Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1987, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 1987.
7
Fréttir
Fjöldi fólks kom saman i göngugötunni til að fagna afmæli bæjarins. Voru
allir í sínu finasta pússi, og sumir raunar nokuð óvenjulega klæddir eins
og sést á meðfylgjandi mynd. DV-mynd GK
SKÓLARUVÉL
sem hefur allt og meira til
Olympia Carrera, ritvélinsem hlautvestur-þýsku IF87viðurkenninguna
fyrir hönnun og útlit
er ritvél hinna fjölhæfu og vandlátu.
Skólaritvél, ferðaritvél, heimilisritvél og atvinnuritvél, - aðeins 6,5 kg.
með alspenni og tösku til að fylgja þér hvert sem er.
Ritvél, hlaðin kostum, með lyklaborð aðlagað að fingrunum sem
auðveldar hraða og villulausa vélritun, 24 stafa leiðréttingaminni,
mismunandi leturgerðir, síendurtekningu á öllum lyklum og
ásláttarjafnara, allt til að tryggja góðan frágang án fyrirhafnar.
Cíunsra OLYMPIAO
í ( i ; i ! í i • ; ; 'j s
I l il I i M I I I M
f 1M I II I I M II ‘ '
j II I I ! 1 II I l 1
Li........1....1...................... .1. ...1.
11
! ' 4
Afmæli Akureyrar:
Göngugatan
„sprakk“
Kristjánsson, DV, Akmeyri;
Hátíðarhöldin í tilefni 125 ára afmælis
Akureýrar ó laugardag fóru mjög vel
fram og eru allir á einu máli um að
annar eins manníjöldi og var í mið-
bænum á síðdegisskemmtun hafi ekki
komið saman í bænum áður.
Að sögn lögreglu fóru hátíðarhöldin
vel fram og þurfti ekki að hafa af-
skipti af fleirum en um venjulega
helgi. Þó var nokkur ölvun um kvöld-
ið, en unglingadansleikur var haldinn
í göngugötunni, en ekki miklu meiri
en um venjulega helgi, að sögn lög-
reglu.
Ákureyringar tóku daginn snemma
og strax í morgunsárið var orðin mik-
il umferð í bænum. Þegar fjölskyldu-
hátíð var haldin í miðbænum síðdegis
kom meiri fjöldi saman en áður hefur
sést á Akureyri og er óhætt að segja
að göngugatan, sem var miðpunktur
hátíðarhaldanna, hafi „sprungið".
Sömu sögu er að segja er boðið var
til garðveislu í Lystigarðinum um
kvöldið. Mjög mikill fjöldi fólks kom
þangað til að njóta kvöldstundar í
upplýstum garðinum, en svo mikill var
fjöldinn að lá við öngþveiti og erfið-
lega gekk t.d. að framfylgja fyrir-
hugaðri dagskrá forseta Islands þar.
Hátíðarhöldunum lauk formlega þar í
garðinum með flugeldasýningu sem
Hjálparsveit skáta annaðist.
Veður á afinælisdaginn var þokka-
legt, að vísu rigndi örlítið um morgun-
inn og síðdegis en svo heppilega vildi
til að það gerðist á þeim tíma þegar
hlé var á dagskráratriðum.
Bjart fram undan hjá
Leikfélagi Akureyrar
- ríkið og Akureyrarfoær greiða 7 milljóna skuld félagsins
Gyifi Kiistjánsssan, DV, Akureyri:
Leikfélagsfólk á Akureyri fékk góða
gjöf í tilefhi 125 ára afinælis bæjarins
því ríkissjóður og Akureyrarbær hafa
tekið höndum saman og tryggt fjár-
hagslega framtíð leikhússins.
Leikfélag Akureyrar, sem er eina
atvinnuleikhúsið utan höfuðborgar-
innar, hefur átt í miklum fjárhagserf-
iðleikum undanfarin ár, þrátt fyrir
margar og góðar sýningar sem að hafa
verið vel sóttar. En „markaðurinn" er
smár sé miðað við höfuðborgarsvæðið
og endar hafa ekki náðst saman.
Nú er fengið loforð fyrir því að 7
milljóna króna skuldir félagsins verði
greiddar af hinu opinbera og sömu
aðilar tryggja fjárframlög til reksturs-
ins.
Fjöldi gjafa bavst
Gyffi Kristjánssan, DV, Akureyri:
í hádegisverðarboði bæjarstjómar
Akureyrar á Hótel KEA vom Akur-
eyrarbæ færðar margar góðar gjafir.
Meðal þeirra má nefna að Starfe-
mannafélag Akureyrarbæjar gaf
blómakörfu og gróðursetningu á eitt
þúsund trjáplöntum í Nausta- og
Hamraborgum. Dalvíkurbær færði
Akureyringum Sögu Dalvíkur í 4 bind-
um. Olafsfjarðarbær gaf „Afinælis-
bam“, myndverk í tré, Útvegsbanki
Islands gaf 100 þúsund krónur til fé-
lagsstarfe aldraðra á Akureyri, hrepps-
félögin við Eyjafiörð gáfu rósakvarts-
stein úr Dyrföllum, bæjarstjóm
Húsavíkur málverk eftir Sigurð
Hallmarsson og borgarstjóm Reykja-
víkur gaf einnig málverk.
Að auki bárust Akureyrarbæ fjöldi
blómakarfa og heillaóska víðs vegar
að.