Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1987, Blaðsíða 12
12
FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1987.
Neytendur____________________
Merktir kassastrimlar
Það hefur sem betur fer færst í vóxt
að verslanir taki upp viðunandi merk-
ingar á sundurliðuðum kassakvittun-
um, að hver vara sé nefnd og verðið
á henni. Mikligarður varð fyrst mat-
vöruverslana til að bjóða upp á slíka
strimla en að auki bjóða ýmsar sér-
verslanir upp á þetta, s.s. Ikea, Útilíf
og ÁTVR í Kringlunni.
Þetta kernur í kjölfar svokallaðra
rákamerkinga en þá er varan merkt
rákaröð sem gerir tölvu kleift að lesa
allar upplýsingar, þar á meðal verð.
Þar sem verslanir hafa yfir að ráða
slíkum tölvubúnaði kemur fram heiti
vöm og verð á kassakvittunum.
Önnur leið til að gefa viðunandi
sundurliðun á strimli er að varan sé
merkt sérstöku númeri sem er þá
stimplað inn í kassann í stað verðs og
prentast þá bæði heiti og verð á kass-
astrimil.
DV hafði samband við Guðstein
Guðmundsson hjá Neytendasamtök-
unum og spurði hann um þessi mál:
..Ef litið er á rákamerkingu sem ein-
angrað fyrirbrigði þá er hún til mikilla
hagsbóta fyrir þann neytanda sem vill
fylgjast með sínum innkaupum. Fyrir
hinn, sem hendir kvittuninni um leið
og hann fær hana í hendur, hefur þessi
merking náttúrlega ekkert gildi. Það
fylgir þessum merkingum þó ein
v I!_ I F
AilT TIL vT:vE".L;
12S56 #:
•.wÍATw^*.;
PITL j. jLw
c
5.20.
tcaM'.K FVP. IR
fullv:m vj*vC vjl •• í;-j-c
-ð-
-s-
-n-
-ö-
-f
í? 0 *
M) K'EH.-t
HÍRD TOY CRATE SIG
LAGER 0UILT-6AG SE
tinto bed-base cov
LÍN
0V94 0001 20.
LÍN . .1 t
SYREN PILLOU CAÍii J 1 4 >
SKVETT CUSHI0H-C0V 1
SKVETT CUSHI0N-C0V 1
SYREN 0UILT C0VER 1
SAGIS CDAT-HANGER I
BAGIS CHILD COATHA 2
SUJ HANDLE UHITE 4 1
•SAHTALS
A90
1.780
550
1.190
150
605
665
1.395
165
280
195
7.545
PUKAS BACK PAD S 1 1,195
'•ALLAS/PUKAS SET 0 1 340
T JiO'-S JUNI0R CHAIR 1 2.295
EALUN >,:■ PT1 HI CA 1 6.850
EALUN.HS PRT 2 H1 1 4,900
SULTAN FAST 90X200 1 9,490
SULTAN 90 105 120 ' 1 1.390
EHIR STANDARD 90X2 1 2,190
BOJ 11 FRAHE PINE 1 1,940
B0J 21 N DRAUER SE 1 2.200
60J DESK 70P 120X6 1 1.385
BOJ 51 SUPPORTING 1 840
*S|HTAIS ,2.600
SKULDABRÉF 1 28,400'
NR. REIKNINGS 0100000000444142250381
AVÍSUN 14.000
Sýnishorn af kassakvittunum nokkurra verslana. Eins og sjá má er ekki alltaf
gott að átta sig á hvað hefur verið keypt.
hætta, sú að verðmerking inni í versl-
ununum sjálfum verði ekki sem best.
Reynslan frá hinum Norðurlöndunum
hefur sýnt að verslanir sem hafa þessa
rákamerkinguunerki verðið í hilluna
þar sem varan er geymd og virðist það
þvi miður oft vilja gleymast að breyta
þvi verði ef varan sjálf hækkar í verði.
Ef hins vegar er merkt með númeri í
stað verðs er alltaf fyrir hendi sú hætta
að mistök verði þegar talan er stimp-
luð inn í kassann og neytandinn borgi
allt aðra vöru heldur en hann er með
í höndunum. Þessar kassakvittanir
eru hins vegar mjög handhægar fyrir
þann sem vill fylgjast vel með því sem
hann kaupir inn og skoðar strimilinn
þegar heim er komið.“
Félag íslenskra iðnrekenda kynnti
félagsmönnum sínum rákamerkingar
fyrir nokkru. Samkvæmt upplýsingum
þaðan er allur gangur á þessum merk-
ingum hér á landi, sumir eru með
þessar rákir eða gera ráð fyrir þeim á
nýjum umbúðum meðan aðrir heillast
ekki. Þetta er hins vegar engin skylda
hér á landi eins og sums staðar erlend-
is heldur er mönnum það í sjálfsvald
sett hvort þeir taka upp þessa merk-
ingu eður ei. Rákimar hafa mikla
Lambakjötið er Ijúffengur matur. Það er á mjög góðu verði
í KRON verslunum núna. Úrval af lambakjöti í allskonar rétti.
Frampartar Marinerað kjöt
Læri Úrbeinaðkjöt
Lærissneiðar London lamb
Hryggur Hangikjöt
Kótilettur Saltkjöt
Svið
| Kauptu inn hjá KRON, það er hagstætt.
v/Norðurfell v/Stakkahlíð Stórmarkaður,
v/Tunguveg v/Dunhaga Skemmuvegi
i v/Langholtsveg v/Furugrund, Kóp. Kaupstaður í Mjódd.
DV
Rákamerking sem hægt er að lesa
með sérstökum Ijósapenna. í rákun-
um eru allar helstu upplýsingar um
vöruna
hagræðingu í för með sér við birgða-
bókhald því að tölvan skráir út lesnar
vörur jafnóðum.
Það má því búast við að þetta færist
í vöxt í náinni framtíð og ættu þvi
neytendur að geta nýtt sér vel sundur-
liðaða og merkta kassastrimla til að
fylgjast með sínum innkaupum mun
meira en áður hefur verið hægt.
-PLP
Þegar
landinn ætiar
að spara og
pantar beint
Því hefur stundum verið haldið
fram að óprúttnir aðilar smyrji lið-
ugt á vörur sem þeir selja fólki við
dymar, eins og það er kailað. En
hið opinbera or ekki síður duglegt
að smyrja ofan á vörumar sem
landsmenn festa kaup á. Bréf frá
lesanda okkar segir sína sogu um
slíkt og getur orðið öðrum til við-
vörunar.
Héma er bréfið:
Fyrst er að segja sögu af því að
ég hugðist spara mér stórfé og ná
um leið almennilogum eldhúshníf-
um.
í áskriftartilboði í norsku blaði,
sem ég kaupi, áttu áskrifendur
kost á að kaupa 5 Sheffield Laser
hnífa á aðeins Nkr. 230 G.330 kr.
ísL).
Þetta sýndist mér hin mestu reyf-
arakaup og sendi pöntun nær
samdægurs og ég fékk blaðíð. Svo
fór ég í sumarfrí.
Þegar ég kom aftur beið mín
póstkrafa frá tollinum og hljóðaði
hún upp á 1895 kr. En þá átti ég
eftir að borga andvirði hnífanna.
Þetta urðu mér mikil vonbrigði því
satt að segja hafði raér láðst að
reikna með þessu.
Ég vil því vara fólk við að panta
svona vörur beint til þess að lenda
ekki í stórum fjárútlátum.
Tollverð er fundið út á þennan
hátt:
Verð á vöru_= 230 Nkr; gengi 5,
7592 = 1.325 íkr. + burðargöld, 63
kr., og vátrygging, 14 kr. Við þetta
bætist eftirfarandi:
40 % tollur = 561 kr.
30 % vörugjald = 589 ki-.
1 % eitthvað = 14 kr.
27,5% sölugjald = 706 kr.
tollmeðferð = 25 kr.
Þá var enn eftir að greiða and-
virði hnifanna eða 230 Nkr.
Ég held að hní&mir hafi orðið
mér nokkuð dýrir og mun alltaf
minnast þessa þegar ég nota þá.
Það er hins vegar huggun harmi
gegn að það er ljómandí gott að
nota hnífana, annað h vort væri nú!
Svípað og verð út úr búð hér
Svona getur farið fyrir fólki þeg-
ar það ætlar að spara. Ég man eftir
dæmi þar sem íslensk kona sendi
inn lausn á getraun í dönsku viku-
blaði og var ein af þcim heppnu
sem fékk vinning. Vinningurinn,
sem var jólakarfa full af alls konar
jólagóðgæti, var sendur til íslands
en viðtakanda gert að greiða toll
af ÖIlu saman!
Við getum einnig upplýst að þetta
verð, sem bréfiátari þurfti að greiða
fyrir hnífasettið aitt, er aðeins
lægra en sams konar sett kostar í
verslun í Reykjavxk en þá em hni-
famir í plastblokk.
Þessi tilboð, sem boðin eru í er-
lendu blöðunum, koraa því aðeins
til góða fyrir eigin landsmenn sem
þuifa ekki að greiða toll af vörun-
um.
-A.BJ,