Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1987, Blaðsíða 1
ABRACADABRA,
Laugavegi 116
Diskótek fóstudags- og laugardagskvöld.
ÁRTÚN,
Vagnhöfða 11, sími 685090
Gömlu dansamir á fóstudagskvöld. Opið
kl. Zl-OS.^Nýju og gömlu dansarnir laug-
ardagskvöld. Opið kl. 22-03. Hljómsveitin
Danssporið ásamt söngkonunni Örnu
Karlsdóttur og Grétari bæði kvöldin.
BROADWAY,
Álfabakka 8, Reykjavík, sími 77500
Stórsýningin „Allt vitlaust" á fóstudags-
og laugardagskvöld.
CASABLANCA,
Skúlagötu 30
Diskótek fóstudags- og laugardagskvöld-
um frá kl. 22-3.
DUUS-HÚS,
Fischersundi, sími 14446
Diskótek fostudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld. Opiö frá 22 til 3. A
sunnudagskvöld verða jasstónleikar í
Heita pottinum.
EVRÓPA
v/Borgartún
Hljómsveitin Model leikur fyrir dansi
fóstudags- og laugardagskvöld.
Húsið er opið frá kl. 22-3.
GLÆSIBÆR,
Álfheimum
Hljómsveitin Hafrót leikur fyrir dansi
fóstudags- og laugardagskvöld. Opið kl.
22-03.
HOLLYWOOD,
Ármúla 5, Reykjavík
„Týnda kynslóðin" á föstudags- og
laugardagsk vöid.
Húsið opið 22-3.
HÓTEL BORG,
'Pósthússtræti 10, Reykjavík, sími 11440
Diskótek fóstudags- og laugardagskvöld.
Gömlu dansarnir á sunnudagskvöld.
Hljómsveit Jóns Sigurðssonar leikur.
HÓTEL ESJA, SKÁLAFELL,
Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, sími
82200
Dansleikir fóstudags- og. laugardags-
kvöld. Hljómsveitin Kaskó leikur. Tísku-
sýning öll fimmtudagskvöld.
HÓTEL SAGA, SÚLNASALUR,
v/Hagatorg, Reykjavík, sími 20221
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
leikur fyrir dansi á fostudags- og laugar-
dagskvöld. Á Mímisbar syngur Þuríður
Sigurðardóttir með tríói Arna Scheving.
Opið kl. 10-3.
LEIKHÚSKJALLARINN,
Hverfisgötu
Diskótek fóstudags- og laugardagskvöld:
LENNON
v/AusturvöIl, Reykjavik, sími 11630
Diskótek fóstudags- og laugardagskvöld.
MIAMI,
Skemmuvegi 34, Kópavogi, sími 74240
Diskótek fóstudaga og laugardaga. Ald-
urstakmark 16 ár.
ÚTÓPÍA,
Suðurlandsbraut 26
Diskótek fóstudags- og laugardagskvöld.
ÞÓRSKAFFI,
Brautarholti, s. 23333
Hljómsveitin Pelican leikur fyrir dansi á
fóstudags- og laugardagskvöld. Ómar
Ragnarsson skemmtir matargestum
ásamt Hauki Heiðari undirleikara.
Sjallinn,
Akureyri
„Stjömur Ingimars Eydal í 25 ár“ um
helgina.
Ölver,
Álfheimum 74, s. 686220
Lifandi tónlist um helgina og kráar-
stemning. Opið frá 22 til 3 um helgar.
Ættarmót
blús-
bræðra
í Útópíu
Formlegt ættarmót blúsbræðra á
íslandi verður haldiö á laugardags-
kvöld í veitingahúsinu Útópíu.
Hófið er haldið til minningar um
blúsbróðurinn John Belushi sem
hélt á vit feðra sinna fyrir nokkrum
árum. Belushi var ‘ ásamt Dan
Akroyd kjarni blúsíjölskyldunnar
sem lék í hinni ógleymanlegu mynd
The Blues Brothers.
Einn blúsbræðra hafði þetta að
segja um hófið: „Á dögunum birtist
Belushi alíslenskum ættingja sín-
um í draumi og hvatti til að
ættarmótiö yrði haldið. Bróðirinn
hóaöi umsvifalaust í bræður sína
sem standa að ættarmótinu á
morgun. Hófið hefst kl. 22 með
dúndrandi blúsbræðratónlist. Svo
verða sýnd brot úr kvikmyndinni
The Blues Brothers auk valdra
kafla úr sjónvarpsþáttum með Bel-
ushi og Ákroyd í broddi fvlkingar.
Að því loknu mun hljómsveit undir
stjóm Jóns Ólafssonar leika blús-
bræðralög af krafti.“
Blúsbróðirinn tók fram að allir
væru hjartanlega velkomnir, eina
skilyrðið er að gestir beri svört
sólgleraugu. Svört jakkaföt eru
ennfremur æskileg.
Vetrarlíf 87
Dagana 4.-6. desember heldur
Landssamband íslenskra vélsleöa-
manna sýninguna Vetrarlíf 87. Þar
getur að líta allan þann útbúnað
sem nauðsynlegur er til að stunda
vélsleðaíþróttina. Auk vélsleða
verður þar allur aukabúnaður, s.s.
fjarskiptatæki, skíði og fatnaður.
Sýningin verður haldin í húsi Ford
umboðsins í Skeifunni í Reykjavík.
Hvalsneskirkja 100 ára
- aðventukvöld í tilefni afmælisins
Á jóladag eru nákvæmlega 100 ár liðin frá vígslu Hvalsneskirkju. í til-
efni afmælisins verður haldið aðventukvöld í kirkjunni á sunnudagskvöld
kl. 20. Stefnt er að því að þetta verði árviss viðburður héðan í frá.
Á aðventukvöldinu mun dr. Sigurbjörn Einarsson biskup flytja erindi
um Hallgrím Pétursson en eins og menn vita þjónaði Hallgrímur á Hvals-
nesi sín fyrstu prestskaparár.
Hrafnhildur Guðmundsdóttir söngkona syngur einnig þrjú jólaverk,
bæði innlend og erlend. Kór grunnskólans í Sandgerði og hópur einsöngs-
nema munu loks flytja þrjú verk undir stjórn Margrétar Pálmadóttur.
Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson býður alla velkomna en hvetur sóknar-
börn sérstaklega til að koma og eiga saman hátíðlega stund á aðventunni.
Átak um hávaðavamir
Átaki um hávaðavarnir verður hleypt af stokkunum á Hótel Borg á
sunnudag kl. 14. Fundurinn er öllum opinn. Gerð verður grein fyrir
markmiði samtakanna, lögð drög að stefnuskrá og fyrstu aðgerðir ákveðrí-
ar ásamt mörgu fleiru. Vilja samtökin losa fólk undan áreitni óþarfa
hávaða og leggja áherslu á rétt manna til þagnar og ómengaðs hljóðum-
hverfis.
Sexmenningarnir í Módeli: (Fyrir aftan.) Eirikur Hauksson söngvari, Edda Borg, hljómborðsleikari og söng-
kona, Gunnlaugur Briem trommuleikari, Friðrik Karlsson gítarleikari. (Fyrir framan.) Eva Albertsdóttir söngkona
og Erna Þórarinsdóttir söngkona.
Módel í Evrópu
Hlj ómsveitin Módel verður í veit-
ingahúsinu Evrópu í kvöld og á
laugardagskvöld. Þetta er í fyrsta
skipti sem hljómsveitin kemur
fram á dansstað.
Módel var stofnuð fyrir söngva-
keppnina á síðasta ári og þekkja
flestir tónhst hljómsveitarinnar.
En marga fýsir að vita hvað með-
hmir hljómsveitarinnar hafa gert
áður og skulum við kynna okkur
það lítillega. Eiríkur Hauksson er
meðal vinsælustú söngvara okkar
í dag og hefur hann m.a. starfað í
hljómsveitunum Start og Drýsli
auk þess að eiga mörg lög á vin-
sældalistum.
Edda Borg er yngst meðlima
hljómsveitarinnar og vakti fyrst
athygli þegar hún starfaði með
hljómsveit Gunnars Þórðarsonar
fyrir nokkrum árum. Edda starf-
rækti um tíma eigin hljómsveit auk
þess sem hún hefur starfað með
Rikshaw.
Eva Albertsdóttir og Erna Þórar-
insdóttir störfuðu báðar í Brunahö-
inu. Þær gáfu út plötu árið 1980
ásamt sameiginlegri vinkonu sinni,
Emu Gunnarsdóttur.
Síðasttaldir eru þeir Gunnlaugur
Briem og Friðrik Karlsson. Þeir
hafa báðir starfað í Mezzoforte í
heilan áratug og eru báðir afkasta-
miklir lagasmiðir. Þeir voru
upphafsmennirnir að stofnun Mód-
els.
Hljómsveit Geirmundar skipa Ægir Asbjörnsson, Jóhann Friðriksson,
Hörður Ólafsson og Geirmundur Valtýsson.
Hljómsveit Geir-
mundar á Sögu
Hljómsveit Geirmundar Valtýs-
sonar verður á draumasviðinu í
Súlnasal Hótel Sögu í kvöld og
laugardagskvöld.
Hljómsvefþ Geirmundar var
stofnuð 1971 og hefur ekkert hlé
orðið á starfsemi hennar. Geir-
mundur er landsþekktur hljóð-
færaleikari, söngvari og ekki síst
lagasmiður. Hann hefur sent frá
sér vel þekkt lög á borð við Með
vaxandi þrá, Lífsdansinn og Nú er
ég léttur.