Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1987, Blaðsíða 34
MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 1987.
ALSTIGAR
ALLAR GERÐIR
SÉRSMÍÐUM
BRUNASTIGA O.FL.
Kaplahrauni 7, S 651960
Aðeins á kr. 2.390.- settið,
meðan birgðir endast.
rrr.
HJÓLKOPPAR
Kvikmyndahús Kvikmyndir
Á ferðalagi
Breyttur og betri Superman
Óðum styttist í að fjórða Superman-
myndin berist hingað til lands. FVrst
verða menn að sjá hvemig löggumar
á hæðum Beverly Hills leggjast í
landann, hvort hún verður sýnd um
lengri eða skemmri tíma. Ef marka
má vinsældir hennar vestanhafs
mun hún falla vel í kramið hér á
landi. Því er enn óákveðið hvenær
Christopher Reeve í hlutverki ofur-
mennsins hefur flugið í Háskólabíói,
fyrr en síðar kemur kappinn.
Superman er enn sem áður allur
af vilja gerður til þess að rétta fram
hjálparhönd og jafnvel mannlegri
nú en nokkru sinni. Ekki veitir af á
kjamorkuöld. í raun hafði Christo-
pher Reeve þessi mannlegu tilmæli
í frammi því ella myndi hann ekki
hafa klæðst búningi ofúrmennisins
að nýju. Þetta var samþykkt af
Cannon bræðrum, en þeir keyptu
kvikmyndaréttinn af Alexsander
Salskind er framleitt hafði þijár fyrri
myndimar.
Söguþráðurinn er í stuttu máli á
þessa leið: Á ungan skóladreng að
nafiú Jeremy leggjast allar áhyggjur
heimsins eða hugarangur vegna
kjamorkuvígbúnaðarins. Leiðtogar
heimsins funda og koma sér ekki
saman um eyðingu kjamavopna.
Ákveður hann því að senda eina
manninum, sem mögulega getur
bjargað heiminum, bréf og biðja
hann að aðstoða. Bréfið sannfærir
Superman og blaðamanninn og
hann býður fram hjálp sína.
Superman mætir á fund Samein-
uðu þjóðanna og er reiðubúinn til
að leggja til atlögu úti í geimnum
og sprengja kjamavopnin í loft upp.
Mikill friðarvilji býr innst með leið-
togunum og samþykkja þeir tillögu
hans og allur heimurinn gleðst.
En alltaf em mikil illmenni til
staðar, ekki síst í Supermanmynd-
um. Að þessu sinni er það Lex
Luthor, hann gleðst yfir uppátæki
Superman og sér sér nú loks fært
að selja kjamorkuvopn. Hefst mikill
hasar og sem fyrr sigrast ofúrmennið
á andstæðingnum, ellegar væri ekki
hægt að framleiða fleiri Superman-
myndir.
Mikið væri nú gott að hafa eins
og einn Superman í okkar heimi.
Mörg stór nöfn koma ævinlega
fyrir í þessum myndum, þar á meðal
muna menn eftir Marlon Brando
sem lék föður Superman í fyrstu
myndinni, en nú verður það Gene
Hackman, Mariel Hemingway, að
venju Margot Kidder í hlutverki
Louis Lane og Jackie Cooper. Leik-
stjóri er Sidney J. Furie. Hann hefur
komið viða við í spennumyndum.
Við megum sumsé vænta þess að
Superman komi við hér á landi er
laufin taka að falla af trjánum.
Þau renna ennþá hýru auga hvort til annars, Louis Lane og Superman.
Hvrtárvatn og Hvítámes
I Karlsdrætti. I bakgrunni má sjá Norðurjökulinn þar sem hann fellur ofan í Hvitárvatn og Skriðufell lengst til vinstri.
Fljótlega eftir að komið er yfir Sandá
sunnarlega á Kjalveginum er komið
að Grjótá sem er óbrúuð á en yfir-
leitt góð yfirferðar og ekki til trafala.
Fyrir ofan Gijótána blasir heljarm-
ikið fjall við. Það er Bláfell sem er
1204 metra hátt og er hæsta fjafi á
Suðvesturlandi. Þetta er eitt svip-
mesta fjall sem sést úr byggð á
Suðurlandi þegar Hekla og Eyja-
fjallajökull eru undanskilin.
Útsýni af toppi Bláfells er mikil-
fenglegt og vítt. Af veginum, sem
liggur yfir Bláfellsháls, er ekki síður
stórfenglegt útsýni til vesturs. Ber
þar hæst Jarlhettumar, svartir tind-
ar og í gegnum skörðin sér í drif-
hvítan Langjökulinn. Þegar litið er
10 ARA ABYRGÐ
í suðurátt má greina úðamökk yfir
Gullfossi og í norðri liggur Hvítár-
vatnið. Rétt eftir að komið er niður
af hábungu Bláfellshálsins er stór
varða á vinstri hönd. Sú trú hefúr
myndast að í þessa vörðu þurfi að
bæta nokkrum steinum eigi förin að
heppnast vel.
Vegurinn hggur nú í sveigju niður
að Hvítá og þar má segja að hinn
eiginlegi fomi Kjalvegur byiji.
Hvítáin var alstærsti farartálminn á
Kili til foma áður en feijubátar
komu á ána. Ekki var fært yfir ána
fyrr en snjóa hafði leyst og vorflóð-
um var lokið. Þá var riðið yfir á
svonefndu Skagfirðingavaði en naf-
nið sýnir berlega hveijir notuðu
leiðina mest. Nú þurfa ferðalangar
ekki að hafa áhyggjur af neinu slíku
því áin er brúuð.
Hvítámes, Hvítárvatn og nánasta
umhverfi era einn tilkomumesti og
fegursti staður í óbyggðum íslands.
Þar hðast niðandi ár, sumar kristals-
tærar, aðrar mórauðar af jökul-
raðningi. Stöðuvatnið er langt og
breitt, fimmta stærsta vatn á ís-
landi. Jöklar liggja að svæðinu og
falla niður í vatnið og hin svipmiklu
fjöll og iðgrænar engjalendur era
einsdæmi svo langt uppi á öræfum.
Vestan við Hvítárvatn ganga tveir
stórir skriðjöklar fram úr Langjökh;
SuðuijökuU og Norðurjökull. Suð-
uijökull hefur hörfað mikið og nú
fellur hann ekki lengur ofan í vat-
nið. Á milli skriðjöklanna tveggja
er Skriðufell með íshvel Langjökuls,
alls 1235 m hátt, ofan á sér. Norður-
jökull fellur svo hægra megin við
Skriðufellið ofan í vatnið, brattur
og sprunginn. Oft heyrist á sumrin
urg og sarg í jökulsprungunum þeg-
ar jakabákn ýtast til. Stundum detta
stórir jakar fram af jöklinum, ofan
í vatnið og standa í botninum en
aðrir fljóta um.
Frá Kjalveginum liggur afleggjari
inn að Hvítámesi en þar stendur
fyrsta sæluhús Ferðafélags Islands
reist árið 1930 og endurbyggt árið
1977. Sögur fara af miklum reimleik-
um í húsinu en eigi verður lagður
dómur á það hér. Hvítámes, sem er
víðáttumikið, blautt graslendi er
orðið til við framburð Fúlukvíslar.
Inn með Hvítárvatni upp við Norð-
uijökul er vogur sem heitir Karls-
dráttur. Vogurinn heitir svo því þar
dvaldist eitt sinn karl nokkur eins-
amall við veiðiskap. Hann lét fol-
aldsmeri synda með nettogið yfir
fjörðinn og dró svo fiskinn í netið. í
brekkunum upp af Karlsdráttum er
sólríkt og þar vex kjarr og blóm-
skrúð er þar óvenjumikið svo hátt
til ijalla. Þar hafa fundist einar 80
til 90 háplöntur á litlum bletti.
Þjóðleikhúsið
■II
Sala aðgangskorta hefst fimmtudag-
inn 3. september.
Verkefni í áskrift leik-
árið 1987-1988.
Rómúlus mikli
eftir Friedrich Durrenmatt.
Brúðarmyndin
^aftir Guðmund Steinsson.
Vesalingarnir, Les Miserables,
söngleikur byggður á skáldsögu eftir Victor
Hugo.
Listdanssýning
Islenska dansflokksins.
A Lie of the Mind
eftir Sam Shepard.
Fjalla-Eyvindur
eftir Jóhann Sigurjónsson.
Lygarinn
eftir Goldoni.
Verð pr. sæti á aðgangskorti með 20% afs-
lætti kr. 4320.
Ath! Fjölgað hefur verið sætum á aðgang-
skortum á 2.-9. sýningu.
Nýjung fyrir ellilifeyrisþega:
Aðgangskort fyrir ellilífeyrisþega á 9. sýn-
ingu kr. 3300.
Kortagestir leikárið 1986-1987:
Vinsamlegast hafið samband við miðasölu
fyrir 10. september, en þá fara öll óseld
aðgangskort i sölu.
Fyrsta frumsýning leikársins,
Hómúlus mikli, verður 19. september.
Almenn miðasala hefst laugardaginn 12.
september.
Miðasala opin alla daga kl. 13.15-19 á
meðan sala aðgangskorta stendur yfir. Sími
í miðasölu 11200.
LUKKUDAGAR
31. ágúst
16853
Hljómplata frá
FÁLKANUM
að verðmæti
kr. 800.
Vinningshafar hringi í sima
91-82580.
Bíóborgin
Tveir á toppnum
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Sérsveitin
Sýnd kl. 5, 7,9 og 11.
Bláa Bettý
Sýnd kl. 5, 7.10 og 9.20.
Bíóhúsið
Undir eldfjallinu
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Bíóhöllin
Tveir á toppnum
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
The Living Daylights
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Angel Heart
Sýnd kl. 5 og 10.
Lögregluskólinn 4.
Sýnd kl. 5 og 7.
Innbrotsþjófurinn
Sýnd kl. 9 og 11.
t* Blátt flauel
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Um miðnætti
Sýnd kl. 7.30.
Háskólabíó
Gínan
Sýnd kl. 7, 9 og 11.
Laugarásbíó
Rugl í Hollywood
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Valhöll
Sýnd kl. 5, 7,9 og 11.
Foli
Sýnd kl. 5, 7,9 og 11.
Regnboginn
Vildi að þú værir hér
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15.
Kvennabúrið
Sýnd kl. 9 og 11.15.
Villtir dagar
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15.
Herdeildin
Sýnd kl. 3, 5.20, 9 og 11.15.
Þrír vinir
Sýnd kl. 3, 5 og 7.
Otto
Sýnd kl. 3.05, 5.05, 9.06 og 11.15.
Herbergi með útsýni
Sýnd kl. 7.
Stjömubíó
Óvænt stefnumót
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11
Neðanjarðarstöðin
Sýnd kl. 7 og 11.
Wisdom
Sýnd kl. 5 og 9.
BINGO!
Hefstkl. 19.30
Aðalvlnnlnqur að verðmaetl
kr,40 bús.
Helldarverðmaetl vlnnlnga
kr.180 bús.
TEMPLARAHÖLUN
Eiríksgötu 5 - S. 20010
iubn3 .Ifem iQðipsd .iBpnirfi