Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1987, Side 1

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1987, Side 1
FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987. 19 Dansstaðir - Matsölustaðir - Leikhús - Sýningar - Kvikmyndahús - Myndbönd o. fl. ABRACADABRA, Laugavegi 116 Diskótek fóstudags- og laugardagkvöld. ÁRTÚN, Vagnhöfða 11, sími 685090 Gömlu dansarnir á fóstudagskvöld. Opið kl. 21-03. Nýju og gömlu dansarnir laug- ardagskvöld, opið kl. 22-03. Hljómsveitin Danssporið ásamt söngkonunni Krist- björgu Löve bæði kvöldin. BROADWAY, Álfabakka 8, Reykjavík, sími 77500 Stórsýningin „Allt vitlaust" á fóstudags- og laugardagskvöld. Söngvarinn og píanóleikarinn Manu De Carvalho, sem heiliað hefur íslendinga er sóttu Torre- molinos í sumar, skemmtir einnig bæöi kvöldin. CASABLANCA, Skúlagötu 30 Diskótek á fóstudags- og laugardags- kvöldum frá kl. 22-03. DUUS-HÚS, Fischersundi, sími 14446 Diskótek fostudags-, laugardags- og sunnudagskvöld. Opið frá 22 til 03. A sunnudagskvöld verða jasstónleikar í Heita pottinum. EVRÓPA v/Borgartún Hljómsveit hússins, Saga Class, leikur fyrir dansi fóstudags- og laugardags- kvöld. Húsið er opið frá kl. 22-03. GLÆSIBÆR, Álfheimum Hljómsveitin Hafrót leikur fyrir dansi fóstudags- og laugardagskvöld. Tónlistin frá 6. og 7. áratugnum er í hávegum höfð. Opið kl. 22-03. HOLLYWOOD, Ármúla 5, Reykjavík „Leitin að týndu kynslóðinni" fóstudags- og laugardagskvöld. Húsið opið 22-03. HÓTEL BORG, Pósthússtræti 10, Reykjavík, sími 11440 Diskótek fóstudags- og laugardagskvöld. Gömlu dansarnir á sunnudagskvöld. Hljómsveit Jóns Sigurðssonar leikur. HÓTEL ESJA, SKÁLAFELL, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, sími 82200 Dansleikir fóstudags- og laugardags- kvöld. Hijómsveitin Kaskó leikur. Tísku- sýning öll funmtudagskvöld. HÓTEL SAGA, SÚLNASALUR v/Hagatorg, Reykjavík, sími 20221 Lokað vegna einkasamkvæmis fóstu- dagskvöld. Hringekjan á laugardags- kvöld. íslenski jassballettflokkurinn með fr,'~ ær dansatriði, Jóhanna Linnet syng- ur lög úr frægum söngleikjum. Bjarni Arason kemur fram með söngdagskrá í minningu Elvis Presley og Örn Árnason hringekjustjóri með söng og grín. Hljóm- sveit Grétars Örvarssonar leikur fyrir dansi. Á Mímisbar leikur Tríó Árna Scheving. LEIKHÚSKJALLARINN, Hverfisgötu Diskótek fóstudags- og laugardagskvöld. LENNON v/Austurvöll, Reykjavík, simi 11630 Diskótek föstudags- og laugardagskvöld. MIAMI, Skemmuvegi 34, Kópavogi, sími 74240 Diskótek fóstudaga og laugardaga. Ald- urstakmark 16 ár. ÚTÓPÍA, Suðurlandsbraut 26 Diskótek fóstudags- og laugardagskvöld. ÞÓRSKAFFI, Brautarholti, s. 23333 Iiljómsveitin Pelican og hljómsveit Stef- áns P. og Þorleifur Gísla leika fyrir dansi um helgina. Ómar Ragnarsson skemmtir matargestum ásamt Hauki Heiðari und- irleikara. Heiðursgestur helgarinnar verður Ómar Valdimarsson. Sjallinn, Akureyri „Stjömur Ingimars Eydal í 25 ár“ um helgina. Hljómsveitina Pelican skipa (talið frá vinstri) Ómar Óskarsson, Jón Ólafsson, Ásgeir Óskarsson, Pétur Krist- jánsson og Björgvin Gíslason. Þórscafé: Pelican afhir saman - eftir 12 ára hlé Ný skemmtidagskrá byrjar í Þósrscafé í kvöld. Þaö eru Ómar Ragnarsson og hljómsveitin Pelic- an sem skemmta. Óþarft er að kynna Ómar nánar en hann hefur tekið að sér að skemmta matargestum. Síðar um kvöldið skemmtir Pelican svo gest- um og gangandi. Hljómsveitin starfaði á árunum 1973-75 og skaust beint á toppinn þannig að fljótlega varð hún ein vinsælasta hljómsveit landsins. Pelican kemur nú í fyrsta sinn opinberlega fram eftir 12 ára hlé. Hljómsveitin gaf út tvær hljómplötur og seldist sú síðari, Uppteknir, í 11000 eintökum. Meðal vinsælustu laganpa á plöt- unni voru Jenny darling og Á Sprengisandi. Markmiðið með end- urkomu Pelican er að rifja upp þá stemningu sem ríkti á þeim árum sem hljómsveitin var á toppnum. Strákarnir spila þess vegna ein- göngu gömlu góðu lögin sín. Skemmtunin verður í kvöld og á laugardagskvöld, auk þess sem sama dagskrá er fyrirhuguð næstu helgi. Omar Ragnarsson leikur á als oddi i Þórscafé um helgina. Ungmennafélag íslands 80 ára - ráðstefna í Norræna húsinu í tilefni 80 ára afmælis Ung- mennafélags íslands hefur verið ákveðið að gangast fyrir ráðstefnu sem ber yfirskriftina Ræktun lands og lýðs. Ráðstefnan verður haldin í Norræna húsinu á laugardag kl. 9-17. Efni ráöstefnunnar er hlutverk ungmennafélaganna í nútíð og framtíð. Flutt verða 8 framsöguer- indi um þau íjölþættu verkefni sem ungmennafélög vinna að á sviði íþrótta, menningar- og félagsmála. Fyrirlesarar á ráðstefnunni verða: Þórólfur Þórlindsson prófessor, Árni Johnsen varaþingmaður, Hjörleifur Guttormsson alþingis- maður, Óli Þ. Guðbjartsson al- þingismaður, Pálmi Frímannsson læknir, Arnór Benónýsson leikari, Helgi Gunnarsson hagfræöingur og Þráinn Hafsteinsson íþrótta- kennari. Það er von UMFÍ að þeir sem láta sig einhverju varða æskulýðs- og íþróttamál sjái ástæðu til að sækja ráðstefnuna. Innritun ráðstefnu- gesta fer fram á skrifstofu UMFÍ, Óldugötu 14 í Reykjavík. Síminn er 91-12546. Al-Anon á ís- landi 15 ára Liðin eru 15 ár síðan Al-Anon, félagskapur ættingja og vina alkó- hólista, var stofnaöur á íslandi. Af því tilefni verður afmælisfundur haldinn í Langholtskirkju á laugar- dag kl. 13 og eru allir velkomnir. Al-Anon samtökin eru opin hverjum sem telur að líf sitt hafi orðið fyrir áhrifum af drykkju ein- hvers annars og reyna meðlimirnir í sameiningu að sigrast á þeim vandamálum sem þeir eiga við að etja vegna þessa. Nánari upplýsingar má fá á skrif- stofii samtakanna að Traðarkots- sundi 6 milli kl. 10 og 12 á laugardögum. Skiptimarkadur fyrir safnara Safnarar halda sameiginlegan skiptimarkað á sunnudag kl. 13-17 í húsnæði Landssambands ís- lenskra frímerkjasafnara að Síðumúla 17. Markaðurinn er op- inn öllum söfnurum með hvers kyns söfnunarhluti. Leigð verða borð á kr. 250 fyrir þá sem vilja kaupa, selja eða skipta en þess utan getur hver sem er komið á markað- inn og gert viðskipti. Á staðnum verða forráðamenn söfnunarfélaga tO aö gefa upplýsingar um söfnun o.fl. Veitingar verða til sölu á staðnum. Maraþoríbridge á Laugarvatni Fjórði bekkur Menntaskólans á Laugarvatni stendur fyrir mara- þonbridge um helgina til að safna áheitum fyrir útskriftarferð nem- enda. Fjórir nemendur ætla aö spila og stefna þeir að því að sitja við spilaborðið í a.m.k. tvo sólar- hringa. Maraþonið hefst í skólan- um á fóstudag kl. 13. Öllum er velkomið að fylgjast með en spilað verður i setustofu á vistinni Kös. Einnig geta þeir sem vilja fylgjast með gangi mála og e.t.v. heita á krakkana hringt í skólann í síma 99-6142. Nýjasta tækrti í lestrartækjum fyrir sjónskerta Sýning á lestrartækjum fyrir sjónskerta veröur haldin dagana 22.-24. nóvember í húsakynnum Sjónstöðvar íslands að Hamrahlíð 17 og verður hún opin alla dagana kl. 14-18. Sjónstöðin tók til starfa á þessu ári og er nú orðin helsti ráðgefandi aðilinn í þessum málum hér á landi. Sýningin er haldin til að sýna þann undraverða árangur sem náðst hefur á undanfórnum árum í þróun lestrartækja fyrir sjón- skerta og jafnvel blinda sem nú geta notað tölvutæknina við lestur blindraleturs. Á sýningunni verða sýnd tæki frá bandarríska fyrir- tækinu VTEK sem er stærsti framleiðandi heims á þessu sviði en fyrirtækið hefur 15 ára starf að baki. VTEK Europe, dótturfyrir- tæki VTEK, sér um afgreiðslu tækjanna á Evrópumarkað og verður fulltrúi þess á sýninguni til leiðbeininga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.