Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1987, Page 6
28
FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1987.
Leikfélag Reykjavikur:
Hremming
- næstsíðasta sýning fyrir jól
Leikfélag Reykjavikur frumsýndi
fyrir rúmum mánuöi í Iönó leikrit-
iö Hremmingu eftir Barrie Keeffe.
Á laugardag verður 12. og jafn-
framt næstsíðasta sýning fyrir jól
á leikritinu. Hremming hefur feng-
ið ágætar viðtökur meðal leik-
húsunnenda og er því ekki úr vegi
að rekja söguþráð verksins og
fræðast lítillega um höfundinn.
í Hremn(iingu leikur Helgi
Björnsson ungan og ráðvilltan
skólastrák sóm heldur tveimur
kennurum sínum og skólastjóra í
gíslingu í geymsmkompu á skóla-
lóðinni og hótar þeim lífláti ef ekki
verður fariö að kröfum hans - sem
hann veit raunar síst sjálfur hverj-
ar eru. Atburðimir gerast í stórum
gagnfræðaskóla á útskriftardegi en
kveikja þeirra er nánast tilviljun.
Skólastjórann leikur Harald G.
Haraldsson en Inga Hildur Har-
aldsdóttir og Guðmundur Ólafsson
fara með hlutverk kennaranna.
Verk þetta er dæmigert fyrir höf-
und þess. Barrie Keeífe hefur
skrifað rúmlega 20 leikrit og eru
mörg þeirra samin sérstaklega með
ungt fólk og vandamál þess í huga.
Gagnrýnendur dást mjög að hinum
hraða stíl hans og óþrjótandi upp-
finningasemi þegar kemur að því
að búa til söguþráð - með ýmsum
útúrdúrum. Kímnigáfan er þó aldr-
ei langt undan hjá honum þó verið
sé að QaRa um háalvarlega hluti.
Barrie Keeffe hóf ritmennskufer-
il sinn sem blaðamaöur en fljótlega
sneri hann sér að leikhúsinu sem
síðan hefur átt hug hans allan. Frá
1973 hafa verk hans verið sýnd
reglulega í leikhúsum á Bretlands-
eyjum en Hremming er fyrsta verk
hans sem sýnt er hér á landi. Auk
leikhúsvinnu hefur Barrie Keeffe
Helgi Björnsson í hlutverki skólastráksins sem er oröinn svo ráðvilltur i tilverunni að hann heldur kennurum
sinum í gislingu.
fengist við handritasmíð að út-
varps- og sjónvarpsleikritum. Þar
að auki skrifaði hann handrit að
þekktri kvikmynd, The Long Good
Friday, sem frumsýnd var árið
1981.
Kjartan Ólafsson hefur samið
kröftuga rokktónhst, sem leikin er
við Hremmingu, og hefur Karl
Ágúst Úlfsson samið textana við
tónlistina. Karl leikstýrir einnig
verkinu. Sýningin á laugardag er,
eins og áður segir, næstsíðasta sýn-
ing fyrir jól og hefst hún kl. 20.30
í Iðnó.
Kvikmyndahús - Kvikmyndahús
Stjörnubíó
Ritchie Valen var ungur og efni-
legur söngvari þegar hann lést í
flugslysi 1958. Hann var aðeins
sautján ára. Samt hafði honum tek-
ist á nokkrum mánuðum að eiga
þrjú vinsæl lög, meðal þeirra La
Bamba, lag sem er titill kvikmynd-
ar um ævi piltsins. FjaUar myndin
um stutta ævi hans en hann er af
mexíkönsku bergi brotinn. Þá hef-
ur Stjörnubíó hafið sýningar á 84
Charing Cross Road sem fjallar um
samband rithöfundar og útgefanda,
samband sem fer að mestu fram
bréfleiðis. Það eru úrvalsleikararn-
ir Anne Bancroft og Anthony
Hopkins er leika aðalhlutverkin.
Bjóborgin
í aðalsal Bíóborgarinnar er nú
verið að sýna gamanmyndina
Flodder sem fjallar um vægast sagt
sérkennilega íjölskyldu sem ekki
fellur í kramið hjá fína fólkinu í
fina hverfinu sem fjölskyldan flyt-
ur í. Gullstrætið (Streets of Gold)
er með hinum ágæta leikara, Klaus
Maria Brandauer í aðalhlutverki.
Leikur hann innflytjanda er flyst
til Bandaríkjanna og lifsbaráttu
hans þar. Laganeminn (From the
Hip) er um ungan laganema, Robin
Weathers, er tekur að sér að veija
mann sem ákærður er fyrir morö.
Þetta er gamanmynd með alvar-
legu ívafi. Þá er óhætt að mæla
með Nornunum frá Eastwick (The
Witches of Eastwick) þar sem Jack
Nicholson fer á kostum í hlutverki
sjálfs kölska sem þrjár ungar og
fallegar galdrakonur særa til sín.
Laugarásbíó
Villidýriö (Wild Thing) fjaUar um
dreng sem verður munaðarlaus
þegar foreldrar hans eru myrtir.
Þegar hann verður fullorðinn hefn-
ir hann þeirra. Furðusögur
(Amazing Stories) eru þrjár stuttar
kvikmyndir sem allar eiga það
sameiginlegt að fjalla um dular-
fuUa atburði. Yfirumsjón með
myndum þessum hefur sjálfur
Steven Spielberg og leikstýrir hann
fyrsta hlutanum, Ferðinni. Annar
hlutinn nefnist Múmiufaöir og
leikstýrir William Dear honum.
Þriðja hlutanum, Höfði bekkjarins,
leikstýrir Robert Zemckis.
Bíóhöllin
Hin magnaða mynd Stanleys
Kubrick, Skothylkið (Full Metal
Jacket), fjaUar um unga drengi sem
kallaðir eru í herinn þegar Víet-
namstríðið geisar, þjálfun þeirra,
Háskólabíó
Hinir vammlausu
Hinir vammlausu (The Untouch-
ables) virðist ætla aö fá jafngóðar
viðtökur hérlendis sem annars
staöar og eru flestir sammála um
að Brian de Palma hafi ekki gert
betri mynd.
Eins og flestum er kunnugt íjallar
myndin Hinir vammlausu um hóp
lögreglumanna undir forystu EIU-
ots Nes. Þeir beijast gegn glæpa-
mönnum í Chicagó á bannárunum
og þá sérstaklega við hinn alræmda
A1 Capone. Gerist myndin 1931.
SpiUingin er mikil og ekki síst inn-
an lögreglunnar en hópur EUiotts
Ness lætur ekki múta sér og hefur
sigur í lokin.
EUiot Ness er engin skáldsagna-
persóna. Hann var til en Ufði ekki
aUa þá frægð sem honum hlotnað-
ist - fyrst í bók um hann og síðar
í vinsælum sjónvarpsþáttum er
gerðir voru eftir bókinni og er nú
verið að sýna á Stöð 2.
Það er Kevin Kostner er leikur
Ness. Hann er ekki mjög þekktur
leikari en þó munu margir minnast
hans í vestranum SUverado. Með-
leikarar hans eru ekki af verri
endanum. Robert de Niro leikur
A1 Capone og Sean Connery leikur
Jimmy Malone, reyndan lögreglu-
mann er gerist lærifaðir EUiots
Ness. Það er óhætt að lofa þeim
góðri skemmtun er skreppa í Há-
skólabíó um helgina. -HK
Kvikmyndahús
sem lýst er á eftirminnUegan hátt
í upphafsatriði, og svo reynslu
þeirra á vígvellinum sjálfum. í
heUd er Skothylkið vel gerð drama-
tísk kvikmynd. í aðalsal Bíóhallar-
innar er myndin Sjúkraliðarnir
sýnd, glæný gamanmynd í farsa-
formi sem gerist, eins og nafnið
bendir til, á sjúkrahúsi. Af öðrum
myndum má nefna Blátt flauel
(Blue Velvet), umdeUda en sterka
kvikmynd er lætur engan ósnort-
inn og gamanmyndina Seinheppna
sölumenn (Tin Man) sem svo sann-
arlega stendur undir heitinu
gamanmynd.
Regnboginn
Bandaríkjamenn eru iðnir við að
gera táningamyndir sem eiga að
gerast á sjöunda áratugnum. Sú
síðasta í röðinni er í djörfum dansi
(Dirty Dancing) sem notið hefur
töluverðra vinsælda vestanhafs að
undanfómu. Efni myndarinnar er
í þynnra lagi en lífleg tónlist ásamt
dansinum lyftir myndinni nokkuð
upp. Þá er óhætt að benda á nýj-
ustu kvikmynd Woodys AUen,
Útvarpsdaga (Radio Days), sem er
skemmtUeg kvikmynd um árdaga
útvarpsins. Riddari götunnar er
spennumynd sem óhætt er að mæla
með. FíaÚar hún um löggu sem er
að hálfu maður en að hálfu vél-
menni. -HK
Söfn - Söfn - Söfn'- Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn
Sýningar
Listasafn ASÍ,
Grensásvegi 16
Laugardaginn 5. des. kl. 17 verður sveiflan
í hávegum höfð í Listasafni ASÍ. Þá mun
Tríó Guðmundar Ingólfesonar leika fyrir
sýningargesti. í safninu stendur nú yfir
sýning á málverkum Tryggva Ólafssonar.
Sýningin er opin virka daga kl. 16-20 en
laugardag og sunnudag kl. 14-22. Henni
lýkur sunnudaginn 6. desember.
Listasafn Einars Jónssonar
við Njarðargötu
er opið alla laugardaga og sunnudaga kl.
13.36-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega frá kl. 11—17.
Listasafn Háskóla íslands
í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opið
djglega kl. 13.30-17. Þar eru til sýnis 90
verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri
listamenn þjóðarinnar. Aðgangur að safn-
inu er ókeypis.
Mokka,
Skólavörðustíg
Gunnar I. Guðjónsson sýnir vatnslita-
myndir, málaðar í Svíþjóð. Mokka er opið
daglega kl. 9-23.30.
Myntsafn Seðlabanka og
Þjóðminjasafns,
Ginholti 4
Opið á sunnudögum kl. 14-16.
Norræna húsið
v/Hringbraut
Nú stendur yfir sýning í Norræna húsinu
á 80 grafíkmyndum eftir 12 listamenn.
Sýningin er hingað komin á vegum „Graf-
iska sállskapet" sem er félag grafíklista-
manna þar í landi og er það elsta hreina
grafíkfélag í heiminum. Sýningin verður
opin daglega kl. 14-19 fram til 15. desemb-
er.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning Árna Magnússonar er í
Árnagarði við Suðurgötu á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum kl. 14—16.
Sjóminjasafn íslands,
Vesturgötu 8, Hafnaríírði
Opnunartími í vetur er laugardaga og
sunnudaga kl. 14-18. Skólafólk og hópar
geta pantað tíma í síma 52502 alla daga
vikunnar.
Póst- og símaminjasafnið,
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
Sýning í Landsbókasafni ís-
lands
Landsbókasafn efnir til sýningar í minn-
ingu tveggja alda afmælis Rasmusar Rasks
og er þar lögð aðaláhersla á þann þátt
ævi hans og verka er snýr að Islandi og
íslenskum fræðum. Sýningin var opnuð
23. nóvember og mun standa til áramóta
á opnunartíma safnsins mánudaga til
föstudaga kl. 9-19 og laugardaga kl. 9 12.
Listsýning frá Hvíta-Rússlandi
í húsakynnum MÍR, Vatnsstíg 10, stendur
nú yfir sýning á myndlist og listmunum
frá Sovétlýðveldinu Hvíta-Rússlandi. Á
sýningunni eru 73 grafíkmyndir, nær 200
munir úr tré og basti auk vefnaðar, 40
myndir eftir böm og um 100 bækur og
bæklingar. Sýningin er opin virka daga
kl. 17-18.30 og um helgar kl. 14-18. Að-
gangur er ókeypis. Henni lýkur á sunnu-
dagskvöld.
Málverkasýning hjá Kristjáni
Siggeirssyni hf.
Guðmundur W. Vilhjálmsson opnar laug-
ardaginn 5. des. málverkasýningu hjá
Kristjáni Siggeirssyni hf., húsgagnadeild,
Laugavegi 13. Á sýningunni verða um 30
myndir, aðallega vatnslitamyndir, flestar
gerðar á þessu ári og síðastliðnu. Sýningin
er opin á opnunartíma verslunarinnar.
Sýning í Gerðubergi
Nú stendur yfir í Gerðubergi sýning Ástu
Erlingsdóttur grasalæknis á um 40 vatns-
litamyndum. Flesta liti, sem Ásta notar,
hefurJiún sjálf blandað úr íslenskum jurt-
um. Sýningin er opin kl. 13-22 frá
mánudegi til fimmtudags og frá kl. 13-18
frá föstudegi til sunnudags. Myndirnar á
sýningunni eru til sölu og er aðgangur að
henni ókeypis. Sýningin stendur til sunnu-
dags 6. desember.
Listkynning Alþýðubankans á
Akureyri
Menningarsamtök Norðlendinga og Al-
þýðubankinn hf. kynna að þessu sinni
listakonuna Soffíu Ámadóttur. Á list-
kynningunni em 6 verk, 5 unnin með
blýanti og bleki á pappír og 1 dúkrista.
Sýningin stendur til 28. desember.
Gallerí Glugginn
Akureyri
Sfðasta sýningarhelgi á verkum Helga
Vilbergs.