Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1987, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1987, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1987. 21 Rás 1 surmudag kl. 15.10: Óður til Samuels Becketts i NBA-körfuboltanum keppa bestu körfuknattleiksmenn heims og leika þeir hreinlega ótrúlegar listir til að koma bolt- anum í netið. Stöð 2 laugardag kl. 17.15: NBA- körfu- knatt- leikur Sýningar frá bandaríska NBA- körfuboltanum hefjast í dag. Margir hafa beðið spenntir eftir þessum þáttum enda eru hér á ferðinni bestu körfuknattleiks- menn heims. Má þar nefna þá Larry Bird, Magic Johnson, Air Jordan o.fl. Þótt áhorfendur hafi ekki mikið vit á körfuknattleik geta þeir haft gaman af þáttunum því haft hefur verið á orði að hér sé miklu frekar á ferðinni hrein og klár sýning en hefðbundinn íþróttaleikur. Stjaman snnnu- dag kl. 14.00: í hjarta Akraness Þátturinn í hjarta borgarinnar, sem sendur hefur verið út á sunnu- dögum frá Hótel Borg, flytur sig nú um set og verður hann sendur út frá Hótel Akranesi. Að venju er þátturinn undir stjórn Jörundar Guðmundssonar og mun hann fá til sín þekkta og óþekkta Akurnes- inga ásamt fulltrúum fyrirtækja til að taka þátt í spumingaleik. Akranesdagskrá Stjömunnar hefst þó mun fyrr því strax á laug- ardagskvöld verður útsending frá dansleik á Hótel Akranesi. Á sunnudag kl. 12 setjast þeir félagar, Jón Axel Ólafsson og Þorgeir Ást- valdsson, í hljóöstofu til að taka á móti Akurnesingum í spjall auk þess sem þeir munu taka á málum sem sérstaklega snerta Akranes. Ríkisútvarpið hefur boðið nokkr- um listamönnum aö vera eins konar gestastjómendur þáttarins Gestaspjall sem hefur göngu sína á sunnudaginn. Hver listamaður hef- ur umsjón með tveimur þáttum. Þaö er Viðar Eggertsson leikari sem ríður á vaðið en þáttur hans, sem er óður til Samuels Beckett, nefnist Samferðamenn í eilífðinni. í þættinum spjallar Viðar við hlust- endur og ræðir viö fjóra valin- Hvað get ég annað gert er heitið á sex eintals- og samtalsþáttum eft- ir finnska rithöfundinn Maríu Jotuni. Þættirnir fjalla um konur, samskipti þeirra við karlkynið og stöðu þeirra í samfélagi þar sem' ekki er margra kosta völ. Undir grátbroslegu yfirborði er brugðið upp mynd af umkomuleysi sem m.a. birtist í togstreitu milli tilfmn- inga og skynsemi. María Jotuni er einn af þekktustu rithöfundum Finna og liggja eftir Kynningarþáttur um jóladag- skrá Stöðvar 2 verður sýndur á sunnudagskvöld. Það eru þau Guö- jón Arngrímsson ög Kolbrún í þessum þætti rifjar dansarinn, leikarinn og söngvarinn marg- frægi, Gene Kelly, upp minningar sínar úr kvikmyndaheiminum. Þess á milli verður brugðið upp svipmyndum úr mörgum mynda kunna menn sem allir eiga það sameiginlegt að hafa orðið fyrir miklum áhrifum frá Beckett á einn eða annan hátt. Það eru þeir Árni Tryggvason, Oddur Björnsson, 111- ugi Jökulsson og Thor Vilhjálms- son sem ræða þessa lífsreynslu sína í Gestaspjalli. Inn í þáttinn fléttast svo ljóð eftir Beckett - svona eins konar skilaboð til hlust- enda. hana fjölmörg verk, einkum smá- sögur og leikrit. Þýðingu þáttanna, sem fluttir verða á laugardag, geröi Guðrún Sigurðardóttir en leikstjóri er María Kristjánsdóttir. Formála flytur Edda Heiðrún Backman. Leikendur eru: Margrét Helga Jó- hannsdóttir, Sigrún Edda Björns- dóttir, Kristbjörg Kjeld, Guðrún Ásmundsdóttir, Edda Heiðrún Backman, Bríet Héðinsdóttir, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir og Edda Björgvinsdóttir. Sveinsdóttir sem sjá um að kynna dagskrárliðina og sýna þau sýnis- horn úr athyglisverðustu þáttun- hans. Má þar nefna myndirnar Anchors Aweigh, An American in Paris, Invitation to the Dance, On the Town, The Pirate og Summer Stock. Rás 1 laugardag kl. 16.30: Sex einþáttungar um konur Kolbrún Sveinsdóttir og Guðjón Arngrimsson kynna hátiðardagskrá Stöðvar 2 á sunnudagskvöld. Stöð 2 sunnudag kl. 20.30: Kynnmg á hátiðardagskrá um. Gene Kelly í einni mynda sinna. Sjónvarp laugardag kl. 21.35: Kvöldstund með Gene Kelly Sjónvarp sunnudag kl. 18.00: Á jólaróli - nýtt sjónvarpsleikrit Nýtt barnaleikrit eftir Iðunni Steinsdóttur verður sýnt í Stund- inni okkar á hverjum aðventu- sunnudegi héðan í frá en lokaþátt- urinn verður í Jólastundinni á jóladag. Nefnist leikritið Á jólaróli. Á jólaróli segir frá fullorðnum hjónum, Sigurði og Sölvínu, sem nýflutt eru til borgarinnar. Þau finna sér ýmislegt skemmtilegt til dundurs i hinu nýja umhverfi og auðvitað taka þau þátt í jólaundir- búningnum af flillum Krafti. Leikritið er ætlað bómum á öllum aldri. Sigurð og Sölvínu leika þau Guö- mundur Ólafsson og Guðrún Ásmundsdóttir. Leikstjóri er Viðar Eggertsson og stjórn upptöku ann- aðist Þór Elís Pálsson. Sigurður og Sölvina finna sér ýmislegt til dundurs fyrir jólin. Rás 2 sunnudag kl. 15.00: Söngleikuriim Suð- ur-Kyrrahafið í þættinum Söngleikir í New York verður fjallað um hinn fræga söng- leik Suður-Kyrrahafið (South Paci- fic). Söngleikurinn var frumsýndur 1949 og gekk árum saman á Broad- way við metaðsókn. Hann hefur stöku sinnum verið endursýndur og gerði Borgaróperan í New York það síðastliðinn vetur skömmu eftir aö Kristján Jóhannsson hafði verið þar á ferð og sungið í óperunni La Bo- héme. Margir kannast við lögin úr söngleiknum Suður-Kyrrahafið og verða þau leikin í þættinum með mörgum þekktum flytjendum, s.s. Ellu Fitzgerald og Bing Crosby. Einn- ig verða settar á fóninn upptökur úr frumuppfærslunni á Broadway með Mary Martin. Söngleikurinn South Pacicfic naut mikilla vinsælda á sínum tima Sjónvarp sunnudag kl. 22.10: Það rofaði til í Reykjavík - sjónvarpsmynd um leiðtogafundinn Sjónvarpið sýnir á sunnudags- kvöld nýja breska sjónvarpsmynd um fund Reagans og Gorbatsjovs í Reykjavík í október á síðasta ári. Myndin verður frumsýnd 1 Bret- landi sama dag vegna væntalegs fundar þjóðhöfðingjanna í Was- hington þann 8. desember. Myndin er leikin og á hún að sýna það sem raunverulega fór fram á milli þeirra Reagans og Gor- batsjovs í Höfða. Með hlutverk Reagans Bandaríkjaforseta fer Ro- bert Betty, 78 ára kanadískur leikari. Breskur leikari að nafni Timothy West fer hins vegar með hlutverk Gorbatsjovs Sovétleið- toga. Timothy West og Robert Betty í hlutverkum þjóðhöföingjanna á Reykja- víkurfundlnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.