Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1987, Qupperneq 40
JVC
LOKI
Vil ikke landbrugsminister-
en ha en dansk skinke?
Veðrið á morgun:
Bjart veður
á Suður- og
Vesturlandi
Á morgun lítur út fyrir hæga
norðaustanátt á landinu. Við norð-
austur- og austurströndina verður
lítilsháttar súld. Á sunnan- og vest-
anverðu landinu verður bjart
veður en hætt er við síðdegisskúr-
um. Hiti verður á bilinu 8 til 11
stig á Norður- og Austurlandi en
11 til 15 stig suðvestanlands.
Boðið upp á
smyglaða
skinku á BÚ ’87
„Ég er orðlaus," segir formaður Stéttarsambands bænda
Boðið var upp á smyglaða danska
skinlui á landbúnaðarsýningunni
BÚ 87 í gær. Fólki gafst kostur á
að gera samanburð á íslenskri
skinku frá Síld og fiski annars vegar
og smyglaðri skinku frá Danmörku
hins vegar. Þessi smökkun fór fram
í bási Bændablaðsins og smyglaða
skinkan var kirfilega auglýst í hátal-
arakerfi ReiðhaUarinnar.
„Þessa skinku fékk ég hjá íar-
manni sem keypti hana í fríhöfri í
Kaupmannahöfh og flutti til lands-
ins án þess að greiða af henni toll,“
sagði Bjarni Harðarson, ritstjóri
Bændablaðsins. „Við erum með
þessu að benda fólki á að íslenska
skinkan gefur á engan hátt dönsku
skinkimni eftir þótt menn séu að
rembast við að smygla henni til
landsins.“
„Þetta mál kemur mér undarlega
fyrir sjónir og ég hef ekkert um það
heyrt fyrr en núna,“ aagði Jón
Helgason landbúnaðarráðherra er
DV bar skinkumálið undir hann í
gær.
„Ráðuneytið á fulltrúa í aýningar-
stjórn og ég geri ekki ráð fyrir að
þetta mál hafi verið borið undir
hana. Þeim sem sýna eru að sjálf-
sögðu gefnar nokkuð frjálsar hendur
en hins vegar verða þeir að halda
sig innan ramma laganna og menn
hljóta að verða að bera ábyrgð gerða
sinna,“ sagði laridbúnaðarráðherra.
„Mér finnst þetta alveg stórmerki-
legt mál, ég er eiginlega otðlaus,"
sagði Ingi Tryggvason, formaður
Stéttarsambands bænda.
„Ég verð þó að segja að mér finnst
það ekki viðeigandi að auglýsa í
hátalarakerfi að boðið sé upp á
smyglaða skinku á sýningu sem
þessari,’1 sagði Ingi.
Þess má geta að könnun fór fram
á því samfara smökkuninni hvor
skinkan fólki þætti betri. Útkoman
úr þeirri könmm varð sú að 34 fannst
íslenska skinkan betri en 25 fannst
sú danska betri. -ATA
Bjami Harðarson, ritstjóri og ábyrgðarmaður Bændablaðsins, býður sýningargestum að smakka islenska skinku
frá Síld og fiski og smyglaða danska skinku. OV-mynd GVA
Cargoluxvél
nauðlendir
Boeing 747 breiðþota frá Cargolux
nauðlenti í Japan í gær þar sem við-
vörunarljós vélarinnar gáfu til
^ kynna að kviknað hefði í einum
hreyfla hennar. Engir íslendingar
voru um borð í þotunni og engir far-
þegar.
Flugvélin var á leið frá Japan til
Taiwan með frakt. Skömmu eftir
flugtak tók viðvörunarljós að blikka
og gaf það til kynna að kviknað
væri í einum hreyflanna. Flugstjór-
inn tók þegar allt afl af hreyflinum
og sneri til baka og lenti aftur hálf-
tíma eftir flugtak.
Við skoðun kom í ljós að allt var
í lagi með hreyfilinn en að viðvör-
unarljósið hafði farið að loga vegna
bilunar. Ráðgert var að vélin færi
aftur í loftið áleiðis til Taiwan í
gærkvöldi. ATA
Meiðyrða-
mál gegn
Ríkisút-
varpinu
Lögmaður sakborningsins í
„Svefrieyjamálinu" hefur ákveðið að
höfðað verði meiðyrðamál vegna
fréttar sem birtist í fréttatíma sjón-
varpsins á mánudagskvöld. Þar var
sagt frá er foreldrar bama, sem
tengjast málinu, afhentu hjá bæjar-
fógeta í Hafriarfirði, kröfu þess eðlis
að sakbomingurinn verði hnepptur
í gæsluvarðhald þar til dómur geng-
ur í málinu.
Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður
sakbomingsins, hefur sagt við DV
að í fréttinni hafi verið ákveðin at-
riði sem væm grundvöllur fyrir
meiðyrðamáli. Nú hefur verið
ákveðið að höfða meiðyrðamál og
mun stefna verða birt innan skamms.
Már Pétursson, bæjarfógeti í Hafri-
arfirði, íhugar einnig höfðun meið-
yrðamáls vegna sömu fréttar. Hann
er í nú í leyfi og er væntanlegur til
vinnu eftir helgi. Þá verður ljóst
hvort bæjarfógetaembættið stefrii
Ríkisútvarpinu vegna meiðyrða.
-sme
FIMMTUDAGUR 20. AGÚST 1987.
Fræðslustjóramálið
Sigurður
Hallmarsson
ráðinn
Jón G. Hauksson, DV, Akureyii
Allar líkur em á að Sigurður Hallm-
arsson, sem hætti sem skólastjóri á
Húsavík síðastliðið vor, verði ráðinn
fræðslustjóri í Norðurlandsumdæmi
eystra. Sigurður kemur til með að
gegna embættinu til bráðabirgða eða
þar til staðan verður auglýst næsta
vor. Frétta er að vænta af málinu, frá
menntamálaráðuneytinu, um hádegis-
bilið í dag.
DV reyndi mjög í gærkvöldi og í
morgun að ná í Sigurð en hann var
sagður í morgun hafa verið fyrir aust-
an fjall í nótt. Ekki náðist í Birgi ísleif
Gunnarsson menntamálaráðherra
vegna fundahalda hans, en Guðmund-
ur Magnússon, aðstoðarmaður Birgis,
kvað frétta að vænta af málinu í dag.
Ólafur Guðmundsson, settur
fræðslustjóri í umdæminu, kvaðst í
morgun ekki vilja tjá sig neitt um
málið. Nokkrar sveiflur virðast hafa
verið um ráðningu nýs fræðslustjóra,
þannig var Trausti Þorsteinsson,
skólastjóri á Dalvík, talinn líklegastur
í fyrradag.
Slokkvilið í Reykjavik:
Þrjú útköll
í gærkvöldi og nótt var slökkviliðið
í Reykjavík kallað út þrívegis. I öllum
tilfellum var um minni háttar bruna
að ræða. Fyrsta útkallið var klukkan
rúmlega níu í gærkvöldi. Þá var laus
eldur í ruslagámi við verksmiðju Vífil-
fells við Stuðlaháls. Greiðlega gekk
að slökkva eldinn.
Laust fyrir klukkan ellefu í gær-
kvöldi var slökkviliðið kallað að
Keldnaholti en þar hafði kviknað eld-
ur í heygalta. Greiðlega gekk að ráða
niðurlögum eldsins. Síðasta útkallið
var um klukkan eitt í nótt. Þá var
laus eldur í bifreið sem var í Tún-
brekku í Kópavogi. Kviknað hafði í
vélarrúmi bifbeiðarinnar. Sem fyrr
gekk vel að slökkva eldinn. -sme
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
t
Fisksolusvindlið:
Hollendings- p
ins er enn
leítað
Kæra, sem dómsmálaráðuneytið
sendi Interpol vegna svika hollensks
manns við kaup á ferskum fiski af fisk-
verkanda á Suðumesjum, er enn til
meðferðar Alþjóðalögreglunnar. Þor-
steinn A. Jónsson hjá dómsmálaráðu-
neytinu segir að ekkert sé að frétta
af kærunni. Hollendingsins er enn leit-
að, en án árangurs.
-sme
Tolvuhaskólinn:
13 sóttu um
i
t
t
i
„Það voru lagðar fram 13 umsóknir
á fundi skólanefridar í gær, en nöfri
umsækjenda verða ekki gefin upp eins
og er,“ sagði Þorvarður Elíasson,
skólastjóri Tölvuháskóla VÍ, í samtali
við DV í morgun.
„Engin ákvörðun hefúr vérið tekin
um ráðningu enn, á næstu dögum
verður rætt við umsækjendur og
fvínæst verður kennslustjóri ráðinn.
haust verður síðan auglýst eftir nem-
endum í skólann, sem tekur til starfa
eftir árarnót," sagði Þorvarður. -BTH
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500
krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022