólafsvík hefði
verið lofuð og blessuð ef fullorðnir
heföu komið þessu tíl leiðar. Ég tala
nú ekki umefum frammámenn hefði
verið að ræða.
En er ekki eðlilegt að aðstoða
unglinga við þeirra áhugamál og
standa með þeim? Það er af nógu
að taka, ekki bara í sambandi við
seglbrettí. T.d. hestar, golf og ótal
íþróttír, sumt dýrt og annað ekkl
Ég vil að það sé fjallað um uppá-
tæki unglinga eins og þeirra héma
í ólafsvík á jákvæðari hátt. Það
heföi örugglega verið skrifað um
unglingana ef þeir heföu misstígið
sig í þeim heirai sem stundum virðist
ekki vera ætlaður þeim. Ég er t.d.
nokkuð viss um að landeigendumir
sem minnst var á áðan myndu með
„Eg vikil frekar vera foreldri hrausts og heilbrigös ungmennis í sporti sem ég óttast, s.s. fallhlifarstökki eða
klettaklifri heldur en aö vlta af barninu minu sem froðufellandi aumingja á stofnun."
glöðu geði, gefa land tíl að reisa á
heimili fyrir ungmenni sem lent hafa
á viiligötum. Islendingar söíhuðu
miklum peningum í byggingu SÁÁ
og til unglingaheimilísins í Krísuvik.
Þetta em stórkostleg átök og góð
málefni en ég spyr: Er hvorki tími
né peningur tíl fyrr en fólk er orðið
hælismatur í tugatali. Ég vildi frekar
vera foreldri hrausts og heilbrigðs
ungmennis í sportí sem ég óttast,
s.s. fallhlífarstökki eða klettakliíri,
heldur en að vita af baminu mínu
sem froðufellandi aumingja á stofh-
un.
Foreldrar á íslandi: Standið með
unglingunum þegar þau fa sjálf hug-
myndir, jafhvel þótt ykkur lítist ekki
á blikuna. Það er alla vega betra en
að missa trúnað þeirra og vita ekki
hvað þau aðhafast fyrr en of seint
Fjölmiðlar. Fjallið um unglingana á
jákvæðari hátt þegar þeir eiga það
skilið.
Lagfærið vegina
- í stað þess að ausa í auglýsingar
Tapaði
lyklum í
Breið-
holti
Óhcppin hringdi:
Seinnipart síðastliðins föstudags
var ég svo óheppin að tapa svörtu
fyklaveski með mörgum lyklum í.
Ég var að koma úr sundlauginni
í Breiðholti og fór í bíl að Eyja-
bakka. Mig grunar að lyklaveskið
hafi tapast á planinu annaðhvort
við sundlaugina í Breiðholti eða
við Eyjabakka. Skilvís finnandi er
vinsamlegast beðinn um að hafa
samband i síma 28875.
Einstök
lipurð
bílstjóra
Amma skrifar:
Simnudaginn 9. ágúst kl. 3 fór
ég með dóttursyni mínum til
Stokkseyrar með áætlimarbíl frá
BSÍ tíl að leita að fólki sem bjó
þar í sumarhúsi. Bílstjórinn, óg
held að hann hafi verið kallaður
Siggi óli, ráðlagði okkur að fara
úr þar sem nokkrir sumarbústaðir
voru Það gekk ekki og vorum við
afreg að gefast upp þegar við hitt-
um bílstjórann okkar aftur.
Honum fannst alveg fráleitt að
gefast upp og í klukkutíma, sem
sé allan þann tíma sem hann haföi
til að hvíla sig áður en hann fór
aftur tíl Reykjavíkur, hjálpaði
hann okkur að leita. Okkur fannst
þetta einstök lipurð og hafi hann
þökk fyrir hjálpina.
Vegfarandi hringdi:
Ég vil endilega vekja athygli á
einu atriði í sambandi við umferðar-
mál. I allri þessari umræðu um
umferðina og þrátt fyrir þessa miklu
herferð í sjónvarpi og blöðum hefur
ekkert færst til batnaðar og slysum
alls ekki fækkað.
En af hveiju í ósköpunum er öllum
þessum milljónum eytt í að auglýsa
að vegfarendur eigi að fara varlega í
stað þess að setja eitthvað af þessum
peningum í það að lagfæra vegina.
Oftar en ekki er það nefnilega slæmu
ástandi vega að kenna þegar eitthvað
kemur fyrir en kannski ekki því að
fólk fari eitthvað óvarlega.
Hildur Grimsdóttir skrifar:
Mig langar til þess að skrifa nokkrar
þakkarlínur tíl starfsfólksins á Hótel
Borg. Þannig var mál með vexti að
ég fór á Borgina á laugardagskvöldið
með nokkrum kunningjum. Það vildi
þannig til að við vorum nokkuð
snemma á ferð og þar sem við erum
Ég lenti sjálf í umferðaróhappi á
Þingvallaveginum fyrir stuttu.
Ástandið á þeim vegi, og þá sérstak-
lega frá Ljósafossi að Álftavatni og
alveg niður að Þrastaskógi, er alveg
hreint hræðilegt. Ofaníburðurinn er
eingöngu gróf möl og að auki er vegur-
inn mjög mjór með hvörfum á víð og
dreif. Ég vil algjörlega kenna ástandi
vegarins um hvemig fór því ekki var
um of hraðan akstur að ræða.
Ég vil því beina þeim tilmælum til
yfirvalda að gera nú endilega eitthvað
fyrir þennan veg þar sem umferð um
hann er mikil. Þetta er geysivinsæll
helgamintur og óforsvaranlegt að
hafa hann svona.
nú gamlir Borgaraðdáendur þá báðum
við plötusnúðinn að spila „alveg ekta
Borgina" eins og sagt er. Þegar leið á
ballið vorum við sammála um að
plötusnúðurinn hafi staðið sig alveg
eins og hetja. Viljum við því þakka
plötusnúðnum og barþjónum fyrir al-
veg meiri háttar þjónustu.
Aðdáendur Miami Vice þurfa
ekki aö örvænta því að þessir
vinsælu þættir verða aftur teknir
til sýninga eftir jól.
Hvar er
Miami
Vice?
Einn óánægður hringdi:
Mig langar til að lýsa yfir
óánægju minni með að það skuli
vera hætt að sýna Miami Vice
þættína á Stöð 2. Þeir voru alltaf
strax á eftir fréttum á laugardög-
um og ég horföi alltaf á þá. Mér
finnast þetta mjög góðir þættír og
ég skora á Stöð 2 að taka þá aftur
til sýningar.
Lovísa Óladóttir, starfsmaður dag-
skrárdeildar Stöðvar 2:
Það er af illri nauðsyn sem við
höfúm þurft að hætta sýningum á
Miami Vice. Við verðum að hafa
smáhlé vegna þess að við sýnum
allt árið en úti í Bandaríkjunum
þá framleiða þeir bara þætti í 6 til
7 mánuði á ári, endursýna svo yfir
sumartímann.
Þegar um svona nýja þætti er
að ræða þá sýnum við örar en
framleitt er og því mun önnur
þáttaröð taka við af Miami Vice
fram að jólum. Eftir jól tökum við
svo þessa vinsælu þætti til sýninga
á ný.
Bréfritari þakkar plötusnúði og barþjónum Hótel Borgar fyrir góða þjónustu.
Góð skemmtun á
Borginni