Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1987, Side 30
42
FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1987.
Fólk í fréttum
Ragnar Fjalar Sævarsson
Ragnar Fjalar Sævarsson hefur
verið í fréttum DV en hann vann
íslandsmeistaratitil drengja í skák,
14 ára og yngri.
Ragnar er fæddur 19. apríl 1974 í
Reykjavík og er nú í áttunda bekk
Hagaskólans. Afi Ragnars kenndi
honum fimm ára gömlum að tefla
og átta ára fór hann í skákskóla
Taflfélags Reykjavíkur. Ragnar fór
að tefla hjá Taflfélagi Reykjavíkur
tíu ára og tefldi í skáksveit Haga-
skólans sem varð í öðru sæti á
skákmóti grunnskólanna í Reykja-
vík í vor. Ragnar les mikið skák-
bækur og er uppáhaldsskákmeistari
hans Michael Tal.
Foreldrar Ragnars eru Sævar
Jónsson, byggingameistari í Rvik,
og Ragnheiður Jensína Ragnars-
dóttir hjúkrunarkona. Ragnar býr
hjá móður sinni og sambýlismanni
hennar, Eiríki Víkingssyni fram-
kvæmdastjóra. Móðursystkini
Ragnars eru: Guðrún Briem félags-
fræðingur, er gift Eiríki Briem,
fjármálastjóra hjá Rafmagnsveitum
ríkisins. Þórsteinn, deildarstjóri hjá
Rafmagnsveitu Reykjavíkur, og
prestur Óháða safhaðarins, er
kvæntur Elsu Guðmundsdóttur.
Valý Helga hjúkrunarfræðingur er
gift Jóni Þorvaldssyni textahöfundi.
Sonur hennar, Ingi Fjalar, var í 5.-7.
sæti á drengjameistaramótinu þar
sem Ragnar var sigurvegari. Lárus
læknir er kvæntur Þóru Tryggvad-
óttur kennara. Halldóra Anna er
gift Skafta Haraldssyni prentara.
Móðir Ragnars, Ragnheiður, erdótt-
ir Ragnars Fjalars, prests í Rvík,
Lárussonar, prests í Miklabæ í
Skagafirði, Amórssonar, prests á
Hesti í Borgarfirði, Þorlákssonar,
systursonar Guðrúnar, ömmu Sveins
Bjömssonar forseta, Þórunnar,
langömmu Jóhanns Hafsteins for-
sætisráðherra og bróður Þorláks,
foður Jóns forsætisráðherra. Móðir
Ragnars var Jensína Bjömsdóttir,
prófasts í Miklabæ Jónssonar, og
konu hans, Guðfinnu Jensdóttur.
Móðir Ragnheiðar er Herdís Helga-
dóttir, kennara á Akureyri, Ólafs-
sonar, sjómanns á Sauðárkróki,
Jóhannssonar, og konu hans, Guð-
laugar Guðnadóttur. Móðir Herdís-
ar er Valý Agústsdóttir, bryta í Rvík,
Benediktssonar, og konu hans, Hall-
dóm Halldórsdóttur.
Föðurbróðir Ragnars er Torfi, slát-
urhússtjóri á Hellu, kvæntur Soffíu
Pálsdóttur. Sævar er sonur Jóns,
sveitarstjóra á Hellu, Þorgilssonar,
b. á Ægisíðu í Djúpárhreppi, Jóns-
sonar, b. og fræðimanns á Ægisíðu,
Guðmundssonar, b. á Keldum á
Rangárvöllum, Biynjólfssonar, af
Víkingslækjarættinni. Guðmundur
á Keldum var langafi Jóns Helga-
sonar prófessors, Guðrúnar Helgad-
óttur, fyrrv. skólastjóra Kvenna-
skólans, Sigurðar Sigurðarsonar,
setts yfirdýralæknis, og einnig var
Guðmundur langafi Sigurðar Lýðs-
sonar, afa Þórðar Friðjónssonar,
forstjóra Þjóðhagsstofnunar. Móðir
Þorgils var Guðrún Pálsdóttir, b. á
Þingskálum á Rangárvöllum, Guð-
mundssonar, bróður Jóns á Ægisíðu.
Ragnar Fjalar Sævarsson.
Systir Guðrúnar var Sigríður, lang-
amma Jóhanns Siguijónssonar
sjóvarlífiræðings. Móðir Jóns var
Kristín Filippusdóttir, verkamanns
á Blönduósi, Vigfússonar. Kona
Jóns er Gerður Þórkatla Jónasdótt-
ir, b. í Vetleifsholti í Ásahreppi,
Krisfjánssonar, af Bergsættinni.
Afmæli
Sigrún Baldvinsdóttir
Sigrún Baldvinsdóttir, Laugames-
vegi 104, Reykjavík, er áttræð í dag.
Sigrún er fædd að Hálsi í Köldukinn
í Suður-Þingeyjarsýslu. Foreldrar
hennar fluttu að Ófeigsstöðum í
sömu sveit árið 1910 og þar er hún
uppalin. Hún bjó í foreldrahúsum sín
uppvaxtarár en var í Reykjavík hjá
Jónasi frá Hriflu og Guðrúnu konu
hans fyrsta ráðherravetur Jónasar.
Sigrún gifti sig 1934 Erlingi, f. í Am-
amesi í Kelduhverfi 2.11. 1903.
Erlingur er búfræðingur frá Hvann-
eyri en foreldrar hans vom Jóhann
b. í Amamesi Jóhannsson og Sigur-
veig frá Bakka í Kelduhverfi,
Ámadóttir.
Sigrún og Erlingur bjuggu lengst
af í Ásbyrgi í Kelduhverfi en Erling-
ur vann lengi ýmis störf samhliða
búskapnum. Hann var m.a. sveitar-
stjóri og oddviti og vann að bók-
haldsendurskoðun fyrir Kaupfélagið
á Kópaskeri.
Sigrún og Erlingur eignuðust fjög-
ur böm sem öll em á lífi: Sigurveig,
f. 1935, er starfsmaður hjá Landmæl-
ingum ríkisins. Hennar máður er
Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri og
eiga þau fjögur böm. Þau hjónin em
sexmenningar frá Kristjáni Jónssyni
b. á Illugastöðum; Hulda f. 1937, er
starfsmaður hjá Mjólkursamsöl-
unni. Maður hennar er Jónas
Hallgrímsson, deildarstjóri hjá Toll-
inum, og eiga þau tvo drengi;
Kristín, fulltrúi í Samvinnubankan-
um, f. 1942, er kona Hrafhs Magnús-
sonar, framkvæmdastjóra Almennra
lífeyrissjóða. Þau eiga þrjú böm;
Baldvin Jóhann, f. 1946, er sölumað-
ur, kvæntur Guðrúnu Jónsdóttur,
útibússtjóra Alþýðubankans við
Suðurlandsbraut. Þau eiga tvo
drengi.
Sigrún átti þrjú systkini sem öll
em látin: Baldur b. á Ófeigsstöðum,
f. 1898, d. 1978. Baldur var lands-
kunnur hagyrðingur. Fyrri kona
hans var Hildur Friðgeirsdóttir en
seinni kona Sigurbjörg Jónsdóttir;
Þórir, arkitekt í Reykjavík, f.1901,
d. 1986. Hann var kvæntur Borghildi
Jónsdóttur Jónatanssonar alþingis-
manns; Hulda, f. 1910, er einnig látin
en hún var kona Einars Friðgeirs-
sonar b. í Engihlíð.
Foreldrar Sigrúnar vom Baldvin
b. og oddviti á Óféigsstöðum Bald-
vinsson og kona hans, Kristín
Jónasdóttir frá Sílalæk. Föðurafi
Sigrúnar var Baldvin b. í Naustavík
Sigrún Baldvinsdóttir.
í Kinn, Sigurðsonar b. á Hálsi í sömu
sveit, Kristjánssonar b. á Illugastöð-
um, sem Illugastaðaætt er kennd
við, Jónssonar. Dóttir Sigurðar á
Hálsi var Kristjana, móðir Bened-
ikts Sveinssonar alþingisforseta,
föður Bjama Benediktssonar forsæt-
isráðherra. Jónas, móðurafi Sig-
rúnar, var Guðmundsson b. á
Sílalæk Stefánssonar sem Silalækj-
arætt er kennd við. Systir Jónasar
var Sigurbjörg móðir Guðmundar
frá Sandi. Sigrún og Guðrún, kona
Jónasar frá Hriflu, vora systradæt-
ur.
Ari F. Guðmundsson
>■
*
i
Ari F. Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri starfsmannasviðs
Landsbanka Islands, til heimilis að
Safamýri 39, Reykjavík, er sextugur
í dag. Ari er Reykvíkingur, fæddur
og uppalinn á Barónsstígnum. Hann
gekk í Austurbæjarskólann og
Gagnfræðaskóla Austurbæjar. Ari
hóf störf í Landsbankanum 1943 og
hefur starfað þar síðan. Hann byij-
aði sem sendisveinn og hefur unnið
í flestum deildum bankans en 1974
varð hann starfsmannastjóri bank-
ans og 1984 framkvæmdastjóri
starfsmannasviðs.
Ari hefur alla tíð verið mikill
áhugamaður um íþróttir og á árun-
um 1945-56 var hann í hópi allra
fremstu sundmanna íslendinga. Á
þessu tímabili átti hann í lengri eða
skemmri tíma íslandsmet í öllum
vegalengdum skriðsunds frá 50 til
800 m. Ari var í stjóm Ægis frá
1944-57 og formaður félagsins frá
1952-57. Hann var í stjóm Golf-
klúbbs Reykjavíkur frá 1969-78 og
Sérverslun
með blóm og
skreytingar.
Laugauegi 53, simi 20266
Sendum um land allt.
formaður frá 1976-78. Jafhframt var
hann ritari Golfsambandsins frá
1977-83. Ari hefur verið í stjóm
íþróttabandalags Reykjavíkur frá
1981 og er ritari þess.
Kona Ara er Katla, f. 1929, Ólafs-
dóttir, bakara á Vesturgötu og í
Þingholtsstræti í Reykjavík og víð-
ar, en hann er nýlátinn, Þórarins-
sonar á Melnum við Ásvallagötu í
Reykjavík sem vann hjá Eimskip í
sextíu ár. Móðir Kötlu er einnig lát-
in en hún var Vilborg frá Drangshlíð
undir Eyjafjöllum, Þorsteinsdóttir.
Ari og Katla eiga tvo syni og tvær
dætur: Fríða-Svala, f.1951, er gift
Jeff Bolsmaier kvikmyndaleikstjóra
og búa þau í New York; Atli, f.1953,
er ljósmyndari að atvinnu og býr í
foreldrahúsum; Vilborg, f.1959, er
gift Steven Golin kvikmyndafram-
leiðanda og búa þau í Hollywood í
Los Angeles; Guðmundur, f.1966, býr
í foreldrahúsum, stundar nám í við-
skiptafræði við H.I. og hefur starfað
sém flugþjónn á sumrin.
Ari á einn bróður og eina systur:
Halldór, f. 1925, er giftur Emelíu
Guðlaugsdóttur. Halldór er fyrrv.
starfsmaður Loftleiða og Flugleiða,
en þau eiga fjögur böm og búa í
Florida í Bandaríkjunum; Hjördís
Nielsen, f.1929, er gift Ame Nielsen.
Þau eiga einnig fjögur böm og búa
í Danmörku.
Foreldrar Ara em Guðmundur
prentari, f. á Kröggólfsstöðum 1892,
en hann er látinn, og kona hans
Friðsemd, f.1899. Foreldrar Guð-
mundar vom Halldór Guðmundsson
og Þorbjörg Einarsdóttir. Foreldrar
Ari F. Guðmundsson.
Friðsemdar vom Ari B. Antonsson,
lengi verkstjóri hjá Kol og salt, og
Guðríður Bergmann, ættuð úr
Skaftafellssýslu en fædd á Bæjar-
skeri á Suðumesjum.
Ari tekur á móti gestum í dag í
Félagsheimilinu á Seltjamamesi
milli kl. 17.00 og 19.00.
80 ára__________________________
Sigríður Oddsdóttir, Hringbraut
41, Reykjavík, er áttræð í dag.
70 ára
Benedikt F. Þórðarson bifreiða-
stjóri, Álftamýri 26, Reykjavík, er
sjötugur í dag.
Jónína Eggertsdóttir, Borgarbraut
28, Borgarnesi, er sjötug í dag.
40 ára
Sigrún Guðmundsdóttir, Hæðar-
garði 48, Reykjavík, er fertug í dag.
Þóra Stella Guðjónsdóttir, Staðar-
felli, Fellsstrandarhreppi, er fertug
í dag.
Sigurbjöm Ámason
Sigurbjöm Ámason skipstjóri, til
heimilis að Goðatúni 34, Garðabæ,
er sextugur í dag. Sigurbjöm er
fæddur á Akureyri. Hann lauk stúd-
entsprófi frá M.A. 1947 og var síðan
við nám við Háskólann í Osló. Með
náminu hér heima var hann á síld á
sumrin og síðar á togurum. Hann
lauk fiskimannaprófi 1955 og hóf
störf á hvalbátunum sama ár, fyrst
sem háseti en síðar sem stýrimaður.
Á árunum 1959-63 var hann á ýms-
um fiskibátum og átti þá mb. Dreka
með Guðna Sigurðssyni skipstjóra.
Sigurbjöm hefur kennt við Stýri-
mannaskólann í tvo vetur en 1965
fór hann aftur á hvalbátana og hefur
verið þar síðan, ýmist sem stýrimað-
ur eða skytta og skipstjóri.
Kona Sigurbjöms er Kristjana, f.
að Klængshóli í Skíðadal 13.12.1929.
Foreldrar hennar em Kristján, f.1886
en nú látinn, Halldórsson og kona
hans, Margrét, f.1894, Ámadóttir.
Sigurbjöm átti son áður en hann
gifti sig. Hann heitir Guðmundur og
er hafharstjóri á Akureyri. Kona
Guðmundar er Bjamey Sigvalda-
dóttir hárgreiðslukona og eiga þau
þijú böm. Sigurbjöm og Kristjana
eiga svo sex böm: Eva, f.1950, er
hótelstjóri á Djúpuvík á Ströndum
ásamt manni sínum, Ásbimi Þor-
kelssyni, en þau eiga þijú böm; Ámi
stýrimaður, f.1951, hefur unnið hjá
Tilkynningaskyldu íslenskra skipa.
Kona hans er Andrea Jónheiður
ísólfsdóttir og eiga þau eina dóttur,
en Ámi átti fyrir tvo syni með Agn-
esi Jónsdóttur; Jón Ingi, f.1953, er
kennari við Menntaskólann á Egils-
stöðum. Kona hans er Harpa
Höskuldsdóttir kennari og eiga þau
tvo syni; Kristján matsveinn, f.1955,
er giftur Önnu Lísu Gunnarsdóttur
sem vinnur hjá Síldarútvegsnefhd,
en þau eiga eitt bam; Margrét Bima,
f.1965, vinnur á veitingahúsinu Úlfar
og Ljón. Hún býr í foreldrahúsum
en unnusti hennar er Hermann
Óskar Hermannsson; Anna, f.1968,
býr einnig í foreldrahúsum en hún
er að ljúka menntaskólanámi.
Foreldrar Sigurbjöms em Ámi
trésmíðameistari, f. að Gestsstöðum
í Fáskrúðsfirði 1874, d.1946, Stefáns-
son og kona hans, Jónína, fædd að
Atlastöðum í Svarfaðardal 1885,
d.1969, Friðfinnsdóttir. Föðurafi Sig-
urbjöms var Stefán b. á Gestsstöð-
um, Einarssonar á Knappeyri,
Bjömssonar. Móðir Stefáns var Sig-
urbjörg Sigurðardóttir, b. á Hlaup-
andagerði, Brynjólfssonar, af
Amheiðarstaðaætt.
Sigurbjöm verður úti á sjó á af-
mælisdaginn.
□ín Ámadóttir
Elín Ámadóttir, Birkigrund 70,
Kópavogi, er sextug í dag. Elín er
fædd í Vestmannaeyjum og alin þar
upp hjá foreldrum sínum. Hún var í
bama- og gagnfræðaskóla í Vest-
mannaeyjum og hof síðan verslunar-
störf þar í vefnaðarvömverslun
Önnu Gunnlaugsson. Elín fór nítján
ára á Sorö-húsmæðraskólann á Sjá-
landi í Danmörku. Hún giftist 1947
Gunnari, f. 16.12 1922, ffá Gerði í
Vestmannaeyjum, Stefánssyni frá
Gerði, Guðlaugssonar frá sama stað.
Móðir Gunnars var Sigurfinna
Þórðardóttir, ættuð úr Mýrdalnum,
en foreldrar Gunnars em bæði látin.
Elín og Gunnar bjuggu í Vest-
mannaeyjum fram að gosi en fluttu
þá á land og hafa átt heima í Kópa-
vogi. Þau eiga hins vegar þijá syni
sem allir búa í Vestmannaeyjum:
Leifur, f. 1947, er stýrimaður, hans
kona er Ingibjörg Bfrna og eiga þau
tvo syni; Ámi Gunnar, f. 1950, er
rafvirkjameistari, giftur Emu Ing-
ólfsdóttur og eiga þau tvo syni;
Stefán Geir, f. 1953, er yfirtollvörður
í Vestmannaeyjum en hans kona er
Aðalheiður Sveinsdóttir og eiga þau
tvo syni.
Elín átti fjögur alsystkin og eitt
hálfeystkin en.nú em þær þrjár syst-
umar á lífi: Elísabet, f. 1930, er gift
Jóhanni Möller skrifetofustjóra en
þeirra böm em Ámi b. og Helga
Möller söngkona, sambýliskona Pét-
urs Ormslev knattspymumanns;
Ragnheiður, f. 1918, er gift Ted
Rogich og búa þau í Las Vegas. Son-
ur þeirra er Sig Rogich, auglýsmga-
stjóri hjá Ronald Reagan Banda-
ríkjaforseta í síðustu forsetakosn-
ingum þar vestra.
Foreldrar Elínar vom Ámi Sigfus-
son, kaupmaður og útgerðarmaður
í Vestmannaeyjum, f. 1887, en hann
lést í flugslysi 1948, og Ólafía Áma-
dóttir, f. 1895, d. 1963. Sigfus og
Jóhann Jörgen Johnsen vom hálf-
bræður, synir Guðfinnu Jónsdóttur
Austmanns prests. Böm Jóhanns
em Ámi Johnsen eldri en meðal
bama hans em Sigfús, faðir þeirra
bræðra Þórs, formanns Heimdallar,
og Áma, formanns SUS, og Ingibjörg
móðir Áma Johnsen yngri alþingis-
manns. Ólafía, móðir Elínar, átti
fjölda systra og em nú þijár þeirra
á lífi: Elísabet, kona Óskars J. Þor-
lákssonar, fyrrv. dómkirkjuprests;
Anna, sem var gift Henrik Walge,
og Eiríka, kona Þorgríms St. Eyjólfs-
sonar, forstjóra í Keflavík.
Andlát
Guðlaug Pétursdóttir, Norður-
brún 1, Reykjavík, lést miðviku-
daginn 16. september.
Ingigerður A. Auðunsdóttir frá
Dalseli andaðist á Dvalarheimili
aldraðra, Lundi, Hellu, miðviku-
daginn 16. september.
Kristín Kjartansdóttir frá
Hraunkoti í Aðaldal andaðist 16.
september.