Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1987, Page 17
MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1987.
17
IVeir aurar á tímann
„Að vestan næst oft ekki langtimum saman suður. Hins vegar er ekk-
ert mál að hringja til San Fransisco."
Þegar gjaldskrá Pósts og síma var
breytt til skynsemisáttar á miöju
sumri var mikið skrifaö í blöð og sú
ráðstöfun harkalega gagnrýnd.
Einkum voru viðbrögð borgar-
stjómarfulltrúa í Reykjavík hörð og
virðast raunar hafa verið byggð á
nokkrum misskilningi. Meginatriði
málsins féll í skugga upphrópana á
röngum forsendum.
Aiiir sjómmálaflokkar - ekki síst
Alþýðuflokkurinn, lögðu ríka
áherslu á það í kosningabaráttunni
í vor að nú þyrfti að rétta hlut lands-
byggðarinnar og jafha aðstöðu fólks
í landinu. Það er aimennt viður-
kennt að hallað hefur á landsbyggð-
ina á undanfömum árum. Jafnvægi
í byggðamálum, sem ríkt haföi í
nokkur ár fram undir 1980, hefur
raskast. Fólksflutningar á suðvest-
urhomið hafa aukist stórlega. Þar
em greidd hærri laim. Þar era fjöl-
breyttari tækifæri til atvinnu og
mennta. Þar er lægri orkukostnaður
og þar er engu hætt með fjárfestinu
í íbúðarhúsnæði.
Eðlileg breyting
Breytingin á gjaldskrá Pósts og
síma, sem gerð var í sumar, var lítið
skref á langri leið til að jafna aðstöðu
fólks í landinu. Hún fól í sér nokkra
lækkun á langtinugjaldi og að auki
var tekin upp skrefatalning staöar-
símtalá á kvöldum, nóttum og um
helgar. Síðartalda ráðstöfunin hefur
sætt mestri ug harðastri gagnrýni.
Þriggja mínútna staðarsímtal, sem
að kvöldi til kostaði áður kr. 1,32
kostar nú kr. 1,95 og hálftíma staðar-
símtal sem fyrir breytingu kostaði
kr. 1,32 kostar eftir breytingu kr.
5,46. Þijátíu mínútna langtinusímtal
sem áður kostaði kr. 133,32 utan dag-
taxta kostar nú á nætur- og helgar-
taxta kr. 89,31 svo nokkur dæmi séu
nefhd.
Það er í senn sanngjamt og eðli-
legt að greiöa fyrir þjónustu í
samræmi við notkun. Þannig greið-
um við fyrir rafmagn og hita og
KjaHaiirtn
Eiður
Guðnason
alþingismaður fyrir
Alþýðuflokkinn
þykir engum tiltökumál.
Nú um stimdir era símatinur í
vaxandi mæli notaðar til að flytja
upplýsingar milli tölva. Sú notkim á
vafalaust eftir að fara mjög vaxandi
á komandi árum. Samkvæmt gamia
fyrirkomulaginu var hægt að sím-
tengja tölvu að Varmá í Mosfells-
sveit og tölvu suður í Hafnarfirði frá
klukkan sjö á föstudagskvöldi til
klukkan átta á mánudagsmorgni og
binda þannig eina línu í kerfinu
milli þessara staða í samtals 61
klukkustund og borga fyrir það kr.
1,32 eða rúmlega tvo aura á tímann.
Ég trúi ekki að nokkrum manni
finnist það eðlileg greiðsla fyrir afhot
af símakerfinu.
Horftfrðmhjá staðreyndum
Það hefur komið fram í umræðum
um þessi mál aö tækniframfarir hafa
gert langtinukerfið ódýrara. Það er
tiðin tíö að hengja símafinur á
staura. Ljósleiðarar og radíósam-
bönd hafa komið í staura stað. Það
hefur tika komið ffarn að notendur
langtinukerfisins greiddu meira fyr-
ir rnotkun þess en kostaði að reka
það. Þess vegna var sjálfsgt og eðti-
legt að lækka gjöldin. Ein af stað-
reyndum málsins er tika sú að 60%
símnotenda era á höfuðborgarsvæð-
inu og geta á staðartaxta hringt mitii
tíu símstöðva þar sem þorri þjóðar-
innar býr. Önnur staðreynd er tika
sú að 60% símskrefa íbúa höfuð-
borgarsvæðisis era langtinuskref.
Þeir sem halda því ffam að gjald-
skrárbreytingin leggist með sérstök-
um ofurþunga á Reykvikinga og
aðra íbúa höfuðborgarsvæðisins era
því einfaldiega að taka skakkan pól
í hæðina og horfa fram hjá stað
reyndum málsins. Breytingin kemur
íbúum höfuðborgarsvæðisins einnig
tti góða. Þetta var skynsamleg breyt-
ing, en stíga þarf enn stærri skref
tti þess að jafna símakosnað í
landinu.
Kerfið annar ekki álaginu
Póstur og sími er ein miktivægasta
þjónustustofnun almennings í
landinu. Hún þarf þess vegna stöð-
ugt að vera undir smásjá og sæta
gagnrýni. Gagnrýnin verður hins
vegar að vera réttmæt og á rökum
reist.
Staðreynd er að símkerfið hér inn-
anlands annar ekki álaginu og þar
er verulegra úrbóta þörf. Af reynsl-
unni lærir maöur að á vissum
dögum og vissrnn tímum er gjörsam-
lega vonlaust að ná sambandi frá
Reykjavík vestur á Snæfellsnes, eða
upp á Akranes. Að vestan næst oft
ekki langtímum saman suður. Hins
vegar er ekkert mál að hringja tti
San Fransisco. Það er auðvitað af
hinu góða aö þaö skuli vera auðvelt
og handhægt að hringja tti útlanda
en það er gjörsamlega óviöunandi
að langtímum saman skuti ekki vera
hægt að ná símasambandi innan-
lands. Fyrir tveimur tti þremur
árum var ég heilt kvöld að reyna að
hringja úr Reykjavík upp á Akranes
og náð ekki sambandi fýir en á tólfta
tímanum. Ég hefði verið fljótari að
keyra og reka mitt erindi þannig.
Ástandið hefur að vísu eitthvað
skánað síðan, en er þó hvergi nærri
gott. í þessum efnum þarf Póstur og
sími að taka sig á. Síminn er nefiú-
lega ekki bara tti þæginda. Hann er
öryggistæki og símamál era byggða-
mál. Það vtil á stundum gleymast
Eiður Guðnason
„Það er í senn sanngjarnt og eðlilegt
að greiða fyrir þjónustu í samræmi við
notkun. Þannig greiðum við fyrir raf-
magn og hita og þykir engum tiltöku-
mál.“
Skýrslan ekki áróðursplagg
„Þegar það aflamagn, sem flutt er frá Eyjum isað og óunnið, vex ár frá
ári hlýtur það að hafa áhrif á fjölmarga atvinnuþætti."
Vegna forystugreinar Dagblaðsins/
Vísis, DV, þann 15. september sl. sér
atvinnumálanefnd Vestmannaeyja-
bæjar sig knúna tti að koma á
framfæri andmælum og leiðréttingu
við skrif ritstjóra DV varðandi
skýrslugerð á vegum nefndarinnar
um „Þróun, stöðu og horfur í fisk-
vinnslu í Vestmannaeyjum“.
í forystugreininni er vikið sérstak-
lega að Vestmannaeyjabæ á mjög
óviðeigandi hátt og viUandi í eftirfar-
andi málsgreinum.
„í gámamálinu hefur Vestmanna-
eyjabær fengið gert fyrir sig áróð-
ursplagg sem kallað er skýrsla.
Höfundur þess hefur ítarlegar skoð-
anir á málinu og flytur þær ákaft
en lætur fylgja með tölur tti að menn
haldi að raunvísindi séu á ferð en
ekki þrætubókartist.
Með áróðursplaggi þessu hefur
Vestmannaeyjabær tekið málstað
frystihúsa og fiskvinnslufólks gegn
málstað útgeröar og sjómanna í
hagsmunaárekstri þessara aðila.
Kaupstaðurinn hefur skipað sér í
sveit með einokunarsamtökum út-
flutningsfyrirtækja fiskvinnslunn-
ar“.
Umrædd skýrsla fjallar um þróun,
stöðu og horfur í fiskvinnslu í Vest-
mannaeyjum. Skýrslan var unnin
af rágjafafyrirtækinu Ráðgarði,
skýrsluhöfundur Hilmar Viktorsson
viðskipta- og sjávarútvegsfræðingur.
Skýrslan er dagsett 29. júlí 1987.
Skýrslan ekki áróðursplagg
Varðandi mat ritsjóra á vísinda-
legu gtidi skýrslunnar er þetta að
segja: Hver og einn verður að hafa
sína skoðun á gtidi skýrslunnar og
hve vönduð hún er.
KjaUarinn
Arnaldur Bjarnason
bæjarstjóri
Atvinnumálanefndin lítur svo á að
skýrslan hafi ótvírætt gtidi tti upp-
lýsingar um stöðu fiskvinnslu í
Vestmannaeyjum. Vakin er athygti
á að það er afar eðtilegt aö samfélag
sem byggir afkomu sína að lang-
mestu á sjósókn og fiskvinnslu
kanni ýmsa innviði viðkomandi at-
vinnugreina með ttiliti tti arðsemi,
verðmæta- og atvinnusköpunar. At-
vinnumálanefnd var fatið að vinna
að framgangi þess að upplýsingar
þar að lútandi yrðu teknar saman.
Nefndin fékk tti verksins Hilmar
Viktorsson og lýsir fyllsta trausti á
skýrsluhöfund.
Þar með er ekki sagt að nefndin
né einstakir nefndarmenn séu sam-
mála því mati er fram kemur í
skýrslunni varðandi hina margvís-
legu þætti er hún fjallar um.
Meginmátið er að skýrslan byggir
á athugun höfundar, viöræðum og
upplýsingasöfnun hér í Vestmanna-
eyjum, og verður því að álíta að
hún byggi á staðreyndum að mati
hans.
Skýrslan er því ekki áróðursplagg.
Varðandi aðra málsgreinina er
þetta að segja:
í atvinnumálanefnd sitja fulltrúar
fiögurra sfiómmálaflokka. Sú stað-
reynd fyrirbyggir að nefndin hafi
einsýnar skoðanir gagnvart sjávar-
útvegsmáium í Vestmannaeyjum.
Höfuðtilgangur atvinnumála-
nefiida sveitarfélaga er m.a. að
fylgjast með atvinnuþróun með upp-
lýsingaöflun, vekja athygti á álitleg-
um nýjungum er hentaö gætu tti
atvinnusköpunar, skapa umræðu
um atvinnumál í byggðarlagi og vera
sveitarsfióm ráðgefandi varðandi
atvinnuþátttöku sveitarfélags og at-
vinnuþróun almennt.
Vestmannaeyjabær tekur
enga afstöðu
Vestmannaeyjabær hefur enga af-
stöðu tekið í málefnum sjómanna
né fiskvinnslu hér í Eyjum.
Nefiidin ætlar viökomandi hags-
munaaðtium aftur á móti að komast
að skynsamlegri niöurstöðu varð-
andi sameiginleg hagsmunamál
þannig að báðir megi vel við una og
til sem mestra hagsbóta fyrir sam-
félagið í hetid.
Niðurstaðan er því sú að umrædd
skýrsla er ekki áróöursplagg aö
mati nefiidarinnar heldur byggð á
hlutlausri skoðun sérfræðings á
sviði sjávarútvegsmála og gefin út í
nafiti virts ráðgjafafyrirtækis.
Vestmannaeyjabær hefur enga af-
stöðu tekið gagnvart hagsmunaaðti-
um í sjávarútvegi hér í Eyjum en
hefur lagt fram skýrslu tti umræðu-
sköpunar um sjávarútvegsmál.
Þegar það aflamagn, sem flutt er
frá Eyjum ísað og óunnið, vex ár frá
ári hlýtur það að hafa áhrif á fiöl-
marga atvinnuþætti. Er sú þróun til
góðs fýrir atvinnustarfsemi, afkomu
launafólks og samfélagiö í hetid eða
leiðir hún tti minni verðmætasköp-
unar til þjóðarbús og byggðarlags,
minni atvinnu og tekjutaps almenn-
ings og lækkandi tekna samfélags-
legra sjóða?
Amaldur Bjarnason
„Megmmálið er að skýrslan byggir á
athugun höfundar, viðræðum og upplýs-
ingasöfnun hér í Vestmannaeyjum og
verður því að álíta að hún byggi á stað-
reyndum að mati hans. Skýrslan er því
ekki áróðursplagg.“