Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1987, Page 28
40
FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1987.
Jarðarfarir
Vilborg Torfadóttir lést 12. sept-
ember sl. Hún fæddist í Kollsvík í
Rauðasandshreppi 5. júní 1896. For-
eldrar hennar voru hjónin Guðbjörg
Ólína Guðbjartsdóttir og Torfi Jóns-
son. Vilborg giftist Eyjólfi Sveins-
syni en hann lést árið 1941. Þeim
hjónum varð þriggja sona auðið,
einnig ólu þau upp systurson Vil-
borgar. Kveðjuathöfn um Vilborgu
verður í Hallgrímskirkju í dag kl.
13.30. Jarðsett verður frá Saurbæjar-
kirkju á Rauðasandi fimmtudaginn
24. september kl. 14.
Jósep Jón Jóhannsson lést 8. sept-
ember sl. Hann fæddist 18. desember
1919 að Skógsmúla í Miðdalahreppi
í Dalasýslu, sonur hjónanna Jóhann-
esar Jónssonar og Sigurbjargar
Sigurðardóttur. Árið 1921 fluttist
Jósep með foreldrum sínum að Gilja-
landi í Haukadal þar sem hann bjó
fram á dánardægur. Jósep útskrifað-
ist sem búfræðingur frá Hvanneyri
1939. Auk þess að stunda búskap
starfaði hann við kennslu og skóla-
stjórn í 14 -vetur, var farkennari víða
og skólastjóri á Súðavík og Grenivík.
Sl. áratug hefur hann starfað á skrif-
stofu Kaupfélags Hvammsfjarðar.
Utför hans verður gerð frá Stóra-
Vatnshorni í Haukadal í dag kl. 14.
Grímsey:
Jarðskjálfta-
hrinunni tokið
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri;
„Þetta er greinilega búið núna,“
sagði Alfreð Jónsson í Grímsey í morg-
un er DV spurði hann hvort vart hefði
orðið við jarðskjálfta í nótt.
Alfreð sagði að ekki hefði orðið vart
við skjálfta síðan í gærmorgun og
menn væru vissir um að þeim '-geri
lokið, að sinni að minnsta kosti. Ekki
hefðu orðið neinar skemmdir á mann-
virkjum í þessari skjálftahrinu og nú
væri glaðasólskin og prýðisveður í
Grímsey og létt yfir fólkinu.
Nafnabrengl
I DV í gær var farið rangt með nafri
matsveinsins á Guðmundi VE. Hann
heitir Gústaf Guðlaugsson. Er hér með
beðist velvirðingar á mistökunum.
Leiðrétting
Á getraunasíðunni Tippað á tólf á
fimmtudaginrpvar urðu þau mistök að
dálkar fjölmiðlanna Stöðvar 2 og
Stjömunnar víxluðust. Þar sem
Stjaman hefúr náð bestum árangri
fjölmiðla það sem af er keppninni er
undirrituðum skylt og ljúft að biðja
kollega og alnafiia afsökunar á þessum
mistökum. Hið rétta er að Eiríkur
Jónsson, fréttastjóri Stjömunnar, sem
hefur tippað fyrir sinn fjölmiðil í
haust, er með 16 réttar lausnir eftir
þrjár umferðir, en Stöð 2 er með 11
réttar lausnir. E.J.
I gærkvöldi
Hafsteinn Oskarsson framkvæmdastjóri:
Stjömumar hæpnar
Hafsteinn Oskarsson.
Ég horfði auðvitað á 19.19 í gær-
kvöldi og þó að líklega sé lítið að
marka þennan fyrsta þátt þá líst mér
vel á þetta. Það var dálítill byrjenda-
bragur á þættinum í gærkvöldi sem
kom meðal annars fram í því að
þátturinn fór fram úr áætlun og u.þ.
b. 10 mínútur fóru bara í kynningu.
Ég hef þó á tilfinningunni að þetta
eigi eftir að vera skemmtilegt ef
Stöðvarmenn fá þetta til að renna í
gegn. Formið er vikvæmt en athygl-
isvert. Það var helst að listagagn-
rýnin styngi mig. Ég leyfi mér að
draga í efa að það eigi rétt á sér að
gefa stjömur í listagagnrýni. Það er
eðlilegra að gagnrýnandinn orði álit
sitt á verkunum.
Þá horfði ég á Heilsubælið og er
svo sannarlega hægt að segja að
þetta hafi verið léttgeggjað. Það
vom góðir kaflar inni í þessu en þó
verður að segjast eins og er að full-
margir brandarar vom þama á
stuttum tíma til að hægt væri að
hafa gaman af þeim. Það hefði mátt
gera þetta undir aðeins eðlilegri
kringumstæðum.
Þá horfði ég á breska þáttinn King
& Castle og sannaðist enn einu sinni
lagni Breta við að gera svona þætti
og ekki annað hægt að segja en að
þátturinn hafi farið vel af stað.
Einn þátt náði ég að hlusta á á rás
2 í gærkvöldi en það vom Kvöldsyrp-
ur með Þorgeiri Ólafssyni. Þorgeir
spjallaði um sín unglingsár og
hvemig þau tengdust John Lennon
og boðskap hans. Þama fékk maður
skemmtilegt sjónarhom á Lennon
og skoðanir hans. Það var greinilegt
að boðskapurinn náði til Þorgeirs
og félaga hans og var virkilega gam-
an að þessum þætti.
Þá hefði ég viljað geta hlustað
betur á þátt Ara Trausta Guðmunds-
sonar, I landi kondórsins, en
samkvæmt því sem ég heyrði þá
hefur það verið mjög athyglisverður
þáttur.
Fíkniefhasmygl:
Fimm fengu dóm
Einar Eggertsson kafari lést 9.
september sl. Hann fæddist í Reykja-
vík 15. október 1902. Einar hóf störf
hjá Vita- og hafnamálaskrifstofunni
árið 1929 og starfaði þar í hálfa öld.
Eftirlifandi eiginkona hans er Svein-
biörg Árnadóttir. Þeim hjónum varð
fimm barna auðið. Útför Éinars verð-
ur gerð frá Fossvogskirkju í dag kl.
13.30.
Helene K. Hjartarson lést 12. sept-
ember sl. Hún fæddist í Leipzig,
Þýskalandi, 28. apríl 1901. Foreldrar
hennar vom Anna og Paul Kummer.
Helene kom til íslands 1923. Hún
vann við hárgreiðslu og rak um skeið
eigin stofu. Eftirlifandi eiginmaður
Helene er Oddgeir Hjartarson. Þau
hjónin eignuðust 3 börn og ólu einn-
ig upp tvö bræðrabörn Helene. Útför
hennar verður gerð frá Bústaða-
kirkju í dag kl. 15.
Jóhann Ágúst Gunnarsson lést 7.
september sl. Hann fæddist í Reykja-
vík 5. mars 1932, sonur hjónanna
Gunnars B. Halldórssonar og Aðal-
heiðar M. Jóhannsdóttur. Að loknu
fullnaðarprófi hóf hann nám í raf-
virkjun við Iðnskólann í Reykjavík
og hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Lauk hann síðan prófi frá Vélskóla
íslands, Rafmagnsdeild, 1953. Starf-
aði hann hjá Rafmagnsveitu Reykja-
vfkur frá 1947 til 1974 en frá þeim
tíma sem sjálfstæður rafverktaki.
Eftirlifandi eiginkóna hans er Ingi-
björg Sigurðardóttir. Þau hjónin
eignuðust þrjár dætur. Útför Jó-
hanns verður gerð frá Dómkirkjunni
í dag kl. 13.30.
Björg Ólafsdóttir, Hamraborg 26,
Kópavogi, lést að heimili sínu
fimmtudaginn 10. september. Jarðar-
förin hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu.
Ögmundur Guðmundsson, fyrr-
verandi bóndi, Þórarinsstöðum,
Hrunamannahreppi, verður jarð-
sunginn frá Hrunakirkju laugardag-
inn 19. septernber kl. 14.
Kristjana Árnadóttir, Grímshús-
um, Aðaldal, verður jarðsungin frá
Grenjaðarstaðarkirkju laugardag-
inn 19. september kl. 14.
Ágústa Þórðardóttir verður jarð-
sungin frá Eyrarbakkakirkju laugar-
daginn 19. september kl. 14.
Tilkyimingar
Erindi á vegum Náttúrulækn-
ingafélags Reykjavíkur
Á vegum Náttúrulækningafélags Reykja-
víkur flytur yfirlæknir heilsuhælisins
Tallmogárden í Svíþjóð, dr. Karl-Otto
Aly, erindi á Hótel Sögu laugardaginn 19.
september kl. 14 í B-sal. Erindið íjallar um
kenningar hans og reynslu af náttúru-
lækningum. Allir áhugamenn eru vel-
komnir á meðan húsrúm ieyfir.
Fimm menn hafa verið dæmdir
vegna smygls og aðildar að smygli á
amfetamíni til landsins á árinu 1985.
Mennimir smygluðu amfetamíninu til
landsins með þeim hætti að koma því
fyrir í togurum sem voru í erlendum
höíhum. Áhafnir togaranna voru ekki
viðriðnar smyglið.
Mennimir, sem dæmdir vom, em
Magnús Einarsson, en hann var
Alvarlegt umferðarslys varð í Bakk-
aselsbrekku á Öxnadalsheiði í gær.
Bíll valt þar út af veginum og vom
ökumaður og farþegi íluttir á sjúkra-
hús á Akureyri.
Bíllinn var á leið til Akureyrar og
efst í brekkunni missti ökumaður vald
á bílnum sem snerist og fór út af vegin-
um vinstra megin og valt síðan tíu
dæmdur til 28 mánaða fangelsisvistar,
Magnús hefur áður hlotið 24 refsi-
dóma. Ævar Agnarsson var dæmdur
til 24 mánaða fangelssisvistar og sama
dóm hlaut Friðþjófur Bragason.
Mönnunum var gert að greiða 10 þús-
und króna sekt. Dómur þeirra er ekki
skilorðsbundinn.
Tveir menn vom dæmdir í 5 mánaða
fangelsi, skilorðsbundið, vegna aðildar
metra. Ökumaðurinn slasaðist alvar-
lega en er ekki í lífshættu en meiðsli
farþegans vom lítils háttar.
Daníel Snorrason rannsóknarlög-
reglumaður sagði að öryggisbelti
hefðu ekki verið notuð í þessu tilviki
en sennilega hefðu þau getað bjargað
miklu ef þau heföu verið spennt. Yfir-
bygging bílsins var heilleg eftir velt-
una en ökumaðurinn haföi kastast
aftur í bílinn og það heföi ekki gerst
að smyglinu. Þeir sáu um að íjár-
magna kaupin. Það var Guðjón
Marteinsson, fúlltrúi hjá sakadómi í
ávana- og fíknieínamálum, sem kvað
upp dóminn.
Mikla athygli vakti þegar mennfrnir
vom handteknir eftir eltingarleik á
Grandagarði í byrjun nóvember 1985.
-sme
heföi hann notað öryggisbelti.
Þetta slys er það fimmta sem verður
á Öxnadalsheiðinni í um mánaðartíma
og virðast menn ekki haga akstri sín-
um eftir aðstæðum. Á meðan lögreglu-
menn unnu að rannsókn slyssins í gær
kom til dæmis bíll niður brekkuna á
mjög mikilli ferð og heföi ökumaður
hans ömgglega lent í miklum vand-
ræðum hefði hann þurft að beita
hemlunum.
Sönn barátta
Þá er farið að líða á seinnihluta
UNM-hátíðarinnar sem hófst um
síðustu helgi. Fram að þessu hafa
verið haldnir sex tónleikar með
verkum unga fólksins á Norðurlönd-
um og tvennir em eftir.
{ gærkvöldi vom tónleikar í
Menntaskólanum við Hamrahlíð og
vom flutt þar sex tónverk frá fimm
löndum, Svíar áttu tvö. Besta verkið
var að mínum dómi strengjakvartett
frá Finnlandi, Jeusikvartette (hvað
sem það þýðir) eftir Jukka Koskin-
en. í stað laglína og tónbila er þar
lögð mest áhersla á samspil tóna og
hljóða með óákveðna tónhæð (skrap
og skellir með og án boga), sem er
auðvitað ekkert nýnæmi, en var
framkvæmt af sérstöku músíkalíteti
og merkilegri formvissu. Það væri
gaman að fylgjast með þessu tón-
skáldi í framtíðinni. Reyndar var
margt fallegt og áhugavert að heyra
i tveim sólóverkum, sem þama var
skotið inn (höföu fallið niður annars
staðar, bæði í Meles 1 fyrir fiðlu eft-
ir Ari Vakkilainen frá Finnlandi og
enn frekar In Between fyrir óbó og
raftæki eftir Nils Henrik Asheim,
sem kemur frá Noregi).
Síðasta verkið fyrir hlé var svo
eftir kvenmann frá Svíþjóð, Madel-
eine Isaksson, Löp, með eigin
kveðskap sem ég skildi ekki. En það
er sama, það var sönn barátta í þessu
stykki og hljóðfæraskipanin var
óvenjuJeg; ásláttarhljóðfæri alls
konar og harmóníka, ásamt raf-
mögnuðum söngkonum tveim. Gott
og blessað svo langt sem það nær.
Seinni hluti tónleikanna var hins
Tónlist
Leifur Þórarinsson
vegar öllu lakari og get ég ekki sagt
að neitt hinna þriggja verka sem þar
voru (kvartett eftir Engström, Sví-
þjóð, Lífdagatal fyrir bassaklarínett
og ljóðalesara eftir Tryggva M.
Baldvinsson, íslandi, AF fyrir 5
hljóðfæraleikara eftir Hans Peter
Stubbe- Tegbjærg, Danmörku), hafa
náð upp í meðallagið. En það getur
allteins verið á misskilningi byggt.
Annað kvöld kl. 20.30 verða einu
sinfóníutónleikar UNM-hátíðarinn-
ar. Þeir verða í Langholtskirkju og
verða flutt hvorki meira né minna
en 8 tónverk, þar af tvö eftfr íslend-
inga.
-LÞ
Enn ertt slys á Öxnadalsheiðinni
Gyifi Kristjánssan, DV, Akureyri: