Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1987, Side 31
FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1987.
31
dv Sandkom
Ráðherrabíll-
inn ódýrari
Jóni Baldvin Hannibalssyni
f]ármálaráðherra hefur orðið
tíðrætt um sparnað í ríkis-
bákninu. Hugðisthann ganga
á undan með góðu fordæmi
og kaupa sér ráðherrabíl af
ódýrari gerðinni, Citroen
bragga. Ekkert hefur enn orð-
ið úr framkvæmdum, hins
vegar hefur Qármálaráðherra
verið duglegri að ráða sér að-
stoðarmenn. Hefur hann
þegar tekið upp tvö ný stöðu-
gildi í spamaðarskyni. Sú
fyrri er staða upplýsingafull-
trúa, sem telur það meðal
viðfangsefna sinna að stjóma
hárskurði ráðherrans. Hin
síðari er staða sérfræðings
sém mun starfa að hagrann-
sóknum, áætlanagerð og
heildarendurskoðun skatt-
kerfisins. Þessir menn þurfa
auðvitað sín laun og til við-
bótar á Jón Baldvin eftir að
ráða sinn sérlega aðstoðar-
mann.
Ýmsum þykja þessar
mannaráðningar stinga í stúf
við ummæli um „stóra niður-
skurðarhnífinn". Segja gár-
ungarnir að sennilega hefði
verið ódýrara fyrir fjármála-
ráðherrann að fá sér fínan
ráðherrabíl heldur en bæta við
tveimur nýjum starfsmönnum.
Fengu orkuna
í eyrað
Um síðustu helgi var haldin
við Arnarstapa á Snæfellsnesi
mót sem bar heitið „Snæfells-
ás ’87“. Var tilgangurinn með
mótinu að gefa áhugafólki um
mannrsékt tækifæri til að hitt-
ast og miðla af reynslu sinni.
Á sunnudagsmorgninum lagði
fólkið stund á sólaræfingar til
að fá blóðrásina á hreyfingu
og öðlast ákveðna vellíðan.
Einn liður sólaræfinganna var
Sólarorkan er sjálfsagt ekkert verri
þótt hún sé fengin i gegnum vinstra
eyraö.
að snúa á móti sólu og með-
taka orku frá henni. Skýjað
var á meðan æfingin stóð yfir
og sneru þátttakendur sér í
suðvesturátt. Hins vegartóku
árvökulir blaðamenn eftir því
að klukkan var einungis níu
að morgni og sólin því í suð-
austri. Má því ætla að megnið
af orkunni hafi komið inn um
vinstra eyrað.
Kringlan eins
og miðbærinn
Hvemig finnst þér í kringl-
unni?
Mér finnst hún nú ekkert mik-
ið frábragðin gamla mið-
bænum.
Hvað er þetta maður, hvernig
þá?
Vestfirðinga-
slagur um
Útvegsbank-
ann
Glöggir menn hafa verið
óþreytandi ^ð bénda á það að
slagurinn um Útvegsbankann
fari fram á milli Vestfirðinga. .
Þannig er Kristján Ragnars-
son Flateyringur, Guðjón B.
Ólafsson Hnífsdælingur,
Kjartan I. Kjartansson ísfirð-
ingur svo og nafnamir Jón
Baldvin og Jón Sigurðsson.
Þetta skyldi þó aldrei vera
hrepparígur?
Krossfarir
Stefáns
Fyrir skömmu skipaði Jó-
hanna Sigurðardóttir Stefán
Ingólfsson sérlegan ráðgjafa
sinn í húsnæðismálum. Stefán
hefur ekki setið lengi í emb-
ætti en þrátt fyrir það farið
tvær krossferðir gegn fomum
fjendum. Sú fyrri var gegn
Alexander Stefánssyni, fyrr-
um félagsmálaráðherra, en
þeir elduðu grátt silfur vegna
nýja húsnæðiskerfisins. Gaf
Stefán út viðamikla skýrslu
sem sagði húsnæðiskerfi Alex-
anders ómögulegt. Að þessu
loknu hefur Stefán snúið sér
að Fasteignamati ríkisins þar
sem hann var áður starfsmað-
ur. Hefur hann gagnrýnt
harðlega útreikninga Fast-
eignamatsins á hækkun
íbúða, sagt þá ónákvæma og
rúmlega 10 prósentustigum
lægri en raunhækkun er.
Hagstofan og
landbúnaður
I landsmálablaðinu Suður-
landi er nýlega að finna þær
upplýsingar að Hagstofan
neiti að viðurkenna vaxtar-
broddinn í landbúnaði. Ef
marka má skrif blaðsins lækk-
aði Hagstofan verðmætaáætl-
un fyrir landbúnaðinn og
munaði þar mest um hlunn-
indaliði. Neitar Hagstofan
þannig að viðurkenna ferða-
þjónustu, loðdýraafurðir,
kanínuafurðir, hrossasölu og
blómasölu sem verðmæti í
landbúnaði.
Sjálfum sér
nógur
Tíminn birti ansi skemmti-
lega fyrirsögn í síðustu viku,
þegar blaðið var að fjalla um
merka nýjung í landbúnaði.
Þar sagði: „Bóndinn getur
sjálfur séð um refasæðingarn-
ar“. Það er aldeilis munur að
geta verið sjálfum sér nógur!
Umsjón: Jónas Fr. Jónsson
Það er alveg jafnerfítt að fá
bílastæði á báðum stöðum!
Skyldu allir þessir hafa fengið bílastæði?
Kalifomíubúi kennir
íslendingum rúnalestur
„Ég kem til landsins vegna hátíðar
sem haldin var á Amarstapa á Snæ-
fellsnesi, Snæfellsás 87. Mér var
boðið á hátíðina til að leiðbeina um
notkun fomra rúna en ég hef sér-
hæft mig í notkun þeirra og merk-
ingu,“ sagði Ralph Blum,
mannfræðingur og sálfræðingur, í
samtali við DV. Hann kom sérstak-
lega til íslands frá Los Angeles í
Kalifomíu, þar sem hann er búsett-
ur, til að kenna íslendingum rúna-
lestur.
Ralph sérhæfði sig í rússneskum
og sovéskum fræðum og bjó í Len-
ingrad í tvö ár á sjöunda áratugnum
þar sem hann nam sovéska menn-
ingu og stjórnmál. í seinni tíð hefur
Ralph hins vegar sérhæft sig í fom-
um, germönskum rúnum. Hann
hefur meðal annars skrifað bók um
rúnimar, notkun þeirra og merkingu
einstakra tákna. Hann er einnig
brautryðjandi í sálfræðilegum lækn-
ingum með rúnum og hefur stundað
þau fræði um árabil.
Nútíðin en ekki framtíðin
„Ég kynntist rúnum og rúnalestri
í fjrstei skipti í Englandi fyrir tíu
árum. Ég hafði heyrt um rúnir áður
en aldrei séð þær. Kona nokkur
sýndi mér rúnimar og las út úr þeim
fyrir mig. Ég varð forvitinn og spurði
hvort hún sæi framtíðina í rúnunum,
en hún svaraði því til að hún sæi
ekki framtíðina heldur nútíðina.
Þetta fannst mér athyglisvert þeg-
ar ég fór að hugsa málið. Það er
meira um vert að átta sig á nútíð-
inni en ffamtíðinni því hvenær gerir
fólk mistök í framtíðinni? Mistökin
gerum við í nútíðinni."
Ralph sagðist hafa fengið rúnasett
hjá ensku konunni. Rúnfrnar segir
hann að séu fomt stafróf. Til em
nokkrar gerðir rúna en hans rúnir
em germanskar að uppmna með 24
Ralph Blum með rúnir og bókina
sína en rúnirnar og bókin eru seld
saman i öskju.
DV-mynd Brynjar Gauti
táknum og einni auðri rún en hún
er tákn fyrir guðdóminn. Talið er
að þessar rúnir hafi orðið til á tíma-
bilinu 200 fyrir Krist til 200 eftir
Krist.
Eina stafrófið þar sem rými
er fyrir Guð
„Þegar ég var kominn heim með
rúnimar áttaði ég mig á því að ég
vissi ekki nákvæma röð þeirra. ég
kunni með öðrum orðum ekki staf-
rófið. Ég velti málunum vel og lengi
fyrir mér og raðaði þeim upp á mimi
hátt með hjálp rúnanna sjálfra. Með
minni röðun varð stigmögnun í
merkingu ímnanna, þær bvrjuðu á
sjálfinu og enduðu í guðdóminum.
Mér finnst merkilegt að ninimai' em
eina staffófið þar sem rými er fyrir
Guð! En þarna tók ég semsagt æva-
fomt stafróf og endurútsetti það fyrir
okkar tíma.
Ég hafði lesið mér til um kenniorð
fyrir hverja rún og helstu merkingu
þeirra en mér fannst þær upplýsing-
ar ekki nógar. Út ffá merkingunum
og kenniorðunum fór ég smám sam-
an að átta mig á dýpri merkingu
rúnanna og skráði þær upplýsingar
niður."
Ralph segir að síðan hafi hann les-
ið rúnir með fólki í ein þrjú ár og
alls lesið með fimm þúsund manns.
Með þessari vinnu hafi skilningur
hans á rúnunum dýpkað og þekking-
in slípast til og að lokum hafi hann
komið þessari reynslu sinni á bók.
Bókin hefur nú selst í 380 þúsund
eintökum og í 200 þúsund eintökum
í Englandi og Ástralíu. Þá hefur
útgáfúréttur verið celdur til Þýska-
lands og Portúgal og verið er að
þýða hana á íslensku.
ATA
Nauðungaruppboð
annað og síðara á fasteigninni Hraðfrystihús Sjöstjörnunnar, þinglesinn eig-
andi Sjöstjarnan hf„ fer fram á skrifstofu embættisins á Vatnsnesvegi 33 í
Keflavík fimmtudaginn 27. ágúst 1987 kl. 10.00.
Uppboðsbeiðendur eru Iðnaðarbanki íslands hf„ Byggðastofnun, Fiskveiða-
sjóður íslands, Jón G. Briem hdl., Njarðvíkurbær, Hákon Árnason hrl„ Ólafur
Axelsson hrl„ Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hdl„ Tómas Þorvaldsson hdl„ Þórð-
ur Gunnarsson hrl. og Útvegsbanki íslands.
Bæjarfógetinn í Keflavík,
Grindavík og Njarðvík.
Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu.
MATRÁÐSKONU
vantar í Lækjarskóla, þarf að geta hafið störf 1. sept-
ember nk.
Upplýsingar gefur skólastjóri Lækjarskóla eða
Fræðsluskrifstofa Hafnarfjarðar.
Fræðsluskrifstofa Hafnarfjarðar
BLAÐAUKI
ALLA LAUGARDAGA
BÍLAMARKAÐUR DV
er nú á fullri ferð
Skilafrestur í bílagetraun
er til fimmtudags.
Vikan
er ekki sérrit
heldur fjölbreytt og víðlesið heimilisblað
Víkan
nær til allra stétta og allra aldursstiga. Auglýsing í
Vikunni nær því til fjöldans en ekki aðeins takmark-
aðra starfs- eða áhugahópa.
Vikan
hefur komið út í hverri viku í 49 ár og jafnan tekið
breytingum í takt við tímann, bæði hvað varðar
efni og útlit. Þess vegna er VIKAN svona fjölbreytt
og þess vegna er lesendahópurinn svona stór og
fjölbreyttur.
Vikan
selst jafnt og þétt, bæði í þéttbýli og dreifbýli. Þess
vegna geta auglýsendur treyst því að auqlýsinq I
VIKUNNI skilar sér.
Vikan
er ekki sérrit. Enginn efnisflokkur er henni óviðkom-
andi. Þess vegna er VIKAN svo vinsæl og víðlesin
sem raun ber vitni.
Vikan
veitir auglýsendum góða þjónustu á skynsamlegu
verði og hver auglýsing nær til allra lesenda VIK-
UNNAR.
Vikan
hefur sína eigin verðskrá yfir auglýsingar.
Upplýsingar um auglýsingaverð VIKUNN-
AR eiga við hana eina og þær fást hjá
AUGLÝSINGADEILD VIKUNNAR
í síma 27022