Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1987, Page 6
52
LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1987.
Bflar
i>v
Nokkrar breytingar urðu á 3-linunni frá BMW frá og með 1988 árgerðinni. Nýir stuðarar úr plasti, svuntur að fram-
an og aftan eru nýjar og nýja gerðin af framljósunum, sem kynnt var fyrst í nýju 7-línunni, er nú komin í þessa gerð.
Á myndinni er BMW 325ÍX.
Mikil uppsveifla hjá BMW
Fjtsíu sex mánuði þessa árs hefur
orðið mikil söluaukning í bOum frá
BMW og bendir allt til þess að sú aukn-
ing haldi áfram það sem eftir er ársins.
Heildarvelta BMW íyrstu sex mán-
uðina jókst um 17,2% og heildarfram-
leiðsla bíla á tímabiiinu janúar til júlí
1987 varð 235.277 bílar á móti 232.200
btium á sama tíma í fyrra.
Mótorhjól eru einnig stór hluti af
framleiðslu BMW, en þar lækkaði tal-
an á miUi ára og voru ffamleidd 15.380
hjól í ár á móti 18.476 í fyrra.
Hetidarfjöldi starfsmanna BMW 30.
júní síðastiiðinn var 52.641 á móti
48.071 í fyrra og er það aukning á
mannafla um 9,5%.
Bretland:
Ford kaupir
Aston Martin
Lagonda
Bresku btiasmiðjumar Aston
Martin Lagonda eru nú komnar
undir sama hatt og Ford.
Ford hefur keypt fyrirtækið en
Aston Martin mun áfram verða til
sem sjálfstæður framleiðandi. Var
þetta kynnt á btiasýningunni í
Frankfurt á dögunum og sagði yfir-
maður Ford i Evrópu, Kenneth
Whipple, við það tækifæri að Aston
Martin ætti sér sérstæða sögu sem
byggðist á miktifenglegum bílum
og ótal sigrum í mótorsporti. Hann
sagði að fyrirtækið hefði yfir að
ráða miktili þekkingu sem Ford
hygðist hagnýta sér ásamt því að
Aston Martin myndi jafnframt
njóta góðs af því að fá stuðning frá
Ford.
Hjá Aston Martin vinna aðeins
400 starfsmenn sem handsmíða bíl-
ana - aðeins einn á dag.
Yfirtaka Ford á þessum breska
sportbflaframleiðanda gerist nær
um leið og General Motors kaupir
upp annan breskan sportbílafram-
leiðanda, Lotus.
Bæði Ford og GM hafa leitað eftir
þekkingu á sviði smíði sérstakra
btia. Þessa þekkingu fá þessir risar
í bílaiðnaðinum nú hvor um sig frá
þessum bresku framleiðendum.
BÍLAMARKAÐUR
á fullri ferð
HVAÐ ERU MARGIR N0TAÐIR BILAR AUGLYSTIR TIL S0LU I DV I DAG?
Já, þeir eru fleiri en þig grunar.
• í BLAÐAAUKA um BÍLA
• í smáauglýsingum. (Bílar til sölu)
• í myndasmáauglýsingum
Ef þú ert með rétta tölu, getur þú orðið
10.000,-
Eina sem þú þarft að gera er að senda inn meðfylgjandi úrklippu.
Ef fleiri en einn eru með rétta tölu, verður dregið úr réttum lausnum.
Skilafrestur er til fimmtudagsins 1. október.
ríkari.
SENDIST TIL DV - BÍLAR
Þverholti 11
P.O. Box 5380
125 Reykjavík
í DV laugardaginn 26. september voru auglýstirJbílar
Na£n___________________....________________________________
Heimilisfang____________________________________________—
Póstnúmer..........................._......................
Sími...........................;...........................
Suður-Kórea:
Verkföll
valda
samdrætti
í bíla-
smiðjunum
Bílaiðnaðurinn í Suður-Kóreu, sem
hefur vaxið mjög nú síðustu ár, hefur
átt í miklum erflðleikum undanfarið
vegna þrálátra verkfalla. Þrjár
stærstu btiasmiðjurnar, Kia, Hy-
undai og Daewoo, hafa orðið að draga
mjög úr framleiðslu sinni undan-
farna mánuði. Stærsta verksmiöjan,
Hytmdai, framleiðir aðeins 1.600 bíla
á dag í stað 2.500 áður.
Upphaflega var ætlunin að auka
bílaframleiðslu ársins 1987 upp í eina
milljón fólksbíla, vörubíla og strætis-
vagna á móti sex hundruð þúsund á
síðasta ári.
SPOILER SETT:
BMW, 2 OG 4 DYRA
VW GOLF, 2 OG 4 DYRA
FORD ESCORT
MERCEDES BENZ 190
MERCEDES BENZ 280
OPEL KADETT
FRAM-SPOILERAR MEÐ OG AN LUKTA
AFTURSPOILERAR
GARDÍNUR Á AFTURGLUGGA
GRILL MEÐ ÞOKULUKTUM
GLITMERKI MILLI AFTURLUKTA
LÍMRENDUR OG HLIÐARLISTAR
SÆTAÁKLÆÐI, MOTTUR, HJÓLKOPPAR
BORGARTÚNI 26
SÍMI 62 22 62