Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1987, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1987, Síða 14
14 MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 1987. * Spumingin Hefurðu komið í Þórsmörk? Guðlaug Auður Guðnadóttir: Nei, aldrei, en mig langar til að fara þang- að. Ég ferðast þó frekar lítið um landið. Þórir Daníelsson: Ég hef komið í Þórsmörk, já. Það var mjög gott og gaman að því. Ég vona að ég geti farið þangað aftur. Sigrún Þórarinsdóttir: Tvisvar sinn- um og í bæði skiptin í hópferð frá Hraðfrystistöð Vestmannaeyja. Það var mjög gaman og ég fer örugglega aftur. Allan Ragnarsson: Já, já, svona 4-5 sinnum. Þar er gott að vera, gaman og fallegt. Ég fer aftur þegar ég hef tíma. Berglind Rafnsdóttir: Já, einu sinni en það er mjög langt síðan og ég man voða lítið eftir staðnum. Ætli maður fari ekki einhvem tíma aftur. Gróa Ormsdóttir: Já, ég hef farið tvisvar og ætla endilega aftur. Þama er mjög fallegt og yndislegt í góðu veðri. Lesendur „Moigunvagn fyrir nýja miðbæinn“ H.Ö. skrifaði: Mig langar að kvarta dálítiö yfir strætisvagnaleið einni; leið 13. Mér finnst það mjög furðulegt að hann skuli ekki geta keyrt í gegn um nýja miðbæinn (fiam hjá Borgarspítalan- um og Verslunarskólanum) á morgnana eins og hann gerir á kvöldin og um helgar. Margir þurfa að komast í vinnu á Borgarspítalann og í skóla í Verslunarskólann. Vonandi svarar Davíð eða fulltrúi Stxætásvagnanna þessu. Borgar- stjórar eru jú til þess m.a. að athuga óskir samborgaranna og framfylgja þeim ef hægt er. P.S. Það mættu vera tveir vagnar SVR: á leið 13 kl. 7.30 og 8.00 á morgn- Leiðir 13 og 14 fóm ana. Þessi eini er alltaf troðfrdlur. göngu Miklubrautina. Hörður Gíslason, skrifstofustjóri hjá hraðleið milli Breiðholts og er til þe8s ætlaður að ki fljótt og ömgglega frá íbúðarhverfinu niður í bæ. beðið um það frá Borg- . arspítalanum að tengBlin milli spítalans og Breiðholtsins yrðu bætt og út af því var tekin upp sú ný- breytni að láta vagninn fara Lista- brautina á kvöldin og um helgar en sú þjónusta er minna notuð en búist var við. Vagninn er mikið notaður á anna- tímum og það þjónar því ekki til- gangi hans að fara út af Miklubraut- inni á morgnana og lengja þar með ferðina. Að svo komnu máli er ekki fyrirhugað að breyta þessu þvi hægt er að taka vagna neðan frá Breið- holti og að Grensáastöðinni og skipta þar um. Varðandi þá spumingu að hafa tvo vagna á morgnana á leið 13 þá er alltaf reynt að láta annan vagn fylgjaáeftirefsá fyrsti er að fyllast Útvegsbankamálið: „Pýla einkageirans“ Konráð Friðfinnsson skrifar: Einu sinni var til banki sem kenndur var við útveginn. Hann var í upphafí síns ferils og lengi framan af stór og fyrirferðarmikill, stofiiaður að ég held á fyrstu áratugum aldarinnar til að þjónusta sjávarsíðuna, eins og heitið ber með sér. Það gerði Útvegsbankinn af einstakri ræktarsemi, svo mikilli að á endanum varð álagið á stofiiör- yggið fúllmikið og lagði greyið lárétt í rúmið með tíu tær upp í loft. Þannig er ástand hans nú. Þegar hér er komið sögu þorði eng- inn að þekkja og því síður að eiga viðskipti við vesalings þreytta appar- atið sem í blóma lífsins man fífil sinn mun fegri. Bankinn gat ekki sagt nei við nokkum útgerðarmann og því fór sem fór. Vanþakklætið ríður ekki við einteyming í vorri veröld. Menn troða og hrækja á aumingja Útvegsbankann sem er að deyja úr skömm yfir að geta ekki lengur lánað einhveiju Hafskipi þó ekki væri nema faeina aura með veði í einskis nýtu drasli hér og þar á hnettinum. En þegar neyðin er stærst er hjálpin næst, segir máltækið. Dag einn birti þessi lifandi ósköp upp. Himnesk ljós böðuðu bankann í umtali og athygli með þeim afleiðingum að kjaftagang- urinn rauk beint inn í raðir hæstvirtu ríkisstjómar íslendinga og olli þar óskaplegum taugatitringi. SÍS samvinnumaður var sem sagt mættur til leiks með fúlgur fjár í hand- arkrikanum til að gleðja lúinn, misnotaðan og löngu þurrausinn pen- ingaskáp og gæða hann lífi og sjálfs- virðingu á ný. Fátt annað vakti fyrir SÍS samvinnumanni. Hann botnar ekki fyllilega í öllum þeim látum sem orðin em nefndu máli að lútandi enda hrekklaus framsóknarþegn, að eigin sögn. „Ríkið á að ráða hæfari stjómendur en því miður hafa setið í Útvegs- bankanum til að gæta hagsmuna hans.“ Slíka góðmennsku þolir einkageir- inn vitaskuld illa, sem vonlegt er. Einkaframtakið hugðist nefrúlega næla í Útvegsbankann með húð og mestöllu hárinu en að sjálfeögðu án verstu skuldanna sem á honum hvíla. Framtakið ákvað þó að halda að sér skönkunum í þeirri von að á endanum gæfist ríkið upp á biðinni og færði því Útvegsbankann á silfurfati. Margt benti reyndar til að svo yrði á tíma- bili og skal því engan undra þó að einkadeildin sé um þessar mundir í hinni verstu fylu vegna ótímabærs upphlaups SÍS samvinnumanns sem að mati fyrrgreindra aðila býr nú þeg- ar við óeðlilega mikið umfang, hálf- gerða einokim. Einkaframtakið kýs öðruvísi einokun í höndum fárra góðra. Ég er þeirrar skoðunar að rangt væri af rikinu að selja margtugginn bankann á því verði sem í boði er. Ríkið á að hætta þeirri leiðu iðju sinni að gefa gæðingum en ráða þess í stað hæfari stjómendur en þvf miður hafa setið í Útvegsbankanum til að gæta hagsmuna hans. Póstur og sími: „Guðsvoluð einokunar- stofnun“ Bella símamær skrifar: Alveg er hún yfirgengilega léleg símaþjónustan hér á landi. Skyldi það nokkurs staðar annars staðar tíðkast fyrir vestan jámtjald að ekki sé hægt að ná beinu símasambandi við nær- liggjandi símasvæði klukkutímum saman. Ég öfúnda ekki blaðamenn og aðra þá sem þurfa að vinna fyrir kaupinu sínu með því að ná sambandi við fólk í öðrum byggðarlögum. Svo virðist þessari draugastofiiun vera í sjálfevald sett, hvenær, hvemig og hversu mikið hún hækkar afiiotagjöldin. Forsvarsmenn Pósts og síma ættu að skammast sín fyrir þá lélegu þjón- ustu sem þeir veita viðskiptavinum sínum. Skipulagsleysið, ókurteisin, hrokinn og úrræðaleysið hjá þessari guðsvol- uðu einokunarstofriun em löngu orðin augljós dragbítur á viðskiptalíf og upplýsingastreymi í landinu. Er ekki kominn tími til að stokka upp hjá þessari stofiiun og huga að ábyrgð þeirra sem fara með völdin? Það er hætt við því að munnvikin fari að síga niður á við hjá henni Bellu símamær eftir viðskipti hennar vlð þá „guðsvoluðu drauga- og einokunar- stofnun" sem henni finnst Póstur og sfmi vera. „Radar- mælið í ómerktum bílum“ Mæður hringdu: Við viljum beina þeirri áskorun til lögreglunnar að hafa alla bíla sem starfa við radarmælingar þannig að þeir séu ekki þekkjan- legir sem lögreglubílar. Oðru vísi ná þeir ekki ökuníðingunum. Fólk sem býr í íbúðahverfunum hefúr tekið eftir því að ökuníðing- ar keyra eins og englar er merktir lögreglubílar eru við mælingar en taka svo upp sama aksturslagið er mælingu lýkur. Óskum við þess að lögreglan taki þetta til greina. Því það sér hver maður að það er vita gagnslaust að reyna að ná þeim sem keyra of hratt á merktum bílum. Þorgrimur Guðmundsson, varð- stjóri hjá umferðardeild lögregl- unnar: Stefiian hefúr ætíð verið sú að vera með merkta bíla í radarmæl- ingunum. Meginástæða þessa er sú að við förum ekki í felur né leggjum gildrur fyrir fólk. Lögregl- an hefur oftsinnis verið ásökuð um shka hluti og ég er hræddur um að það yrðu einhver lætin ef við myndum fara að radarmæla í ómerktum bílum. Það yrði sagt að við værum að leggja gildrur, að hér væri lögregluríki, o.s.fr. Það er staðreynd að það næst aldrei jalngóður árangur í merkt- um lögreglubílum og ómerktum. Það hefúr verið kannað að radar- mæla í ómerktum bílum og það gaf góða raun en við viljum forðast það að fara í felur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.