Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1987, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1987, Qupperneq 3
FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1987. 21 Rás 2 sunnudag kl. 15.00: Söngleikir í New York Stöð 2 laugd. kl. 21.55: Reynsla æskileg Fyrri bíómynd Stöövar 2 á laug- ardagskvöld gerist áriö 1962 og segir þar frá ungri stúlku sem er nýútskrifuð úr skóla á Norður- Englandi. Hún er alls ekki verald- arvön enda hefur hún fáu ööru kynnst en skólagöngunni. En straumhvörf verða í lífi hennar þegar hún fer til starfa á htið og afskekkt sveitahótel í Wales. Þar kynnist hún hommanum Ivan, einnig Hy wel og Paulu, sem krydda ástarsamband sitt með sjálfspynt- ingum, auk þess sem hún tekur eftir furðulegu sambandi yfir- mannsins, konu hans og hjákonu. Aðalhlutverk leika Elizabeth Ed- monds, Sue Wallace, Geraldine Griffith og Karen Meagher. Leik- stjóri er Peter Duffell. Saklaus skólastúlkan kynnist mörgu furðulegu á hótelinu í Wa- les. Úr myndinni Kvöld trúðanna eftir Ingmar Bergman. Stöð 2 laugd. kl. 14.35: Kvöld trúðaima - eftir Ingmar Bergman Kvikmyndaklúbbur Stöðvar 2 sýnir í dag myndina Kvöld trúö- anna frá árinu 1953 eftir sænska snillinginn Ingmar Bergman. Sögusviðið er farandijölleikahús þar sem hinn sígildi ástarþríhyrn- ingur kemur mikið við sögu. Bergman lýsir sambandi sem myndast hefur milli þriggja per- sóna en þær eru fjölleikahússtjór- inn, konan sem hann elskar og ástmaður hennar. Sjónvarp sunnud. kl. 18.00: Handa- gangur í öskjunni - í Stundinni okkar Stundin okkar verður á sínum stað í sjónvarpinu á sunnudag. í þessari stund rænir úlfurinn brúðubílnum og slangan segir krökkunum þjóðsögu um Gissur á Lækjarbotnum. Dindill og Agnar- ögn setja á svið leikþátt og Lúlli kennir Lilla aö þekkja litina með hjálp drekanna, vina þeirra. Einnig verður farið í skoðunarferð til að sjá hvernig ostur og ís eru búin til. Rás 1 laugardag kl. 16.30: Nýtt íslenskt leikrit - iimlegg í kynferöisafbrotaumræöuna A laugardag verður frumflutt útvarpsleikritið Enginn skaði skeður eftir Iðunni og Kristínu Steinsdætur í leikstjóm Þórhalls Sigurðssonar. Leikritið segir frá konu sem er á leiö heim til sín úr vinkvennafagn- aði síðla nætur. Hún verður vör viö að henni er veitt eftirfór en áður en hún kemst inn til sin verð- ur hún fyrir ruddalegri likamsárás og nauðgunartilraun. Henni tekst að hrópa á hjálp og árásarmaður- inn er handtekinn. Leikritið lýsir áhrifum þessa atburðar á sálarlíf konunnar og dregin er upp skýr mynd af mbðferð réttvisinnar á máhnu. Leikendur eru Anna Kristin Arn- grímsdóttir, Hákon Waage, Halldór Björnsson, Helga Jónsdóttir, Jón Gunnarsson, Pálmi Gestsson, Ró- bert Arnfinnsson og Gerður G. Bjarklind. Tæknimenn voru Frið- rik Stefánsson og Pálína Hauks- dóttir. Stöð 2 suimudag kl. 19.55: Watson í hlutverki Holmes Stjaxnan suimud. kl. 16.00: Síðan eru liðin mörg ár Öm Petersen við stjóm Þátturinn Síðan era Uðin mörg ár verður á dagskrá Stjömunnar á hveijum sunnudegi í vetur frá kl. 16 til 19. Þar lítur Öra Petersen á athyghsverðar fréttir og viöburði fyrri ára. í þessum þætti flettir hann í gegnum síðdegisblaöið Vísi í nóvembermánuði árin 1968 og 1969. Hann skoðar athyglisverðar fréttir sem gerðust á þessum tíma og talar jafnvel við fólk sem tengist þeim atburðum sem voru efst á baugi þessi ár. Auk þess leikur Öm í þætti sínum tónlist sem vinsæl var á þessum árum. Bandaríkjamanna og hefur m.a. hlotið Tony-verðlaun fyrir söng- leiki sína. í kynningu Áma er brugðið á fóninn sýnishornum úr verkum hans, Company og Sweeny Todd, ásamt kynningu á söngleikn- um Follies. FolUes fjallar um tvenn miðaldra hjón sem líta yfir farinn veg meö spurninguna góðu í huga: „Höfum við gengið til góðs/götuna fram eft- ir veg?“ Niðurstaðan er í meginat- riðum sú að hjónaböndin hafa ekki veriö upp á það besta og kemur þar ýmislegt til, s.s. persónuleikabrest- ir, þráhyggja og skortur á lífsskiln- ingi. Sondheim er einn skeleggasti gagnrýnandi hins svokaUaða am- eríska draums meðal söngleikja- höfunda. Ekki eru allir ánægðir með alvöruþunga hans, ekki síst vegna þess að hann notar listform sem hefur náð hvað mestum vin- sældum með því að vera meinlaus afþreying en ekki ádeila. Þórhallur Sigurðsson leikstjóri ásamt nokkrum þeirra sem unnu aö leikritinu. Þijú ár eru Uðin síðan Sherlock Holmes hrapaði niður Reichen- bach fossana og dr. Watson saknar sárt hins látna félaga síns. Þegar hann er beðinn að aðstoða lögregl- una við rannsókn á morði ungs manns sér hann strax að sérfræð- ing þarf til að leysa gátuna. Watson reynir að feta í fótspor vinar síns með því að gera sér í hugarlund hvernig hann hefði hegðað sér við rannsókn málsins. Þetta reynist hægara sagt en gert. En þegar mál- ið er komið fyrir dómstóla og vitnaleiðslur fara fram finnur Wat- son að einhver er í dómsalnum. Einhver sem fylgist gaumgæfilega með gangi mála. Þrjú ár eru liðin frá hvarfi Sherlocks Holmes. Sjónvarp laugardag kl. 19.00: Smellir SmeUir eru á dagskrá sjónvarpsins á laugardagskvöld. í þættinum kynna þeir SkúU Helgason og Snorri Már Skúlason nokkrar vandaðar popp- og rokkhljómsveitir. Þ.á m. verða hljómsveitimar The Smiths, REM og That Petrol Emotion. í dag kynnir Ámi Blandon í þætti sínum söngleikinn FolUes eftir Stephan Sondheim. Sondheim er virtasti söngleikjahöfundur The Smiths verða meðal þeirra hljómsveita sem kynntar verða i Smell- um á laugardagskvöld.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.