Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1987, Side 4
22
FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1987.
FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1987.
27
Messur
Dómprófasturinn í Reykjavík
Guðsþjónustur í Reykjavíkurpróf-
astsdæmi sunnudag 6. des. 1987
Árbæjarprestakall: Barnasamkoma í
Foldaskóla í Grafarvogshverfi laug-
ardag kl. 11 árdegis. Barnasamkoma
í Árbæjarkirkju sunnudag kl. 10.30.
Guðsþjónusta í Árbæjarkirkju kl. 14.
Organleikari Jón Mýrdal. Aöventu-
samkoma í kirkjunni kl. 20.30. Davíö
Oddsson borgarstjóri flytur ræöu.
Kristinn Sigmundsson óperusöngv-
ari syngur einsöng með undirleik
Jónasar Ingimundarsonar. Skólakór
Árbæjarskóla syngur undir stjórn
Áslaugar Bergsteinsdóttur. Frú Sig-
urlaug Kristjánsdóttir ílytur ávarp.
Kirkjukórinn syngur undir stjórn
Jóns Mýrdal. í lok helgistundar
verða aðventuljósin tendruð. Sr.
Guðmundur Þorsteinsson.
Áskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Jólafundur
safnaðarfélags Ásprestakalls mánu-
dag 7. des. kl. 20.30 í safnaðarheimili
Áskirkju. Á dagskrá er jólaföndur,
veitingar o.fl. Sr. Árni Bergur Sigur-
björnsson.
Borgarspítalinn: Guösþjónusta kl.
10.30. Sr. Sigfinnur Þorleifsson.
Breiðholtsprestakall: Barnasam-
koma í Breiðholtsskóla kl. 11. Messa
kl. 14. Altarisganga. Sóknarprestur.
Bústaðakirkja: Barnasamkoma kl.
11. Elín Anna Antonsdóttir. Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Ólafur Jens
Sigurðsson messar. Börn úr skólakór
Melaskóla og Hagaskóla koma í
heimsókn og syngja undir stjórn
Helgu Gunnarsdóttur. Organleikari
Jónas Þórir. Æskulýðsfélagsfundur
þriðjudagskvöld. Jólahátíð aldraðra
miðvikudag 9. des. kl. 13-17. Sóknar-
nefndin.
Digranesprestakall: Barnasamkoma
í safnaðarheimilinu við Bjarnhóla-
stíg kl. 11. Guösþjónusta í Kópavogs-
kirkju kl. 11. Tónlistarskóli
Kópavogs stendur að tónlistarflutn-
ingi í messunni. Martiar Nardeau
leikur á flautu. Hrefna Eggertsdóttir
leikur á píanó, sónötu í ES dúr eftir
J.S. Bach. Um kvöldið veröur að-
ventusamkoma Kópavogssafnaða í
tilefni 25 ára vígsluafmælis kirkj-
unnar. Ræðumaður sr. Ólafur
Skúlason vígslubiskup. Sr. Þorberg-
ur Kristjánsson.
Dómkirkjan: Laugardagur: Barna-
samkoma í kirkjunni kl. 10.30. Egill
Hallgrímsson. Sunnudagur: Messa
kl. 11.00. Orgelleikur í 20 mín. fyrir
messuna. Sr. Þórir Stephensen.
Messa kl. 14. Sr. Hjalti Guðmunds-
son. Dómkórinn syngur við báðar
messurnar. Organleikari Marteinn
H. Friðriksson.
Landakotsspítali: Messa kl. 13. Org-
anleikari Birgir Ás Guðmundsson.
Sr. Þórir Stephensen.
Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta kl.
10. Sr. Gylfi Jónsson.
Fella- og Hólakirkja: Messa kl. 11.
Einsöngur Ragnheiður Guðmunds-
dóttir. Prestur Guðmundur Karl
Ágústsson. Aöventukvöld kl. 20.30.
Söngur, helgileikur og ræða kvölds-
ins: Hólmfríöur Pétursdóttir. Ein-
söngur Viðar Gunnarsson. Organ-
leikari Guðný Margrét Magnúsdótt-
ir. Mánudagur: Fundur í
Æskulýðsfélaginu kl. 20.30. Miðviku-
dagur: Guðsþjónusta og altarisganga
kl. 20. Sóknarprestar.
Fríkirkjan i Reykjavík: Laugardagur:
5. des.: Fermingarbörn komi í kirkj-
una kl. 14. Sunnudagur: Guðsþjón-
usta kl. 14. Ræöuefni: Olían á lampa
trúarinnar. Fríkirkjukórinn syngur.
Organisti Pavel Smid*Sr. Gunnar
Björnsson.
Grensáskirkja: Bamasamkoma kl.
11.00. Messa kl. 14. Sr. Magnús
Björnsson annast messuna. íris Erl-
ingsdóttir syngur einsöng. Organisti
Árni Arinbjarnarson. Sóknarnefnd-
in.
Jólasala á útlits-
gölluðu gleri í Bergvík
Glerblástursverkstæðið Gler í Bergvík á Kjalamesi heldur sína árlegu
jólasölu á útlitsgölluðu gleri um helgina. Glerblástur og mótun veröur í
gangi meðan gestir verða á staðnum. Jafnframt verður boðið upp á kafíi
og piparkökur. Salan stendur yfir bæði laugardag og sunnudag kl. 10-18.
Verkstæðið er viö Vesturlandsveg, u.þ.b. 30 km frá miðbæ Reykjavík-
ur. Ekið er út af veginum við Fólkvang en verkstæðiö er mitt á milli
Fólkvangs og nýja hverfisins.
GáUerí Svart á hvltu:
Jólasýning
Laugardaginn 5. desember verður opnuð í Gallerí Svart á hvítu jólasýn-
ing á verkum nokkurra myndlistarmanna. Flestir þeirra hafa tekið þátt
í sýningum í galleríinu á þessu ári og má þar nefna Sigurð Guðmunds-
son, Huldu Hákon, Helga Þorgils Friðjónsson, Jón Axel og Georg Guðna.
Galleríinu hafa einnig bæst nýir kraftar og ber þar sérstaklega að nefna
Karl Kvaran sem er myndlistarunnendum aö góðu kunnur. Verk eftir
fleiri aðila verða á sýningunni sem er sölusýning. Hún er opin alla daga
nema mánudaga kl. 14-18 og stendur fram til jóla.
Tónleikar í
Hafnarfirði
Símon H. ívarsson gítarleikari og dr. Orthulf Prunner organisti halda
tónleika í Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði á laugardag kl. 17. Á tónleikunum
leika þeir tónlist af nýútkominni plötu sinni en einnig gefst áheyrendum
tækifæri til að hlýða á sjaldgæft hljóðfæri sem kallast klavíkord. Samleik-
ur á klavíkord og gítar er mjög sérstök samsetning. Verkin sem leikin
verða eru eftir þekkt tónskáld: Bach, Vivaldi, Beethoven, Rodrigo og
Scheidler.
Dr. Orthulf Prunner og Simon H. ívarsson við hljóðfæri sín.
Eggert Magnússon við tvö verka sinna.
Sjómaður sýuir á Kjarvalsstöðum
Málverkasýning Eggerts Magnússonar
stendur nú yfir á Kjarvalsstöðum. Eggert
er fæddur í Reykjavík 1915 og starfaði
hann lengst af sem vélstjóri og sjómaður
en hefur nú snúið sér að málaralistinni.
Hann var meðal þeirra alþýðulista-
manna sem vöktu mikla athygli með
sýningu á verkum sínum í Listasafni al-
þýðu í haust. Þetta er 5. einkasýning
Eggerts en auk þess hefur hann tekið
þátt í 4 samsýningum, m.a. í Kunsthallen
í Malmö. Sýningin stendur til 13. desemb-
er og er opin frá kl. 14-22.
Sembal. Helga mun hafa kynningu á hljóðfæri sínu og tónlist þess fyrir nemendur í tón
listarskólum í tengslum við tónleikana.
Sembal
á Suður-
landi
Helga Ingólfsdóttir semballeikari
mun á aðventu halda þrenna ein-
leikstónleika á Suðurlandi. Fyrstu
tónleikarnir verða í Þorlákshafn-
arkirkju á laugardag kl. 16, aðrir í
Skálholtskirkju á sunnudag kl. 16
og þeir síðustu í Þykkvabæjar-
kirkju laugardag 12. desember kl.
16,30.
Á efnisskránni eru verk frá 17.
og 18. öld, m.a. tvö af þekktustu
verkum J.S. Bachs. Einnig leikur
hún tvö frönsk verk, en frönsk tón-
skáld. barokktímans þóttu skrifa
einkar vel fyrir sembal.
Námur íslensku
hlj ómsveitarinnar
Ný og umfangsmikil tónleikaröð
á vegum íslensku hljómsveitarinn-
ar hefur göngu sína á laugardag.
Tónleikaröðin hefur verið nefnd
Námur og er þar íjallaö um tiltekin
brot úr íslandssögunni. Fyrstu tón-
leikamir verða í Hallgrímskirkju
laugardaginn 5. desember kl. 16.
Þar verða frumflutt og frumsýnd
þrjú listaverk sem öll fialla hvert á
sinn hátt um landnámstímabilið.
Á tónleikunum frumflytja Kristj-
án Jóhannsson óperusöngvari og
íslenska hljómsveitin, undir stjóm
Guðmundar Emilssonar, tónverk
eftir Þorkel Sigurbjörnsson tón-
skáld við fmmort ljóð Sigurðar
Pálssonar. Verk Sigurðar og Þor-
kels eru gagngert samin fyrir
Kristján að frumkvæði hljómsveit-
arinnar. Ennfremur verður af-
hjúpað nýtt málverk eftir Gunnar
Örn Gunnarsson myndlistarmann.
Myndin ber hið sérstæða heiti
„Sjáðu jökulinn maður“ og lýsir
undrun landnámsmannsins þegar
hann kemur til hinna nýju heim-
kynna. Einnig verða flutt á tónleik-
unum tvö tónverk til viðbótar.
Tónleikarööin Námur á sér
hvorki erlenda né innlenda fyrir-
mynd. Hafin er gerð heimildaþátt-
ar um uppátækið auk þess sem
hafinn er undirbúningur bókar um
verkin og listamennina sem viö
sögu koma. Ráðgert er að efna til
sýninga á myndverkunum um allt
land og einnig að gefa út hljóðritan-
ir af tónverkunum. Aldamótaárið
2000, þegar 10 aldir eru liðnar frá
kristnitöku, er fyrirhugað aö end-
urflytja og sýna öll listaverkin í
einu en hugmyndin að Námum
kviknaði einmitt af vangaveltum
um þau tímamót.
Kristján Jóhannsson frumflytur nýtt verk á tónleikunum sem gagngert
er samið fyrir hann að tilstuðlan íslensku hljómsveitarinnar.
Listaverkauppbod á Sögu
Á sunnudag verður haldið upp- verða á uppboðinu og má þar m.a. Sveinsson. Málverkin verða sýnd í
boð á listaverkum á Hótel Sögu. nefna Jóhannes Kjarval, Mugg, Súlnasal frá kl. 14-18 en uppboðið
Verk eftir marga þekkta listamenn Nínu Tryggvadóttur og Ásgrím hefst kl. 20.30 á sama stað.
Hallgrímskirkja: Messa kl. 11. Sr.
Karl Sigurbjörnsson. Miðvikudagur:
9. des.: Náttsöngur kl. 21.00. Skag-
firska söngsveitin. Stjórnandi Björg-
vin Valdimarsson. Fimmtudagur 10.
des.: Jólafundur Kvenfélagsins kl.
20.00. Föstudagur 11. des.: Kökubasar
til ágóða fyrir safnaðarheimiliö.
Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Jón
Bjarman.
Háteigskirkja: Morgunmessa kl. 10.
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Messa kl.
14. Sr. Arngrímur Jónsson. Aðventu-
tónleikar kl. 21.00. Orthulf Prunner
leikur orgeltónlist eftir Mend-
elssohn, Cesar Franck, Hummel o.fl.
Hjallaprestakall í Kópavogi: Barna-
samkoma kl. 11 í Digranesskóla. í
tilefni af 25 ára vígsluafmæli Kópa-
vogskirkju verður sameiginlegt
aðventukvöld safnaðanna í Kópavogi
kl. 20.30 í Kópavogskirkju. Að lokinni
samverunni verður boðið upp á veit-
ingar í félagsheimili Kópavogs. Sr.
Krisfián Einar Þorvarðarson.
Kársnesprestakall: Barnasamkoma í
safnaðarheimilinu Borgum kl. 11 ár-
degis. Guðsþjónusta með tónleikum
í Kópavogskirkju kl. 14. Kennarar
úr Tónlistarskóla Kópavogs leika á
nýtt píanó, flautu og klarinett verk
eftir J.S. Bach og F. Schubert. Að-
ventuhátíð í Kópavogskirkju kl.
20.30. Minnst 25 ára vígsluafmælis
kirkjunnar. Ræöumaður sr. Ólafur
Skúlason dómsprófastur. Að lokum
veitingar í félagsheimili Kópavogs í
boði safnaöanna í Kópavogskaup-
stað. Sr. Ámi Pálsson.
Langholtskirkja: Kirkja Guðbrands
biskups. Óskastund barnanna kl. 11.
Sungið, leikið og myndir gerðar. Þór-
hallur Heimisson guðfræðinemi og
Jón Stefánsson sjá um stundina.
Guösþjónusta kl. 14. Prestur sr. Sig.
Haukur Guöjónsson. Organisti Jón
Stefánsson. Sóknarnefndin.
Laugarnesprestakall: Laugardagur
5. des.: Guðsþjónusta að Hátúni 10,
9. hæð kl. 11. Sunnudagur: Guðs-
þjónusta kl. 11.00 fyrir alla fiölskyld-
una. Sérstakt barnastarf. Aðventu-
kvöld í kirkjunni kl. 20.30.
Ræðumaður kvöldsins verður dr.
Björn Björnsson prófessor. Ungling-
ar sýna helgileik í umsjá Jónu H.
Bolladóttur. Kirkjukór Laugames-
kirkju syngur tvö verk, einnig
verður tónlist í umsjá Ann Toril
Lindstad. Að lokinni samkomunni í
kirkjunni verður heitt súkkulaði og
smákökur á boðstólum í Safnaðar-
heimilinu á vegum Kvenfélags
Laugarnessóknar. Mánudagur:
Æskulýðsstarf kl. 18. Jólafundur
Kvenfélags Laugarnes«óknar kl.
20.00. Sóknarprestur.
Neskirkja: Laugardagur: Æskulýðs-
fundur fyrir 11-12 ára kl. 13. Félags-
starf aldraða: Við fórum saman í
Kringluna og leggjum af stað frá
kirkjunni kl. 14.30. Sunnudagur:
Barnasamkoma kl. 11. Muniö kirkju-
bílinn. Guðsþjónusta kl. 14.00 rumsjá
sr. Ólafs Jóhannssonar. Mánudagur:,
Æskulýðsfélagsfundur kl. 19.30. Mið-
vikudagur: Fyrirbænamessa kl.
18.20. Guðmundur Óskar Ólafsson.
Fimmtudagur: Fundur hjá þjónustu-
hóp kl. 18.
Seljasókn: Barnaguðsþjónusta í
kirkjumiðstöðinni kl. 11. Guðsþjón-
usta í Ölduselsskóla kl. 14. Síðasta
guðsþjónusta í skólanum. Kl. 15.00
er jólabasar kvenfélagsins í kirkju-
miðstöðinni. Sóknarprestur.
Seltjarnarneskirkja:Bamaguðsþjón-
usta kl. 11. Eirný og Solveig Lára.
Messa kl. 14.00. Órganisti Sighvatur
Jónasson. Prestur sr. Solveig Lára
Guðmundsdóttir. Æskulýðsfélags-
fundur mánudagskvöld kl. 20.30.
Opið hús fyrir 10-12 ára þriðjudag
kl. 17.30.
Kirkja Óháða safnaðarins: Aðventu-
hátíð í kirkju Óháða safnaðarins
sunnudag kl. 20.30. Ræðumaður:
Haraldur Ólafsson lektor. Einsöng-
ur: Halla Margrét Árnadóttir. Dúett:
Jónas Dagbjartsson og Jónas Þórir
leika á fiðlu og orgel. Kirkjukór safn-
aðarins leiðir söng undir stjórn
Heiðmars Jónssonar organista. Leik-
menn lesa ritningarlestra og beðið
verður fyrir sönnum jólaundirbún-
ingi. Ljósin tendrast kerti af kerti um
leið og jólasálmurinn „Heims um
ból“ verður sunginn. Kaffiveitingar.
Þórsteinn Ragnarsson.
Fríkirkjan í Hafnarfirði: Bamasam-
koma kl. 11. Aðventukvöld kl. 20.30.
Guðrún Ásmundsdóttir leikkona
flytur hugvekju. Jóhanna Linnet
syngur einsöng. Ásgeir Steingríms-
son og Örn Falkner leika saman á
trompet og orgel. Kirkjukórinn syng-
ur. Einar Eyjólfsson.
Gaulverjabæjarkirkja: Messa kl. 14.
Sóknarprestur.
Stokkseyrarkirkja: Bamamessa kl.
11. Sóknarprestur.
Stokkseyrarkirkja: Barnamessa kl.
11. Sóknarprestur.
Þingvallakirkja: Guðsþjónusta verð-
ur á sunnudag kl. 14. Almennur
safnaðarfundur fer fram að lokinni
messu. Sóknarprestur.
Tilkyimingar
Neskirkja
-félagsstarf aldraðra
á morgun, laugardag. Farið verður í
Kringluna. Lagt af stað frá kirkjunni kl.
14.30.
Fjölskylduskemmtun
í Breiðholtsskóla
Foreldrafélag Breiðholtsskóla efnir til
skemmtunar fyrir fjölskyldur nemenda
skólans sunnudagmn 6. desember frá kl.
15.30-17.30 í Breiðholtsskóla. Á skemmt-
uninni verður bókakynning þar sem
Andrés Indriðason les úr Stjömustælum
og Guðrún Helgadóttir úr Sænginni yfir
minni. Jólalög verða sungin og Gísli Jón-
asson sóknarprestur flytur jólahugvekju.
Við upphaf skemmtunarinnar mun
Skólalúðrasveit Árbæjar og Breiðholts,
undir stjóm Ólafs L. Kristjánssonar,
leika nokkur lög. Foreldrar og nemendur
koma með kerti sem verða tendruð þenn-
an 2. sunnudag í aðventu.
70 ára afmæli
UMF Þórsmerkur
Hinn 10. nóvember sl. vom liðin 70 ár frá
stofnun UMF Þórsmörk í Fljótshlíðar-
hreppi. í tilefni þess verður haldið
afmælishóf í Félagsheimilinu Goöalandi
laugardaginn 5. desember nk. og hefst
þaö kl. 21.30 stundvíslega. Á boðstólum
verða kaffiveitingar, létt skemmtiatriði
og dans. Félagiö hefur frá upphafi starfað
að ýmsum félags- og menningarmálum í
Fljótshlíðarhreppi svo sem íþróttum,
leiklist, ferðalögum, skógrækt og mörgu
fleiru. Afmælishófið er opið öllum fyrr-
verandi og núverandi félagsmönnum og
sérstaklega eru brottfluttir félagsmenn
boðnir velkomnir svo og Ffjótshlíðingar
allir og aðrir velunnarar félagsins.
Húnvetningafélagið
Félagsvist verður laugardaginn 5. des-
ember kl. 14 í félagsheimilinu Skeifunni
17. Síðasti spilafundur fyrir jól. Para-
keppni, verðlaun og veitingar. Allir
velkomnir.
Klúbburinn Þú og ég
heldur flóamarkað laugardaginn 5. des-
ember milli kl. 13 og 16 að Mjölnisholti 14.
Félag farstöðvaeigenda
verður með kynningu á talstöðvum og
fjarskiptabúnaði í tengslum við sýning-
una Vetrarlif '87 sem hefst í Ford-salnum,
Skeifunni 17, á morgun kl. 17 og stendur
til sunnudagskvölds.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Frístunda-
hópsins Hana nú í Kópavogi verður á
morgun, laugardaginn 5. desember. Lagt
af stað frá Digranesvegi 12 kl. 10. í svörtu
skammdeginu göngum við hvemig sem
viðrar. Skemmtilegur félagsskapur. Ný-
lagað molakaffi. Allir velkomnir.
Aðventukvöld í
Laugarneskirkju
Sunnudaginn 6. des. verður guðsþjónusta
kl. 11 í Laugameskirkju fyrir alla fjöl-
skylduna eins og verið hefur í allt haust.
En sá háttur hefur verið hafður á að
börnin hafa fengið sérstaka fræðslu í
tveimur aldurshópum meðan á prédikun
stendur. Um kvöldið kl. 20.30 verður síð-
an aðventuhátíð með fiölbreyttri dag-
skrá. Eftir samkomuna í kirkjunni
verður boðið upp á heitt súkkulaði og
smákökur í safnaðarheimili kirkjunnar
i umsjá Kvenfélags Laugarnessóknar.
Kópavogskirkja 25 ára
í tilefni af 25 ára vígsluafmæh Kópavogs-
kirkju nú í desember hafa söfnuðir
kaupstaðarins ákveðið að standa saman
að aðventuhátíö í kirkjunni nk. sunnu-
dagskvöld, 6. des., ki. 20.30. í tilefni
afmæhsins hafa 15 fyrirtæki í sóknunúm
tveimur fært kirkjunni dýrmæta gjöf sem
er hiö fullkomnasta píanó af Bösendorfer
gerð. Þessi þarfa gjöf, sem hér er þökk-
uð, mun breyta allri aðstöðu til tónleika-
lialds í kirkjunni. Að samkomunni
lokinni em kirkjugestum boðnar veiting-
ar í FélagsheimiU Kópavogs á vegum
safnaðanna í Kópavogskaupstað.
Fullveldisfagnaður
Hinn árlegi fullveldisfagnaður SUOMI-
. félagsins verður . haldinn í Norræna
húsinu sunnudaginn 6. desember 1987 og
hefst kl. 20.30. Að lokinni dagskrá verður
borinn fram kvöldverður í veitingasal
Norræna hússins, þá veröur happdrætti.
Þess verður sérstaklega minnst á full-
veldisfagnaðinum að 70 ár em nú liöin
frá því að Finnland hlaut fullveldi.
Jólakaffi
Kvenfélagsins Hringsins
Hið árlega jólakaffi Kvenfélagsins
Hringsins verður í veitingahúsinu Bro-
adway sunnudaginn 6. desember nk. kl.
14. Á dagskrá verður m.a. tískusýning á
bamafótum frá versl. Krakkar. Einnig
verður hið margrómaða skyndihapp-
drætti á staðnum þar sem vinningar em
m.a. utanlandsferðir, rafmagnsvörur.
matarkörfur ásamt fjölmörgum öðmm
vinningum. Einnig verða basarmunir og
jólakort seld. Allur ágóði af fiáröflun
Hringsins rennur til líknarmála.
Jólaglögg félaga
sjálfstæðismanna
í Arbæ, Selási, Ártúnsholti og Grafarvogi
verður haldið laugardaginn 5. desember
kl. 17-19 í félagsheimilinu að Hraunbæ
102 b (við hliðina á Skalla).
Ferðalög
Útivistarferðir
Laugardagur 5. des. kl. 20:
Tunglskinsganga, fjörubál. Létt ganga.
Gengiö frá kapellu heilagrar Barböru við
Straumsvik um ströndina út á Hvalevri.
5. des. er einmitt Barbömmessa.
Sunnudagur 6. des kl. 13:
Lónakot - Óttarsstaðir. Létt ganga vest-
an Straumsvíkur. Brottfór frá BSÍ.
bensínsölu. Munið áramótaferð Útivistar
30. des. Uppl. og farmiðar á skrifstof-
unni, Grófinni 1, símar 14606 og 23732.
Sjáumst.
Ferðafélag íslands
Dagsferð sunnudag 6. des.
kl. 13, Kjalarnesfjörur. Ekiö verður að
Sjávarhólum og gengið þaðan um Hofs-
vík út á Kjalames. Létt gönguferð fyrir
alla fjölskylduna. Verð kr. 500. Vegna
gífurlegrar aðsóknar í áramótaferð FI er
afar áríðandi að þeir sem hafa pantað far
sæki farmiða fyrir 15. desember nk. Eftir
það verða ósóttir miðar seldir öðmm.
Ferðafélagið notar allt gistirými í sælu-
húsi FÍ í Landmannalaugum frá 30. des.
til 2. jan. nk. og einnig í Skagfjörðsskála
í Þórsmörk. Að venju er brottfór í ferð-
irnar frá Umferðarmiðstöðinni. austan-
megin. í dagsferðir em farmiðar seldir
við bíl.
Kópavogsland að vetri
Sunnudaginn 6. desember fer Náttúm-
verndarfélag Suðvesturlands í náttúm-
skoðunar- og söguferð um Kópavog í
langferðabíl. Farið verður af stað frá
Náttúrufræðistofu Kópavogs. Digranes-
vegi 12. kl. 13.30 (hægt verður að fara í
bílinn við Nomæna húsið kl. 13 og við
Náttúrugripasafnið. Hverfisgötu 116. kl.
13.10). Komiö verður til baka að Náttúru-
fræðistofunni kl. 16. Þar verður þátttak-
endum boðið að skoða-sýninguna ..Lífríki
fjömnnar í Kársnesi í Kópavogi". (Til
Reykjavíkur verður komiö um kl. 17.)
Leiösögumenn veröa Árni Hjartarson
jarðfræðingur. Árni Waag líffræðikenn-
ari og forstöðumaður Náttúrufræðistofn-
unar og Björn Þorsteinsson sagnfræðing-
ur og bæjarritari. Fargjald verður kr. 300
en frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum.
Kvikmyndir
MÍR sýnir „Rall“
Nk. sunnudag, 6. desember, kl. 16 veröur
sovéska kvikmyndin „Rall“ sýnd í bíósal
MÍR, Vatnsstíg 10. Þetta er mynd gerð í
Riga, Lettlandi, fyrir nokkmm ámm
undir stjórn Aloiz Brentsj og fjallar um
smyglmál sem tveir sovéskir þátttakend-
ur í aksturskeppni milli Moskvu og
Berlínar um Varsjá flækjast í af tilviljun.
Sunnudaginn 13. desember kl. 16 verður
„Síberíuhraðlestin1- sýnd í bíósal MÍR og
er það síðasta kvikmyndasýningin fyrir
jól. Aðgangur að sýningum MIR, bæði
kvikmyndasýningum og list- og bókasýn-
ingu, sem nú er uppi í húsakynnum
félagsins að Vatnsstíg 10, er ókeypis og
öllum heimill.
Sýningar
Árbæjarsafn
Árbæjarsafn er opið eftir samkomulagi.
Sími 84412.
Ásgrimssafn,
Bergstaðastræti 74
Safnið er opið sunnudaga, þriðjudaga og
fimmtudaga kl. 13.30-16.
Ásmundarsafn
við Sigtún
Tryggvi Gunnar Hansen og Sigríður Ey-
þórsdóttir eru með sýningu í Ásmundarsal.
Sýninguna nefna þau Jarðarvitund en sem
kunnugt er hafa þau unnið úr jarðarefnum
í fjölda ára. Sýningin stendur til 7. desemb-
er. Opið frá kl. 18 til 22 daglega og um
helgar frá 14—22.
FÍM-salurinn,
Garðastræti 6.
Bjarni Ragnar er þar með sýningu á verk-
um sínum. Sýningin verður opin virka
daga kl. 16-21 og um helgar kl. 14-22.
Sýningunni lýkur 6. desember.
Gallerí Borg,
Pósthússtræti 9
Sýning á verkum hinnar merku listakonu
Louisu Matthíasdóttur stendur yfir i Gall-
erí Borg. Sýningin stendur til 8. desember.
Þetta er fyrsta einkasýning Louisu hér á
landi en hún hefur tekið þátt í tveimur
samsýningum. Þá hefur einnig verið opn-
uð þar jólasýning leirlistamanna. Mikið
úrval hluta er á sýningunni sem er sölu-
sýning og sá háttur verið hafður á að
kaupendur geta tekið með sér munina og
ný verk koma þá í staðinn. Sýningin er
opin frá kl. 10-16 virka daga en kl. 14-18
um helgar. Henni lýkur sunnudaginn 13.
desember.
Gallerí Grjót,
Skólavörðustíg
Samsýning í tilefni 4 ára starfsafmælis
gallerísins stendur yfir. A sýningunni eru
skúlptúrar. málverk og grafík. Þeir sem
að sýningunni standa eru Jónína Guðna-
dóttir. Magnús Tómasson. Ófeigur Björns-
son. Ragnheiður Jónsdóttir. Steinunn
Þórarinsdóttir. Þorbjörg Höskuldsdóttir
og Örn Þorsteinsson. Sýningin er opin
virka daga frá kl. 12-18.
Gallerí Gangskör
Gangskörungar halda jólasýningu sem nú .
stendur yfir á keramík. skúlptúr. grafík
og fl. Opið virka daga kl. 12-18 og um
helgar kl. 14-18.
Gallerí Gangurinn
Um þessar mundir sýnir finnski listamað-
urinn Jussi Kivi verk sín í Gallerí
Ganginum. Hann er einn af þekktustu
ungu listamönnum Finnlands og hefur
sýnt nokkuð víða fyrir hönd Finnlands.
\Terkin í Ganginum eru 16 ljósmyndir þar
sem leikföng og tilbúin náttúra koma við
sögu.
Gallerí íslensk list
Einar G. Baldvinsson sýnir 30 olíumálverk
í Gallerí List. Sýningin er opin virka daga
kl. 9-17 og 14-18 um helgar. Þetta er sölu-
sýning.
Gallerí List,
Skipholti 50.
Sýning á persneskum hirðingjateppum um
helgina 5. og 6. des. Málverkasýning á
virkum dögum.-
Gallerí Langbrók,
Bókhlöðustig 2,
textílgallerí. Opið þriðjudaga til föstudaga
kl. 12-18 og laugardaga kl. 11-14.
Galleri Nes,
Nýjabæ v/Eiðistorg
Opnaður hefur verið nýr sýningarsalur.
Gallerí Nes. í verslunarhúsnæði Nýja-
bæjar við Eiðistorg. III. hæð. Tíu Seltirn-
ingar. félagar úr Myndlistarklúbbi
Seltjamamess. sýna fram að jólum. Opið
er virka daga kl. 16-19 og laugardaga og
sunnudaga kl. 13-16.
Gallerí Svart á hvítu
v/Óðinstorg
Laugardaginn 5. des. verður opnuð jóla-
sýning á verkum nokkurra myndlistar-
manna. Flestir þeir myndlistarmenn sem
eiga verk á sýningunni hafá tekið þátt í
sýningum í galleríinu á þessu ári og má
þar nefna Sigurð Guðmundsson. Huldu
Hákon. Helga Þorgils Friðjónsson. Jón
Axel og Georg Guðna. Einnig verða á sýn-
ingunni verk eftir Karl Kvaran. Halldór
Ásgeirsson. Erlu Þórarinsdóttur, Ólaf
Lárusson og Pieter Holstein. Þetta er sölu-
sýning og geta kaupendur tekið verkin
með sér strax við kaup. Sýningin stendur
fram til jóla og er opin alla daga nema
mánudaga kl. 14-18.
Kjarvalsstaðir
við Miklatún
Haukur Clausen sýnir olíumálverk, mest
landslagsmyndir. Sýningin stendur til 13.
desember. Sýningin er í vestursal. Eggert
Magnússon sýnir einnig verk sín þar. Sýn-
ing hans stendur til 14. desemberL