Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1987, Blaðsíða 12
12
MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1987.
Neytendur
Gömul Ijósmynd úr Hafnarstræti. Hægt er að láta taka eftir slíkum myndum
laga þær aðeins til.
og
er þá oft ekki vanþörf á að
Effirtökur gamalla Ijósmynda
Til okkar kom kona sem undrað-
ist mjög hátt verð á ljósmyndaþjón-
ustu hér á landi. Hún haföi ætlað
að láta taka eftir gamalli ljósmynd
og stækka, en er hún heyrði verðið
ákvað hún að láta gera það annars
staðar en hún ætlaöi til Þýskalands
skömmu síðar.
í Þýskalandi lét hún svo taka eft-
ir myndinni og kostaði það hana
um 40 krónur eða 1,90 mörk. Til
gamans má geta þess að hún var á
hraðferð og lét senda sér myndina
og kostaði frímerkið á myndina
nánast það sama eða 34 krónur
(1,60 mörk).
Það er rétt að geta þess að mynd-
in var stækkuð á plastpappír og
ekki löguð til á nokkum hátt.
Hér á landi kostar sama þjónusta
nokkm meira. Þannig kostar
filmugerö yfirleitt 500-600 krónur
en stækkun fer alveg eftir hvaða
vinna er lögð í verkið. Þeir ljós-
myndarar, sem rætt var við, virtust
allir leggja mikinn faglegan metnað
í þetta verk. Þeir virtust tregir til
að nota plastpappír, báru því við
að endingu slíkra mynda væri
ábótavant. Þess í stað er notaður
hefðbundinn ljósmyndapappír og
myndin löguð öll tÚ, „reduseruð"
eins og það er kallað á fagmáli. Út
úr svona vinnubrögðum kemur oft-
ast mynd sem er hæf til uppheng-
ingar enda er þá yfirleitt búið að
má burt alla galla sem gætu hafa
verið á fmmmyndinni.
Eins og fyrr segir virtust ljós-
myndarar tregir til að bendla nafn
sitt við að láta nægja að smella
bara mynd af gamla eintakinu og
stækka það á plastpappír eins og
gert var við áðurnefnda ljósmynd
í Þýskalandi. Hins vegar tókst okk-
ur að fá nokkra þeirra til aö gefa
okkur hugmynd um verð á slíkri
vinnu og er það þá mun lægra eða
í kringum 300 krónur sé miðað við
mynd af stærðinni 13X18.
Við þetta bætist svo filmuvinnsla
og getur þá slík eftirtaka kostað á
bilinu 800 til 1.000 krónur.
-PLP
Ljtir brúnt, verð 3.415.
Litir brúnt, verð 3.511
>'• ’ Dömu- og unglingaskór
Litir svart, verð 2.972.
Herraskór
Litir svart, verð 3.537.
Dömu- og unglingaskór
Litir svart, Verð 3.721.
Herraskór
V - ^ Litir svart, verð 3.438.
Austurstræti 6 - sími 22450 - Laugavegi 89 - sími 22453
KULDASKOR
Á FRÁBÆRU VERÐI
Áhrif
geislunar
á matvæli
Dr. Bjöm Sigurbjömsson hjá FAO,
matvælastofium Sameinuðu þjóð-
anna, hélt fyrirlestur um geislameð-
ferð á alþjóðlegu málþingi næringar-
fræðinga nýverið og kom þar fram
margt sem vert er að líta nánar á.
Geislameðferð matvæla hefur nú
verið rannsökuð um nærfellt fjögurra
áratuga skeið. Niðurstöður þessara
rannsókna benda eindregið til þess að
sé rétt farið að þá er geislun einhver
öruggasta leið tÚL að auka geymsluþol
matvæla sé henni beitt á réttan máta.
Lengi vel vom menn hikandi við að
beita þessari tækni vegna þess að ekki
var vitað með vissu hvort hún gæti
haft einhverjar skaðlegar aukaverk-
anir og settu mörg lönd geislun stólinn
fyrir dymar með reglugerðum. Nú
hefur matvælastofnun Sameinuðu
þjóðanna hins vegar lagt línumar með
því að gefa út staðal um notkun á geisl-
un og er þess því vart langt að bíða
að ýmis iíld samræmi reglugerðir sín-
ar staðlinum. Það myndi þá leiða til
stóraukinnar notkunar geislunar í
matvælaframleiðslu, enda spáir Dr.
Bjöm því að við lok þessa áratugar
muni geislameðferð matvæla stórauk-
ast og því ekki seinna vænna að fara
að kynna neytendum þessa tækni. En
hvað gerir geislun?
Geislun getur hægt á þroska mat-
væla og þannig seinkað spírun t.d.
kartaflna og lauks, auk þess sem kjöt,
fiskur, ávextir og ferskt grænmeti
varðveitist sem nýtt mun lengri tíma.
Hún drepur sníkjudýr og hindrar að
egg skordýra geti klakist út. Hún drep-
ur sýkla og gerlagróður og kemur
þannig í veg fyrir aDs kyns matareitr-
anir og það án þess að varan missi
nokkuð af næringargildi sínu en það
gerir hún ef öðrum aðferðum er beitt.
Ekkert bendir til þess að geislun
matvæla geti á nokkum hátt verið
skaðleg mannfólki. Þó munu ýmsir,
bæði ríkisstjómir og framleiðendur,
vera tvístígandi við að taka upp þessa
tækni þar sem óttast er að neytendur
vantreysti geislun og jafiivel rugli
henni saman við geislavirkni. Slíkur
misskilningur gæti haft mjög neikvæð
áhrif á markaðsetningu geislaðra mat-
væla því aö fólk myndi einfaldlega
sniðganga slíka vöm. Kannanir hafa
þó sýnt að ef geislun er útskýrð vand-
lega fyrir fólki þá er hægt að eyða allri
tortryggni í flestum tilfellum.
Dr. Bjöm kemst þannig að þeirri
niðurstöðu að hægt sé að markaðsetja
þessa aðferð smám saman og þá með
öflugu átaki ríkisstjóma og alþjóða-
stofnana til neytendafræðslu.
Og það er mikið í húfi. Talið er að
allt að því 25 % fæðuframleiðslu
heimsins fari í súginn vegna
skemmda. Hægt væri að koma í veg
fyrir þessar skemmdir með geislun.
Auk þess að hægt er að halda mat-
vælum ferskum mun lengur er geislun
mjög ódýr aðferð til að auka geymslu-
þol. Manneldisþátturinn er einnig
ótvíræður því ólíkt hefðbundnum
geymsluaðferðum þá dregur geislun
sáralítið úr næringargildi fæðu auk
þess sem unnt verður að koma í veg
fyrir ýmsa sjúkdóma af völdum sýkla
og snfiqudýra og auka þannig almennt
hefibrigði. ' -PLP
Dr. Bjöm Sigurbjömsson hjá FAO, matvælastofnun Sameinuðu þjóöanna.