Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1987, Side 7
LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1987.
7
Fréttir
Kringlan:
íhuga harðari
viðuriög
- leggi fólk bílum sínum á akbrautina
„Það má segja að umferðin hafi
gengið þokkalega miðað við álagið,"
sagði Ríkharð Björgvinsson, varð-
stjóri í umferðardeild lögreglunnar,
þegar hann var spurður hvemig um-
ferðin við Kringluna hefði gengið
undanfarið.
Sagði hann að reynst hefði nauðsyn-
legt að hafa lögreglumann við Kringl-
una alla daga til að stjóma þar
umferðinni og gæta þess að fólk leggði
ekki bílum sínum á akbrautina, en að
því hafa verið nokkur brögð. Hafa
slíkir bílar verið sektaðir og þeir fjar-
lægðir og sagði Ríkharð að jafhvel
þyrfti að íhuga hvort ekki væri hægt
að beita menn enn harðari viðurlögum
því af lagningu bílanna skapaðist
hætta og miklar tafir.
Ekki sagði Ríkharð að nein slys eða
óhöpp hefðu átt sér stað viðKringluna
þrátt fyrir mikinn umferðarþunga.
-ój
Fornaströnd á Seltjarnarnesi hlaut útnefninguna fegursta gata Seltjarnar-
ness. Var hún vel að titlinum komin.
Margir laxanna, sem skiptu um heimkynni og synda nú um í Norðlingafljóti, eru vel vænir enda er þyngd þeirra
Norðlingafljót orðið laxveiðiá
Löxunum ekið til
veiðimannanna
„Þetta er ægifagurt svæði en hing-
að til hefur áin ekki boðið upp á
annað en örfáa silunga. Með því að
flytja fiskinn þangað erum við búnir
aó fá stórskemmtilegt veiðisvæði
með miklu af laxi,“ sagði Sveinn
Jónsson sem ásamt bróður sínum,
Þorgeiri, hefur sleppt fullvöxnum
laxi á svæði sem þeir hafa á leigu í
Norðlingafljóti í sumar.
„Við gerum þetta í þrennum til-
gangi. I fyrsta lagi erum við að
athuga hvort í ánni séu skilvrði fyr-
ir laxinn og reynslan hefur ótvrirætt
sýnt að svo er. Í öðru lagi enun við
að athuga hvort laxinn hrygnir í
ánni í haust og vetur. í þriðja lagi
er þetta viðskiptalegs eðlis. Við selj-
um veiðileyfi á stórkostlegt veiði-
svæði sem hingað til hefúr verið svo
til fisklaust."
Þeir bræður hafa keypt um tvö
hundruð laxa frá Lárósi, 5-25 punda.
og hafa flutt þá með fiskflutningabíl-
um í fiögur þúsund litra ílátum um
160 kílómetra leið. Að sögn urðu
engin affóll á laxinum í flutningun-
um sem gengu að öllu leyti eins og
í sögu.
Norðlirigafljót fellur í Hvítá í
Borgarfirði rétt f>TÍr ofan Bama-
fossa. Lax gengur upp Hvítá en
kemst ekki lengra en að Bamafoss-
um og því er enginn lax i Norðlinga-
fljóti sem er á frægu laxasvæði og
rennur meðal annars samhliða
Kjarrá.
..Við hlevptum löxunum í svæði
sem er rétt fyrir ofan þar sem Norð-
lingafljót fellur í Hvítá. Laxamir
verða á sex kílómetra afgirtu svæði.
kjarrivöxhu og fallegu vatnasvæði.
Þeir sem hafa veitt i Norðlingafljóti
em mjög ánægðir og hafa fengið
þetta þrjá til fjóra væna laxa á stöng
á dag."
Það er enginn eldislax sem sleppt
hefur verið í Norðlingafljót heldur
venjulegur, fullvaxinn lax og hiygn-
umar eru hrognafúllar. Ætlunin er
að láta laxinn hrygna á svæðinu en
seiðin geta síðan gengið niður
Bamafossa og út í sjó.
..Ef seiðin finna aftur ána og skila
sér upp að Bamafossum er ljóst að
laxarækt í Norðlingafljóti er raun-
hæf og þá höfúm við í hyggju að
reisa laxastiga við Bamafossa."
sagði Sveinn.
Sveinn sagði að sala veiðile\fa í
Norðlingafljóti gengi vel. Þeir seldu
le\'fi f>TÍr tvær stangir á dag og kost-
ar stöngin fimm þúsund krónur. í
veiðileyfúnum er innifalin aðstaða í
meiriháttar tjaldi. eins og Sveinn
orðaði það. og eiu tvö herbergi í
tjaldinu. Auk þess er útveguð gisting
hjá ferðaþjónustu bænda ef menn
óska þess frekar. ATA
Seltjamarnes:
Fomaströnd
fegurst
Bæjarstjóm Seltjamamess bauð
nýlega til kaffidrykkju í Félagsheimil-
inu en þá vom afhentar viðurkenning-
ar til garðeigenda sem til þeirra höfðu
unnið.
Það var umhverfismálanefnd Sel-
tjamamess í samvinnu við félagasam-
tök sem valdi úr þá garða sem taldir
vom bera af í ár. Þáð vom garðamir
að Látraströnd 13 en eigendur em
Þórður Gröndal og Ema Guðlaug
Jónsdóttir, Selbraut 7, eigendur Guð-
mundur Bjamason og Edda Ingólfs-
dóttir, og Neströð 5, eigendur Einar
Benediktsson og María Guðmunds-
dóttir. Fegursta gata bæjarins var
einnig valin og var það Fomaströnd
sem hlaut viðurkenninguna. -JFJ
Selbraut 7 hlaut einnig viðurkenningu en eigendur em Guðmundur Bjarnason
og Edda Ingólfsdóttir.
Takmarkað
magn.
Innkaupastjórar,
hafið samband
sem fyrst
í síma 91-37710.
Frábært
verð.
Tvíhjól
með fótbremsum,
handbremsum,
standara
og hjálparhjólum.
Barnið getur haft fæturna á pedulunum
meðan mamma eða pabbi ýta með stýris-
stönginni - hjólið snýst en
pedalarnir
ekki. Auk
þess er nú
fínasta
handbremsa.
INGVAR HELGASON HF.
VONARLANDI V/SOGAVEG, SÍMI 37710.